Tíminn - 03.03.1987, Blaðsíða 16

Tíminn - 03.03.1987, Blaðsíða 16
16 Tíminn Félagsmálafulltrúi Ólafsvíkurkaupstaður auglýsir stöðu félagsmála- fulltrúa lausa til umsóknar. Um er að ræða nýja stöðu á vegum bæjarins og er um að ræða 1/2 dags starf. Laun samkvæmt kjarasamningum B.S.R.B.. Leitað er eftir einstaklingi með reynslu á sviði félagsmála. Allar nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri í síma 93-6153. Afgreiðslugjaldkeri Óskum að ráða starfskraft í stöðu afgreiðslugjald- kera á bæjarskrifstofu Ólafsvíkurkaupstaðar. Um er að ræða 1/i dags stöðu og eru laun samkvæmt kjarasamningum B.S.R.B.. Við leitum að dugleg- um starfskrafti með viðskiptamenntun og reynslu í skrifstofustörfum. Allar nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri í síma 93-6153. Bæjarstjórinn í Ólafsvík. Vinningstölurnar 28. febrúar 1987 Heildarvinningsupphæð: 5.029.253,- 1. vinningur var kr. 2.519.663,- Þar sem enginn fékk fyrsta vinning, færist hann yfir á fyrsta vinning í næsta útdrætti. 2. vinningur var kr. 753.936,- og skiptist hann á 417 vinningshafa, kr. 1.808,- á mann. 3. vinningur var kr. 1.755.654,- og skiptist á 9439 vinningshafa, sem fá 186 krónur hver. Uppl. sími: 685111 Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Hita- veitu Reykjavíkur er að fara af stað með lokað útboð á smíði og uppsetningu á vinnubúðum á Nesjavöllum. Þeir bjóðendur sem áhuga hafa á að taka þátt í útboði þessu skulu leggja inn nafn og símanúmer á skrifstofu vora fyrir 7. mars n.k., ennfremur liggja frammi til sýnis á skrifstofu vorri útboðs og verklýsing ásamt teikningum á verkinu til og með sama tíma. INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR. Frikirltjuvagi 3 — Simi 2S800 ÉE Sjúkraliðar og B aðstoðarfólk Óskast til starfa nú þegar og til afleysinga í sumar, sveigjanlegur vinnutími - lifandi starf. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 91-29133 frá kl. 8-16. Vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar + Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóðir og amma Erla Þórdís Jónsdóttir, dó í Borgarspítalanum 28. febrúar sl. Helgi Kolbeinsson Alexander Valdimarsson, Ragnheiður Valdimarsdóttir, Þórunn Valdimarsdóttlr, Lilja Valdimarsdóttir, T rausti Valdimarsson, Vala Valdimarsdóttir, Ásdís Valdimarsdóttir, Tengdabörn og barnabörn. Fréttabréf inn mélefni aldraéra Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar hefur nú sent frá sér 4 fréttabréf til aldraðra Reykvíkinga, en byrjað var að senda út slt'k bréf á sl. ári. Fréttabréf um málefni aldraðra eru send öllum íbúum Reykjavíkurborgar, 67 ára og eldri og hafa margir aldraðir látið í Ijós þakklæti fyrir fréttabréfin. 1 fréttabréfi þessu er fjallað um réttindi aldraðra og ýmis hlunnindi sem veitast öldruðum Reykvíkingum en í ljós hefur komið að fjölmargir aldraðir vita ekki um ýmiskonar réttindi sem þeir hafa. Ennfremur er sagt frá því að höf- uðstöðvar félags- og tómstundastarfs ald- raðra hafa nú flust frá Norðurbrún 1 yfir í nýja félags- og þjónustumiðstöð í Hvassaleiti 56-58, V.R.-húsið. Helena Halldórsdóttir sem hefur verið yfirmaður félagsstarfsins lætur nú af þeim störfum en sinnir áfram störfum sem forstöðumaður í Norðurbrún 1, en Anna Þrúður Þorkelsdóttir hefur nýlega verið ráðin sem yfirmaður félagsstarfs aldraðra hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkurborg- ar. Reykjavíkurborg rekur nú opið félags- starf fyrir aldraða á 8 stöðumí borginni. 9. félagsmiðstöðin í Bólstaðahlíð 41-45 er tilbúin undir tréverk og verður væntan- lega tekin í notkun í haust og fyrir skömmu hófust byggingaframkvæmdir við 10. félags- og þjónustumiðstöð aldraðra á horni Vesturgötu og Garða- strætis. Það er ellimáladeild Félagsmálast. Reykjavíkurborgar sem hefur staðið að útgáfu fréttabréfsins og er hún til húsa í Tjarnargötu 11. Deildarfulltrúi deildarinnar er Anna S. Gunnarsdóttir en deildarstjóri er Þórir S. Guðbergsson. Sigurður Eyþórsson, listmálari. Sigurður Eyþórsson í Gallerí Gangskör Laugardaginn 28. febr. opnaði Sigurð- ur Eyþórsson, listmálari, sýningu í Gall- erí Gangskör, Amtmannsstíg 1 (Torf- unni). Það er hans fimmta einkasýning. Sýndar verða um 25 myndir