Tíminn - 02.12.1986, Qupperneq 23
\
Þriðjudagur 2. desember 1986
ÚTVARP/SJÓNVARP
Tíminn 23
Glópagull
- ný miðdegissaga
©
Kl. 14.00 í dag hefst á
Rás 1 lestur sögunnar
Glópagull, ævisögu-
þætti eftir Þóru Ein-
arsdóttur. Hólmfríður Gunnars-
dóttir bjó til flutnings og byrjar
lesturinn.
Þóra Einarsdóttir fæddist árið
1913 á Hvanneyri, tvítug varð
hún prófastsfrú í Suðursveit.
Átta árum síðar fluttist fjölskyld-
an til Reykjavíkur og Þóra hóf
þar fljótlega störf að mannúðar
og félagsmálum. Hún stofnaði
fangahjálpina Vernd og var for-
maður þeirra samtaka í rúm 20
ár. Um skeið fluttist hún vestur
á Mýrar og rak þar drykkju-
mannahæli. Þegar hún komst á
eftirlaunaaldur hætti hún hjá
Vernd og lagðist í ferðalög til
Indlands. Þar kynntist hún ýmsu
stórmenni svo sem Móður Ther-
esu og Indiru Gandhi. Ekki leið
þó á löngu áður en hún var
komin til hinna fátæku uppi í
fjöllum Suður-Indlands og á vit
þeirra hefur hún farið nokkrar
ferðir síðan. Þegar heim kom tók
hún við formennsku í Indlands-
vinafélaginu af Sigvalda Hjálm-
arssyni þar til á þessu ári að hún
baðst undan endurkjöri.
Glópagull er samsafn nokk-
urra minningaþátta úr viðburða-
ríkri ævi Þóru. Þættirnir eru
skrifaðir á löngum tíma og að-
eins brot af langri, ósagðri sögu.
Sagan er 10 lestrar.
Skynsemin bíður ósigur
— fyrir hálfri öld
Kl. 21.30 sýnir Sjón-
varpið 3. þáttinn í
þýska heimilda-
myndaflokknum um
heiminn fyrir hálfri öld.
Skynsemin bíður ósigur nefnist
hann og er sjónunum nú helst
beint að Þýskalandi, Austurríki,
Ítalíu og Spáni.
Uppgangur nasista og fasista
í þessum löndum, undir forystu
Hitlers í Þýskalandi og Austur-
ríki, Mússolínis á Ítalíu og Fran-
cos á Spáni hafði hroðalegar
afleiðingar í för með sér sem
eiga sinn varanlega sess í ver-
aldarsögunni og ættu að verða
víti til varnaðar.
Þýðandi er Veturliði Guðna-
son en þulur Guðmundur Ingi
Kristjánsson.
Richard Pryor er heldur vonleysislegur á svipinn hér. Sennilega
hafa komið upp einhver óvænt vandræði á ferðalaginu.
Þjófur á lausu
— endursýning
er lokað vegna fjárhagsörðug-
leika. Vivian Perry ákveður að
bjarga börnunum og fær til liðs
við sig vandræðamanninn Joe
Braxton sem á yfir höfði sér
margra ára fangelsisdóm. Upp-
hefst nú ævintýralegt ferðalag
þvert yfir Bandaríkin.
Kl. 22.50 verður
Ay endursýnd á Stöð 2
bandaríska kvik-
myndin Þjófur á lausu
(Bustin Loose) með Richard Pry-
or og Cicely Tyson í aðalhlut-
verkum.
Barnaathvarfinu í Claremont
í örlagastraumi
- 5. og næstsíöasti þáttur
Borgarastyrjöldin á Spáni hafði miklar hörmungar í för með sér
fyrir íbúana og enn er varla gróið um heilt eftir þau ósköp.
ÍBllW
Þóra Einarsdóttir hefur haft
löng og náin kynni af Indlandi
y—V Kl. 20.40 í kvöld verð-
uríSjónvarpinusýnd-
ur fimmti og næstsíð-
asti þátturinn í fram-
haldsmyndaflokknum í örlaga-
straumi.
