Tíminn - 26.08.1986, Page 10

Tíminn - 26.08.1986, Page 10
10 Tíminn Blaðberar óskast STRAX / eftirtalin hverfi. Skerjafjörð Garðabæ H Tínilnn SIÐUMULA 15 í^k 686300 LÖGREGLUSTJÓRINN A KEFLAVÍKURFLUGVELLI Sfmí 92-1795 Lausar stöður Nokkrar stöður lögreglumanna eru lausar til um- sóknar. Umsóknareyðublöð fást hjá yfirlögregluþjónum og lögreglustjórum um land allt. Umsóknir ásamt tilskildum fylgiskjölum skulu hafa borist skrifstofu minni eigi síðar en 15. september nk. Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ A AKUREYRI Staða sérfræðings við Rannsóknadeild í meina- fræði við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 22. september nk. Upplýs- ingar um stöðuna veitir Margrét Snorradóttir, sérfræðingur deildarinnar í síma 96-22100. Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf, sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins, Halldóri Jónssyni. Stjórn Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Díselvél til sölu Upptekin Bedford díselvél til sölu. Vélin er 6 cyl 107 hö „end to end“. Upplýsingar í síma 98-2517. Hjartanlega þakka ég sonum mínum og tengdadætr- um og öðrum vinum og vandamönnum höfðinglegar gjafir, blóm og skeyti á 95 ára afmæli mínu þann 15. ágúst. Einnig þakka ég forstjóra Seljahlíðar ásamt öllu starfsfólki fyrir ómetanlega aðstoð. Lifið heil. Óskar Bjartmarz Innilegt þakklæti til allra sem glöddu mig á níræðisaf- mæli mínu 17. ágúst s.l. Guð blessi ykkur öll. Guðni Bjarnason, Austurvegi 1, Vík í Mýrdal llllllllllllllillllllll MINNING Þriðjudagur 26. ágúst 1986 Gísli Snæbjörnsson skipstjóri, Patreksfiröi Gísli Snæbjörnsson, útgerðar- stjóri, Aðalstræti 117, Patreksfirði andaðist á Landakotsspítala 16. þ.m. Síðast heyrði ég rödd þessa ágæta vinar míns fyrir rúmunt mánuði síðan. Ég átti þá við hann símtal til þess að leita frétta úr heimabyggð, ræða sameiginleg áhugamál og til þess að kveðja áður en við hjónin færum ' þriggja vikna ferð til út- L: Ja. Pá. datt mér síst í hug að þ„ na yrðu okkar síðustu kveðjur. Gisli var þá glaður og reifur ný kominn úr vel heppnaðri laxveiði- ferð og gat þess að hann væri óvenju frískur. - En enginn má sköpum renna. - Petta varð okkar síðasta kveðja áður en hann hélt í sína hinstu ferð, sem okkur er öllum búin fyrr eða síðar. Þó að þetta gerðist nokkuð óvænt held ég að Gísli hafi ekki verið vanbúinn til þessarar ferðar. Löngu og gifturíku ævistarfi var í raun lokið. Hann naut þess, eins og svo margir á hans aldri, að horfa um öxl og virða fyrir sér langt og að mörgu leyti viðburðaríkt ævistarf Gísli var vel þekkturogvel metinn í sinni heimabyggð og raunar víðar. Hann naut trausts og virðingar allra sem við hann áttu viðskipti. Hvar sem hann tók til hendi, en það var æði víða á langri ævi, vann hann að með atorku, dugnaði og sérstakri samviskusemi. Hann varð sinnar gæfu smiður með verkum sínum og lífsferli og eignaðist lífshamingju á vel búnu og stóru heimili. Gísli fæddist 4. maí 1914 að Tannanesi í Tálknafirði, sem var kotbýli við sjóinn utarlega í firðin- um, sem nú er löngu komið í eyði. Foreldrar hans voru hjónin Snæ- björn Gíslason og Margrét Guð- bjartsdóttir, sem þar bjuggu. Þau eignuðust 9 börn og var Gísli 5. í röðinni. Á Tannanesi voru litlar landnytj- ar. Sjórinn varaðal bjargræðisvegur- inn. Hafaldan brotnaði þar við grýtta og klettótta strönd. Brimhljóðið var undirtónn lífsbaráttunnar hjá fólk- inu í bænum við sjóinn. - Unga fólkið í dag getur á engan hátt sett sig inn í allt það erfiði og strit, sem háð var af íslenskri þjóð á stöðum sem þcssum. Oft var þröngt í búi hjá hjónunum á Tannanesi. En þau voru ung og hraust og tókst að koma upp stóra barnahópnum sínum. Gísli fór að heiman 10 ára gamall. Hann var þá tekinn í fóstur að Dufansdal í Arnarfirði af hjónum Guðmundi Bjarna Tómassyni og Sólborgu Jóhannesdóttur, sem þar bjuggu. Hann minntist oft veru sinnar þar. - Þeirrar hlýju og góðu umönnunar, sem hann naut hjá þessum ágætu hjónum. Yngri sonur hans er heitinn eftir bóndanum í Dufansdal. í Dufansdal kynntist Gísli íslensku bændalífi eins og það var í Vestfjörðum þá. Skólamenntunar naut Gísli engrar nema þeirrar takmörkuðu fræðslu, sem börn fengu á þessum árum í sveitum landsins. Gísli flutti frá Dufansdal strax eftir að hann hafði verið fermdur í kirkj- unni á Bíldudal. Hann fór þá til Patreksfjarðar var ráðinn til róðra á opnum vélbát. Frá