Tíminn - 03.03.1987, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 3. mars 1987
Tíminn 7
ÚTLÖND
Ertu að byggja upp
líkamann?
Við leitum að
blaðberum til
starfa víðsvegar
um borgina.
Óskum eftir blað-
berum í Hafnarfirði;
Kinnahverfi og Álfaskeiði
64-125.
Upplýsingar gefur um-
boðsmaður í síma
64 11 95.
Blaðbera vantar:
í Kópavog; Austurbæ og í
Tangahverfi í Mosfells-
sveit.
Garðabæ; Túnin.
Hafðu samband,
Iíniinn
•SIÐUMULA 15
S686300
Svíþjóð:
Viðskiptabann
á Suður-Afríku
Reagan Bandaríkjaforseti: Landsmönnum hans líkar enn vel við hann þótt
meirihluti þeirra sé óánægður með frammistöðu hans í forsetastóli
Vikuritið Newsweek kannar hugi Bandaríkjamanna:
Óánægðir með störf
Reagans en líkar
samt vel við hann
New Yorfc-Reuter
Ef marka má nýja skoðanakönnun
sem tímaritið Newsweek gekkst fyrir
er meirihluti Bandaríkjamanna ó-
ánægður með hvernig Reagan forseti
hefur staðið sig í embætti sínu. í
niðurstöðum könnunarinnar kom
nefnilega fram að 53% aðspurðra
gáfu Reagan neikvæða umsögn í
sambandi við frammistöðu í forseta-
stóli.
Þeir sem eru óánægðir með störf
forsetans nú eru nálægt helmingi
fleiri en áður en hneykslismálið í
sambandi við vopnasöluna til írans
var gert opinbert.
Newsweek sagði þó að þrátt fyrir
niðurstöðuna virtist sem forsetinn
væri enn persónulega vinsæll meðal
þjóðarinnar. Fleiri en þrír af hverj-
um fjórum sem þátt tóku í könnun-
inni sögðu að þeim líkaði vel við
forsetann sem persónu.
Ennfremur var rúmlega helming-
ur aðspurðra á því að stjórn Reagans
hefði unnið fleiri góð verk en slæm,
sem virðist benda til að Reagans
verði í framtíðinni ekki einungis
minnst fyrir íranshneykslið.
þeirra sem viljað hafa einangra Suð-
ur-Afríku efnahagslega og hafa t.d.
tekið fyrir allar fjárfestingar í land-
inu síðan seint á síðasta áratug.
Danska stjórnin ákvað á síðasta
ári að koma á fullum efnahagslegum
refsiaðgerðum og síðan þá hafa
sænsk stjórnvöld verið undir tals-
verðum þrýstingi á að korna á slíkum
refsiaðgerðum. í Noregi er einnig
verið að huga að svipaðri lagasetn-
ingu.
Samkvæmt heimildum innan iðn-
aðarfyrirtækja mun sænski stáliðn-
aðurinn , sem er mjög háður inn-
flutningi jarðefna frá Suður-Afríku,
koma verst út úr væntanlegu við-
skiptabanni og einnig nokkur fyrir-
tæki sem selja útbúnað og tæki til
suður-afríska náma.
Rútufarþegar
mega ekki
ræða stjórnmál
Nalróbi-Reuter
Eigendur lítilla hópferðabíla í
Kenýa hafa bannað stjórnmála-
umræður í bílum sínum og hótað
að henda hverjum þeim út sem
vekur máls á viðkvæmum póli-
, tískum málum.
Joseph Dheri formaður Matatu
bíleigendafélagsins þar í landi
sagði að hver sem vildi taka þátt
í stjórnmálum og ræða pólitísk
málefni gæti gengið í eina stjórn-
málaflokk landsins, Afríska
þjóðarflokkinn, og látið ljós sitt
skína þar.
ísrael:
Réttarhöldin
yf ir Demjanjuk
vekja athygli
Stokkhólmur-Reuter
Jafnaðarmannaflokkurinn í Sví-
þjóð gaf í gær ríkisstjórninni leyfi til
að koma á einhliða viðskiptabanni á
Suður-Afríku. Það var forsætisráð-
herra stjórnar jafnaðarmanna Ingv-
ar Carlsson sem frá þessu skýrði.
