Tíminn - 29.08.1986, Page 1
SKYNDILOKUN dragnóta
svæöa út af Patreksfirði, Arnarfiröi og
Dýrafiröi hefur tekið gildi. Einnig hefur
svæðum fyrir noröan og austan veriö
lokað fyrir togveiðum. Alls eru þetta 7
svæöi sem lokuð eru nú og ástæða
lokana þessara er að mikill smáfiskur
hefur fundist í afla báta af þessum
svæðum. Ef meira en 20% aflans er undir
55 cm er viðkomandi veiðisvæði lokað
þar til breyting verður á. Skyndilokanir
gilda í viku en eru framlengdar ef þörf
krefur.
SKREIÐARSENDING sú
sem nú er á leiðinni til Nigeríu með
leiguskipi virðist ætla að sleppa þar inn
því greiðsla fyrir flutningskostnaðinn hef-
ur nú borist fslensku umboðssölunni hf.
sem sér um skreiðarsendinguna. Engin
greiðsla hefur enn borist fyrir skreiðina
sjálfa.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN
hf. hefur keypt 51% hlutabréfa í Reyk-
vískri endurtryggingu um leið og hlutafé
R.T. hefur verið aukið. Reykvísk endur-
trygging verður þó rekið sem sjálfstætt
fyrirtæki, en rekstur þess hefur gengið vel
á undanförnum árum að því er segir í frétt
frá tryggingafélögunum.
PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins
á Vestfjörðum fyrir næstu alþingiskosn-
ingar verður 11.-12. október nk. og verður
kosið í fjögur efstu sæti listans. Allir
flokksbundnir sjálfstæðismenn hafa rétt
til þátttöku svo og þeir sem undirritað hafa
stuðningsyfirlýsingu við flokkinn.
BISKUPjNN fær fullan stuðning
þátttakenda á kristilegu móti sem haldið
var á Ástjörn um síoustu helgi við þá
afstöðu gegn fóstureyðimgum sem fram
kom í hirðisbréfi biskuþs. I mótinu tók þátt
fólk úr öllum kristilegum söfnuðum á
Akureyri og víðar.
SKÁKMEISTARAR úr óiym
þíuliði íslands munu bjóða sýningargest-
um á sýningunni Heimilið '86 að etja
kaþpi við sig. Á sýningunni, sem opnaði í
gær, verður sérstakur skákbás þar sem
skákmennirnir munu skiptast á að tefla
við gesti daglega mili 16 og 19.
BÍTLAMINJAGRIPIR seldust
á uppboði í London í gær fyrir um 13
milljónir íslenskra króna. Þarna var um að
ræða óhrjálegan gítargarm sem George
Harrison mun hafa keypt af vinkonu
þegar hann var 13 ára, myndir, gullplötur,
bréf, plaköt og ýmislegt annað sem var í
eigu hljómsveitarinnar. Gítarinn keypti
amerískur milljóneri fyrir um 250 þúsund
íslenskar krónur; að því að talið er sá hinn
sami og keypti Rolls Royce úr eigu John
Lennon í fyrra fyrir 120 milljónir króna
keypti nú fólksvagninn sem sást á umslagi
Abbey Road fyrir gjafverð, 120 þúsund
krónur.
EKKJUSTAND hefur ekki alltaf
verið talið eftirsóknarvert en þegar verka-
maðurinn Eddie Cooks var jarðaður í Fort
Worth í Texas í gærfylltist kirkjugarðurinn
af ekkjum hans. Ao minnsta kosti sjö
konur héldu því fram að þær væru ekkja
Eddies og fjölskyldu hans hefur ekki tekist
að skera úr hver eða hverjir hafa rétt fyrir
sér.
KRUMMI
í hvoru liðinu
ætli Guðmund-
ur Kjærnested
verði...?
Er þorskastríð yfirvofandi í Vestmannaeyjum?
Vilja eignast eigin
fiskveiðilandhelgi
Mikill áhugi cr fyrir því í Vest
mannaeyjum, að eyjan eignist eig-
in landhelgi og ráðstafi henni að
eigin vild. Hins vegar eru hags-
munaaðilar í Vestmannaeyjuni
ekki sammála um það hvernig
landhelgin eigi að vera, hvort hún
eigi að vera þrjár mílur út af
Heimaey eða þrjár mílur kringum
allar eyjarnar eða hvort hún á að
vera færri eða fleiri mílur. Enn-
frcmur er rætt um það hversu
langan tíma á ári eigi að friða
viðkomandi landhelgi fyrir öllum
veiðum og hverjir eigi að fá að
veiða innan hennar á öðrum
tímum.
