Tíminn - 17.03.1987, Síða 11
Þriðjudagur 17. mars 1987
Tíminn 11
„Takmarkið er framför alls
landsins og allrar þj óðarinnar“
„Inngangur“ -fyrsta greinin í fyrsta blaðinu, sem út kom af Tímanum
Guðjón B. Ólafsson,
forstjóri Sambandsins:
Afmæliskveði a
til Tímans
Um nokkur undanfarin misseri
hafa verið á döfinni samtök all-
margra eldri og yngri manna af ýmsum
stéttum víðs vegar um land, sem
stefnt hafa að því, að íslenzka þjóðin
skiptist framvegis fremur en hingað
til eftir því, hvort menn væru fram-
sæknir eða íhaldssamir í skoðunum.
Pessir menn voru óánægðir með
árangurinn af gömlu flokkaskipting-
unni. Þeir sáu þessa flokka klofna og
bráðna saman aftur, oft af litlum
orsökum. Þeir sáu menn, sem verið
höfðu samherjar í gær, verða fjendur
í dag. Og þegar til athafna kom í
þinginu, gekk illa að halda þessum
flokksbrotum saman um ákveðin
mál. í innanlandsmálunum a.m.k.
var ekki hægt að greina nokkurn
verulegan stefnumun.
Af þessu öllu hefur mjög dvinað
trúin á lífsgildi gömlu flokkanna. Og
svo mjög: hefur kveðið að þessu
trúleysi, að tvö nafnkenndustu
stjórnmálablöð landsins hafa eigi
alls fyrir löngu viðurkennt, að gamla
flokkaskipunin væri úrelt og eigi til
frambúðar.
En þjóð, sem býr við þingræði
getur ekki án flokka verið. Og
stjórnarhættir og framkvæmdir í
þingræðislöndunum fara mjög eftir
því, hvort flokkarnir eru sterkir og
heilbrigðir, eða sjúkir og sjálfum sér
sundirþykkir. Þar sem flokkarnir
eru reikulir og óútreiknanlegir, eins
og roksandur á eyðimörk, verða
framkvæmdimar litíar og skipulags-
lausar, því að hver höndin er þar
upp á móti annarri. Heilbrigð
flokkaskipun hlýtur að byggjast á
því, að flokksbræðurnir séu andlega
skyldir, séu samhuga um mörg mál
en ekki aðeins eitt, og það eru
málin, sein mestu skipta í hverju
landi.
Erlendis hefur reynslan orðið sú í
flestum þingræðislöndunum, að
þjóðirnar skiptast í tvo höfuðflokka,
framsóknarmenn og fhaldsmenn.
Að vísu gætir allajafna nokkurrar
undirskiptingar, en þó marka þessir
tveir skoðanahættir aðallínur. Og
svo þarf einnig að verða hér á landi,
ef stjórnarform það, sem þjóðin býr
við, á að verða sæmilega hagstætt
landsfólkinu.
Þetta blað mun eftir föngum beit-
ast fyrir heilbrigðri framfarastefnu í
landsmálunum. Þar þarf að gæta
samræmis, hvorki hlynna um of að
einum atvinnuveginum á kostnað
annars, né hefja einn bæ eða eitt
hérað á kostnað annarra landshluta,
því að takmarkið er framför alls
landsins og allrar þjóðarinnar.
En meðan hvers konar hættur og
ófarnaður vofir yfir þjóðinni af völd-
um heimsstyrjaldarinnar, mun blað-
ið leggja meiri áherzlu á að ræða
bjargráð yfirstandandi stundar frem-
ur en framtíðarmálin.
Er þar einkum tveggja hluta að
gæta. Fyrst að einskis sé látið ófreist-
að til þess að tryggja landinu nægi-
legan skipakost og í öðru lagi að
matvöruaðdrættir frá útlöndum og
skipting matvælanna hér á landi
verði framkvæmd með þeirri réttvísi
og hagsýni, sem frekast verður við
komið.
Einmitt þessar sérstöku ástæður
eru þess valdandi, að blaðið hefur
göngu sína nokkru fyrr en ætlað var
upphaflega, og áður en sá maður,
sem búizt er við að verði framtíðar
ritstjóri þess, getur flutzt hingað til
bæjarins. Fyrir því stýrir því nú í
byrjun einn af eigendum þess,
Guðbrandur Magnússon, bóndi frá
Holti undir Eyjafjöllum, þótt eigi
geti hann sinnt því starfi nema
skamma stund.
Nafnið á blaðinu þarf naumast
skýringar við. Þó má taka það fram
að eins og það er ekki aðeins nútíð
og framtíð heldur einnig fortíðin,
sem felst í hugtakinu TÍMINN,
þannig mun og blaðið hafa það fyrir
augum, sem læra má af liðinni þjóð-
arævi, til leiðbeiningar í nútíð og
framtíð.