Engin skýring hefur enn feng-
ist á því hvers végna Hjalmar
Jordahl arfleiddi Catherine Durr-
ell að stóreignum í Álasundi. En
greinilegt er að ekki er allt með
felldu í fjölskyldu hans. Enda er
blaðamaðurinn Anders Bjornson
sannfærður um að Hjalmar hafi
verið myrtur. Catherine er í þann
veginn að selja verksmiðjuna en
hefur snúist hugur um að selja
Jordahlshólma. Það er líka
greinilega farið að volgna á milli
Catherine og Anders svo að
kannski liggur henni ekki svo
mikið á að komast frá Noregi
Anders Bjornson heldur því
fram að Hjalmar Jordahl hafi
verið myrtur, Catherine Durr-
ell veit ekki hvaðan á sig stend-
ur veðrið. En Ingiríður veit
líklega hvernig allt er í pottinn
búið!
eftir allt saman. Astrid Linder-
man gætir leyndarmáls Freyju
frænku sinnar vel. Eitthvað kom-
ast áhorfendur nær lausninni í
kvöld.
Fréttir og flóamarkaður
í hádeginu
Kl. 12.00 er Jóhanna Harðardóttir mætt til leiks
aaq "-i- it.uu cj uuucuiua jnaiuaiuuLLii mæLL lu leiKS a
Bylgjunni og fylgist með því sem helst er í fréttum og
Uixdisru spjallar við fólk, ásamt fréttamönnum Bylgjunnar.
Kl. 13 hefst svo flóamarkaðurinn og þá er nú heldur
betur líf í tuskunum. Eilífar símhringingar og lífleg viðskipti
benda til þess að flóamarkaðurinn eigi eftir að þrífast enn vel og
lengi. (Tímamynd Pjetur)
Þriðjudagur
2. desember
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin. - Páll Benediktsson,
Þorgrimur Gestsson og Lára Marteins-
dóttir. Fréttir eru sagðar kl. 7.30 og 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Tilkynningar eru
lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25
7.20 Daglegt mál. Guðmundur
Sæmundsson flytur þáttinn.
9.00 Fréttir.
9.03 Jólaalmanakið „Brúðan hans
Borgþórs", saga fyrir börn á öllum aldri.
Jónas Jónasson les sögu sína (2). Jóla-
stúlkan, sem flettir almanakinu, er Sigur-
laug M. Jónasdóttir.
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar.
9.35 Lesið úr forustugreinum dagblað-
anna.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 „Ég man þá tið“ Hermann Ragnar
Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Stef-
ánsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Heilsuvernd.
Umsjón: Anna G. Magnúsdóttir og Berg-
lind Gunnarsdóttir.
14.00 Miðdegissagan: „Glópagull",
ævisöguþættir eftir Þóru Einarsdóttur
Hólmfríður Gunnarsdóttir bjó til flutnings
og byrjar lesturinn.
14.30 Tónlistarmaður vikunnar Haukur
Morthens.
15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20 Landpósturinn. Frá Vesturlandi.
Umsjón: Asþór Ragnarsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið Stjórnandi: Kristín
Helgadóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Síðdegistónleikar a. Jörg Baumann
og Klaus Stoll leika saman á selló og
kontrabassa Rondó í C-dúr og Stef meö
tilbrigðum í G-dúr eftir Ignaz Pleyel og
Sónötu eftir Franz Benda. b. Kvartett í d
moll fyrir flautur og fylgiraddir eftir Georg
Philipp Telemann Franz Vester, Joost
Tromp og Jeanetta van Wingerden leika
á flautur, Brian Pollard á fagott, Anne
Bylsma á selló og Gustav Leonhardt á
sembal.
17.40 Torgið - Samfélagsmál Umsjón:
Bjarni Sigtryggsson.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál Endurtekinn þáttur frá
morgni sem Guðmundur Sæmundsson
flytur.
19.35 Lestur úr nýju barna- og unglinga
bókum. Umsjón: Gunnvör Braga. Kynnir:
Ágústa Ólafsdóttir.
