Tíminn - 05.05.1987, Blaðsíða 7

Tíminn - 05.05.1987, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 5. maí 1987 Tíminn 7 i'r * ' 4 . - ' i> V tejc ■ *&&&**, ? : > •* ■ "V "' JfílíðliM-X-'ífiíSí'* Wtt: *•" *>.!!**¥* * '■ <x . ,<4-^ x- *' ■. . , ,.w w _. , _ ..._,„_ wr - i—~^T_T_____________________ ,. . ««*~v ~ ^iS * _ , - - ■ ÍÍT- „,'•*'!*. í.«-w. ' '**" '(■«"* _ .í < *» - . ,xS^x%sí ' —— .. ■♦'' ***'-. *A. „ jg, J xí^^- ' ' ^Jte "• JjáL. 'lP? ' '7'-' "í- ' t I- s * ' 'ís'''s’ .., ,,, . «: .. : -v „'^s-eiáter,-: t: “ .ÍJ<- ‘* .-JIHMf, ««' Dýpkunarskipið Hákur í Ólafsfjarðarhöfn. Hafnargerð: Framkvæmt fyrir 218 milljónir kr. í ár -óskir sveitarstjórna um framkvæmdir nema 800 milljónum króna Samkvæmt fjárlögum fyrir árið 1987 verður veitt um 218 milljónum króna til hafnarframkvæmda víða um land í ár. Þetta er talsvert undir þeim 800 milljónum kr. sem hefði þurft til að uppfylla óskir sveitar- stjórna um framkvæmdir á þessu sviði. En venjulega er hlutur ríkis- sjóðs í hafnarframkvæmdum 75%. Þá má geta þess að Hafnarmála- stofnun telur vanta 115 milljónir króna til gera upp sinn hluta í framkvæmdum síðasta árs. Eftir að fjárveitingarnefnd Al- þingis hafði skipt kökunni þá var ljóst að hæsta hlutfallið fór til Norðurlands eystra eða 24,5%. Til Vestfjarða fóru 20,9%, til Austur- lands 19,1%, tii Vesturlands 11%, til Norðurlands vestra 10,7%, til Reykjaness 9,2%. Lestina rak svo Hafnarframkvæmdir á Norðurlandi eystra: Mörg stórverkefni á verkefnalistanum fjórðungur fjárveitinga til hafnarframkvæmda rennur til kjördæmisins Hlutfallslega mest af fjármagni því sem veilt er til hafnarfram- kvæmda á fjárlögum í ár rennur til Norðurlandskjördæmis eystra. Þangað fara alls 55,7 milljónir eða 24,5%. Suðurland með 4,6%, enda aðeins um þrjá útgjaldaliði að ræða. Utan við þetta dæmi standa lands- hafnirnar þrjár, á Rifi, í Njarðvíkum og í Þorlákshöfn, ásamt Reykjavík- urhöfn. Þá var lögð fram til kynningar á Alþingi þingsályktunartillaga til hafnaráætlunar fyrir árin 1987-1990. Gert er ráð fyrir að þingsályktunar- tillagan verði samþykkt án teljandi breytinga á jtinginu sem saman kem- ur í haust. Aætlunin, sem eingöngu tekur til hafna í eigu sveitarfélaga og njóta jafnframt ríkisstyrks, gerir ráð fyrir umtalsverðri aukningu á fjár- framlögum til framkvæmda í hafnar- málum á tímabilinu. Er þar gert ráð fyrir að alls verði varið rúmlega 1,7 milljarði króna til hafnarframkvæmda og verður dreif- ingin á kjördæmin í svipuðum hlut- föllum og að ofan greinir. í áætluninni eru tíundaðar ein- stakar framkvæmdir víðs vegar um land og áætlaður kostnaður við þær. ÞÆÓ Norðurland vestra: Blönduós- höf n næstu stórfram- kvæmdir Hlutur Norðurlands vestra af fjár- lögum til hafnarmála nemur 23,3 milljónum krónaeða 10,7% afheild- arfjárveitingunni til þessa mála- flokks. Á svæðinu verður framkvæmt á sjö stöðum. Siglufjörður fær stærsta skerfinn, 7,3 milljónir króna, og fer það til byggja brimvörn. Síðan koma Sauðárkrókur