Tíminn - 23.08.1986, Blaðsíða 11

Tíminn - 23.08.1986, Blaðsíða 11
Tíminn 11 Laugardagur 23. ágúst 1986 llllllllllllllllllllllllll IÞROTTIR .................. ................... ................. ...........Illlllllli. .;i!|l|lllllllllli!i:.. .... ............... ..........Illlllllllllllll.. ........Illllllllllll... .................................. - Sigurjón Kristjánsson skoraði sigurmarkið í síðari hálfleik Valsmenn héldu efsta sætinu í 1. deild nteð sigri á Víði frá Garði í Garðinum í gærkvöldi. Það var Sig- urjón Kristjánsson sem skoraði sigurmarkið í leik þar sem aðkontu- liðið var heldur sterkara. Víðismenn fengu þó algert dauðafæri rétt fyrir lok leiksins er Grétar F.inarsson var einn fyrir framan Guðmund í mark- Af kærumálum Tvö af kærumálunum miklu sem nú hafa gengið í knattspyrnunni í sumar fengu meðferð í dómskerfi KSÍ í fyrradag. Dómstóll KSÍ stað- festi leikbann það sem héraðsdóm- stóll Suðurnesja hafði lagt á Sigurð Björgvinsson leikmann Keflavíkur. Þar með telst Víðir Garði hafa unnið leik þann sem þeir töpuðu fyrir ÍBK 3-0 og breytist staðan í 1. deild nokkuð við þetta. Þá dæmdi héraðsdómstóll íþrótta- bandalags Hafnarfjarðar í kæru FH- inga á hendur Skagamönnum fyrir notkun á Pétri Péturssyni í leik félaganna. Komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að Pétur hefði verið löglegur í leiknum og úrslit hans standi. FH-ingar íhuga að áfrýja dómnum. Valsmenn og Pórsarar frá Akureyri hafa kært Skagamenn á sömu forsendum og FH-ingar, svo rnálaþrefi því sem enn einu sinni setur ljótan blett á knattspyrnuna cr ekki lokið. Öldungameistaramót FRÍ Meistaramót íslands í frjálsum íþróttum öldunga (konur 30 ára og eldri, karlar 35 ára og eldri) vcrður haldið á frjálsíþróttavellinum í Laugardal hclgina 30.-31. ágúst og hefst kl. 14:00 báða dagana. Kcppt verður í öllum vcnjulegum meistara- mótsgreinum sem næg þátttaka fæst í (minnst 3 skráðir fyrirfram) og höfð hliðsjón af tímaseðli Meistara- móts íslands. Þátttaka tilkynnist í síðasta lagi miðvikudagskvöldið 27.8. til öldungaráðsmanna (Höskuldur s. 667141/25088, Kjartan s. 52848/ 52046, Ólafur s. 75292/66133) eða til skrifstofu FRÍ (s. 83386/83686) inu en Guðmundur varðivel skot hans. Parna sluppu Valsmenn með skrekkinn en í heild var sigur þeirra sanngjarn. í fyrri hálfleik byrjuðu Valsmenn betur og Ámundi og Sigurjón áttu þokkaleg færi en Jón Örvar sá við þeim í hvert sinn. Víðismenn vörð- ust vel og fengu ágæt færi undir lok fyrri hálfleiks er Daníel Einarsson Iét verja frá sér. Um miðjan síðari hálfleik fær Sigurjón boltann inn í teig og nær skoti sem hafnar í stönginni. Hann var hinsvegar heppinn og fékk bolt- ann aftur og nú skoraði hann örugg- lega og tryggði Valsmönnum dýrmæt stig og áframhaldandi setu í efsta sæti deildarinnar. ■ Einar Vilhjálmsson náði sín- um besta árangri með nýja spjót- inu á móti í Svíþjóð í fyrradag. Einar hafnaði í öðru sæti á mót- inu með því að kasta 80,26 m en sigurvegari varð Svíinn Dag Wennlund sem þeytti spjótinu 80,66 m. Sigurður Einarsson hafnaði í fjórða sæti á mótinu mcð kast uppá rúma 78 metra. ■ Úlfar Jónsson, íslandsmeist- ari í golfi, náði góðum árangri á Doug Sanders-golfmótinu sem lauk ■ Skotlandi í vikunni. Úlfar varð í öðru sæti og lék holurnar 72 á 277 höggum sem er sjö höggum undir pari vallarins. Það var Skoti sem sigraði á mótinu á 273 höggum. ■ Eðvarð Þór Eðvarðsson komst ekki í úrslit í 100 m bak- sundi á HM í sundi í gær. Eðvarð varð í ll.sæti í sundinu sem er góður árangur en fyrir keppnina var honum raðað í 14. sætiö. Eðvarð synti í gær á 58,09 sek.en íslandsmet hans er 57,92. Þá synti Kagnheiður Runólfsdóttir í sinni síðustu grein í gær. Það var 200 m fjórsund en henni tókst ekki að komast í úrslitasundið. Ragnheiður synti á 2:29,53 mín en fslandsmet hennar er 2:26,40. íslandsmótið í knattspyrnu - 1. deild: ValurvannVíði Boltinn rúllar - Enska knattspyrnan hefst í dag í skugga óláta, fjárhagserfiðleika og brottfarar bestu leikmannanna íslandsmótið í knattspyrnu - 3. deild: Spennandi viðureign - Fylkir lagði ÍR á gervigrasinu 2-1 og nú á ÍK alla möguleika á 2. deildarsæti Fylkismenn reyndust ÍR-ingum erfiður ljár í þúfu er liðin mæftust í 3. deild A-riðli í gærkvöldi á gervi- mottunni í Laugardal. Fylkir sigraði í leiknum 2-1 og þar með er það ÍK sem á alla möguleika á að fara uppí Watson til Everton Everton keypti í fyrradag varn- armanninn Dave Watson frá Norw- ich fyrir eina milljón punda. Margir af varnarmönnum Everton hafa átt við meiðsli að stríða svo Howard Kendall, framkvæmdastjóri, varð að grípa til buddunnar. Watson hefur leikið 6 landsleiki fyrir England. Nú er ljóst að Bryan Robson, fyrirliði Man. United mun ekki spila með í leik United og Arsenal í dag. Robson var skorinn upp á öxl eftir HM og er ekki orðinn góður ennþá. 