Tíminn - 21.02.1987, Síða 13

Tíminn - 21.02.1987, Síða 13
Tíminn 13 Laugardagur 21. febrúar 1987 llllllllllllll MINNING Tómas Sigurgeirsson Reykhólum Fæddur 18. apríl 1902 Dáinn 17. febrúar 1987 Hann faðir minn elskulegur er látinn eftir 2 mánaða sjúkdómslegu á Sjúkrahúsi Akraness. Hann var fæddur í Stafni, Reykja- dal, Suður-Þingeyjarsýslu, sonur hjónanna Kristínar Ingibjargar Pét- ursdóttur og Sigurgeirs Tómassonar, bónda í Stafni. Þau hjón eignuðust 8 syni, sem allir komust upp og eina dóttur sem dó nokkurra ára gömul. Bræðurnir ólust upp við öll venjuleg sveitastörf en jafnframt voru þeir allir hagir mjög á smíðar, bæði tré og járn, tóvinnu ýmsa, svo sem spuna og vefnað, einnig bókband og söðlasmíði. Faðir minn fór í bændaskólann á Hólum, haustið 1924 og var þar í 2 vetur ásamt Helga bróður sínum. Þar eiguðust þeir bræður marga góða vini og þeirra á meðal Þórarin Árnason, sem þá var bústjóri á Hólum og konu hans Steinunni Hjálmarsdóttur, ættaðri úr Skaga- firði. Þau hjón fluttu vestur að Miðhúsum í Reykhólasveit vorið 1926 og fór faðir minn með þeim og gerðist vinnumaður á Miðhúsum. Þórarinn lést í júlí 1929 frá stóru heimili, börnin voru orðin fimm, Kristín Lilja, Þórsteinn, Sigurlaug Hrefna, Anna og Hjörtur. 30. nóvember 1930 gengu þau í hjónaband Steinunn og Tómas. Syst- kinin fengu nýjan föður og seinna tvö lítil systkini, Kristínu Ingibjörgu og Sigurgeir. Einnig dvaldi hjá okk- ur móðuramma mín, Kristín Þor- steinsdóttir en hún mat föður minn manna mest. Margir fleiri ungir og aldnir dvöldu á heimili foreldra minna um lengri eða skemmri tíma og var heimilið löngum mann margt. Gestagangur mikill og var það þeim mjög að skapi að geta veitt öðrum. Árið 1939 flutti fjölskyldan að Reykhólum þar sem þau hjón hafa búið síðan. Og þar höfðum við systkinin, makar okkar, stór hópur barnabarna og síðar þeirra barna notið ástar og umhyggju og átt margar glaðar og góðar stundir. Faðir minn unni heimabyggð sinni, Reykjadalnum, en svo var einnig um sveitina hans fyrir vestan, Reykhólasveitina og vildi hann veg hennar sem mestan. Uppbygging á Reykhólum átti hug hans allan og ekki síst þann tíma er hann lá á sjúkrahúsi Akraness og þráði að komast heim. Móðir mín og við systkinin kveðjum kæran eiginmann og föður með broti úr erfiljóði um föður hans. Nú, er hérvist þrýtur þína, hér vilja allir tjá og sýna, vináttu og virðing sína, vottinn djúpa um snortinn hug, sem anda þínum fylgir á flug. Allt þó sé í œttargarði œfistarf þitt traustur varði, er komandi mönnum minning flytur um manndóm þinn og landnáms-dug, hljóðlát auðn nú sœtið situr, situr og víkur ei á bug. Trúrri þér mundu fáir finnast félagsskyldu og allri dyggð, - hugsjónafestu, heiðri og tryggð. Guð blessi minningu hans og styrki móður mína í hennar mikla missi. Krístín Ingibjörg Þegar stungið skal niður penna til að minnast stjúpföður og „pabba“ frá tveggja ára aldri, þá finn ég hversu erfitt það er en jafnframt hugljúft fyrir mig að reyna það. Tómas fæddist 18. apríl 1902 að Stafni í Reykjadal í Suður-Þingeyj- arsýslu. Foreldrar hans voru þau Kristín Ingibjörg Pétursd. og Sig- urgeir Tómasson. Tómas óx upp í stórum bræðrahópi og 1924 lá leiðin í Bændaskólann á Hólum. Þar stund- aði liann nám í 2 ár. Þar stóð svo á að Þórarinn Árnason, sem um 3ja ára skeið hafði haft á hendi búsfor- ráð á Hólum, flutti aftur vestur í Reykhólasveit í Barðastrandarsýslu. Tómas fluttist með þeim vestur og dvaldist vestra síðan. Að láta hugann reika yfir allt ævisviðið og samvistir systkina minna og stjúpföður okkar, tekur lengri tíma, en nú er fyrir hendi. Örlög Tómasar og framtíð tóku ákveðna stefnu 1929, er faðir okkar lést. Þá stóð mamma, Steinunn