þeim tíma sá Gísli fyrir sér sjálfur, en átti að sjálfsögðu alltaf athvarf hjá foreldr- um sínum, sem þá voru flutt að Lambeyri í Tálknafirði. Einnig var Lilja systir hans gift og búsett á Patreksfirði. Hann stundaði sjóinn af kappi, fyrstu árin á opnum bátum og síðar á togurum frá Patreksfirði og vertíðabátum þegar útgerð þeirra hófst frá Patreksfirði. Hann var alltaf eftirsóttur í skiprúm sökum dugnaðar og verklagni. Gísli undi því illa að vera alltaf annarra þjónn á sjónum. Fljótlega stefndi metnaður hans og framtaks- söm hugsun að því, að koma sér upp eigin útgerð og var svo komið í lok fjórða áratugarins að hann var orð- inn skipstjóri á þilfarsbáti, sem hann rak og átti í félagi með öðrum. Hann hafði þá aflað sér réttinda til þess að stýra 30 lesta fiskibát. Síðar öðlaðist hann réttindi til þess að vera skips- stjóri á 120 lesta fiskiskipi. Skips- stjórnin fór Gísla einkar vel úr hendi og lánaðist útgerðin vel. Gísli var félagshyggjumaður í hugsun og athöfnum. Hann gekk Sigurrós Jóhannsdóttir Sigurrós Jóhannsdóttir fæddist 23. ágúst, aðSkíðsholtum Hraunhreppi, Mýrasýslu. Dáin 18. ágúst 1986. Jarðvistin orðin löng og oft ströng, á 90 ára æviferli, fimm daga vantaði, að 91. æviárið væri útrunnið. Þá kom kallið. Sigurrós Jóhannsdóttir, kvaddi þennan heim eftir langan ævidag. Hvert var hennar ævistarf? Hvers konar málefnum hafði hún unnið að? Látum hana sjálfa svara. I inngangsorðum bókarinnar „Huglæknirinn og sjáandinn, Sigur- rós Jóhannsdóttir," segir meðal annars. „Ég hef gegnt köllun minni í 55 ár, einstæð ekkja. Maðurinn minn dá- inn og börnin uppkomin." Annað segir Sigurrós ekki um sín einkamál. Hver var sú köllun, er Sigurrós minnist á? Þar vísa ég til bókarinnar, sem nefnd var, sú bók kom út 1984 og geymir örfáar frásagnir um hið merka ævistarf Sigurrósar Jóhanns- dóttur, er segja meira en fáorðuð minningargrein. Ég sem rita þessi orð, kynntist Sigurrósu Jóhannsdóttur, árið 1980. Okkar kynning er stutt, en þó á þann veg að ég hlýt að minnast hinnar látnu heiðurskonu. Hvers er þá helst að minnast? Ég hef vísað til fyrrnefndar bókar, en þó skal þetta sagt. Sigurrós Jóhannsdóttir var trúuð kona, einlæg í trú sinni og bænalífi. Hún starfaði og bað í nafni frelsara vors og drottins, Jesú Krists. Hún svaraði jafnan er spurt var um lækn- ingaferil hennar og það lífsstreymi, er bænum hennar fylgdi: „Ég get engan læknað af eigin mætti. Bænin er mín aðferð, hvað þeim lækningum viðvíkur, sem gerast oft hjá þeim, er til mín leita, og biðja um hjálp. Það er máttur Jesú Krists, sem læknar.“ Þannig var það líka, Sigurrós bað, verkin töluðu. Trúin er dauð án verkanna,“ segir Jesús Kristur. Hann segir einnig. „Biðjið, og yður mun gefast.“ Sigurrós Jóhannsdóttir er horfin af voru lífssviði. Ég minnist hennar með þökk og virðingu. Ég bið um blessun guðs, öllum ættmönnum hennar til handa. Ég veit að hún þakkar heils hugar, alla þá aðhlynn- ingu, sem henni var veitt af vinum hennar. Sérstaklega mæli ég fyrir hennar hönd, þakkir til stofnana, lækna og þeirra, sem hjúkruðu henni síðustu árin sem hún lifði. Kveðjuorð mín til Sigurrósar, eru þakkarorð, fyrir bænasamstarfið í þessu lífi. Látinn lifir. Þórarinn Elís Jónssnn. Horfin yfir haf heim á ókunn lönd. Lífið gud oss gaf Gleðsl vor sál og önd. Heill þérfæri ogfrið fyrir unnin störf. Sjúkum lagðir lið, liðsemdin var þörf. Margur þakkar þér þína bœnagjörð. Verk, er vannstu hér, þó vœru kjörin hörð. Fátœk, byrði barst. Byrðin ei var létt. Ætið örugg varst. Eitt var markið sett. Það, að gera gott, gleðja þjáða sál. Öll bar um það vott þín iðja og bœnamál. Likn, er leiddi til að lœkning margur hlaut. Guðs við ástaryl elfdist dáð, í þraut. t Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma Helga Hjördís Hjartardóttir Hamraborg 30, Kópavogi lést í Borgarspítalanum 24. ágúst s.l. Jarðarförin auglýst siðar. Sigurður Siggeirsson börn, tengdabörn og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir Gísli Snæbjörnsson verður jarðsunginn þriðjudaginn 26. ágúst kl. 14.00 frá Patreksfjarðar- kirkju Guðrún Samsonardóttir Stella Gísladóttir Richard Kristjánsson Bjarney Gísladóttir Eyjólfur Þorkelsson SigríðurGísladóttir Magni Steingrímsson Snæbjörn Gíslason Kristín Finnbogadóttir Guðmundur B. Gíslason Hildur Valsdóttir Margrét Gísladóttir Hálfdán Þórhallsson Þ.E.J.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.