Tíminn - 26.08.1986, Síða 15
Þriðjudagur 26. ágúst 1986
Tíminn 15
ÚTVARP/SJÓN VARP
Sjónvarp kl. 20.35:
í gegnum tíðina:
Jón Ólafsson
kveður
í dag kl. 17 vcrður á sínum stað
á Rás 2 þátturinn í gegnum tíðina
og er það Jón Ólafsson sem er þar
á róli.
En þátturinn í dag er ekki alveg
venjulegur því að þar fer Jón sína
síðustu ferð í gegnum tíðina og
reyndar að híjóðnemanum að
sinni, því að hann er á förum til
útlanda og verður þar næsta árið.
Af þessu tilefni má búast við
óvæntum upþákomum - auk þess
sem hann heldur áfram að leika
„bestu" íslensku dægurlögin.
Verður skarð fyrir skildi á Rás 2
þegar Jón hættir að gantast við
hlustendur, hann hefur starfað við
Rásina frá upphafi.
Útvarp kl. 14.30:
Tónlistarmaður
vikunnar
Landsvirkjun hefur verið dugleg við virkjanaframkvæmdir á síðustu
árum. Myndin er af stöðvarhúsi Hrauneyjarfossvirkjunar.
LANDSVIRKJUN
Enn fá sjónvarpsáhorfendur að
kynnast starfi ýmissa orkufyrir-
tækja í tilefni Tæknisýningar
Reykjavíkur. í kvöld kl. 20.35
verður sýnd í sjónvarpinu stutt
kvikmynd þar sem farin er eins
konar hringferð um virkjanasvæði
Landsvirkjunar.
Landsvirkjun lét gera myndina í
tilefni Tæknisýningar Reykjavíkur
og ber ntyndin einfaldlega nafnið
Landsvirkjun.
Sjónvarp kl. 21.40:
ARFUR AFRÓDÍTU
Nú eru hálfnaðar sýningar á
myndaflokknum Arfur Afródítu
og í kvöld kl. 21.40 verður sýndur
5. þáttur af átta.
Síðasti þáttur var sýndur íyrir
hálfum mánuði og ekki nema von
aö hann sé svolítið farinn að fyrnast
í hugum áhorfenda. En eitthvað
rámar okkur í að sóst hafi verið
eftir lífi Eric Morrisons, vinar og
samstarfsmanns Barrys, bróður
Davids, og það var ekki einu sinni
farið dult með árásirnar! Það fæst
svo upp úr Eric að þeir Barry hafi
fundið helli íullan af fjársjóði, og'
sé það tilefni árásanna. En David
virðist alltaf vera jafnhissa hvað
sem á gengur!
Með aðalhlutvcrk fara Peter
McEnery og Alexandra Bastedo
og þýðandi er Jóhanna Þráinsdótt-
ir.
... er Vilhjálmur Vilhjálmsson
söngvari. Margir eiga góðar
minningar sem bundnar cru við
söng Vilhjálms, en hann söng mörg
vinsæl lög, bæði á skemmtistöðum
og inn á hljömplötur. Enn þann
dag í dag heyrast lög hans oft leikin
í útvarpið þö að nokkuð sé unt liðið
síðan hann lést.
Jónatan skammtar
Skammtað úr hnefa er nafn á
nýjum þætti á Rás 2, en hann
verður á þriðjudögum kl. 14-15 og
stjórnandi hans er Jónatan Garð-
arsson.
í þættinum verður leikin ný tón-
list í bland við eldri gullkorn. Eftir
3-fréttir verða leikin 2-3 lög frá
tónleikum. Þessir fróðleiksmolar
verða fastur liður í þættinum.
Höfundi Arfs Afródítu virðast
Miðjarðarhafseyjar hugstæðar. í
þeirri sögu gerast atburðirnir á
Kýpur, en í sjónvarpsþáttunum
Hver greiðir ferjutollinn? voru
söguslóðir á Krít. Þá þætti sýndi
Sjónvarpið í fyrra og þeir eru
mörgunt minnisstæðir.
