Tíminn - 03.03.1987, Side 3
Þriðjudagur 3. mars 1987
Tíminn 3
Verðlagsnefnd ákveður 22% hækkun á launalið bænda:
Tíu prósent hækkun
tekur gildi strax
- öðrum hækkunum frestað til 15. mars. Þingflokkur Framsóknar
segir launahækkun til bænda nauðsynlega
í mjög hörðum árekstri
Tveir menn létust og kona og
telpa slösuðust í mjög hörðum
árekstri rétt norðan viö Tíðaskarð
á Kjalarncsi um miðjan dag á
sunnudag. Ökumenn beggja bif-
reiðanna létust, þegar bílarniróku
saman úrgagnstæðum áttum. Öku-
maöur var einn í öðrum bílnum en
þrír farþegar voru í hinum.
Tildrög slyssins virðast hafa ver-
ið j)au að bíll sá sem ekið var í
suðurátt ók á röngum vegarhelm-
ingi. Ekki var um að ræða framú-
rakstur.
Ökumennirnir tveir sem létust
heita, Jónas Ewald Jónasson 24
ára gamall til heimilis'að Köldu-
kinn 29, og Gísji Andrésson bóndi
að Hálsi í Kjós. Gísli var 69 ára
gamall. Hann var giftur og lætur
eftir sig.níu uppkomin börn. Kona
Jónasar og telpur þeirra tvær voru
farþegar í bílnum.
Tveir farþegar voru fluttir á
slysadeild. Kona sem sat í framsæti
bifreiðarinnar sem ekið var í
norðurátt, slasaðist og einnig
stúlka sem sat í aftursæti. briöji
farþeginn slapp ómeiddur.
Umferð tepptist í nokkurn tíma
þegar lögregla og sjúkrabflar voru
að athafna sig á slysstað.
- ES
Verðlagsnefnd búvara (sex manna
nefnd) samþykkti á fundi sínum sl.
sunnudag 22% hækkun á launalið
verðlagsgrundvallar sauðfjárbúa og
kúabúa. Um leið var ákveðið að
hækka launalið verðlagsgrundvallar-
ins um 10% frá og með 1. mars en
fresta að öðru leyti hækkunum til 15.
mars, að beiðni ríkisstjórnarinnar.
Þessi frestur var samþykktur af 4
fulltrúum af sex en tveir fulltrúar
neytenda í nefndinni vildu að hækk-
unin kæmi öll til framkvæmda strax.
í bréfi frá forsætisráðherra kemur
fram að ríkisstjórnin hafi ekki fengið
vitneskju um þá heildarhækkun sem
bændur telji sig eiga rétt á fyrr en á
ríkisstjórnarfundi þann 26. febrúar.
Ef af þessari hækkun verði, sé ljóst
að það muni valda mjög mikilli
gagnrýni, m.a. frá Alþýðusambandi
Islands. Auk þess sýndist Ijóst að
slík hækkun myndi valda samdrætti
í sölu. Tekið er fram í bréfinu að
ríkisstjórnin sé ekki að leggja dóm á
réttmæti hækkana með því að biðja
um þennan frest, en vilji leita allra
leiða í samráði við fulltrúa bænda til
þess að hækkun landbúnaðarafurða
verði sem næst almennri verðlags-
þróun í landinu.
Ingi Tryggvason formaður Stéttar-
sambands bænda sem á sæti í sex-
mannanefnd segist álíta að þessi
frestur sé gefinn til þess að gefa
ríkisvaldinu möguleika á að finna
leiðir til þess að búvöruverðshækk-
anir fari ekki að öllu leyti út í
verðlagið en komi ekki niður á
launahækkunum bænda.
Jafnframt segist Ingi ekki sjá ást-
æðu til annars, en umræddar hækk-
anir komi til framkvæmda 15. mars
og hafi venjuleg áhrif á verð til
neytenda þá, hafi ekki fundist aðrar
leiðir til að draga úr áhrifum þeirra
á vöruverð til neytenda.
Jón Helgason landbúnaðarráð-
herra sagði í samtali við Tímann að
hann og fjármálaráðherra hefðu í
gær átt viðræður við fulltrúa Alþýðu-
sambandsins og að hann hefði skipað
mann í viðræðunefnd við Stéttar-
samband bænda. Sagði Jón að þessi
nefnd myndi leita leiða til að koma
í veg fyrir að búvöruverðhækkanirn-
ar færu út í verðlagið án þess að slíkt
kæmi niður á launahækkunum til
bænda.
