Tíminn - 17.03.1987, Qupperneq 11

Tíminn - 17.03.1987, Qupperneq 11
Þriðjudagur 17. mars 1987 Tíminn 11 „Takmarkið er framför alls landsins og allrar þj óðarinnar“ „Inngangur“ -fyrsta greinin í fyrsta blaðinu, sem út kom af Tímanum Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins: Afmæliskveði a til Tímans Um nokkur undanfarin misseri hafa verið á döfinni samtök all- margra eldri og yngri manna af ýmsum stéttum víðs vegar um land, sem stefnt hafa að því, að íslenzka þjóðin skiptist framvegis fremur en hingað til eftir því, hvort menn væru fram- sæknir eða íhaldssamir í skoðunum. Pessir menn voru óánægðir með árangurinn af gömlu flokkaskipting- unni. Þeir sáu þessa flokka klofna og bráðna saman aftur, oft af litlum orsökum. Þeir sáu menn, sem verið höfðu samherjar í gær, verða fjendur í dag. Og þegar til athafna kom í þinginu, gekk illa að halda þessum flokksbrotum saman um ákveðin mál. í innanlandsmálunum a.m.k. var ekki hægt að greina nokkurn verulegan stefnumun. Af þessu öllu hefur mjög dvinað trúin á lífsgildi gömlu flokkanna. Og svo mjög: hefur kveðið að þessu trúleysi, að tvö nafnkenndustu stjórnmálablöð landsins hafa eigi alls fyrir löngu viðurkennt, að gamla flokkaskipunin væri úrelt og eigi til frambúðar. En þjóð, sem býr við þingræði getur ekki án flokka verið. Og stjórnarhættir og framkvæmdir í þingræðislöndunum fara mjög eftir því, hvort flokkarnir eru sterkir og heilbrigðir, eða sjúkir og sjálfum sér sundirþykkir. Þar sem flokkarnir eru reikulir og óútreiknanlegir, eins og roksandur á eyðimörk, verða framkvæmdimar litíar og skipulags- lausar, því að hver höndin er þar upp á móti annarri. Heilbrigð flokkaskipun hlýtur að byggjast á því, að flokksbræðurnir séu andlega skyldir, séu samhuga um mörg mál en ekki aðeins eitt, og það eru málin, sein mestu skipta í hverju landi. Erlendis hefur reynslan orðið sú í flestum þingræðislöndunum, að þjóðirnar skiptast í tvo höfuðflokka, framsóknarmenn og fhaldsmenn. Að vísu gætir allajafna nokkurrar undirskiptingar, en þó marka þessir tveir skoðanahættir aðallínur. Og svo þarf einnig að verða hér á landi, ef stjórnarform það, sem þjóðin býr við, á að verða sæmilega hagstætt landsfólkinu. Þetta blað mun eftir föngum beit- ast fyrir heilbrigðri framfarastefnu í landsmálunum. Þar þarf að gæta samræmis, hvorki hlynna um of að einum atvinnuveginum á kostnað annars, né hefja einn bæ eða eitt hérað á kostnað annarra landshluta, því að takmarkið er framför alls landsins og allrar þjóðarinnar. En meðan hvers konar hættur og ófarnaður vofir yfir þjóðinni af völd- um heimsstyrjaldarinnar, mun blað- ið leggja meiri áherzlu á að ræða bjargráð yfirstandandi stundar frem- ur en framtíðarmálin. Er þar einkum tveggja hluta að gæta. Fyrst að einskis sé látið ófreist- að til þess að tryggja landinu nægi- legan skipakost og í öðru lagi að matvöruaðdrættir frá útlöndum og skipting matvælanna hér á landi verði framkvæmd með þeirri réttvísi og hagsýni, sem frekast verður við komið. Einmitt þessar sérstöku ástæður eru þess valdandi, að blaðið hefur göngu sína nokkru fyrr en ætlað var upphaflega, og áður en sá maður, sem búizt er við að verði framtíðar ritstjóri þess, getur flutzt hingað til bæjarins. Fyrir því stýrir því nú í byrjun einn af eigendum þess, Guðbrandur Magnússon, bóndi frá Holti undir Eyjafjöllum, þótt eigi geti hann sinnt því starfi nema skamma stund. Nafnið á blaðinu þarf naumast skýringar við. Þó má taka það fram að eins og það er ekki aðeins nútíð og framtíð heldur einnig