Að þessu sinni verður ekki farið
ítarlega út í einsök stefnuatriði, en
aðeins bent á fjögur mál, sem blaðið
mun láta til sín taka, og lítur það svo
á, að heppileg úrlausn þeirra geti
verið hin bezta undirstaða allra ann-
arra framfara.
Er það fyrst að nefna bankamálin,
sem eru og hafa verið í ólagi, svo
megnu, að seðlaútgáfurétturinn hef-
ur af þinginu verið afhentur erlendu
gróðafélagi. 1 því máli ber þrenns að
gæta:
1. Að ekki verði gengið lengra en
orðið er í því að veita
hlutabankanum sérréttindi.
2. Að bankarnir hafi í náinni framt-
íð nægilegt veltufé handa lands-
mönnum.
3. Að fyrirkomulag bankanna sé
heilbrigt, og að allar stéttir og allir
landshlutar eigi jafnhægt með að
hagnýta sér veltufé þeirra.
Um samgöngumálin verður spyrnt
á móti því að nokkurt félag, innlent
eða erlent, fái einkarétt til þess að
eiga samgöngutæki hér á landi. Hef-
ur áður borið á þeirri hættu, og á
orði að sá draugur muni endurvak-
inn nú með vorinu. Hins vegar
verður lögð áherzla á að koma
samgöngunum á sjó í viðunanlegt
horf, og að j afnframt verði samgöng-
urnar á landi bættar svo sem efni
þjóðarinnar frekast leyfa.
í verzlunarmálum mun blaðið
fylgja fram samvinnustefnunni til
hins ýtrasta, og gera sér far um að
benda á hvar og með hverjum hætti
sú hreyfing geti orðið þjóðinni til
mestra nota.
Að því er snertir andlegar fram-
farir mun verða lögð stund á að
benda á hverjir þættir séu sterkir og
lífvænlegir í íslenzkri menningu, og
haldið fram máli þeirra mannavsem
vilja nema af öðrum þjóðum, þar
sem þær standa íslendingum framar,
og þá kostað kapps um, að numið sé
á hverju sviði af þeim, sem færastir
eru og lengst á veg komnir.
Samvinnumenn um land allt
samfagna starfsmönnum og vel-
unnurum dagblaðsins Tímans á
sjötíu ára afmæli blaðsins.
Frá stofnun hefur Tíminn verið
mikilsverður málsvari samvinnu-
starfs á íslandi. Skrif Jónasar Jóns-
sonar og fleiri góðra manna f
Tímann hvöttu samvinnumenn til
dáða og fylltu þá eldmóði og
áhuga. Þegar sótt hefur verið að
samvinnumönnum og félögum
þeirra hefur málstaður þeirra verið
skýrður á síðum Tímans. Fyrir
þetta eru samvinnumenn þakklát-
ir.
Dagblaðið Tíminn hefur verið
málsvari framfara og frelsis í 70 ár.
Blaðið hefur á þessum tíma tekið
ýmsum breytingum, bæði í útliti og
efni. Líklegt má telja að slík breyt-
ing og þróun haldi áfram á kom-
andi árum. Verður þó vonandi
alltaf haft að leiðarljósi að Tíminn
verði málefnalegt og heiðarlegt
Treftablað, opið fyrir frjálsri
skoðanatúlkun og jafnframt boð-
beri heilbrigðra hugsjóna, til gagns
fyrir land og þjóð.
Samvinnumenn óska dagblaðinu
Tímanum gæfu og gengis á kom-
andi árum.
ALLT ÞETTA FÆRÐU í SKODA 105 L 1987:
Vél1050CC46dinhö« 55amperstundaalternator* Alltaö1700lfarangursrÝmi* Fell-
anlegsaetisbökafturíífi HalogenframljósB Þokuljósaöaftan* Læstbensínlok* Speg-
illaöutank' RafmagnsrúðusprauturH Barnalæsingaríafturhuröum* Lúxus hljóöein-
angrun* AflhemlarH TannstangarstýriH 2jahraöamiöstöö* vindskeiö(„spoiler")aö
framanogaftan* HertöryggisglerH Aövörunarljósf. bensín* Stillanlegir höfuöpúö- vJÖFUR Np
arH Feröamælir(„Dailytriprecorder")H StyrktargrindífarpegarýmiB Hallanlegsætis- " ^ ! ‘
bök á framstólum a Sjálfstæö gormafjöðrun viö hvert hjól ■ Lungamjúkir radial hjól-
baröar (165 SR 13) ■ Sérlega pægileg sæti ■
NYBYLAVEGI 2
KÓPAVOGI
SÍMI 42600
\