Tíminn - 21.02.1987, Page 6
FRÉTTAYFIRLIT
TOKYO — Stjórnvöld í Jap-
an lækkuðu vexti til að reyna
að stöðva hækkun yensins.
Hagfræðingar töldu þó hæpið
að vaxtalækkunin ein myndi
sannfæra gjaldeyrisspámenn
eða Bandaríkjastjórn um að
dollarinn ætti ekki að lækka
enn frekar.
LUNDÚNIR — Gjaldeyris-
kaupmenn biðu eftir viðræðun-
um í París um helgina milli
fjármálaráðherra fimm helstu
iðnaðarríkja heims. Lítil hreyf-
ing varð því á gengi Banda-
ríkjadals á mörkuðunum en
vegna frétta af skuldavanda-
málum Brasilíu jukust kaup á
gulli nokkuð.
MOSKVA — Mikhail Gorbat-
sjov Sovétleiðtogi sagði að erf-
iðir tímar væri í nánd vegna
endurbótaáforma stjórnarinnar
í Kreml. Hann varaði sérstak-
lega þá við sem ekki skildu
hinar nýju aðstæður sem
mynduðust er lýðræði væri
aukið.
PARÍS — Um þúsund manna
aukalið lögreglu hefur verið
kallað út í París. Lögreglu-
mennirnir eiga að koma sér
fyrir í verslunum, leikhúsum og
kvikmyndahúsum borgarinnar
til að koma í veg fyrir hugsan-
leg sprengjutilræði. Réttar-
höldin yfir líbanska skærulið-
anum Georcjes Ibrahim Abda-
llah hefjast i næstu viku.
VATIKANIÐ - Jóhannes
Páll páfi átti óvæntan fund
með móður Tyrkjans Mehmet
Ali Agca sem reyndi að ráða
hann af dögum árið 1981. Páfi
fullvissaði móður Agca að
hann hefði fyrir löngu fyrirgefið
manninum sem hefði næstum
bundið enda á líf sltt.
N DJAMENA — Herir
stjórnarinnar í Chad skutu nið-
ur líbýska herflugvél á þriðju-
dag. Það var talsmaður stjórn-
arhersins sem skýrði frá þessu
í gær.
PEKING — Kínversk stjórn-
völd sögðu efnahagslífiðásíð-
asta ári hafa verið umfangs-
minna en árið áður en heil-
brigðara engu að síður. Halli
varð þó á ríkissjóði vegna
mikilla launahækkana og lé-
legrar framleiðni hinna ríkis-
reknu fyrirtækja.
TEL AVIV — Franskur
sprengjusérfræðingur í friðar-
sveitum Sameinuðu þjóðanna
í Suður-Líbanon lést þegar
hann reyndi að aftengja
sprengju er lá við veg einn á
svæðinu.
6 Tíminn
ÚTLÖND
Fréttaskýring:
Laugardagur 21. febrúar 1987
ÁTÖKIN í VESTUR-BEIRÚT
LÝSA VEL SUNDRUNGUNNI
INNAN ARABAHEIMSINS
- Sýrlendingar til-
búnir að senda
aukalið inn í borg-
arhlutann-íranirog
Líbýumenn á móti
árásum Amalsjíta á
Palestínumenn
Reuler -
Bardagar milli múslima úr hópi
sjíta og vinstrisinna hcldu áfram í
Vestur-Beirút í gær þrátt fyrir við-
vörun Sýrlcndinga um að aukaher-
sveitir þcirra væru rciöubúnar til að
blanda sér í málin og reyna að koma
á friði í átökum sem valdið hafa láti
meira en 150 manna síðan á mánu-
dag. Bardagar þessara fylkinga lýsa
kannski best þeirri óeiningu sem
ríkir innan arabaheimsins, óeiningu
sem kemur í veg fyrir að arabar
myndi alþjóðlega ciningu sem fullt Bardagar Amalsjíta og vinstrisinnaðra hópa í Vestur-Beirút í vikunni hafa kostað margan manninn lífið
mark verði að taka á.
