Tíminn - 03.03.1987, Qupperneq 20
Ljúffengir
réttir í
hádeginu
BAKKI
____VEITINGAHÚ8_
Lækjargötu 8, sími 10340
Skaftahlíð 24 - Sími 36370
Rjúkandi
morgunbrauð
kl. 8 alla daga
YAMAHA
Vélsleðar
og fjórhjól
BUNADARDEILO |
SAMBANDSINS
ARMULA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900
T
Tíininn
Þriðjudagur 3. mars 1987
Félag háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga:
Boða verkfall 19. mars
Stjórn Félags háskólamenntaðra
hjúkrunarfræðinga hefur tilkynnt
vinnustöðvun frá og með 19. mars
næstkomandi. Kemur þessi til-
kynning í kjölfar úrslita atkvæða-
greiðslu meðal félagsmanna þar
sem 70 af 81 sem atkvæði greiddi
voru fylgjandi verkfalli, en alls
voru 89 á kjörskrá.
Samningum háskólamenntaðra
hjúkrunarfræðinga var sagt upp í
júlí 1986. Kröfugerð félagsins hef-
ur verið hafnað af Samninganefnd
ríkisins, en ríkið hefur boðið há-
skólamenntuðum hjúkrunar-
fræðingum upp á 3,5% hækkun
launa ásamt áfangahækkunum
ASÍ/VSÍ.
Ljóst er að þar sem vinnustöðv-
un þessi nær til 89 hjúkrunarfræði-
nga, munu margir mikilvægir þætt-
ir heilbrigðisþjónustunnar lamast
verulega. Samkvæmt heimildum
blaðsins hafa þegar verið haldnir
fundir þar sem settar hafa verið
upp áætlanir um neyðarþjónustu
þegar og ef til vinnustöðvunar
kemur.
Ekki fengust frekari upplýsingar
í gær en yfirlýsinga um viðbrögð er
að vænta í dag.
-RR
Kennarar í HIK boða verkfall:
Menntamálaráðuneytið
komið inn í viðræður
- endurskoðun og endurmat á kennarastarfi
rætt í sérstakri undirnefnd
Kennarar innan Hins íslenska kennara með það fyrir augum að
kennarafélags (HÍK), hafa sam- auka hagræðingu í skólakerfinu.
þykkt að veita stjórn félagsins verk- Hugmyndin er að með aukinni hag-
fallsheimild og hefur þegar verið
boðað verkfall frá og með 16. mars
nk. Almenn atkvæðagreiðsla fór
fram í félaginu fyrir rúmri viku og
var talið nú um helgina og kom þá í
Ijós að rúmlega 65% félagsmanna
vildu fara í verkfall. Rúmlega 80%
félagsmanna greiddu atkvæði eða
919 kennarar, sem fyrst og fremst
kenna við framhaldsskóla landsins,
t.d. mennta- og fjölbrautaskóla.
Samningaviðræður hafa gengið
stirðlega að undanförnu en í gær
fundaði undirnefnd sem hefur það
meginmarkmið að endurskoða
launakerfi og endurmeta starfstíma
ræðingu skapist svigrúm til kjara-
bóta fyrir kennara án verulegrar
útgjaldaaukningar fyrir ríkisvaldið.
í þessari undirnefnd eiga sæti tveir
fulltrúar kennara, fulltrúi fjármála-
ráðuneytis og fulltrúi menntamála-
ráðuneytis. Skipan þessarar undir-
nefndar er í samræmi við þá stefnu
sem samningaviðræður hafa verið
að taka að hvert einstakt aðildarfé-
laginnan BHMRgeri sérstakasamn-
inga með sérstakri uppbyggingu
launakerfis sem taki eingöngu mið
af viðkomandi starfsstétt og hennar
starfsskilyrðum. Þannig verði
samanburður milli launakjara há-
skólamanna hjá ríkinu ekki lengur
„sjálfvirkur" eins og verið hefur.
ríkisins hefur sérstaklega mikinn
áhuga á þessari stefnu, en HÍK og
BHMR eru þó enn á því að hafa
samráð um lágmarkslaun í það
minnctn _ II
Landsfundur Sjálfstæöisflokksins í vikunni:
á átökum um
formann
Frjáls innflutningur á landbúnaðarvörum
óskynsamlegur nú, segir Þorsteinn Pálsson
IBM mótið:
Jón L. vann
Tíundu og næst síðustu umferð
IBM skákmótsins lauk á Hótel Loft-
leiðum í gærkvöld og urðu úrslitin
sem hér segir:
Helgi Ólafsson-Kortsnoj .... 0-1
Jón L. Árnason-Ljubojevic . . 1-0
Margeir Péturs.-Agdestein . . 0-1
Short-M. Tal ..............'A-'A
Timman-Polugajevski........ 'A-V6
Portisch-Jóhann Hjartar .... 0-1
íslensku skákmönnunum tókst ekki
að ná sér á strik í gær nema Jóni L.
