Tíminn - 23.08.1986, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Laugardagur 23. ágúst 1986
Söngvari Greifanna, Felix
Bcrgsson. Bersýnilega örv-
aöi svcitin rennsli blóös um
æðar ungmeyjanna á Arn-
arhólnum...
sauðsw""^;
',nenn
IBubbi Morthens og Jakob Magnússon. Bubbi notaði tímann vel til að boða
trú sína og visku um hvað þjóðinni væri fyrir bestu.
Reykjavíkurborg tók fyrsta skrcf
sitt inn í þriðju öldina með glæsi-
brag. Um kvöldið, 19. ágúst, safnað-
ist saman mesti fjöldi manna í ís-
landssögunni til að hlýða á rokktón-
leika, en á hátíðarsviðinu við rætur
Arnarhóls þöndu íslenskar hljóm-
sveitir hið nýja hljóðkerfi Davíðs,
svo íbúar í nágrannabyggðalögum
hótuðu skotárás á afmælisgesti
linntu þeir ekki látum.
Af þeim hljómsveitum scm komu
fram tekur að nefna þrjár þeirra,
Greifana, sem bersýnilega nutu
mikillar hylli, Bubba Morthens, sem
slengdist um sviðið áhorfendum til
mikillar ánægju og loks Stuðmanna,
s.em löngu eru þjóðkunnir á íslandi,
Kína og í Vestmannaeyjum.
Reyndar rann á viðstadda tvær
grímur er Stuðmenn stigu á pall.
Ekki var allt með felldu, því aö þó
svo tónlistarmennina, sem kyrjuðu
bragi Stuðmanna, svipaði til þcirra í
fyrstu sjónhendingu var eitthvað
kengbogið við allt þeirra atferli.
Enda kom það á daginn þetta
kvöld að brögð voru í tafli og rcðust
hinir raunverulegu Stuðmenn í bún-
ingi varðmanna laga og reglu til
atlögu og upprættu svikafélagið sem
sigldi undir fölsku flaggi. Uppúr
því tóku tónleikar Stuðmanna á sig
mynd, enda allri hátíðinni sjónvarp-
að beinlínis til afnotagjaldenda.
Á huldu cr um áhorfendafjöldann
á Arnarhólnum, enda var myrkurog
sá ekki handa skil; sumir segja
12.000 manns, en aðrir segja að ckki
hafi verið færri en 20.000. Tón-
leikarnir fóru í flesta staði vel fram
og ölvun var ekki til vandræða.
I>j-
sson ’inn raunverulegi bregst við af ho^“iamynd.Pélut)
skóna hans.
...sem svo biðu sveitarmanna baksviðs. Hér er það
Bjössi greifi sem þær sópast að.
honmn'y eUtíst^sá
hlið á sviði. dð s a,u,a honum við
í 200 ára Reykjavík