Samkvæmt fréttum frá útvarps-
stöðvum í borgarhlutanum, þar sem
múslimar eru nær allsráðandi, mátti
heyra skothríð frá fjölmörgum stöð-
um í gær.
Múslimar úr hópi Amalhreyfingar
sjíta hafa barist af hörku við bar-
dagamenn ýmissa vinstrisinnaðra
hópa alla vikuna í Vestur-Beirút.
Vinstrisinnarnir. bandalag drúsa,
sunna múslima og kommúnista, og
reyndar einnig róttæk stjórnvöld á
borð við stjórnir Líbýu og írans hafa
verið á móti umsátri sjíta um
flóttamannabúðir Palestínumanna í
Líbanon og olli þessi sundrung öðru
fremur hinum hörðu átökum í Vest-
ur- Beirút.
Sjítar og hinir vinstrisinnuðu hóp-
ar hafa hingað til verið bundnir
laustengdum samtökum í baráttu
sinni við bardagamenn kristinna
manna í Austur-Beirút.
Samkvæmt heimildum eru nú
aukahersveitir Sýrlcndinga staddar í
fjöllunum austur af Beirút ogsaman-
standa þær af nokkur hundruð drús-
um og hermönnum úr liópi sjíta auk
sýrlenska hermanna. f gær biðu
þessar svcitir eftir opinberu leyfi til
að fá að halda inn í Vestur-Beirút og
reyna, ásamt sérstökum öryggis-
sveitum í borgarhlutunum, að koma
á friði milli andstæðra fylkinga.
Bardagarnir í Vestur-Beirút hafa
nánast komið í veg fyrir alla mat-
vælaflutninga til hungraðra flótta-
ntanna í búðum Palestínumanna í
Beirút. Einnig hafa þeir truflað við-
leitni til að fá erlenda gísla lausa úr
haldi en hópar sjíta sem eru minni
en róttækari en Amalhreyfingin hafa
þá í gíslingu.
Vitað er að Sýrlendingar vilja
gera allt til missa ckki áhrif sín í
Vestur-Bcirút en ákvörðun um að
auka hernaðarstyrk sinn í borgar-
hlutanum gæti þó mætt andstöðu
margra, þar á meðal þeirra helstu
bandamanna, Líbýumanna og ír-
ana.
Sýrlcndingar hafa nefnilega stutt
Amalsjíta dyggilega í bardögunt
þeirra við palestínska skæruliða hlið-
holla Yasser Arafat leiðtoga Frelsis-
hreyfingar Palestínumanna(PLO).
Telja Amalsjítar og Sýrlendingar að
Arafat og palestínskir bardagamenn
hans hyggist ná að nýju hernaðarleg-
um styrk í Líbanon en þeir voru
reknir á brott úr landinu af ísraels-
mönnum eftir innrás þeirra árið
1982. Hinsvegar hafa bæði Muamm-
ar Kaddafi Líbýuleiðtogi og íranskir
ráðamenn reynt að binda enda á
„búðastríðið" og talað gegn tilraun-
,um sjíta til að hreinlega útrýma að
því virðist Palestínumönnum í
Líbanon.
Allt frá því að Amalsjítar og
núverandi andstæðingar þeirra ráku
í sameiningu líbanska herinn, undir
Sovéski gyðingurinn Jósef Begun
hefur verið látinn laus úr fangelsi í
borginni Chistopol, sem er í um 800
kílómetra fjarlægð austur af
Moskvu, og búist er við að hann
komi til höfuðborgarinnar á
morgun. Það var tengdadóttir hans
sem frá þessu skýrði í gær.
Begun er 54 ára gamall stærð-
fræðingur að mennt og komst fyrst í
kast við yfirvöld árið 1971 fyrir að
hvetja til kennslu í hebresku. í
september árið 1983 fékk hann hins-
vegar sinn þyngsta dóm, var dæmdur
í sjö ára þrælkunarvinnu og fimm
Myndavélafyrirtækið risastóra
Eastman Kodak er nú komið með á
markaðinn myndavél sem fleygt er
eftir notandinn hefur tekið á filmuna
í vélinni. Myndavélin nýja nefnist
„kastarinn“ og cr það réttnefni á
þessari einnota myndavél.