með 5 m.kr. til bygg- ingar fyrsta áfanga smábátahafnar, þá Blönduós með 4 m.kr., Haga- nesvík 2,2 m.kr. og Skagaströnd 2 m.kr. í tillögu til þingsályktunar um hafnaáætlun fyrir árin 1987 - 1990, sem lögð verður fyrir þing í haust, er gert ráð fyrir að hlutur Norðurlands vestra af heildarkökunni, rúmum l, 7 milljörðum króna, verði tæp 13% eða 222,5 m.kr. Langstærsti Iiðurinn í þeirri áætl- un er upp á 95 milljónir, en það er gerð hafnar á Blönduósi og fer nær allt þetta fjármagn til byggingar brimvarnargarðs. Þar sem þetta er stórframkvæmd, þá er gert ráð fyrir að fjármagna verði a.m.k. hluta hafnarsjóðs að miklu Ieyti með lánsfé. Þá er áætlað að vinna við uppbygg- ingu hafnarinnar á Siglufirði fyrir 40,6 m.kr. á næstu fjórum árum, við höfnina á Sauðárkróki fyrir 36 millj- ónir og á Skagaströnd fyrir 23,7 m. kr. ÞÆÓ Nýtt bindi kennaratals Út er komið IV bindi kennaratals- ins með 2.779 æviágripum kennara sem hafa upphafsstafina H-Ó. Með þessu 4. bindi eru æviágrip Kennara- talsins orðin 8.461. telja má víst, að æviágrip 1.-5. bindis verði yfir 11 þúsund og er þetta því stærsta stétta- tal sem gefið er út á íslandi. Útgef- andi Kennaratalsins er Prentsmiðjan Oddi hf. og er hægt að fá bindin keypt hjá útgefanda (s: 83366) og í bókaverslunum. Þeir sem áttu urðu fátækir og hinir skuldugu ríkir: Langstærsta framkvæmdin á árinu, og jafnframt á landinu öllu, er á Árskógsströnd, en þar er ætlunin að vinna fyrir alls 15,8 m.kr á þessu ári við byggingu bryggju og grjótgarðs. Á Ölafsfirði verður framkvæmt fyrir 11,5 milljónir í ár og er dýpkun hafnarinnar stærsta verkið. Á Rauf- arhöfn verður unnið fyrir 8,6 m.kr. við annan áfanga löndunarkants við frystihús, en ætlunin er að ljúka því verki á næsta ári. Til hafnarinnar á Þórshöfn fara 5,4 m.kr í ár og til Akureyrar fara 5,3 m.kr.. Einnig er veitt fé til framkvæmda á átta öðrum stöðum í kjördæminu en þar er um mun minni fjárhæðir að ræða. Hafnaráætlun, sem lögð var fyrir Alþingi til kynningar í vor og ætlunin er að samþykkja í haust, gerir ráð fyrir umtalsverðum framkvæmdum í kjördæminu á næstu fjórum árum eða fyrir alls 355 milljónir kr. Til dæmis er gert ráð fyrir að leggja 71,8 m.kr. í höfnina á Húsavík og er þar fyrst og fremst um að ræða breikkun Norðurgarðs og grjótvörn á hann. Grímseyingar eiga von á vænu fram- lagi til hafnargerðar, aðallega gerð grjótvarnargarða, eða 45 m.kr. Svip- uð fjárveiting er ætluð til hafnar- gerðar á Árskógsströnd. Framhaldið verður hafnarbótum á Ólafsfirði og er gert ráð fyrir að þangað renni 39 m. kr. á árunum 1988-1990 til viðbótar fjárveitingu ársins í ár. ÞÆÓ Eignuðust 129 fyrirtæki um 7.500 millj. út á skuldirnar? Um þá íslensku „listgrein“ að reka fyrirtæki með tapi árum og jafnvel áratugum saman og safna um íeið tugmilljóna eignum er nefnt athyglivert dæmi í nýjasta hefti Fjármálatíðinda Seðlabankans. Þar eru nefnd til sögunnar 129 fisk- vinnslu- og útgerðarfyrirtæki sem tekist hefur að öngla saman um 7.500 