20.00 Tætlur Umræðuþáttur um málefni
unglinga. Stjórnendur: Sigrún Proppé og
Ásgeir Helgason.
20.40 íþróttaþáttur Umsjón: Ingólfur Hann-
esson og Samúel Örn Erlingsson.
21.00 Perlur José Feliciano og Eartha Kitt.
21.30 Útvarpssagan: „Jólafrí í New York“
eftir Stefán Júliusson Höfundur les (4)
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Sálmabókin 1886 Séra Sigurjón
Guðjónsson flytur erindi.
23.00 fslensk tónlist.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
itAÍS
Þriðjudagur
2. desember
9.00 Morgunþáttur í umsjá Kolbrúnar
Halldórsdóttur, og Sigurðar Þórs Salvars-
sonar. Meðal efnis: Barnadagbók í umsjá
Guðríöar Haraldsdóttir að loknum fréttum
kl. 10.00, Matarhorn og getraun.
12.00 Hádegisútvarp. með fréttum og léttri
tónlist í umsjá Margrétar Blöndal.
13.00 Skammtað úr hnefa. Stjórnandi:
Jónatan Garðarsson.
15.00 ( gegnum tíðina Þáttur um islenska
dægurtónlist i umsjá Ragnheiðar Da-
víðsdóttur.
16.00 í hringnum Gunnlaugur Helgason
kynnir lög frá áttunda og niunda áratugn-
um.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar kl. 9.00,10.00,11.00,
12.20,15.00, 16.00 og 17.00.
Svæðisútvarp virka daga vikunnar.
17.30-18.30 Svæðisútvarp fyrir Reykjavik
og nágrenni - FM 90,1 MHz.
18.00-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri
og nágrenni - FM 96,5 MHz. Trönur
Umsjón: Finnur Magnús Gunnlaugsson.
Fjallað um menningarlíf og mannlíf al-
mennt á Akureyri og í nærsveitum.
Þriðjudagur
2. desember
18.00 Dagfinnur dýralæknir (Dr. Dolittle) -
sjötti þáttur. Teiknimyndaflokkur gerður
eftir vinsælum barnabókum eftir Hugh
Lofting. Þýðandi RannveigTryggvadóttir.
18.20 Fjölskyldan á Fiðrildaey (Butterfly
Island) Nýr flokkur - Fyrsti þáttur.
Ástralskur myndaflokkur í átta þáttum
fyrir börn og unglinga um ævintýri á
Suðurhafseyju. Þýðandi Gunnar Þor-
steinsson.
18.50 Skjáauglýsingar og dagskrá
18.55 fslenskt mál - sjötti þáttur. Fræðslu-
þættir um myndhverf orðtök. Umsjónar-
maður Helgi J. Halldórsson.
19.00 Poppkorn Tónlistarþáttur fyrir tán-
inga á öllum aldri. Þorsteinn Bachmann
kynnir músíkmyndbönd. Samsetning:
Jón Egill Bergþórsson.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Sómafólk. (George and Mildred) 4.
Barnahjal. Breskur gamanmyndaflokkur.
Þýðandi Ólöf Pétursdóttir.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar.
20.40 f örlagastraumi (Maelstrom) 5. Ofan
í hringiðuna. Breskur framhalds-
myndaflokkur i sex þáttum. Þýðandi Bogi
Arnar Finnbogason.
21.30 Heimurinn fyrir hálfri öld 3.
Skynsemin bíður ósigur(Die Welt der
30er Jahre) Þýskur heimildamyndaflokk-
ur í sex þáttum um það sem helst bar til
tíðinda á árunum 1929 til 1940 i ýmsum
löndum. I þriðja þætti verður einkum lýst
skammæru lýðveldi í Þýskalandi og
valdatöku Hitlers, sigri fasista á Italíu,
innrás Mussolinis í Abessinfu og loks
borgarastyrjöld á Spáni. Þýðandi Vetur-
liði Guðnason. Þulur Guömundur Ingi
Kristjánsson.
22.25 Kastljós Þáttur um erlend málefni.
23.00 Fréttir í dagskrárlok.
Þriðjudagur
2. desember
7.00- 9.00 Á fætur með Sigurði G. Tóm-
assyni. Létt tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður lítur yfir blöðin, og spjallar við
hlustendur og gesti.