Stjórn félags kúabænda á sunnan-
verðu Snæfellsnesi kom saman til
skyndifundar sl. sunnudag vegna
ákvörðunar um að fresta launahækk-
unum til bænda. Þar segir m.a.:
„í 1. gr. búvörulaganna, d.lið
segir að kjör þeirra sem landbúnað
stunda verði í sem nánustu samræmi
við kjör annarra stétta. Nú er það
viðurkennd staðreynd að kjörbænda
eru mun lakari en kjör annarra
stétta í landinu sbr. skýrslu Byggða-
stofnunar um byggð og atvinnulíf
1985. í>ví samjtykkir stjórnin að
mótmæla harðlega þeirri frestun á
hækkun á launalið verðlagsgrund-
vallarins sem taka átti gildi l.mars.
Fundurinn telur það óþolandi að
tekjulægsta stétt landsins sé neydd
til að gefa eftir sinn rétt til launa-
hækkunar til lengri eða skemmri
tíma."
„Bændur eru mjög óánægðir með
þessa ákvörðun um að fresta hækk-
unum. Það er í raun verið að taka
5% af launum bænda. Hjá sumum
þýðir þetta 300 krónur á dag, eða
rúm 100 þúsund á ársgrundvelli.
Samkvæmt skýrslu Byggðastofn-
unar er landbúnaðurinn að meðaltali
með 337 þúsund fyrir hvert ársverk
á meðan meðaltal allra stétta í
landinu er 482 þúsund fyrir hvert
ársverk. Þetta þýðir það að bændur
eru með 150 þúsund krónur undir
meðaltalslaunum. Verslunarmenn
eru næstir fyrir ofan bændur og
munurinn á hverjum á’slaunum þar
er um 100 þúsund." sagði Magnús
Aðkoman var hörmuleg eins og þessi mynd ber með sér. ökumenn beggja bílanna létust og tveir farþegar
slösuðust. í baksýn sést Tíðaskarð og nær röð bíla þangað, en umferð tepptist í nokkurn tíma. Báðir bílarnir
eru Ónýtir. Tímamynd Sverrir
Bílar óku saman á Kjalarnesi:
TVEIR LÉTUST OG
TVEIR SLÖSUÐUST
8.-9. umferö á IBM mót-
inu á Loftleiöum:
Einn
íslenskur
sigur um
helgina
Annars var helgin
slæm íslendingum
Tvær umferðir voru tefldar á IBM
skákmótinu um helgina. Áttunda
umferð var tefld á laugardaginn og
vakti sigur Jóhanns Hjartarsonar
yfir Nigel Short mesta athygli. Fram-
an af virtist sem heldur hallaði á
Jóhann. Með snilldarlcgri tafl-
mennsku sneri Jóhann því sér í hag
og þegar upp var staðið frá borðinu
var Jóhann búinn að bæta við sig
vinningi.
Önnur úrslit urðu sem hér segir í
áttundu umferð: Jón L. og Tal
sömdu um jafntefli eftir aðeins ellefu
leiki. Helgi Ólafsson gerði jafntefli
við Júgóslayann Ljubojevic. Mar-
geir mætti ofjarli sínum þar sem
Polugajevski var á ferðinni. Holl-
endingurinn Timman sigraði Ung-
verjann Portisch. Kortsnoj sigraði
Agdestein.
Níunda umferð sem tefld var á
sunnudag, var ekki sú besta af hendi
íslensku þátttakendanna sem sést
hefur. Tvær skákir töpuðust, og tvö
jafntefli litu dagsins ljós. Samtals
fengu stórmeistararnir okkar fjórir
því einn vinning. Jóhann Hjartarson
gerði jafntefli við Timman og Helgi
gerði jafntefli við Portisch. Þá gerðu
þeir Short og Polugajevski jafntefli
og sömuleiðis þeir Kortsnoj og Lju-
bojevic. Agdestein sigraði Jón L. og
Tal sigraði Margeir.
Ályktanir SUF:
Kosningalögin og „mjúku málin”
Um síðustu helgi var haldinn
fundur í miðstjórn SUF og voru þar
m.a. samþykktar ályktanir um kosn-
ingalög, fjölskyldumál og íþrótta-
og tómstundamál. Erþarm.a. harm-
að að kosningalaganefnd skyldi ekki
sjá sér fært að stuðla að auknu
valfrelsi kjósenda milli einstakra
frambjóðenda á listum stjórnmála-
flokkanna. Er þetta ekki síst talið
mikilvægt í ljósi reynslunnar af próf-
kjörum og sérframboða þeirra sem
þar lúta í lægra haldi. Þá er bent á að
nefndinni hefði verið í lófa lagið að
leita fyrirmynda í Danmörku og á
írlandi.