Japanska myndavélafyrirtækið
stjórn kristinna manna, frá Vestur-
Beirút árið 1984 hefur borgarhlutinn
verið vettvangur nær samfelldra
hryðjuverka, bardaga og ofbeld-
isverka. Mörghundruð Líbanarhafa
verið drepnir, um sjötíu útlendingar
hafa verið teknir af lífi og 26 er
saknað um þessar mundir og vest-
rænir menn hafa nánast yfirgefið
borgina vegna ótta um sitt eigið
líf.
Róttækir hópar sjíta hafa lýst yfir
ábyrgð vegna árása á kristna menn,
kommúnista og gyðinga en Amal-
ára útlegð innanlands fyrir það sem
vanalega kallast and-sovéskur áróð-
ur og önnur undirróðursstarfsemi.
Annar þekktur andófsmaður, eðl-
isfræðingurinn Anatoly Koryagin,
kom til heimabæjar síns Kharkov í
Úkraínu í vikunni eftir að hafa verið
látinn laus úr fangelsi í Kænugarði.
Sovésk stjórnvöld létu hann lausan
án skilyrða og eru þessir tveir meðal
um 150 pólitískra fanga sem Sovét-
stjómin hefur veitt frelsi í þessum
mánuði.
Samkvæmt vestrænum heimildum
er að fullu vitað um mál þúsund
pólitískra fanga í Sovétríkjunum.
Fuji mun að líkindum tilkynna í dag
um markaðssetningu á myndavél
sem líkist „kastaranum" í því tiliiti
að um einnota vél er að ræða.
Verðið á myndavél Kodak fyrir-
tækisins er heldur óhagstætt enda er
hér að sögn forráðamanna Kodak
um myndavél að ræða sem kaupa má
ef önnur er ekki til staðar.
hreyfingin hefur engu að síður verið
gagnrýnd fyrir að ná ekki að stjórna
þeim.
í gær var tilraunum til að koma á
vopnahléi í Vestur-Beirút áfram-
haldið í Damascus, höfuðborg
Sýrlands. Þar voru samankomnir
þeir Walid Jumblatt leiðtogi drúsa
og Georges Hawi leiðtogi kommún-
istaflokksins í Líbanon og var búist
við að þeir myndu eiga viðræður við
Nabih Berri, leiðtoga Amalsjíta, um
leiðir til að stöðva bardagana.
Bretland:
Fundir
bannaðir
á Trafal-
gartorgi
Lundúnir ~ Rcutcr
Stjórnarandstæðingar á breska
þinginu mótmæltu í gæráformum
ríkisstjómar Margrétar Thatc-
hers um að leyfa ekki fundi á
Trafalgar torginu í Lundúnaborg
næstu tvö árin á meðan á viðgerð-
um og endurnýjum á torginu
stendur.
Alls er gert ráð fyrir að 1,5
milljón Sterlingspunda verði var-
ið til að gera endurbætur á torg-
inu fræga sem lokið var við að
reisa árið 1867. Torgið vargert til
að minnast sjóorustunnar við
Trafalgar árið 1805 gegn frönsk-.
um og spænskum herjum.
Mitt á torginu er stór stytta af
Nelson flotaforingja sem leiddi
breska flotann í sjóorustunni og
er torgið oft notað sem staður
fyrir pólitíska fundi.
Brucc George þingmaður
Verkamannaflokksins sagði
ákvörðun stjórnvalda vera „mik-
ið áfall fyrir þá sem vilja lýsa yfir
pólitískum skoðunum sínum“.
Sovétríkin:
Begun látinn laus
- Sovétstjórnin hefur leyst úr haldi um 150 pólitíska fanga
í þessum mánuöi
Moskva - Reuter
Bandaríkin:
Einnota myndavélar
New York - Reuter