alís, olíu- málverk, rauðkrítarmyndir, eggtempera- olíu málverk, portrét og teikningar. Opið verður alla virka daga frá kl. 12-18 og um helgar kl. 14-18 samtals 3 helgar að sunnudeginum 15. mars með- töldum. Dostoévskí-myndir endursýndar IMÍR Vegna mikillar aðsóknar og áskorana verða Dostoévskí-myndirnar, sem sýnd- ar voru tvo síðustu sunnudaga í bíósal MÍR að Vatnsstíg 10, endursýndar. „Fá- vitinn“, sovésk kvikmynd gerð 1958 eftir samnefndri skáldsögu Fjodors Dostoév- skí var sýnd sunnudaginn 1. mars kl. 16 og „26 dagar í lífi Dostoévskís" verður sýnd sunnudaginn 8. mars kl. 16. Skýring- artextar með myndunum á íslensku. Að- gangur að kvikmyndsýningum MÍR er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Árshátíð Breið- firðingafélagsins Árshátíð Breiðfirðingafélagsins verður haldin í Risinu, Hverfisgötu 105 laugar- daginn 7. mars og hefst kl. 19.00. Veislu. stjóri verður Auður Edda Jökulsdóttir. Á dagskrá verður: Ávarp formanns, borðhald, kvartettinn „Dalakútar" syng- ur og Jóhannes Kristjánsson fer með gamanmál. Tríó Þorvaldar og Vordís leikur. Aðgöngumiðar verða seldir á Hverfis- götu 105 þriðjudaginn 3. og miðvikudag- inn 4. mars kl. 17.00-19.00. Miða má panta í síma 4 24 92. Almanakshappdrætti Þroskahjálpar Almanakshappdrætti Landssamtak- anna Þroskahjálpar. Vinningurinn í janúar kom á nr. 4487 og vinningurinn í febrúar á nr. 10496. FRAMTÆKNI s/f Skemmuveg 34 N Vélsmiðja 200 Kópavogur Járnsmíði - Viðgerðir lceland Tel 91-641055 Vélaviðgerðir - Nýsmíði Óska eftir að kaupa notaðan Trioliett heymatara, má vera bilaður. Upplýsingar í síma 96-31172 eftir kl. 19.00. Þriðjudagur 3. mars 1987 Ljóðakvöld í Djúpinu í kvöld. þriðjudaginn 3. mars verður ljóðakvöld í Djúpinu, Hafnarstræti 15 oa hefst það kl. 20.30.' Þar lesa úr nýjum verkum sínum nokkur Ijóðskáld. Slík Ijóðakvöld eru haldin fyrsta þriðjudag hvers mánaðar á sama stað og eru allir velkomnir að sækja þau og hlýða á upplesturinn. Á meðan geta menn notið veitinga sem staðurinn hefur upp á að bjóða. Oddur Björnsson, básúnuleikari. Atli Heimir Sveinsson, tónskáld. Sinfóníuhljómsveit íslands: Oddur Björnsson leikur einleik í verki eftir Atla Heimi Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Is- Iands í Háskólabíói á fimmtudagskvöld mun sveitin flytja verkið Júbílus, konsert fyrir básúnu og blásarasveit, eftir Atla Heimi Sveinsson, tónskáld. Þar mun Oddur Björnsson, básúnuleikari, leika einleik með sveitinni og einnig í verki Svíans Lars-Eriks Larsson, Consertino fyrir básúnu og strengjahljómsveit. Önn- ur verk á efnisskrá Sinfóníunnar að þessu sinni verða Sinfónía nr. 2 eftir Franz Schubert og Capriccio Italien eftir Tsja- íkofskí. Verk Atla Heimis Sveinssonar, Júbí- lus, var samið árið 1983 fyrir Kammer- blásarasveit Tónlistarskólans á Akureyri, en birtist nú í aukinni og endurbættri gerð m.a. að viðbættu slagverki og tónbands- upptökum. Einleikarinn, Oddur Björnsson, lauk prófi úr Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1981, fór þá til Bandaríkjanna til frekara náms í New England Conservat- ory of Music í Boston og lauk B.M.-prófi úr þeim skóla vorið 1985. Þá um haustið var hann ráðinn fyrsti básúnuleikari Sin- fóníuhljómsveitar íslands og hefur gegnt því starfi síðan. Stjórnandi tónleikanna á fimmtudags- kvöld verður Páll P. Pálsson. 2. mars 1987 kl. 09.15 Kaup Sala Bandaríkjadollar....39,170 39,290 Sterlingspund.......60,949 61,135 Kanadadollar........29,388 29,478 Dönsk króna........... 5,6954 5,71280 Norsk króna........... 5,6259 5,6431 Sænsk króna........... 6,0743 6,0929 Finnskt mark.......... 8,6755 8,7021 Franskur franki...... 6,4477 6,4675 Belgískur franki BEC „ 1,0369 1,0400 Svissneskur franki....25,5129 25,5911 Hollenskt gyllini....19,0035 19,0617 Vestur-þýskt mark....21,4636 21,5294 ítölsk líra........... 0,03018 0,03028 Austurrískur sch...... 3,0518 3,0612 Portúg. escudo........ 0,2774 0,2783 Spánskur peseti....... 0,3047 0,3056 Japanskt yen.......... 0,25535 0,25613 írskt pund...........57,2470 57,4220 SDR þann 27.02 .......49,5689 49,7206 Evrópumynt...........44,3953 44,5313 Belgískur fr. fin..... 1,0266 1,0297 Samt. gengis 001-018 „290,20913 291,09711

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.