Tíminn - 23.08.1986, Blaðsíða 3
Laugardagur 23. ágúst 1986
Tíminn 3
Sauðárkrókur:
Vatnsskortur að
gera vart við sig
Menn áhyggjufullir vegna sláturtíðar, ef ekki rætist úr málum
Vatnsskortur hcfur verið að gera
vart við sig á Sauðárkróki nú síðustu
daga og stafar hann einkum af
snjóléttum vetri og þurru sumri nú í
sumar. Ef ekki rætist úr vatnsmálum
Sauðkrækinga fyrir sláturtíð er Ijóst
að vandræðaástand skapast í
bænum.
Horfur eru þó á, að úr þessu
rætist, jafnvel þó úrhellisrigningar
verði ekki síðustu daga fyrir slátur-
tíð, vegna þess að Steinullarverk-
smiðjan er komin langt á veg með að
virkjaeigið vatnsból. Steinullarverk-
smiðjan á Sauðárkróki hefur þurft á
gífurlega miklu vatni að halda, eða
um 8-10 lítrum á hverri sekúndu
allan sólarhringinn. Núna hefur
vatnsveita Sauðárkróks um 32 lítra
á sekúndu, svo það lætur nærri að
verksmiðjan fái einn þriðja af öllu
fáanlegu vatni bæjarins.
Ef vatnsból Steinullarverksmiðj-
unnar verður ekki tilbúið þegar
sláturtíð hefst verður trúlega gripið
til þess ráðs að loka fyrir vatn til
bæjarbúa um tíma, því ekki er hægt
að vinna við slátrun nema nægilegt
vatn sé fyrir hendi. í sláturtíðinni s.l.
haust björguðust vatnsmál bæjarins
eingöngu á því að miklar rigningar
komu í hálfan mánuð áður en slátrun
hófst og bærinn naut góðs af þeim
rigningum alveg fram í nóvember að
sögn Páls Pálssonar vatnsveitustjóra
á Sauðárkróki.
Vatnsból Sauðárkróks er upp við
Veðramót og í Molduxaskarði sem
er 2 og 4 km frá bæum. Unnið er að
stækkun vatnsbólsins í Veðramóti.
Hingað til hefur verksmiðjan borgað
6,80 krónur fyrir hvert tonn af vatni
sem hún hefur keypt af bænum, svo
það lætur nærri að bærinn hafi
fengið um 1 milljón í tekjur fyrir
1 blaðinu í gær, var viðtal við
Sigurð Geirdal, nýráðinn fram-
kvæmdastjóra Framsóknarflokks-
ins.
Vegna mistaka birtist röng mynd
með því viðtali ogeru hlutaðeigend-
ur beðnir velvirðingar á því.
síðasta ár fyrir sölu á vatni til
verksmiðjunnar. Pað er því hag-
kvæmnissjónarmið sem ræður virkj-
unarframkvæmdum verksmiðjunnar
fyrst og fremst.
ABS
Meðfylgjandi mynd, sem átti að
birtast sýnir þegar Guðmundur
Bjarnason ritari Framsóknarflokks-
ins býður Sigurð velkominn til starfa
og afhendir honum lyklaaðskrifstof-
unni.
Myndabrengl
Framsókn þingar
á Sauðárkróki
Þingflokkur framsóknarmanna
mun halda þingflokksfund á Sauð-
árkróki um helgina.
Fundurinn hefst kl. 13.00 á
sunnudegi og verður síðan fram
haldið á mánudag.
Á sunnudagskvöldið verður opið
hús í Hótel Mælifelli og eru allir
flokksmenn velkomnir að líta þar
inn og tala við þingmennina.
Á mánudeginum ereinnigætlun-
in að heimsækja nokkur fyrirtæki á
Sauðárkróki og Hólastað.
Aðalumræðuefni fundarins
verður fjárlagaundirbúningurinn,
en einnig verða bankamál og
stjórnmálaviðhorfið tekið til um-
ræðu.
Greifarnir:
Einstakar vinsældir
Við val vinsældalista rásar 2 þessa
vikuna gerðist sá einstæði atburður
að hljómsveit kom öllum lögum
sínum á cinni plötu inn á sarna
listann. Þctta voru Greifarnir, ung
hljómsveit sem þegar hefur hlotið
miklar vinsældir. Voru þau orð þul-
arins, að ekkert laga þeirra kæmist í
fyrsta sæti, þar cr aðdácndur hljóm-
sveitarinnar hlutast niður á fjögur
lög.
Rikshaw er sú hljómsveit sem
næst hefur komist Greifunum; náði
öllum fjórum lögum sínum inn á
listann, en aldrei nema þremur í
einu. Engin erlend hljómsveit kemst
með tærnar þar sem þessar hljóm-
sveitir hafa hælana, hvað vinsælda -
lista rásar 2 varðar.
í 7. sæti að þessu sinni er „Útihát-
íð“ Greifanna, „Ég vil fá liana strax
(kortér í þrú)" er í 18. sæti, „Er þér
sama" í því 21. og loks er „Sólskins-
söngurinn" í 29. sæti. þj.
Greifarnir cru að fjoruni fimmtu
hlutum frá Húsavík, en söngvarann
fundu þeir í Rcykjavík.
Illlllllíílllllllljlill VEIÐIHORNIÐ ■ úl|l: m n 7::
Þorgeir Jónsson var allt í einu kominn á kríuveiðar. Kríunni leist vel á
fluguna sem ætlaður var urriðanum og vildi verða fyrri til og það tókst,
en sem betur fór varð henni ekki meint af lljótfærninni. Myndin er tckin
á urriðasvæðinu í I.axá upp við Mývatn.
Of gott veður
sums staðar
Sogið:
Fyrir fáeinum dögum voru
komnir 259 laxar úr Soginu, þar af
voru komnir 99 laxar við Alviðru,
85 við Ásgarð, 61 í Bíldfellslandi
og 14 í Syðri-Brú. Það hefur tekið
mjög misjafnlega við Sogið í sumar
og að undanförnu hefur verið „of
gott veður" fyrir laxveiðimenn.
Vitað var um einn fengsælan sem
hafði 9 laxa úr veiðisvæðinu við
Alviðru á fimmtudaginn og voru
þeir frá 5 og upp í 16 pund.
Laxá í Þingeyjarsýslu:
Veiði í ánni hefur gengið alveg
þokkalega að undanförnu að öðru
leyti en því að nú er orðið það
dimmt á kvöldin, að hætta verður
veiði um kl. 9 á kvöldin. Nú fyrir
helgi höfðu veiðst 1921 lax úr ánni
í sumar, en veiðisvæði í henni eru
7 talsins. Lítið hefur veiðst á svæði
fjögur í sumar þangað til nú fyrir
stuttu, að veiði fór að glæðast.
Á urriðaveiðisvæðinu í Laxá hef-
ur veiðst stór og feitur urriði. mun
stærri en í fyrra.
... Aftur í skólann
Úlpur á börn 2ja til 12 ára kr. 1.680
Jogginggallar á börn og unglinga kr. 795 og 990
Unglingabuxur frá 24" yil 32" verð frá kr. 495
H-PÓSTVERSLUNIN
H-HÚSINU
Símar:
20114-44440
kl. 12 til 22
Made in Skotland