Tíminn - 03.03.1987, Blaðsíða 4
4 Tíminrv
Þriðjudagur 3. mars 1987
Eru hvítar stúlkur fallegastar?
Lengi vel áttu stúlkur af öðrum
kynstofnum enga von um að finna
náð fyrir augum dómenda í fegurð-
armálum en nú virðist dæmið vera
að snúast við. Nú er jafnvel farið
að spyrja í alvöru: Eru hörunds-
dökkar stúlkur fallegastar?
Ári eftir að Hólmfríður okkar
Karlsdóttir var kjörin Ungfrú
heimur braut falleg hörundsdökk
stúlka ísinn og hreppti þennan
eftirsótta titil, aldrei áður hefur
stúlka af öðrum kynþætti en hvít-
um verið valin fallegasta stúlka í
heimi!. Stúlkan sem Hófí krýndi
sem arftaka sinn er frá Trinidad og
Tobago, 23ja ára einkaritari, Gis-
elle Jeanne-Marie Laronde að
nafni. í næstu sætum voru norræn
fegurðardís frá Danmörku og önn-
ur frá Austurríki.
Hingað til hafa dökkar stúlkur
átt erfitt uppdráttar í fegurðarsam-
keppni. Frægt varð þegar blökku-
stúlkan Vanessa Williams var kjör-
in Ungfrú Ameríka 1984. t>að leið
ekki á löngu þar til einhver valda-
mikill komst að raun um að hún
væri ekki hæf til að bera titilinn þar
sem nektarmyndir hefðu birst af
henni í karlablaði. Auðvitað var
hún svipt krúnunni hið snarasta og
nú man varla nokkur eftir skamm-
vinum frama þessarar fallegu
dökku stúlku með grænu augun.
Á undanförnum árum hafa höru-
ndsdökkar stúlkur líka haslað sér
völl í tískuheiminum og nú orðið
þykir sjálfsögð prýði hvers tí-
skuhúss a.m.k. ein stórfalleg höru-
ndsdökk sýningarstúlka. I sjón-
varpi eru þær líka búnar að vinna
sér sess. Shari Harper, dóttir Har-
rys Belafonte, er t.d. búin að hafa
fast hlutverk í framhaldsþáttunum
Hótel eins og íslenskum sjónvarps-
áhorfendum er í fersku minni.
Diahann Carroll þykir hafa bætt
við glæsileika Dynasty-þáttanna
þegar hún birtist sem stjúpsystir
Blakes Carrington.
Lað þótti hcimsfrétt á sínum
tíma þegar söngkonan fræga - en
svarta - Marian Anderson t'ékk
boð um að syngja í Metropolitan
óperunni fyrir unt 30 árum, en þá
var hún búin að njóta heimsfrægð-
ar fyrir list sína um langt skeið.
Sumir settu í brýnnar þegar Leont-
yne Price kom fyrst fram á því
sama sviði 1966. Nú kippir enginn
sér lengur upp við svartar söng-
stjörnur, hvorki þar né annars
staðar. Og svarta kvikmynda-
stjarnan Whoopi Goldberg hefur
slegið í gegn á sínu sviði.
Þessi viðhorfsbreyting í garð
hörundsdökkra kvenna hefur líka
leitt til þess að „blönduð" hjóna-
bönd eru ekki litin sama hornauga
í hvítum samfélögum og áður var.
Shari Harper er dóttir Harrys Belafonte og hörundsdökk. Hún
er orðin sjónvarpsstjama.
—
Vanessa Willianis var
kosin Ungfrú Ameríka
1984 en varð að skila
titlinum.
Þær eru
hörundsdökkar
og fallegar
og fá loks
viöurkenning
Naonii frá Fflabeins-
ströndinni er ein fag-
urra kvenna sem
skreyta almanak Pir-
elli-fyrirtækisins 1987.