Carlsson sagði á blaðamannafundi
að flokkur sinn hefði komist að
þeirri niðurstöðu að breyta yrði út
frá venjulegri hefð vegna nauðsynar
á að berjast gegn kynþáttaaðskilnað-
arstefnunni. Sænsk stjórnvöld hafa
hingað til aðeins tekið þátt í refsiað-
gerðum þeim sem öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna hefur samþykkt.
Ekki er að fullu ljóst hversu
víðtækt viðskiptabannið kemur til
með að vera og hvenær það mun
taka gildi en Carlsson sagði stjórn
sína munu ákveða það á næstunni.
„Það sem flokkurinn hefur ein-
róma samþykkt er jákvætt svar við
einhliða sænskum viðbrögðum",
Ingvar Carlsson forsætisráðherra
Svíþjöðar: Lokar dyrum á Suður-
Afríku.
sagði Carlsson við fréttamenn.
Svíar hafa lengi verið í fararbroddi
Jcrúsulcm-Rcuter
Réttarhöldin í Jerúsalem yfir John
Demjanjuk, sem sakaður er um að
vera einn illræmdasti stríðsglæpa-
maður nasista, hafa að vonum vakið
mikla athygli í ísrael. í gær var einn
áhorfendanna í réttarsalnum enginn
annar en Yitzhak Shamir forsætis-
ráðherra og heyrði hann Demjanjuk
segja á hebresku við eitt vitnanna:
„Þú er lygari".
Suður-Kórea:
Hetjudáð
varð að
harmleik
Scoul-Rcutcr
Skólapilturinn Chung Min-Ho
frá Seoul í Suður-Kóreu stökk
inn í búr tígrisdýrs til að sýna
vinkonum sínum að hann væri
kaldur karl. Tígrisdýrinu var
brugðið við komu hins óboðna,
réðist á Chung og beit hann illa á
mörgum stöðum.
Atburður þessi átti sér stað í
dýragarði Seoulborgar. Einn af
vinum Chungs henti trefli inn í
búr tígrisdýrsins og manaði hinn
16 ára gamla kappa til að ná í
hann. Inn fór Chung en með
áðurnefndum afleiðingum.
í>að tók temjara tíu mínútur að
fá tígrisdýrið til að sleppa bráð
sinni. Er það tókst var farið með
Chung í sjúkrahús í snarhasti þar
sem hann liggur nú illa særður.
Vitnið Eliyahu Rosenberg hafði
sagt Demjanjuk vera „fvan
grimma", illmenni sem pyntaði
fanga og stjórnaði útrýmingu gyð-
inga í gasklefunum í Treblinka búð-
unum í Póllandi. Alls létu 870 þús-
und gyðingar lífið í gasklefunum í
Treblinka í síðari heimsstyrjöldinni.
Demjanjuk, sem fæddur er í
Úkraínu, hlustaði á framburð Ros-
enberg og umlaði síðan eitthvað á
hebresku. Þau orð reyndust vera
„Ara shakran" eða „Þú ert lygari“.
Þessi orðaskipti áttu sér stað í
fyrstu stríðsglæparéttarhöldunum í
ísrael síðustu 25 árin, réttarhöldum
sem hafa vakið mikla athygli meðal
almennings í ísrael og er nú útvarpað
beint á tveimur rásum þar í landi.
Hinn 66 ára gamli Demjanjuk er
fyrrum starfsmaður bílaverksmiðju
í Cleveland í Ohioríki í Bandaríkj-
unum. Hann var framseldur fyrir ári
síðan til ísrael eftir að gögn komu
fram sem bentu til að hann væri
sjálfur „ívan hinn hræðilegi", Úkr-
aínumaðurinn sem beindi kvalar-
losta sínum að dauðadæmdum gyð-
ingum í Treblinka útrýmingarbúð-
unum í Póllandi.
Demjanjuk hefur neitað ásökun-
um og segist vera tekinn fyrir annan.
ÚTLÖND
UMSJÓN:
Heimir
Bergsson
BLAÐAMAÐUR