Fréttir kl. 7.00 8.00 og 9.00.
9.00-12.00 Páll Þorsteinsson á léttum
nótum. Palli leikuruppáhaldslöginykkar.
Fréttalína, afmæliskveðjur, og spjall til
hádegis. Síminner61 11 11.
Fréttir kl. 10.00 11.00 og 12.00.
12.00-14.00 Á hádegismarkaði með Jó-
hönnu Harðardóttur. Jóhanna og frétta-
menn Bylgjunnar fylgjast með því sem
helst er í fréttum, spjalla við fólk og segja
frá. Flóamarkaðurinn er á dagskrá eftir
kl.'l 3.00. Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00-17.00 Pétur Steinn á réttri bylgju-
lengd. Pétur spilar og spjallar við hlust-
endur og tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og 17.00.
17.00-19.00 Hallgrímur Thorsteinsson i
Reykjavík síðdegis. Hallgrimur leikur
tónlist, lítur yfir fréttirnar og spjallar við
fólk sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00-20.00 Tónlist með léttum takti.
20.00-21.00 Vinsældalisti Bylgjunnar.
Helgi Rúnar Óskarsson kynnir 10 vinsæl-
ustu lög vikunnar.
21.00-23.00 Vilborg Halldórsdóttir Vilborg
sniður dagskrána viö hæfi unglinga á
öllum aldri. Tónlist og gestir í góðu lagi.
23.00-24.00 Vökulok. Þægileg tónlist og
fréttatengt efni f umsjá fréttamanna
Bylgjunnar.
24.00-07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.
Tónlist og upplýsingar um veður.
STOD TVO
SLENSKA SjONVAHPSFELAGiD
Þriðjudagur
2. desember
17.00 Myndrokk
18.00 Teiknimyndir
18.30 Morðgáta (Murder She Wrote). Jess-
ica er fengin til þess að leysa hugsanlegt
morð á vellauðugum eiganda skemmti-
garðs sem fannst látinn á skrifstofu sinni.
19.30 Frettir.
19.551 návfgi. Innlendur þáttur í umsjón
Páls Magnússonar.
20.25 Klassapíur (Golden Girls). Bráðs-
mellinn þáttur fyrir spaugara f öllum
aldursflokkum. Þættirnir fjalla um. fjórar
eldri konur sem ætla að eyða hinum
gullnu árum ævi sinnar i sólinni í Florida.
20.50 Þrumufuglinn (AirWolf). Bandarísk-
ur framhaldsþáttur með Jan Michael
Vincent, Ernest Borgnine og Alex Cord í
aðalhlutverkum. Þyrlan Þrumufuglinn
flýgur á ótrúlegum hraða án þess að sjást
á radar og er útbúin besta búnaði sem
völ er á. Þeir Hawk og Dominic nota þetta
furðutæki til að leysa verkefni sem enginn
annar ræður við.
21.35 Hengingarólin (Rope 80) Bandarísk
kvikmynd eftir Alfred Hitchcock frá 1948.
Tveir ungir menn Douglas og Dick myrða
einn skólafélaga sinn bara til þess að fá
æsandi upplifun og dirfast síðan að
bjóða vinum og fjölskyldu til íbúðar
sinnar eftirá, meö líkið falið í íbúðinni.
Aðalhlutverk eru leikin af James Stewarl,
John Dall, Cedric Hardwicke og Joan
Chandler.
22.50 Þjófur á iausu (Bustin Loose).
Bandarísk kvikmynd með Richard Pryor
og CicelyTyson í aðalhlutverkum. Barna-
athvarfinu í Claremont er lokaö vegna
fjárhagsörðugleika. Vivian Perry ákveður
að bjarga börnunum og fær til liðs við sig
vandræðamanninn Joe Braxton sem á
yfir höfði sér margra ára fangelsisdóm.
Upphefst nú ævintýralegt ferðalag þvert
yfir Bandaríkin. Endursýning.
00.15 Dagskrárlok.