Þriðjudagur
26. ágúst
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veöurfregnir.
8.30 Fréttir á ensku
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Olla og
Pési“ eftir löunni Steinsdóttur. Flöf-
undur les (14).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tónleik-
ar, þulur velur og kynnir.
9.45 Lesiö úr forustugreinum dagblað-
anna.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 „Ég man þá tíð“ Flermann Ragnar
Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Ste-
fánsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
13.301 dagsins önn - Fleilsuvernd.
Umsjón: Jón Gunnar Grétarsson.
14.00 Miðdegissagan: „Fólk á förum“
eftir Ragnhildi Ólafsdóttur. Elísabet
Jónasdóttir þýddi úr dönsku. Torfi Jóns-
son les (6).
14.30 Tónlistarmaður vikunnar Vilhjálmur
Vilhjálmsson.
15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20 Á hringveginum - Vesturland
Umsjón: Ævar Kjartansson, Ásþór Ragn-
arsson og Stefán Jökulsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Divertimenti a. Divertimento fyrir ein-
leiksflautu eftir Öisten Sommerfeldt. Per
Öien leikur. b. „OuattroTempi", divertim-
ento fyrir blásarakvintett op. 55 I fimm
þáttur eftir Lars-Erik Larsson. c. Divertim-
ento interotto fyrir 13 hljóðfæraleikara
eftir Adam Walacinski. Kammersveit frá
Vínarborg leikur, Andrej Dobrowolski
stjórnar.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpið. Umsjón: Vernharður
Linnet og Sigurlaug M. Jónasdóttir.
17.45 í loftinu. - FlallgrímurThorsteinsson
og Guðlaug María Bjarnadóttir. Tilkynn-
ingar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál Guðmundur Sæmunds-
son flytur þáttinn.
19.50 Fjölmiðlarabb. Guðrún Birgisdóttir
talar.
20.00 Ekkert mál. Ása Helga Ragnarsdóttir
stjórnar þætti fyrir ungt fólk.
20.40 Biskupsefni á banaslóð Ævar R.
Kvaran flytur erindi.
21.00 Perlur. Los Paraguayos og Los Indi-
os Tabajaras syngja og leika.
21.30 Útvarpssagan: „Sögur úr þorpinu
yndislega" eftir Sigfried Lenz. Vilborg
Rickel Isleifsdóttir þýddi. Guðrún Guð-
laugsdóttir les (6).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Ungir norrænir einleikarar Tónlist-
armenn frá Svíþjóð. a. Lars Jönsson
leikur á píanó Fantasíu i C-dúr op. 17
eftir Robert Schumann. b. Thomas Sund-
quist leikur á lágfilu og Bengt Forsbert á
píanó Sónötu op. 15 eftir Paul Juon.
23.15 Á tónskáldaþingi Þorkell Sigur-
björnsson kynnir.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar í þrjár mínútur kl. 9.00,
10.00,11.00, 15.00, 16.00 og 17.00.
Svæðisútvarp virka daga vikunnar frá
mánudegi til föstudags.
17.03-18.00 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík
og nágrenni - FM 90,1 MFIz.
17.03-18.30 Svæðisútvarp fyrir Akureyri
og nágrenni - FM 96,5 MHz.
Þriðjudagur
26. ágúst
9.00 Morgunþáttur i umsjá Ásgeirs Tóm-
assonar, Gunnlaugs Helgasonar og
Sigurðar Þórs Salvarssonar. Guðriður
Haraldsdóttir sér um barnaefni I fimmtán
mínútur kl. 10.05.
12.00 Hlé
14.00 Skammtað úr hnefa. Stjórnandi:
Jónatan Garðarsson.
16.00 Hringiðan Þáttur í umsjá Ingibjargar
Ingadóttur.
17.00 í gegnum tíðina Jón Ólafsson stjórn-
ar þætti um íslenska dægurtónlist.