Hjálmarsdóttir, ein upp með barna- hópinn 5 að tölu á aldrinum tveggja til sex ára. Á þessum tímamótum komu skýrt fram mannkostir Tómasar. Allt frá þessu ári fram til hinstu stundar hefur verið á ferð „drengur góður og batnandi“. Hið fyrsta sem Tómas gat hindrað var að heimilinu yrði sundrað og okkur börnunum komið fyrir hjá vandalausum. Nóg var hið ótímabæra fráfall föðurins, þótt að- skilnaður fjölskyldunnar bættist ekki við líka, eins og þá var enn víða siður. Eftir þetta tvinnast saman ham- ingjusaga okkar og Tómasar. Haust- ið 1930 giftast þau mamma og Tómas. Þau eignuðust tvö börn, Kristínu Ingibjörgu og Sigurgeir. Alúðin, ósérhlífnin og atorkan ein- kenndi öll störf Tómasar. Þar voru þau mamma og hann mjög samtaka. Heimilið komst næstum áfallalaust yfir kreppuárin svokölluðu. í öllum búskap komu eiginleikar húsbænda í Ijós. Kýrnar mjólkuðu vel og skiluðu góðum arði. Árlega varhægt að selja einn af þessum arðsömu gripum úr fjósinu. Á Miðhúsum var sinnt vel um hlunnindi og allt eyja- gagn. Hver dúnhnoðri var tíndur, dúnninn seldist vel. Heyskapur og beit í eyjum var nýtt til hinsýtrasta. Túnið var stækkað og peningshús öll byggð upp. Árið 1939 var útrunninn ábúðartími á Miðhúsum. Þá var flutt að næsta bæ, Reykhólum. Þar byrj- aði annríkið að nýju við uppbygg- ingu allra húsa, einnig íbúðarhúss, ásamt nokkurri túnrækt. Þá vorum við systkinin eitthvað farin að létta undir og taka til hendinni. Það var mikið kappsmál að komast sem fyrst úr hinum fræga, en hrörlega gamla bæ á Reykhólum. Reykur úr hlóða- eldhúsinu barst um allan bæ, frost komst í öll íveruherbergi þegar kald- ast var, í haustrigningum lak úr þekjunni ofan í hvert einasta rúm. Mikill tími fór hjá Tómasi í störf utan heimilis. í hreppsnefnd var hann nær 3 kjörtímabil og um tíma oddviti. Lengi í stjórn Búnaðarfé- lagsins og Ræktunarsambandsins, einnig í skólanefnd og mjög lengi í kjörstjórn, við forðagæslu, móttöku- maður ullar og ullarmatsmaður. í áratugi umsjónarmaður og útibús- stjóri við verslun Kaupfélags Króks- fjarðar á Reykhólum. Póstaf- greiðslumaðurfrá 1947, meðhjálpari nú síðustu árin í Reykhólakirkju og söngflokki kirkjunnar yfir 50 ár. Ýmislegt fleira er ótalið, en þannig unnið að eigi þurfti að ganga í verkin hans. í grein er Játvarður Jökull ritaði um Tómas er hann var 70 ára segir m.a....Tómas er framsóknarmaður og hefur verið óeigingjarn og ósér- hlífinn þar eins og annarsstaðar, þar sem hann hefur lagt lið sitt fram. En vígði þátturinn í öllum hans marg- þætta sterka ævivað er þáttur sam- vinnunnar, sá sem hefir vaxið með honum frá blautu barnsbeini norður í Þingeyjarsýslu allt frá rnorgni þess- arar aldar. Svo mjög hefur bæði verk hans og hugsunarháttur þótt skera sig frá því almenna vestur hér, að sagt hefur verið, að hann væri eini samvinnumaðurinn fyrir vestan Gilsfjörð..." síðar segir Játvarður: „Hann er og hefur ávallt verið liðsmaður góður og hvergi skýlt sér að baki öðrum..." Þegar litið er til baka er svo margt sem okkur ber að þakka. Allt frá því er heimili mömmu var næstum því í rúst við fráfali föður okkar, þegar Tómas kemur og upphefst að nýju hamingjusamt lífshlaup. í sannleika sagt finnst mér máltækið: „Fár sem faðir...