Tíminn - 05.05.1987, Síða 8

Tíminn - 05.05.1987, Síða 8
8 Tíminn Þriðjudagur 5. maí 1987 MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Fteykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjórar: Aðstoöarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriði G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason NíelsÁrni Lund OddurÓlafsson Birgir Guðmundsson EggertSkúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:; 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 (tæknideild) og 686306 (ritstjórn). Verð í lausasölu 55.- kr. og 65.- kr. um helgar. Áskrift 550.- Nauðsyn samráða í efnahags- og kjaramálum Tveir af helstu forystumönnum verkalýðshreyf- ingarinnar, Ásmundur Stefánsson og Þröstur Ólafsson, hafa nýlega lýst viðhorfum sínum til kjaramála og mótunar launamálastefnu. Skal þar einkum vísað til viðtals við Ásmund í Alþýð- ublaðinu 1. maí og við Þröst í ríkisútvarpinu 2. maí. í þessum viðtölum kom það skýrt fram, að þeir Ásmundur og Þröstur gera sér grein fyrir því að halda verður verðbólgu í skefjum, ef tryggja á varanlegar kjarabætur og kaupmátt launa, því að verðbólga getur ekki leitt til annars en víxlhækkana verðlags og launa með þeim af- leiðingum að kauphækkanir brenna upp á skömmum tíma í verðbólgueldinum. Slíkt getur ekki þýtt annað en það að kauphækkanir sem verða án tillits til verðbólguáhrifa eru ekki einasta unnar fyrir gýg, heldur beinlínis háskalegar fyrir afkomu launamanna um leið og verðbólgan grefur undan efnahag fyrirtækja og þjóðarbú- skapnum í heild. Það þarf því ekki að vera fyrir neina ást á ríkisstjórninni eða þeim flokkum sem með völdin fara að forystumenn Alþýðusambands íslands hafa talið það skynsamlegt að eiga beint um það við ríkisstjórnina að samræma stjórnaraðgerðir í efnahagsmálum kjaramálum verkalýðsstéttarinn- ar. Það merkir aðeins að forystumenn ASÍ hafa lært af reynslunni. Slíkt samráð milli frjálsra launþegasamtaka og ríkisvalds er höfuðnauðsyn, ef halda á uppi jákvæðri efnahagsstefnu og raunverulegri kjarabótastefnu fyrir verkafólk og aðra launþega. Slíkt samráð milli ríkisvalds og launþegasam- taka er viðurkennd pólitísk starfsregla á Norður- löndum og flestum öðrum lýðræðisríkjum, og á ekki síður við á íslandi en annars staðar. Þessi regla hefur þó ekki verið í heiðri höfð hér á landi fyrr en á síðustu árum, enda hefur þá brugðið svo við að gamla óðaverð bólguþróunin hefur snúist við, og er það engu öðru að þakka en þeim samráðum sem átt hafa sér stað milli verkalýðs- hreyfingarinnar og ríkisvaldsins. Þar hefur heilda- ryfirsýn ráðið ferðinni til hagsbóta fyrir alla aðila. Þess er út af fyrir sig ekki að vænta að forysta Alþýðusambands íslands né launþegar yfirleitt láti ríkisstjórn eða einstaka stjórnmálaflokka segja sér fyrir um hvernig skipta skuli þjóðartekj- um og að hvaða marki þeir vilja stefna í þeim efnum. í lýðræðislandi og frjálsu þjóðfélagi verða viðhorf manna ekki steypt í eitt og sama mótið. Um það biður enginn. Hins vegar verður sú meginregla að njóta virðingar í verki að áhrifaöfl- in í þjóðfélaginu innan þings og utan vinni saman að heildarvelferð þjóðarbúsins. Þá og því aðeins næst jákvæður árangur í efnahagsmálum og kjaramálum. Að nýta möguleika tækninnar Garri er alltaf að lesa sér til um framfarirnar í heiminum, og nú hefur hann komist á snoðir um að sjálf ríkisstjórnin norska, sem er undir forsæti læknismenntaðrar konu, hefur lagt fram í Stórþinginu frumvarp til laga um að giftum konum og þcim sem eru á föstu í sambúð með