18.00 Dagskrárlok.
Þriðjudagur
26. ágúst
19.00 Dansandi bangsar (Das Tanzbáren
Márchen) Þriðji þáttur. Þýskur brúðu-
myndaflokkur í fjórum þáttum. Þýðandi
Kristrún Þórðardóttir.
19.25 Úlmi (Ulme). Fjórði þáttur. Sænskur
teiknimyndaflokkur um dreng á víkinga-
öld. Sögumaður Arnar Jónsson. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvision
Sænska sjónvarpið)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Landsvirkjun. Stutt kvikmynd þar
sem farin er einskonar hringferð um
virkjanasvæði Landsvirkjunar. Myndina
lét Landsvirkjun gera I tilefni Tæknisýn-
ingar Reykjavikur.
20.50 Svitnar sól og tárast tungl. (Sweat
of the Sun, Tears of the Moon) Fjórði
þáttur. Ástralskur heimildamyndaflokkur
I átta þáttum um Suður-Ameríku og
þjóðirnar sem hana byggja. I þessum
þætti verður sjónum beint að hinni frægu
kjötkveðjuhátíð í Ríó. Þýðandi og þulur:
Óskar Ingimarsson.
21.40 Arfur Afródítu. (The Aphrodite Inher-
itance) Fimmti þáttur. Breskur saka-
málamyndaflokkur I átta þáttum. Aðal-
hlutveríc Peter McEnery og Alexandra
Bastedo. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
22.25 Framtíð íslenskra flugmála. Um-
ræðuþáttur í umsjón Ómars Ragnars-
sonar.
23.10 Fréttir i dagskrárlok.
Svæðisstjórn
málefna
fatlaðra
Reykjavík
Umsóknir um fjárveitingu úr Framkvæmdasjóði
fatlaðra árið 1987.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra í Reykjavík auglýsir eftir
umsóknum um fjárveitingu úr Framkvæmdasjóði fatl-
aðra fyrir árið 1987.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu okkar að Hátúni 10.
Sími 621388. Umsóknir þurfa að hafa borist Svæðis-
stjórn fyrir 10. sept. n.k.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra í Reykjavík.
m IAUSAR STÖÐUR HJÁ
T REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða fóstrur og aðstoðarfólk á
deildir eftirtalinna heimila:
Dagheimilin Dyngjuborg og Múlaborg.
Dagheimili/leiksk. Grandaborg og Hálsakot.
LeikskólanaTjarnarborg, Njálsborg og Holtaborg.
Skóladagheimilið Hólakot v/Suðurhóla.
Upplýsingar veita forstöðumenn viðkomandi heim-
ila og umsjónarfóstrur á skrifstofu Dagvistar barna
í símum 27277 og 22360.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Lyfjatækniskóli
íslands
Hér með framlengist umsóknarfrestur um starf
skólastjóra Lyfjatækniskóla íslands.
Starfið veitist frá 1. október 1986.
Umsóknir skuiu hafa borist ráðuneytinu fyrir 26.
september n.k.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
25. ágúst 1986
Kennarar
Reykhólaskóla í A-Barðastrandarsýslu vantar einn
kennara næsta vetur við almenna kennslu í 0-9 bekk.
í skólanum eru 55 nemendur og rúmlega 20 í
heimavist. Heimavistargæsla er því í boði. íbúð í
skólanum á góðum kjörum. Nánari upplýsingar veitir
skólastjóri Steinunn Rasmus í síma 93-4807 og
93-4731.
Skólastjóri
Frá Kvennaskólanum
í Reykjavík
Skólinn verður settur mánudaginn 1. september
kl. 9.00 árdegis.
Skólastjóri
Óska eftir vinnu
33 ára karlmaður óskar eftir vinnu á bújörð. Er með
9 ára dreng.
Upplýsingar í síma 96-71858.
Akranes
Aðalfundur Framsóknarfélags Akraness verður haldinn mánudaginn
1. september kl. 20.30 í Framsóknarhúsinu við Sunnubraut.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Umræða um væntanlegt kjördæmaþing.
3. Önnur mál.
Stjórnin__________________________________