2. deild. ÍR er enn efst, hefur tvö stig á ÍK en ÍK á leik í dag gegn Ármenningum og geta skotist á toppinn með sigri. Fylkismenn skoruðu strax eftir um 7 mínútna leik er Baldur Bjarna- son skallaði knöttinn f netið eftir fyrirgjöf. ÍR-ingar hresstust og ekki leið á löngu þar til Halldór Halldórs- son jafnaði leikinn með skalla eftir hornspyrnu. Staðan í leikhléi var 1-1 og var það sanngjarnt. Rétt eftir miðjan síðari hálfleik skoraði síðan fyrrum ÍK-ingur Orri Hlöðversson með skalla eftir horn og tryggði sigur Fylkis. Enska knattspyrnan: Knattspyrnuvertíðin í Englandi hefst í dag. Þá verður fyrsta umferð- in í deildarkeppninni. Þetta keppn- istímabil verður án efa nokkuð sér- stakt hjá enskum. Nokkrir af topp- leikmönnum deildarinnar hafa farið erlendis og þeirra skörð verður erfitt að fylla. Þá virðast þær miklu vonir sem bundnar voru við góða fram- komu enskra áhorfenda á HM í Mexíkó hafa verið þurrkaðar út af vandræðum þeim er urðu á ferju á leið til Hollands svo og í Amsterdam þar sem enskir áhorfendur gengu berserksgang. Áhorfendum hefur einnig fækkað jafnt og þétt á leikjum og var síðasta keppnistímabil eitt- hvað það versta í manna minnum. Þetta gerir það að verkum að mörg liðanna, sérstaklega þau smærri, eiga við gífurlegan fjárhagsvanda að stríða og ramba reyndar nokkur þeirra á barmi gjaldþrots. En eins og áður þá eru það „stóru liðin" sem talin eru líklegust til að keppa um meistaratitilinn. Á síðasta keppnistímabili var það United sem leiddi lengst af en varð síðan að sjá á eftir titlinum í hendur Liverpool. Liverpool gerði enn betur því liðið var einnig bikarmeistari með sigri á nágrönnum sínum Everton. Öll þessi þrjú lið hafa orðið fyrir eða verða fyrir blóðtöku. Liverpool er búið að selja Ian Rush til ítalska liðsins Juventus en Rush mun þó spila með Liverpool þetta keppn- istímabil sem lánsmaður. Bara það að hann spilar með í vetur ætti að tryggja Liverpool meistaratitilinn á ný. Únited seldi Mark Hughes til Barcelona og Everton seldi mesta markarskorarann á síðsta keppnis- tímabili og markahæsta mann HM, Gary Lineker, einnig til Barcelona. Auk þessara þriggja liða þá verða væntanlega með í toppslagnum lið eins og Tottenham sem nú nýverið festi kaup á skoska landsliðsmannin- um Richard Gough, Arsenal sem verður undir stjórn fyrrum leik- manns Barónanna George Graham og Chelsea sem bætt hefur við sig tveimur nýjum leikmönnum. Það eru þeir Gordon Durie frá Hibernian í Skotlandi og Steve Wicks frá QPR. Að sjálfsögðu verða öll liðin með í baráttunni frá upphafi en svona lítur 1. umferðin sem spiluð verður í dag út: Arsenal - Man. United Aston Villa - Spurs Charlton - Sheff. Wed. Chelsea - Norwich Everton - Nott. Forest Leicester - Luton Man. City - Wimbledon Newcastle - Liverpool Southampt - QPR Watford - Oxford West Ham - Coventry í 2.deild veröa þessir leikir helstir: Blackburn - Leeds Brighton - Portsmouth Hull - WBA Ipswich - Grimsby SVÆÐISliTVARP REYKJAVÍKUROG NÁGRENNIS Stærsta flugsýning sem haldin hefur verið hérlendis hefst á Reykjavíkurfluavelli laugardaginn 23. ágúst kl. 14.00. Utvarpað verður frá sýningunni og hefst bein utsending kl. 13.30 og stendur til kl. 18.30 á FM 90.1 Þeir sem hug hafa á að fylgjast með sýningunni geta komið sér fyrir þar sem vel sér yfir flugvöllinn, haft með sér ferðatæki, horft á sýningaratriðin, hlustað á lýsingar, létta tónlist, viðtöl við framámenn í fluginu og við ofurhugana sem leika listir sínar í loftinu, á FM 90.1. l# RÍKISÚTVARPIÐ Meðal sýningaratriða verða hópflug, svif- drekasýning, flug í loftbelg, fallhlífarstökk, listflug, módelflug og flugsveitir ;herja 5 landa sýna. Það verður líf í loftinu yfir Reykjavík á laugardaginn og þá er bara að horfa til himins og hlusta á FM 90.1. Svæðisútvarp Reykjavíkur og nágrennis Efstaleiti 1 108 Reykjavík sími: 6-88-188 Auglýsingasímar: Lesnar auglýsingar - 2-22-74 Leiknar - 68-75-11.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.