sem tefldi hörku skák við Júgóslav-
ann Ljúbo. íslendingarnir raða sér
nú í flest neðstu sætin en fyrir 11. og
síðustu umferð er staðan þessi:
1. Short 7V4
2-4. Kortsnoj ...............6 Vi
2-4. Tal.......................Wi
2-4. Timman..................6Vi
5. Portisch.................... 6
6. Polugajevski................5H
7. Agdestein................... 5
8. Jón L......................4Vi
9-11 Ljubojevic...............3V6
9-11. Helgi Ólafs.............3>/z
9-11. Jóhann Hjartar...........342
12. Margeir Péturs.............lVi
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins telur ekki líkur
á átökum á 27. landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins, sem haldinn verður
dagana 5. mars til 8. mars nk. og
sagði Þorsteinn að þetta álit hans
næði einnig til formannskjörsins.
Á blaðamannafundi sem Þor-
steinn hélt í gær í tilefni af komandi
landsfundi Sjálfstæðisflokksins kont
fram að formaðurinn hefur litla trú
á, að tillaga viðskiptanefndar flokks-
ins um að innflutningur á landbúnað-
arafurðum verði gefinn frjáls, verði
samþykkt. Sagði Þorsteinn að þessi
hugmynd hafi stundum komið upp í
umræðum innan flokksins, en aldrei
verið ríkjandi og aldrei verið sam-
þykkt á landsfundi. „Við í forystu
flokksins teljum að við núverandi
aðstæður væri óskynsamlegt að gera
breytingu á þeirri stcfnu, sem hefur
verið fylgt að þessu leyti,“ sagði
Þorsteinn.
Um stöðuna eftir kosningar sagði
Þorsteinn það aðalatriði fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn að geta orðið í lykil-
hlutverki í næstu ríkisstjórn. „Ég tel
að baráttan standi um annars vegar
ríkisstjórn sem Sjálfstæðisflokkur-
inn væri þungamiðjan í, ellegar
vinstri stjórn undir hvaða nafni sem
Kjurtan Gunnarsson, framkv.stj.
Sjálfstæðisflokksins, Þorsteinn Páls-
son, formaður og Friðrik Sophus-
son varaformaður, á blaðamanna-
fundi í gær.
vinstri flokkarnir vildu gefa slíkri
stjórn.
Það fer auðvitað eftir styrkleika-
hlutföllum flokkanna eftir kosn-
ingarnar hver þeirra er fýsilegasti
kosturinn, frá okkar bæjardyrum
séð. Okkur þykir Alþýðuflokkurinn
hafa verið svolítið óstöðugur í rás-
inni og hlaupið málefnalega úr einu
máli f annað, en það útilokar í sjálfu
sér ekki samstarf eftir kosningar. Ef
fer sem horfir og aðalkeppnin verði
á milli Alþýðuflokks og Sjálfstæðis-
flokks, að þá liggur í augum uppi að
ef Alþýðuflokkurinn ynnni verulega
á, á okkar kostnað að það væri
ávísun á vinstristjórn," sagði Þor-
steinn Pálsson.
- Phh
eftir að hann yfirgaf bílinn
Ökumaður. sem margsinnis hef-
ur verið sviptur ökuréttindum
vegna hraðaksturs og ölvunar við
akstur var í gær handtekinn fyrir
að aka réttindalaus. Talsverður
eltingaleikur varð áður cn lögregl-
an náði ökufantinum. Hinn hrað-
aglaði ökumaður er í kringum
tvítugt.
Ökufanturinn, en hann stendur
sannarlega undir því nafni, sást á
leið upp Hverfisgötu. Þegar hann
varð var við að lögreglan veitti
honum athygli steig hann bensínið
í botn og ók upp Hverfisgötu.
Þegar hann var kominn langleiðina
upp eftir götunni, stöðvaði hann
bílinn og rcyndi að komast hlaup-
andi undan armi laganna. En arm-
ur laganna er langur og lögreglu-
þjónn, frár á fæti. hljóp ökufantinn
uppi og náði honum á Laugavegi.
Ökufantur þcssi hefur hlotið
þyngsta dónt á íslandi fyrir hrað-
akstur, en hann var sviptur öku-
leyfi í ár og gert að greiða háa sekt,
þegar hann var mældur á Sund-
laugaveginum reyndist hann vera á
180 km hraða en viðurkenndi hin-
svegar 160 km hraða og var dæmd-
ur fyrir það.
ökutæki fantsins tekið af kranabifreið í gær. Bflinn skildi hann eftir og hljóp síðan undan armi laganna en án
árangurs því lögreglumaður brá undir sig betri fætinum og náði ökufantinum á hlaupum á Laugavegi.
Tímamynd Sverrir
Harðsvíraöur ökufantur handtekinn:
LÖGREGLUMADUR
HLJÓP HANN UPPI
Ekki líkur