millj. króna eigin fé (um 58 millj. að meðaltali á fyrirtæki) þrátt fyrir vægast sagt afar knappa afkomu a.m.k. síðasta hálfa annan áratug- inn. Stærsti lánveitandi þeirra - Fiskveiðasjóður - á hins vegar að- eins um fimmtung af þeirri upphæð þrátt fyrir stórframlög úr ríkissjóði auk annarra tekna. Galdurinn að reikna rétt „í fyrstu mætti ætla að slök rekstr- arafkoma undanfarin ár hefði leitt til verulegrar rýrnunar eigin fjár, þann- ig að það sé mjög lítið nú. En svo er þó ekki eftir að eignir hafa verið endurmetnar," segir m.a. í grein eftir Guðmund Magnússon um hag sjávarútvegs. Raunverð eða bókfært verð Hann segir Þjóðhagsstofnun ný- lega hafa lokið úrvinnslu úr efna- hagsreikningum 129 fyrirtækja í út- gerð og fiskvinnslu miðað við árslok 1985, þar sem fiskvinnslufyrirtækin vegi þó þyngra. Niðurstöðurnar sýni, að veltufjármunir og bókfært verð fastafjármuna þessar fyrirtækja nam alls 19.500 milljónum. Á sama tíma var eigið fé 1.100 milljónir, eða um 5,6% af heildareignum. Fasta- fjármunir séu þá skráðir á bókfærðu verði. Séu fjármunirnir hins vegar færðir til raunvirðis eða því sem næst með því að færa skipin á vátryggingar- verði og tvöfalda bókfært verð véla og tækja komi heldur betur annað í ljós. Við það hækki eigið fé í rösk- lega fjórðung af heildareignum og geti því numið um 7.500 milljónum króna hjá þessum 129 fyrirtækjum. „Hér er óneitanlega um mikla fjármuni að ræða og spyrja mætti hvernig þetta fé hafi myndast," segir Guðmundur. „Ef marka má niður- stöður rekstraryfirlita útgerðar og fiskvinnslu undanfarinn hálfan ann- an áratug, er ekki annað að sjá en að rekstrarafkoman hafi verið afar knöpp, sérstaklega hjá útgerðinni, og því ekki líklegt að rekja megi umtalsverðan hluta af eignamyndun- inni til uppsafnaðs bókfærðs hagnað- ar af rekstri. Af þessu leiðir því, að verðgildi skuldanna hafi, þegar litið er yfir lengri tfma, rýrnað í saman- burði við fjármunina. Líklegast má telja, að rýrnun á verðgildi skuld- anna vegi þyngst." Fiskveiðasjóður orðinn „fátæklmgurinn“ f þessu sambandi bendir Guð- mundur á að Fiskveiðasjóður, stærsti fjárfestingalánasjóður sjávar- útvegsins, sé ekki öflugri en svo að hann hafi aðeins átt um 1.600 millj- óna króna eigið fé í árslok 1985 og svipað árið áður, eða aðeins rúmlega fimmtung af eign þessara 129 fyrir- tækja. Auk vaxtatekna hafi sjóður- inn þó um árabil notið tekna af útflutningsgjaldi auk umtalsverðra beinna fjárframlaga úr ríkissjóði. „Gullöldin“ liðintíð - nú verða menn að borga Guðmundur bendir hins vegar á að þessi „gullöld“ sé nú liðin tíð (sem raunar á jafnt við um fyrirtæki og einstaklinga). Atvinnurekstrin- um sé nú gert að endurgreiða með fullu verðgildi og jákvæðum raun- vöxtum þau lán sem hann fær. Það geri enn brýnna en fyrr að skapa honum þau rekstrarskilyrði sem duga til að standa undir þeim vöxtum. Góða afkomu útgerðar um þessar mundir eigi að skoða í því ijósi. -HEI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.