Tíminn - 02.12.1986, Page 19
Þriðjudagur 2. desember 1986
Tíminn 19
MINNING
III lllllllílllllllllllllllllllAIIII!
i'lll'i
Valgeir Hólm
Axelsson
Fæddur 14. júní 1931 -
I dag fer fram frá Akureyrarkirkj u
útför Valgeirs Axelssonar aðst.lög-
regluvarðstjóra á Akureyri.
Hann lést 23, nóvember sl. á
Landspítalanum í Reykjavík eftir
stutta en erfiða sjúkdómslegu.
Valgeir var fæddur þann 14anda
júní 1931, sonur hjónanna Axels
Jóhannssonar og konu hans Þor-
gerðar Ólafsdóttur sem bjuggu á
Torfum í Hrafnagilshreppi, Eyja-
firði.
Axel lést fyrir nokkrum árum en
Þorgerður dvelur nú á Akureyri.
Valgeir ólst upp hjá foreldrum sín-
um ásamt systkinum sínum en á
sautjánda aldursári fer hann að
heiman og fer til náms að bænda-
skólanum á Hólum í Hjaltadal, enda
þótti skólanám þar góður kostur
fyrir unga bændasyni sem vildu afla
sér staðgóðrar þekkingar fyrir vænt-
anlegan atvinnurekstur við landbún-
að.
Hann dvaldi tvo vetur við nám í
Hólaskóla og nýtti sér vel þá kennslu
sem þar bauðst.
En hann sótti fleira til Hóla en
fróðleik úr námsbókum og starfi,
því þar kynntist hann þeirri konu
sem varð hans lífsförunautur alla tíð
síðan. Sú kona er Ragnheiður A.
Sigurðardóttir, dóttir hjónanna Sig-
urðar Ingimars Arnljótssonar og
konu hans Jóhönnu Lilju Jóhannes-
dóttir sem síðast bjuggu í Saurbæ í
Kolbeinsdal, Skagafirði.
Eftir að hafa útskrifast úr Hóla-
skóla fór Valgeir ásamt unnustu
sinni heim að Torfum og hófu þau
bráðlega búskap þar á móti foreldr-
um hans. Á Torfum bjuggu þau um
fimmtán ára skeið en þá taka þau sig
upp og flytj a búferlum til Akureyrar.
Valgeir hafði stundað löggæslu-
störf samhliða búskapnum um árabil
en þegar þau flytja til Akureyrar
gerðist hann fastur starfsmaður í
lögregluliði bæjarins og starfaði þar
síðan til dauðadags.
Þeim hjónum varð fjögurra barna
auðið og er það yngsta enn á
bernskuskeiði. Elst er Jóhanna
Lilja, var gift Fétri Pálmasyni og
eiga þau tvö börn, Ragnheiði Örnu
og Tómas Pálma, Vífill blikksmíða-
meistari á Akureyri, Birkir og
Hjördís.
Þau Valgeir og Ragnheiður
bjuggu sér og börnum sínum fagurt
heimili, fjölskylduböndin voru sterk
og allir í fjölskyldunni virtust vera
meðvitaðir um þann sannleik að ást
og kærleikur er með því mikilsverð-
asta í lífinu.
Það var ánægjulegt að koma í
heimsókn á heimili þeirra, ég er
þetta rita naut þess að heimsækja
þau Valgeir og Ragnheiði systur
mína, þar á heimili ríkti friður og
hlýleiki, þeim var í blóð borin gest-
risni og sýndu öðrum alúð og um-
hyggju svo öllum leið vel í návist
þeirra.
Það voru ómetanlegar stundir að
dvelja með þeim í húsi þeirra í
Kringlumýri efst á höfðanum, þar
var víðsýnt út Eyjafjörð og til fjall-
anna austan fjarðarins, sú fegurð
sem þar mætti sjónum á sólríkum
sumarkvöldum er ógleymanleg.
Það er erfitt að sætta sig við að
heimilisfaðirinn í þessari samhentu
fjölskyldu sé nú svo skyndilega kall-
aður burtu, en um lögmál lífs og
dauða tjáir ekki að deila, harmur
fjölskyldunnar er þungur að bera en
minningin er eftir, minning um ljúf-
menni sem öllum vildi gott gera og
virkaði mannbætandi á hvern sem
honum kynntist, við samferðamenn
hans eigum margt að þakka.
Ég votta eftirlifandi eiginkonu,
börnum þeirra og öðrum aðstand-
endum innilega samúð, ég trúi að
minningin um góðan dreng verði
þeim huggun því minning um Val-
geir Axelsson er fögur minning.
Blessuð sé minning hans.
Ari Sigurðsson
Mig langar með örfáum orðum að
kveðja mág minn, eftir áratuga langa
og góða vináttu.
