Tíminn - 23.08.1986, Blaðsíða 1
LÁNSKJARAVÍSITALAN
hækkaöi um 0,95% frá ágúst til septem-
ber og gildir vísitalan 1486 fyrir septem-
ber. Samkvæmt þessu er veröbólgan
12% síðasta mánuð, 10,9% miöaö viö
þrjá síðustu mánuöi, 8,3% miðað viö
síöustu 6 mánuði og 19,9% miðað viö
síöustu 12 mánuði.
NORÐURLANDAMÓTg runn-
skólanna í skák verður haldið í Gerðu-
bergi í Breiðholti um næstu helgi, þ.e.
28.-31. ágúst. ísland mun senda tvær
sveitir á mótið, sveit Seljaskóla og sveit
Gagnfræðaskóla Akureyrar. (sland hefur
fimm sinnum unnið þetta mót síðan 1977
og þrisvar orðið í öðru sæti. Þar af vann
sveit Hvassaleitisskóla mótið þrjú ár í röð.
KRON hefur ráðið nýjan kaupfélags-
stjóra, Ólaf Stefán Sveinsson, en hann
tekur við af Ingólfi Ólafssyni sem hefur
verið kaupfélags-
stjóri frá 1963.
Ólafur er 28 ára,
viðskiptafræðing-
ur. Hann var kaup-
félagsstjóri á
Hrútafirði 1981-82
en hefur undanfar-
ið gegnt starfi fjár-
málastjóra hjá
Ágæti.
HERSTÖÐVA -andstæðingarhafa
mótmælt harðlega þeirri afstöðu utanrík-
isráðherra að leggjast gegn samþykkt
tillögu um skipan embættisnefndar um
kjarnorkulaus Norðurlönd, áfundi utanrík-
isráðherra Norðurlandanna. Seair í álykt-
un samtaka hernámsandstæðinga að
ekkert í samþykkt Alþingis vorið 1985 um
kjarnorkuvopnalaust svæði í Norður-Evr-
ópu, og utanríkisráðherra vísaði til, mæli
gean kjarnorkuvopnalausu svæði sem
miðist við Norðurlöndin ein.
ÍSLANDSLAX hefur ráðið Sigurð
Friðriksson viðskiptafræðing sem fram-
kvæmdastjóra stöðvarinnar á Stað í
Grindavík, sem er í eigu Sambandsins,
nokkurra samstarfsfyrirtækja þess og
norskra aðila. Sigurður starfaði við Hag-
deild Landsbankans í 10 ár, síðan sem
aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Iðn-
aðardeildar Sam-
bandsins á Akur-
eyri árið 1981 og
síðan aðstoðar-
framkvæmdastjóri
Fjárhagsdeildar
Sambandsins. Sig-
urður er kvæntur
Unni Færseth.
ÓSKOÐAÐIR bílar á G-númeri
ættu ekki að vera þar sem lögreglan sér
þá, þvi mikil herferð er nú í gangi hjá
lögreglunni í Hafnarfirði gegn óskoðuðum
bílum. Skoðun lauk um mánaðamótin
júlí-ágúst og því ættu allir að hafa haft
tækifæri til að koma skoðunarmálum
sínum á hreint fyrir löngu. Nú er klippt af
óskoðuðum bílum fyrirvaralaust hvar sem
þeir sjást.
9 ÁRA DRENGUR varð fyrirbíl
Merkigerði á Akranesi í gær um þrjú
leytið, en mun ekki hafa hlotið meiðsl af.
Bíllinn var ekki á mikilli ferð og talið er að
drengurinn hafi hlaupið fyrir bílinn.
LÖGREGLAN í ÍRAN gerði
upptækar gullstangir og mynt að verð-
mæti 7,5 milljón dollara sem hún fann í
trukk sem lagt hafði verið fyrir utan
Teheran í gær. ÞrírTyrkir voru handteknir
vegna þessa fundar, en gullinu hafði verið
smyglað inn í landið. Tollþjónar handtóku
einnig Tyrkja á leið yfir landamæri Tyrk-
lans oa Iran þegar þeir fundu gullstangir
að verðmæti 1,5 milljón dollara í bensín-
tanki bílsins.
KRUMMI
.. ætli þeir hafi
ruglast á Kópaskeri
og Kapeverde...
Ríkissjóður hættir
sölu spariskírteina
- Lífeyrissjóðirnir fá 6,5% vexti í stað 8%
Fjármálaráðherra hefur fundið
ráð sem hann ætlar að verði til þess
að lækka vexti r' landinu og þar
með að fá þá milljarða sem áætlað
er að lífeyrissjóðirnir láti renna í
húsnæðiskerfið á lægri vöxtum en
þeim 8% sem rætt hefur verið um
að undanförnu. Ráðið er að hætta
sölu spariskírteina ríkissjóðs, en
vextir af þeim ( um 8%) var sú
viðmiðun sem gengið var út frá að
lífeyrissjóðirnir fengju á sitt fé
samkvæmt nýjum húsnæðislögum
frá í vor.
Að sögn fjármálaráðherra hefur
sala spariskírteina gengið svo vel
að ekki sé ástæða til að rfkissjóður
keppi á næstunni um fjármagn við
banka og atvinnulíf. Enda hafi
þegar aflast ríflega sú fjárhæð sem
ráð var fyrir gert í áætlunum þessa
árs. Sala umfram innlausn sé um
600 millj. króna. Hefur því verið
ákveðið að hætta sölu spariskír-
teina um næstu mánaðamót og
a.m.k. þaðsemeftirerársins. Hins
vegar mun eigendum eldri skír-
teina sem innleysanleg verða síðar
á árinu - um 500-600 millj. króna
- verða gefinn kostur á að skipta á
þeim og nýjum skírteinum sem
bera 6,5% vexti.