í ályktun um fjölskyldumál er
m.a. lögð áhersla á mikilvægi þess
að vinnutími sé styttur svo fjölskyld-
an geti verið meira saman. Þá sé
nauðsynlegt að vinna áfram að lausn
húsnæðismálanna og í því sambandi
að auka á valkosti núverandi kerfis,
t.d. auka framboð leiguhúsnæðis og
íbúða á félagslegum grundvelli.
Nauðsynlegt sé að tryggja vellíðan
barna meðan foreldrar vinna úti
með byggingu og rekstri dagvistar-
heimila og komið verði á fjölskyldu-
launum til foreldra sem eiga börn á
dagheimilisaldri. Verði foreldrum
þannig veitt valfrelsi um það hvaða
hátt þeir kjósa að hafa á gæslu barna
sinna. Fjölskyldulaunin verði greidd
beint frá ríki og miðist við tekjur og
fjölskyldustærð. Þá verði lög um
fæðingarorlof endurskoðuð þannig
að þau tryggi öllum greiðslu án tillits
til atvinnuþátttöku og jafnframt
verði fæðingarorlof lengt.
Meðal þess sem fram kemur í
álytkunum um íþróttir og tóm-
stundastarf má nefna að áhersla er
lögð á að allir eigi kost á slíku starfi
án tillits til starfs, búsetu, aldurs,
stéttar eða kyns. Þá er bent á það að
íþrótta- og tómstundastarf sé hluti
menntakerfisins og nauðsynlegt og
raunar eðlilegt að nýta sem best
skóla og annað opinbert húsnæði
sem ætlað er til tómstunda. Sveitar-
félögin eru hvött til að styðja við
bakið á íþrótta- og tómstundastarf-
inu enda felist í því einhver sterkasta
vörnin gegn fíkniefnavandanum.
Mikilvægi þess að íþrótta- og æsku-
lýðsfélög eigi sitt eigið húsnæði er
áréttað og bent á að í því skyni verði
að efla íþróttasjóð og félagsheimila-
sjóður verði að halda sínum mörk-
uðu tekjustofnum. Þá er í lokin bent
á mikilvægi þess að endurskoða
íþróttalögin og marka þar þá stefnu
að þeir sem stýra þessari starfsemi
geti einbeitt sér að öðrum verkefn-
um en fjáröflun.
-RR
Guðjónsson bóndi í Hrútsholti á
Snæfellsnesi.
Þingflokkur Framsóknarflokksins
ályktaði um þetta mál á fundi sínum
í gær og sagði Páll Pétursson formað-
ur þingflokksins að ekki kæmi til
greina annað en bændur fengju sínar
tilskildu launahækkanir. Þingflokk-
urinn er sammála þeirri frestun sem
orðið hefur eins og málin standa, en
að sögn Páls koma auknar niður-
greiðslur til greina sem leið til að
tryggja launahækkunina til bænda
þó aðrar leiðir séu jafnframt hugsan-
legar.
Hörður Sigurgrímsson formaður
Landssambands kúabænda sagði í
samtali við Tímann, að hann væri
ekki ánægður með þessa frestun, en
hins vegar væri ekki hægt að for-
dæma strax tilraunir ríkisstjórnar-
innar til þess að minnka áhrif hækk-
ana á launum til bænda á verð til
neytenda. Það sé jákvætt að sex-
mannanefnd hafi ákveðið þessa
hækkun, þótt hún komi ekki til
framkvæmda fyrr en að hálfum mán-
uði liðnum.
ABS/BG
Nýr formaður blaðamanna
Á aðalfundi Blaðamannafélags íslands sem haldinn var sl. laugardag
urðu formannaskipti í félaginu. Ómar Valdimarsson sem verið hefur
formaður undanfarin sex ár gaf ekki kost á sér til endurkjörs, en í hans
stað var Lúðvík Geirsson sem verið hefur varaformaður, einróma kjörinn
formaður. Á aðalfundinum á laugardag þökkuðu blaðamenn Ómari vel
unnin störf fyrir félagið á umliðnum árum um leið og þeir fögnuðu nýjum
formanni. Ómari var á þessum tímamótum gefíð forláta pennasett af
Blaðamannafélaginu þar sem letruð voru á silfurskjöld þakklætisorð.
Á myndinni má sjá Lúðvík formann færa Ómari pennasettið.
Tímamynd Sverrir