Tíminn - 23.08.1986, Blaðsíða 5
Laugardagur 23. ágúst 1986
Tíminn 5
lllilllllllllllilllHlllll ÚTLÖND
Noregur:
lllllllllllllli
Skattaívilnanir
til olíufélaga
Norska stjórnin tilkynnti í gær um
ráðstafanir sem hafa í för með sér að
skattar á olíuvinnslufyrirtæki, sem
starfa innan norskrar lögsögu, lækka
um 25%.
í orðsendingu frá norska fjármála-
ráðuneytinu segir að þessar skatta-
ráðstafanir hafi verið gerðar til þess
að viðhalda áhuga erlendra olíufyrir-
tækja á að taka þátt í olíuvinnslu
Norðmanna þrátt fyrir hið lækkandi
verð á olíu á heimsmarkaði. Áætlað
er að þessi skattalækkun muni kosta
norska ríkissjóðinn um 2,4 milljarða
norskra króna eða sem nemur rúm-
um 13 milljörðum íslenskra króna á
tímabilinu 1987-1990.
Fyrr á þessu ári höfnuðu erlend
olíufélög hugmyndum stjórnarinnar
um skattaráðstafanir og töldu þær
ekki nægar til þess að gera olíu-
vinnslu í lögsögu Norðmanna arð-
vænlega.
í ráðstöfunum þeim sem til-
kynntar voru í gær verður m.a.
lagður niður sérstakur skattur á
nýjar lindir og framleiðsluskattur
hefur verið lækkaður úr 35% niður
í 30%. Norska fjármálaráðuneytið
segir að þetta þýði að skattabyrðin á
hreinan hagnað yrði skorin niður úr
85% í 65%.
UTLOND
Birgir Guðmundsson
Vangefinn
þýskur
drengur
sleppir
4000 minkum
Meira en 4000 ntinkar sluppu
lausir úr minkabúi á Norður-Jótlandi
í gær og að sögn bóndans á minka-
búinu, Knud Olsen stafar villtu dýra-
lífi í nágrenninu mikil hætta af þeim
minkum sem enn eru lausir. Tekist
hefur að handsama megnið af mink-
unum aftur, en ennþá eru um 150
dýr laus. Hann sagðist í gær hafa
látið alifuglabændur í héraðinu vita
strax um yfirvofandi hættu. Að sögn
Olsen var það vangefinn þýskur
drengur sem var á ferðalagi í sveit-
inni sem sleppti minkunum lausum.
Alls eru um 4.600 minkabændur í
Danmörku og framleiddu þeir 6,6
milljón skinn í fyrra.
Vonir bundnar við
hormóna í baráttunni
gegn krabbameini
Bandaríski nóbelsverðlaunahaf-
inn og krabbameinssérfræðingur-
inn dr. Andrew Schally, sem nú er
staddur á ráðstefnu um krabba-
mein í Búdapest sagði í gær að
hann gerði sér „gríðarlegar" vonir
um notkun hormóna í baráttunni
gegn krabbameini.
„Ég tel að gríðarlegir möguleik-
ar séu fyrir hendi varðandi notkun
hormóna í krabbameinsmeðferð í
framtíðinni," sagði dr. Schally við
fréttamann Reutersfréttastofunn-
ar. „Þessa stundina höfum við
mestan áhuga á meðferð krabba-
meins í briskirtli með þessum
hætti, en við stefnum jafnframt að
því að hækka það hlutfall brjósta-
krabbameins sem unnt er að með-
höndla með hormónum úr !ó upp í
sagði dr. Schally ennfremur.
Dr. Schally fann upp lyf sem
kallað hefur verið LH-RH, en það
hægir mjög á vexti æxla í ákveðn-
um tegundum krabbameins með
því að draga úr örvandi áhrifum
kynhormóna. Dr. Schally er eink-
um þekktur fyrir að vera brautryðj-
andi á sviði krabbameins í blöðru-
hálskirtli, en hefur nú einnig beint
athygli sinni að öðrum hlutum
líkamans.
LH-RH lyfiðernú notað í með-
ferð þúsunda sjúklinga með
krabbamein í blöðruhálskirlli, og
hefur leyst af hólmi eldri meðferð
sem oft og tíðum þýddi að frjósemi
viðkomandi var eyðilögð.
Nóbelsverðlaunahafinn sagði
ennfremur að hann teldi að miklum
árangri væri náð við meðhöndlun
krabbameins í blöðruhálskirtli, en
engu að síður væri nú unnið að því
að bæta þennan árangur enn
frekar.
