Tíminn - 17.03.1987, Síða 19
Þriðjudagur 17. mars 1987
Tíminn 19
II
||
verða á útsíðum og hvernig
þeim er skipað. En í blaða-
mennsku skipast veður skjótt í
lofti og nýjar fréttir ýta gömlum
hugmyndum til hliðar.
Hugmyndir að fréttum kvikna
iðulega í spjalli morgunfund-
anna. Málefni sem virðist lítil-
mótlegt þegar því er fyrst hreyft,
hleður utan á sig þegar fleiri
leggja saman vitneskju sína og
með frekari upplýsingaöflun
getur það orðið að góðri frétt.
Þegar blaðamaður talar um góða
frétt á hann við að hún fjalli um
frásagnarvert efni, sem fengur
er að birta í blaði, og líkur eru
til að veki athygli lesenda. Hún
þarf ekki að vera gleðileg eða
öllum til ánægju og hún getur
jafnvel verið hörmuleg og komið
illa við einhverja aðila.
Góð frétt er fremur orðatil-
tæki en að það þýði að hún fjalli
um ánægjulegan atburð eða
málefni.
Að morgunfundi loknum
rjúka sumir fréttamanna í sím-
ann og aðrir út í bæ, allt eftir
þeim verkefnum sem þeir hafa
fengið þann daginn.
í sumum tilvikum fara ljós-
myndarar með blaðamönnum,
en annars vinna þeir mikið
sjálfstætt, og taka myndir ýmist
eftir pöntunum frá blaðamönn-
um eða af því sem þeim sjálfum
sýnist að geti átt erindi á prent.
En blaðamennska felst í fleiru
en beinni fréttaöflun. Sumir
hafa það verkefni að sjá um
Anna Björk Sigurðardóttir er f jölhæfur fréttamaður, en hennar sérsvið
eru landbúnaðarmál.
'' v;
Bjarghildur Stefánsdóttir er með
elstu starfsmönnum á ritstjórn.Á
hennar könnu er m.a. að haldi
uppi stfelldum vinsældum Speg-
ilsins, dagbókarefni og fleiru.
fasta þætti blaðsins. Ganga þarf
frá efni í dagbók, velja, þýða og
endursegja skemmtilegheit í
Spegil Tímans, sem er orðinn
gróinn þáttur á síðum blaðsins.
Kynningar á hljóðvarps- og út-
varpsdagskrám er ærinn starfi
og þýða þarf myndasögur og
margt er það fleira, sem virðast
kann smálegt þegar komið er á
sinn stað, en ótrúlega mikil
vinna liggur að baki.
Aðsendar greinar streyma að
blaðinu og eru af ýmsum toga.
Undir heitinu Vettvangur eru
birtar greinar nafnkenndra
höfunda um aðskiljanlegustu
efni. Eru þær að vonum misjafn-
ar að gæðum, en flestar ágætar
sem betur fer. Það er stefna
Tímans að sem flestir geti komið
skoðunum sínum á framfæri í
blaðinu og þurfa þær engan
veginn að falla undir þá rit-
stjórnarstefnu sem þar ríkir eða
að skoðunum útgefenda. Séu
greinar skikkanlega skrifaðar og
lausar við persónuníð eru yfir-
leitt engir meinbugir á að þær
séu birtar í blaðinu.
Minninga- og afmælisgreinar
eru stundum umtalsverðar að
magni, og reynslan sýnir að þær
eru ekki síðra Iesefni en margt
annað sem birt er.
Nokkrir aðilar, sem ekki eru
fastir starfsmenn, skrifa að stað-
aldri í Tímann. Sigurður Stein-
þórsson skrifar um tónlist, Gunn-
ar Stefánsson um leiklist og
Helgi Ólafsson, stórmeistari,
hefur skrifað um skák. Þrír
menn skrifa um bókmenntir,
þeir Halldór Kristjánsson og
Jón P. Þór, sagnfræðingur og dr.
Eysteinn Sigurðsson. Sá síðast-
nefndi er fastur starfsmaður
Tímans og auk þess að vera
aðalbókmenntagagnrýnandi
blaðsins, skrifar hann mikið um
samvinnumál og margs konar
málefni önnur.
ÖIlu því efni sem framleitt er
á ritstjórninni og sent er að, þarf
að finna stað í blaðinu. Niður-
röðun efnis og-útlitsteikning fer
fram í sérstakri deild, sem er
tengiliður milli ritstjórnar og
Páll Hannesson er í innlendum fréttum. Hann skrifar öðru fremur um
efnahags- og atvinnumál.
Bergf jót Daviðsdóttir skrifar í Helgarblað. Efni í því er fjölbreytt og starf-
ið eftir því. Blaðamenn við Helgarblað verða að hafa mikið frumkvæði
að því sem þeir taka sér fyrir hendur.
Hjördís Árnadóttir er íþróttafréttaritari Tímans. Vinnudagur hennar er
oft langur og strangur og varla er það á færi annarra en áhugamanna
um bæði blaðamennsku og íþróttir að sinna því starfi.
Kristín Leifsdóttir sér um kynningu á hljóðvarpi og sjónvarpi. Hún velur
einnig efni og þýðir í Spegil, en það er með hennar störf eins og annarra
blaðamanna að þeim verða ekki gerð tæmandi skil með upptalningu.
Þórður Ægir Óskarsson skrifar fréttir frá Alþingi og sitthvað fleira um
það er að stjórnmálum lýtur. Þegar þing situr er Alþingi hans annar
vinnustaður.