fortíðin, sem felst í hugtakinu TÍMINN, þannig mun og blaðið hafa það fyrir augum, sem læra má af liðinni þjóð- arævi, til leiðbeiningar í nútíð og framtíð. Að þessu sinni verður ekki farið ítarlega út í einsök stefnuatriði, en aðeins bent á fjögur mál, sem blaðið mun láta til sín taka, og lítur það svo á, að heppileg úrlausn þeirra geti verið hin bezta undirstaða allra ann- arra framfara. Er það fyrst að nefna bankamálin, sem eru og hafa verið í ólagi, svo megnu, að seðlaútgáfurétturinn hef- ur af þinginu verið afhentur erlendu gróðafélagi. 1 því máli ber þrenns að gæta: 1. Að ekki verði gengið lengra en orðið er í því að veita hlutabankanum sérréttindi. 2. Að bankarnir hafi í náinni framt- íð nægilegt veltufé handa lands- mönnum. 3. Að fyrirkomulag bankanna sé heilbrigt, og að allar stéttir og allir landshlutar eigi jafnhægt með að hagnýta sér veltufé þeirra. Um samgöngumálin verður spyrnt á móti því að nokkurt félag, innlent eða erlent, fái einkarétt til þess að eiga samgöngutæki hér á landi. Hef- ur áður borið á þeirri hættu, og á orði að sá draugur muni endurvak- inn nú með vorinu. Hins vegar verður lögð áherzla á að koma samgöngunum á sjó í viðunanlegt horf, og að j afnframt verði samgöng- urnar á landi bættar svo sem efni þjóðarinnar frekast leyfa. í verzlunarmálum mun blaðið fylgja fram samvinnustefnunni til hins ýtrasta, og gera sér far um að benda á hvar og með hverjum hætti sú hreyfing geti orðið þjóðinni til mestra nota. Að því er snertir andlegar fram- farir mun verða lögð stund á að benda á hverjir þættir séu sterkir og lífvænlegir í íslenzkri menningu, og haldið fram máli þeirra mannavsem vilja nema af öðrum þjóðum, þar sem þær standa íslendingum framar, og þá kostað kapps um, að numið sé á hverju sviði af þeim, sem færastir eru og lengst á veg komnir. Samvinnumenn um land allt samfagna starfsmönnum og vel- unnurum dagblaðsins Tímans á sjötíu ára afmæli blaðsins. Frá stofnun hefur Tíminn verið mikilsverður málsvari samvinnu- starfs á íslandi. Skrif Jónasar Jóns- sonar og fleiri góðra manna f Tímann hvöttu samvinnumenn til dáða og fylltu þá eldmóði og áhuga. Þegar sótt hefur verið að samvinnumönnum og félögum þeirra hefur málstaður þeirra verið skýrður á síðum Tímans. Fyrir þetta eru samvinnumenn þakklát- ir. Dagblaðið Tíminn hefur verið málsvari framfara og frelsis í 70 ár. Blaðið hefur á þessum tíma tekið ýmsum breytingum, bæði í útliti og efni. Líklegt má telja að slík breyt- ing og þróun haldi áfram á kom- andi árum. Verður þó vonandi alltaf haft að leiðarljósi að Tíminn verði málefnalegt og heiðarlegt Treftablað, opið fyrir frjálsri skoðanatúlkun og jafnframt boð- beri heilbrigðra hugsjóna, til gagns fyrir land og þjóð. Samvinnumenn óska dagblaðinu Tímanum gæfu og gengis á kom- andi árum. ALLT ÞETTA FÆRÐU í SKODA 105 L 1987: Vél1050CC46dinhö« 55amperstundaalternator* Alltaö1700lfarangursrÝmi* Fell- anlegsaetisbökafturíífi HalogenframljósB Þokuljósaöaftan* Læstbensínlok* Speg- illaöutank' RafmagnsrúðusprauturH Barnalæsingaríafturhuröum* Lúxus hljóöein- angrun* AflhemlarH TannstangarstýriH 2jahraöamiöstöö* vindskeiö(„spoiler")aö framanogaftan* HertöryggisglerH Aövörunarljósf. bensín* Stillanlegir höfuöpúö- vJÖFUR Np arH Feröamælir(„Dailytriprecorder")H StyrktargrindífarpegarýmiB Hallanlegsætis- " ^ ! ‘ bök á framstólum a Sjálfstæö gormafjöðrun viö hvert hjól ■ Lungamjúkir radial hjól- baröar (165 SR 13) ■ Sérlega pægileg sæti ■ NYBYLAVEGI 2 KÓPAVOGI SÍMI 42600 \

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.