Tíminn - 17.03.1987, Page 23

Tíminn - 17.03.1987, Page 23
Þriðjudagur 17. mars 1987 Tíminn 23 endur hafa fyrir augunum. Let- urstærðir eru margar, allt frá stóru fyrirsagnaletri niður í smæsta lesmál og gefa setjarar tilteknar skipanir á tölvur til að fá fram umbeðna leturstærð. Umbrotsmenn líma upp les- málsdálka, fyrirsagir, myndir og yfirleitt allt það sem bíaðanot- endur sjá á síðunum. Allt er þetta á sínum stöðum, rétt gert og einfalt þegar blaðið er full- prentað, en er nákvæmnisvinna sem krefst útsjónarsemi og kunnáttu. Þegar Tíminn setti á fót eigin prentsmiðju fyrir nokkrum árum voru tölvur teknar í notk- un við setningu. Á skrifstofu hefur tölvutækn- in einnig verið notuð um nokk- urt skeið, svo sem við bókhald, skráningu áskrifenda og fleira. í vetur var stigið stórt skref í frekari tölvuvæðingu. Ritstjórn- in var tölvuvædd. Blaðamenn skrifa nú texta sína beint inn á tölvur, afrit er tekið, en textinn er einnig sendur beint í prent- smiðjuna, þar sem tölvutæknin sér um að umbreyta honum í prentletur og lesmálsdálka, eða fyrirsagnir, allt eftir hvaða skipanir eru gefnar. Þetta sparar tvíverknað og þar með mikla vinnu. Er óhætt að fullyrða að með tölvutækn- inni á sér stað bylting í blaða- mennsku og blaðaútgáfu. Starfs- fólki var gefinn kostur á nám- skeiði til að læra nýjar vinnuað- Guðmundur Óli Ólason, prentari. Guðný Kristjánsdóttir, setjari. Ólöf Jónsdóttir, afgreiðslustjóri Signý Ólafsdóttir vinnur við pökkun og dreifingu. ferðir og árangurinn lét ekki á sér standa, fljótari vinnuaðferðir og sparnaður í starfsmanna- haldi. Tölvurnar á ritstjórn eru af Compaq-gerð og henta einkar vel því hlutverki sem þeim er ætlað að vinna. Tölvutæknin er ekki bundin við ritstjórnina og prentsmiðjuna eina. því Tíminn á nokkrar ferðatölvur, sem blaðamenn geta tekið með sér hvert á land sem er og skrifað sínar fréttir inn á þær og sent símleiðis inn á ritstjórn og þaðan beint í prentsmiðju. Nefna má að þingfréttaritari Tímans hefur tölvu meðferðis í þinghúsinu, skrifar þar sínar fréttir, jafnvel á meðan þingfundir standa yfir og sendir þær inn í tölvukerfi prentsmiðjunnar, sem skilar þeim fullmótuðum til upplím- ingar í blaðið. Þróunin á þessu sviði heldur sjálfsagt áfrant og blaða- mennska og blaðaútgáfa á enn eftir að breytast, kannski meira en okkur órar fyrir nú. En aðrar breytingar eru fyrir- sjánlegar hjá Tímanum. Sam- starfsfyrirtækin um Blaðaprent hafa keypt nýja og fullkomnari prentvél, eða pressu, en þau ráða nú yfir. Hún er þegar komin til landsins og farið er að byggja yfir hana við Lyngháls. Þar er einnig hafin bygging á stórhýsi yfir alla starfsemi Tímans, og þeirra blaða sem standa með honum að rekstri Blaðaprents h.f. Stefnt er að því að starfsemin þarna verði komin í fullan gang þegar Iíður á árið. Guöný Jónsdóttir og Kristín Þor- bjarnardóttir, prófarkalesarar, vinna vandasamt starf og þótt villa sleppi í gegn um kerfið eru það smámunir einir miðað við atlt sem þær leiðrétta. En þótt margt sé í bígerð og Tíminn og vinnuaðstaða öll við blaðið eigi enn eftir að breytast verður að halda útgáfunni áfram eins og hún er í dag því ekki dugir að mæna í framtíðina og gleyma kaupendunum sem vilja fá blaðið sitt í fyrramálið. Hér hefur verið rakið í mjög stórum dráttum hvernig dagleg vinna við Tímann er skipulögð án þess að skeyta um tímaröð eða hvernig verkefnin ganga í smá- atriðum frá einum aðila til ann- ars þar sem keðjan má hvergi bila og hver hefur sínurn sér- stöku skyldum að gegna. í upphafi var þess getið að vinna við Tímann stendur yfir allan sólarhringinn. Þegar síð- ustu blaðamenn fara heim u.ndir miðnættið eru prófarkalesarar og umbrotsmenn að leggja síð- ustu hönd á gerð blaðsins. Síðurnar eru þá sendar út í Blaðaprent, þar sem fólk er nýkomið til vinnu. Þar eru þær ljósmyndaðar og unnar á álplöt- ur með sérstökum hætti og kom- ið fyrir í prentvélinni, sem óðar er sett í gang og blaðið fær sína endanlegu gerð á pappírnum. Þá tekur pökkunin við og er blaðinu pakkað eftir settum reglum til að senda umboðs- mönnum um allt land og útburð- arfólki í þéttbýlinu. Hver þarf að fá sinn pakka mismunandi stóran eftir kaupendafjölda á hverjum stað. Þegar er pakkarnir eru tilbún- ir hefst útkeyrslan. Blaðinu þarf að koma með fyrstu ferðum langferðabíla og flugvéla, svo að sem flestir kaupendur geti fengið það til lestrar árla dags. Á höfuðborgarsvæðinu er Tímanum ekið heim til útburð- arfólks, sem er með árrisulustu borgurum og leitast er við að sem flestir áskrifendur fái blaðið ekki síðar en morgunkaffið. Um það bil sem Tíminn dettur inn um bréfalúgurnar í höfuð- borginni mæta svo fyrstu prent- arar og blaðamenn á sinn vinnu- stað til að starfa að blaði morg- undagsins. OO Ágústa Pála Klein, setjari. Sigurborg Oddsdóttir, setjari. Þórunn Bjarnadóttir, setjari. Ingibjörg Leifsdóttir, setjari.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.