“ alls ekki geta átt viðTómas. Tómas á svo stóran þátt í hamingju og uppeldi okkar systkinanna og síðar barnabarnanna. Hjónaband og sambúð hans og mömmu einkennd- ist af ást og virðingu hvort fyrir öðru. Það, ásamt svo mörgu öðru, veitti okkur börnunum svo dýrmæta for- skrift í okkar lífi. Sá eiginleiki að standa í skilum og bera umhyggju fyrir öðrum var hið síðasta sem hann ræddi við mig þegar ég hitti hann og kvaddi hinstu kveðju. Hann hafði áhyggjur af því að hafa ekki gert ráðstafanir með að greiða sjúkrakostnaðinn á spítalan- um og við flutninginn. Hann ræddi ekki um sína líðan og erfiðleika heldur aðeins sagði hann: „Líttu eftir henni mömmu þinni“. Hjörtur Þórarinsson. Elsku afi minn er dáinn Hvíldin varhonum kærkomin eftir erfiða sjúkdómslegu, en eftir stönd- um við hin, sem elskuðum hann og eigum erfitt með að sætta okkur við eðlilegan gang lífsins. Minningarnar um afa þjóta í gegn- um huga minn. Hann var alltaf svo rólegur og hógvær og ætíð var stutt í glettnina. Mér er minnisstætt þegar ég sem smástelpa kom eitt sinn að Reykhólum til ömmu og afa. Þá var langt síðan ég hafði hitt þau og til heiðurs afa sérstaklega, söng ég og dansaði í eldhúsinu. Hann hlustaði þolinmóður, tók mig svo í fangið og kitlaði mig með skegginu sínu. Þann- ig höfðum við afi það oft, það var svo gott að kúra hjá honum og þótt ég yrði fullorðin hélt hann samt áfram að gantast við mig og kitla mig með skegginu. Þetta er aðeins ein af mörgum minningum sem ég geymi í huga mínum um stundirnar okkar afa. Eitt af því dýrmætasta í lífi hvers barns er að fá að njóta samvista við afa sinn og ömmu og fyrir þær stundir þakka ég. Þótt afi væri orðinn heilsulaus síðustu árin og liði oft illa, heyrði ég hann aldrei kvarta. Umhyggja hans og ástúð skein í gegnum allt hans viðmót. Elsku amma mín, guð styrki þig í sorg þinni. Sigrún Hjartardóttir. tóWySFAHF Jámhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk. Pósthólf 10180 Lífeyrisréttur - Lánaréttur Stjórn Lífeyrissjóðs bænda vill að gefnu tilefni vekja athygli ungs fólks, sem á heimili í sveitum á því að það á bæði rétt og skyldu til að vera félagar í sjóðnum hafi það tekjur af vinnu við landbúnað. Stjórninni þykir sérstök ástæða til að vekja athygli á þessu nú vegna þess réttar, sem aðild að sjóðnum veitir til lána vegna kaupa á húsnæði eða til húsbygginga skv. nýjum lögum um húsnæðis- mál. Stjórn sjóðsins skorar bæði á unga fólkið sjálft og vinnuveitendur þess, ekki síst séu það foreldrar þess, að sjátil þess að iðgjöld séu greidd reglulega til sjóðsins af öllum vinnulaunum og fríðindum, sem eru hluti launa. Þar er átt við laun, sem greidd eru með búvörum, fæði og húsnæði svo og skólakostnaður. Stjórn Lífeyrissjóðs bænda Frá Bændaskólanum Hvanneyri Dagana 27. febrúar til 3. mars n.k. verða haldin 2 byrjendanámskeið í loðdýrarækt fyrir þá sem hyggja á stofnun loðdýrabúa. Fyrra námskeiðið verður 27. febrúar til 1. mars og hið síðara 1. til 3. mars. Bæði námskeiðin hefjast kl. 12.00, fæði og húsnæði á staðnum. Námskeiðakostnaður kr. 6.000. Þátttaka tilkynnist á skrifstofu Bændaskól- ans sími 93-7500 fyrir 26. febrúar. Skólastjóri. fn Hundahald ^ í Reykjavík Gjalddagi leyfisgjalds er 1. mars n.k. Gjaldið, sem er kr. 5.400,00 fyrir hvern hund greiðist fyrirfram og óskipt fyrir allt tímabilið eigi síðar en á eindaga, 1. apríl 1987. Verði það eigi greitt á tilskildum tíma fellur leyfið úr gildi. Um leið og gjaldið er greitt skal framvísa: 1. Leyfisskírteini 2. Hundahreinsunarvottorði, eigi eldra en frá 1. september 1986. Gjaldið greiðist hjá heilbrigðiseftirlitinu, Drápuhlíð 14. Skrifstofan er opin kl. 8.20-16.15. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkursvæðis Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd málbikunarstöðvar Reykjavíkurborgar og f.l. óskar eftir tilboðum í eftirfarandi: 1. 14.800 til 18.300 tonn af asfalti 2. 110 til 160 tonn af bindiefni fyrir asfalt (asphalt emulsion) Útboðsgögn verða á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 26. mars n.k. kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN Fríkirkjuvagi 3 REYKJAVÍKURBORGAR - Simi 25800

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.