Mín fyrstu kynni af Valgeiri hófust
þegar við Freyja systir mín fórum í
heimsókn norður í Eyjafjörð að
heimsækja Ragnheiði systur okkar,
sem þá var trúlofuð Valgeiri og
höfðu þau hafið búskap að Torfum.
Við vorum hálf feimnar og uppburð-
arlitlar, en sú feimni hvarf er við
höfðum dvalið stuttan tíma á því
ágæta heimili sem þar var, en þau
bjuggu þar í sambýli með foreldrum
Valgeirs.
Það er skemmst frá því að segja
að kynni okkar Valgeirs urðu með
þeim ágætum að ekki hefur liðið það
sumar að ekki hafi verið farið í
heimsókn á heimili þeirra, fyrst í
sveitina með börnin meðan þau voru
ung og síðan til Akureyrar eftir að 1
þau Ragna og Valgeir fluttu þangað.
Þær eru margar ánægjustundirnar
sem ég og fjölskylda mín höfum átt
á þeirra góða heimili bæði fyrr og
síðar.
Ég kveð Valgeir mág minn með
kæru þakklæti frá okkur Sigga og
börnunum. Rögnu systurogbörnun-
um bið ég guðs blessunar.
Hulda Sigurðardóttir.
LESENDUR SKRIFA
11111!
1111
Hugleiðingar
um eiturlyf
í flestum dagblöðum er ég les og
líka í útvarpi er oft skýrt frá þeim
vandamálum er varða innflutning á
eiturlyfjum, sem flutt eru inn til
íslands. - Ég hef aldrei séð birt nöfn
þeirra manna sem gera það. Það er
bara skrifað um þetta vandamál og
menn sumir hverjir settir í fangelsi,
svo sem réttlætanlegt er. Einnig fá
menn sektir fyrir þennan innflutn-
ing. Flestir eru þetta ungir ævintýra-
menn. Þetta getur verið stórgróði, ef
þeim tekst það. Það munu flestir
þessara unglinga vera eignalausir,
og því er það lilgangslaust að sekta
þá. Það eina sem gildir er að nefna
nöfn þessara manna og birta myndir
af þeim. Þjóðin mundi líta niður á
þá.
Það er oft skrifað um það, að
sjómenn séu með smyglað vín og
tóbak. Vínið og tóbakið er gert
upptækt, og Ríksisjóður íslands hef-
ur tekjur af þeim innflutningi, þegar
í hann næst. Ég lít á þennan vín-
innflutning sjómanna allt öðrum
augum. Það eru sjómennirnir sem
skapa gjaldeyrinn. Þó svo þeir komi
með eitthvað meira vín til landsins
en er leyfilegt, er betra að þeir geri
það en eyði gjaldeyri sínum í hóru-
krám utanlands og flytji inn kynsjúk-
dóma.
Hvað geta sjómenn gert við sinn
gjaldeyri? Flestir vilja eyða honum í
eitthvað sem þeir geta þénað á. - Þá
má geta þess, að margt fullorðið fólk
fer utan í innkaupaferðir til að
kaupa föt á sig og meira cn lcyfilegt
er. Það mun leyfilegt að flytja inn
fatnað og ýmislegt glingur fyrir kr.
7.000,-. Flestir gera það og sumir
langtum meira, svo sem skiljanlegt
er, því að nú fær fólk gjaldeyri eins
og það óskar eftir. Einnig fæst
gjaldeyrir utan banka í stórum stíl á
réttu verði. Ég lít svo á, að íslenskt
ferðafólk fái allt of mikla ferðapen-
inga. Það er óeðlilegt, að skemmti-
ferðafólk fái svona mikla ferðapen-
inga, þegar gjaldeyrisstaða íslands
er neikvæð. - Fjármálaráðherra og
ríkisstjórn ættu að skammta gjald-
eyri meira en gert er í dag. Um
víninnflutning er það að segja, að
allur fjöldinn gefur sitt vín vinum
sínum, en af því leiðir, að það er
drukkið meira og jafnvel selt meira
vín í Áfengisverslun ríkisins.
Grímur Ögmundsson.
BUNADARDEILD
ÁRMÚLA3 REYKJAVIK SIMI 38900
REIME
flórsköfur
létta störfin
Ertu leiour ^
á mokstrinum?
ARMULA3 REYKJAVlK SlMI 38000
Fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar
1987
Nú stendur yfir gerö fjárhagsáætlunar Reykjavík-
urborgar fyrir árið 1987. Athygli borgarbúa, svo og
hagsmunasamtaka (t.d. íbúasamtaka), er vakin á
að óskir, tillögur og ábendingar varðandi gerð
fjárhagsáætlunarinnar þurfa að hafa borist borg-
arráði fyrir 12. desember nk.
Borgarstjórinn í Reykjavík
28. nóvember 1986.
Á mölinni mætum;
með bros á vör —
efbensíngjöfin
er tempruð,-