Telur fjármálaráðherra ástæðu
til að ætla að þetta verði til þess að
lækka vexti annarra aðila sem
keppa um sparifé landsmanna. í
því sambandi megi hafa í huga
aukið frelsi innlánsstofnana til
vaxtaákvarðana, samkvæmt nýjum
bankalögum sem koma til frani-
kvæmda 1. nóvember n.k.
Þorsteinn Pálsson segir það hafa
Óvenjulegt llugfar sveif ylir
Keykjavik í gærmorgun og var
þar á ferðinni loftbelgur seni
lúngað er koniinn i tengslum
viðllugsýningiina á Keykjavík-
urilngv elli. Kollirún Halldórs-
dóttir. einn uinsjóiiarnianna
Kásar2, tók sér far með belgn-
iim og lýsti loftbelgstluginii í
beinni útscndingu. Þessi niynd
var tekin þegar belgiirinn var
að helja sig á loft.
rimamynd Gísli
verið markmiðið að nota hvert
tækifæri sem gæfist til vaxtalækk-
unar. Með þessu gerði
líka eins konar vopnahlé
keppninni við bankana um spariféð
í landinu jafnframt því sem þetta
komi inn á ávöxtunina hjá lífeyris-
sjóðunum.
Þessir 6,5% vextir verða væntan-
lega viðmiðanir í þeim viðræðum
sem halda áfram milli ríkisvaldsins
og lífeyrissjóðanna eftir helgina
um húsnæðislánakerfið, þó strangt
til tekið sé þarna ekki um boð
ríkisins á almennum fjármagns-
markaði að ræða, þar sem aðeins
eigendum eldri skírteina mun
standa hin nýju til boða. „Ég býst
við að við munum reyna að vera
sanngjarnir í samningunum - enda
sameiginlegt hagsmunamál okkar
og lífeyrissjóðanna að ná vöxtun-
um niður. Með meiri vaxtamun
mundi húsnæðiskerfið fljótt
sligast," sagði Þorsteinn.
BBC gerir
íslandsmynd
Á mánudag og þriðjudag eru vænt-
anlegir til landsins leiðangursmenn
á vegum ensku sjónvarpsstöðvar-
innar BBC, sem munu staldra við
í tíu daga við upptökur á stuttum
fræðsluþáttum um ísland.
Þættirnir, sem eru 5 mínútna
langir, fjalla hver um visst minni,
svo sem jarðskjálfta, gróðurfar,
dýralíf og hafís. Myndaflokkurinn
er nefndur Heimur morgundags-
ins, Tomorrows World.
Sjónvarpsmennirnir leitast við
að gera þættina spennandi og á-
hugaverða, en þeir eru gerðir í
þeim tilgangi að gera ýmsan fróð-
leik aðgengilegan almenningi, scm
hallar sér í sófann fyrir framan
sjónvarpið eftir amstur dagsins,
fremur en að taka sér góða fræðslu-
bók í hönd.
Bretarnir munu ferðast um land-
ið og meðal annars fljúga yfir
hafíssvæðin meðan á veru þeirra
stendur, en leiðangurinn hefur ver-
ið í undirbúningi um nokkurt
skeið. Þættir um ísland verða vænt-
anlega fimm talsins.
Þj
Kópasker:
Þróunarskipið
Fengur á rækju
- landar á Kópaskeri í 2 mánuöi
Þróunarskipið Fengur mun
hefja rækjuveiðar á mánudaginn
og landa aflanum á Kópaskeri.
Munu þessar veiðar skipsins
standa yfir í 2 mánuði, en eftir
það mun skipið halda af stað í
næsta þróunarverkefni sitt, en
ennþá er ekki að fullu ljóst hvaða
verkefni það verður.
Kópasker tekur skipið á leigu
þennan tíma og mun áhöfnin
verða að mestu skipuð heima-
mönnum, en skipstjórinn er frá
Húsavík. Sótt var um að taka
skipið á leigu til Þróunarsam-
vinnustofnúnar Islands sem á
skipið og í gær var samið um leigu
á skipinu til tveggja mánaða.
Útgerðarstjóri skipsins verður
Haraldur Sigurðsson frá Kópa-
skeri.
Fleiri skip hafa landað afla á
Kópaskeri að undanförnu, t.d.
Pagranesið frá Þórshöfn, Ver frá
Bakkafirði og Rauðinúpur frá
Raufarhöfn. Mikil breyting hefur
orðið á atvinnulífi á Kópaskeri til
batnaðar eftir að þessi skip fóru
að landa rækju þar, en allt er
óvíst með framhald fiskvinnslu
þar. Kópaskersbúar hafa verið
að leita eftir kaupum á skipi um
langan tíma, en verð á fiskiskip-
um er mjög hátt núna og því erfitt
um kaup.
Forráðamenn Fengs telja það
vera sinn hag líka, að skipið fari
á rækjuveiðar til Kópaskers,
vegna þess að þá gefist tækifæri
til þess að prófa tog- og spilbúnað
skipsins sem nauðsynlegt er fyrir
næsta verkefni skipsins.
ABS