Svíþjóð:
Njósnari
handtekinn
Maður var handtekinn í Hels-
ingjaborg í Svíþjóð l'yrir skömmu
grunaður um njósnir fyrir erlent
ríki. Maðurinn, sem er sænskur
ríkisborgari en fæddur í Tékkó-
slóvakíu, kom til Svíþjóðar á átt-
unda áratugnum og hcfur stundað
þar verslun og viðskipti. Hann hcfur
nú verið í gæsluvarðhaldi í níu daga,
og lögreglan hefur ckki viljað gefa
upplýsingar um það hvers konar
njósnir maðurinn hafi stundað, en
segir þó að það séu ekki iðnaðar-
njósnir.
Sænska útvarpið sagðist hins vegar
hafa það eftir áreiðanlcgum heimild-
um að maðurinn hafi annaðhvort
njósnað um flóttamenn frá Austur-
Evrópu eða að hann hafi stundað
njósnir í einhverju öðru landi en
haft bækistöð í Svíþjóð.
Bandaríkin:
Lækka vext-
ir aftur?
Efnahagssérfræðingar í Banda-
ríkjunum draga nú margir hverjir í
efa að sú lækkun forvaxta 6% í 5,5%
sem seðlabanki Bandaríkjanna til-
kynnti um í vikunni muni duga til
þess að rífa bandarískt efnahagslíf
upp úr þeirri lægð sem það nú er í.
Leiðtogi repúblíkana í öldungadeild
þingsins, Robert Dole, sagði til
dæmis á blaðamannafundi eftir að
lækkunin var tilkynnt, að nauðsyn-
legt væri að lækka forvexti enn
meira fljótlega.
Talið er að vaxtalækkunin muni
ekki duga til að örva þær greinar
atvinnulífs sem verst eru staddar,
eins og landbúnað, orkuiðnað og
iðnað.
Þessi lækkun forvaxta, um 0.5%,
er sú þriðja á þessu ári og hafa
forvextir í Bandaríkjunum ekki ver-
ið lægri í níu ár. Rök seðlabankans
voru þau að lækkunin kæmi vegna
lítils hagvaxtar og lítillar verðbólgu.
En efnahagsástandið í Bandaríkj-
unum verður ekki bætt nema tekist
verði á við hinn gífurlega viðskipta-
halla, sem gæti orðið um 170 mill-
jarðar dollara á þessu ári. Stjórnvöld
í Bandaríkjunum hafa því verið að
þrýsta á helstu viðskiptalönd sín,
Þýskaland og Japan, um að þau
reyni að auka eftirspurn hjá sér og
taka þannig mestu pressuna af
bandarísku efnahagslífi. Þetta gætu
þau m.a. gert með því að lækka vexti
hjá sér og fylgja fordæmi bandaríska
seðlabankans. Enn hafa ekki komið
fram ákveðnar yfirlýsingar um að
þessi lönd niuni lækka vcxti, en við
því er búist að Þjóðverjar geri það
jafnvel í næstu viku eftir að þýski
seðlabankinn heldur stefnumark-
andi stjórnarfund. Bandaríkjamenn
hafa tromp í bakhöndinni því þeir
segjast tilbúnir til að láta dollarann
falla mun meira en þegar er orðið til
að draga úr viðskiptahallanum ef
Þýskaland og Japan lækki ekki hjá
sér vextina og örvi eftirspurn.
Niðurstaða sérfræðinga er þó sú
að líklegast lækki vextir í þessum
löndum, sem ntyndi hafa í för með
sér lægri vexti á alþjóðamarkaði.
Slíkt verður að teljast æskileg þróun
fyrir skuldum vafið íslenskt efna-
hagslíf.
NOTAÐAR BÚVÉLAR
TIL SÖLU
ZETOR-7011 dráttarvél árg. ’81
MF-128 heybindivél árg. ’81
DUKS baggafæriband 15 m. m/1 fasa
rafmótor.
IH-444 dráttarvél árg. ’77
SPRAGELSE sláttutætari v. br. 150 cm
árg. ’84
TAARUP sláttutætari v. br. 130 cm árg. ’79
EGEBERG baggavagn (ónotaður)
URSUS-7385 dráttarvél árg. ’79
Greiðslukjör
Velaborg
Bútækni hf. Sími 686655/686680