Tíminn hafði samhand við Hilm-
ar Ásgeirsson útvegsbónda í Vest-
mannaeyjum og sagði hann að það
væri flestir sammála um að núver-
andi ástand væri ómögulegt og
ennfremur að hann ætti von á því
að ekki liði á löngu þar til atvinnu-
málancfnd færi þess á leit við
bæjaryfirvöld að þau sendu ráðu-
neytinu beiðni um breytingar á
reglum um veiðar við eyjarnar
hverjar sem þær yrðu.
Atvinnumálanefnd Vestmanna-
eyjabæjar hélt fund um málið á
miðvikudaginn s.l. og sýndist
Hilmari þá að menn myndu cinna
helst verða sammála um að biðja
um þriggja mílna landhelgi í kring-
um Heimaey og að hún yrði lokuð
fyrir öllum veiðum í fimm mánuði
á ári, frá september til febrúar og
aðra mánuði ársins yrðu einungis
trillur sem fengju að veiða innan
landhelginnar.
„Það eru stór skip, allt að tvö-
þrjúhundruð tonna skip sem eru
að toga hér alveg inn í höfn og þar
sem mikið er af litlum bátum,
trillum og dekkbátum, þá finnst
mörgum eðlilegt að þeir fái að vera
í friði með svæðið næst landi, því
þcssir bátar geta ckki sótt cins
langt á miðin og togararnir," sagði
Hilmar. Hann sagði að þessi hug-
mynd hcfði af og til verið rædd
síðustu 20 árin en það væri einna
helst nú sem menn væru að verða
sammála um hvernig landhelgin
eigi að vera.
Skriðjöklar sjá um hestinn
Skriðjöklarnir akureysku komu til Reykjavíkur í „opinbera heimsúkn" í gær og á Reykjavíkurflugvelli biðu þeirra að sjálfsögðu hestar með
fullum reiðtygjum.Áþessum fararskjótum ferðuðust Skriðjöklarnir um borgina, heimsóttu m.a. nýju útvarpsstöðina og hringdu í Rás 2.
Tímamynd: Pétur
Sauðfjárveikivarnir:
Loðnan:
Rafmagnsgirðing
á milli fjarða
- til varnar riðuveiki á Barðaströnd
Sauðfjárveikivarnir eru að reisa
sauðfjárveikivarnagirðingu frá
Ósafirði sem er innfjörður Patreks-
fjarðar og yfir í Trostansfjörð sem
er innfjörður Arnarfjarðar.
Girðingin er 43 kílómetra löng
rafmagnsgirðing með 5 strengjum.
Þetta er önnur rafmagnsgirðingin
sem sauðfjárveikivarnir girða, en
áður hafði í vor verið girtir 8
kílómetrar í eldhrauninu í Skafta-
fellssýslu og einn rafmagnsstrengur
var settur til styrkingar gaddavírs-
girðingu frá Miðfirði og inn á
Arnarvatnsheiði.
Ákvörðun var tekin um þessa
girðingu þegar Ijóst var að bændur
í hreppum á Barðaströnd þurftu að
slátra öllu fé sínu vegna riðuveiki
árið 1984. Nú að tveimur árum
liðnum er þeim heimilt að kaupa
líflömb gegn því að setja þau beint
á hús þar til girðingin verður tilbúin
næsta vor. Áætlað er að girðingin
kosti um 5 milljónir. Rafmagns-
girðingar eru miklu ódýrari heldur
en gaddavírsgirðingar og raf-
magnsnotkun vegna þeirra er ekki
umtalsverð.
-ABS
FLOTINN
Á LEIÐ TIL
JAN MAYEN
Aðeins tveir loðnubátar
höfðu tilkynnt um afla síðdegis
í gær, en loðnuflotinn hefur nú
gefist upp á veiðum á miðunum
út af Vestfjörðum. Framanaf
hömluðu straumar nokkuð
veiði á því svæði, en þegar
straumarnir minnkuðu hvarf
loðnan. Flotinn var í gær aftur
á leiðinni á miðin við Jan
Mayen, og bjóst Andrés Finn-
bogason hjá Loðnunefnd við
að fyrstu bátarnir yrðu komnir
þangað í nótt eða snemma í
morgun. B