einum og sama manninum, sé heimilt að láta sæða sig með tækniaðferðum, enda sé sæðið fengið úr Sæðisbanka ríkis- ins og leynd á höfð um úr hvaða manni sæðið sé, en það fylgir sögunni að mannssæði verði enn ekki búið til á kemiskan hátt. Sjálfsagður réttur Hér er hafist handa um að lög- leiða sjálfsagðan rétt kvenna til að vera sæddar með sprautuaðferð- inni líkt og lengi hefur tíðkast í búfjárrækt, enda er slík tímgunar- aðferð of handhæg í tækniþjóðfé- lagi nútímans til þess að hægt sé að láta hana ónotaða. Tæknilega er enginn mu'nur á því að sæða konur og kýr, en um kýrnar gildir sú siðaregla að leyna ekki „sæðisgjafanum“ (sædgiver- en), eins og það er kallað þótt vitað sé að þetta hráefni fæst ekki ókeyp- is. Hver sá kálfur, sem væri fær um að lesa skýrslur nautgríparæktar- félaganna, ef svo ólíklega vildi til, getur því vitað um faðerni sitt, en það á ekki að gilda um afkvæmi tæknisæddrar konu í Noregi. Að vísu er það ákvæði í frumvarpinu að „lögforeldrar“ slíks barns geti átt um það við samvisku sína að skýra barninu frá því í fyllingu tímans, hvernig getnað þess bar að höndum, þó þannig að nafni „sæðisgjafans“ skal ávallt halda leyndu. Nú ímyndar Garri sér að sá vandi kynni að koma upp að barnið teldi rétt á sér brotinn að vera leynt faðerni sínu, enda af því ýmsar sögur að ófeðruð eða rangfcðruð börn vilja vita nánar um faðcrni sitt. I»að er reyndar vafasamur. greiði við slík börn að vera að ýja að faðemismálum þeirra upp úr þurru. Sannleikurinn cr sá að rang- fcðrun barna hefur fylgt mannkyn- inu frá ómunatíð og feðrunarleynd verið löghelguð í siðuðum þjóðfé- lögum í a.m.k. 2000 ár, ef ekki lengur, eftir þeirri skynsamlegu mcginreglu úr Rómarrétti að barn sem gift kona elur skuli eiga að föður eiginmann konunnar, enda brotaminnst. Samstarfsverkefni Garri stingur upp á því að þegar tvíefldur Kvennalistinn fer að hreyfa þessu norræna samstarfs- verkefni á Alþingi, þá beiti hann sér jafnframt fyrir því að uppeldi og innræting í grunnskólum og dagheimilum vcrði hagað með þá viðhorfsbreytingu í huga að upp- vaxandi kynslóð telji það eðlilegt að líta á Sæðisbanka ríkisins sem burnsföður, ef á þarf að halda, cnda fyllilega í samræmi við þá kenningu að nauðsynlegt sé að laga mannshugann að síbreytilegu tækniþjóðfélagi. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Augljóst er aö hér (eins og þar stendur) „skapast möguleikar fyrir aukin atvinnutækifæri“, einkum fyrir viðurkennda úrvalsmenn að visku og vexti, og ætti vísinda- og tækniþjóðfélaginu ekki að verða skotaskuld úr að hafa upp á þeim. Garri Fyrir örfáum vikum klúðraði borgarstjóri atkvæðagreiðslu hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkur- borgar þegar hann hækkaði laun fóstra á sama tíma og atkvæða- greiðsla stóð yfir um kaup og kjör. Atkvæðaseðlarnir voru brenndir og aftur var gcngið til atkvæða. Peir borgarstarfsmenn sem var gróflega misboðiö nteð einhliða hækkun fóstrulaunanna sam- þykktu samningana en sú starfs- stétt sem hækkunina fékk felldi þá. Fóstrur höfðu vaðið fyrir neðan sig og munduðu ekki verkfalls- vopnin, heldur voru með uppsagnir á reiðunt höndum. Uppsagnirnar tóku gildi um mánaðamót og þá átti að loka dagheimilum borgar- innar. Kúguð og fótum troðin kvenna- stétt varð svo að láta í minni pokann og sætta sig við 37.300 króna byrjendalaun, en vildi 40 þúsund. Að vísu fylgir þarna með opinber leynisamningur, sem kveður m.a. á um greiðslu á klukkutíma á dag vegna undirbún- ings barnapössunar, yfirfóstrum verður fjölgað og starfsmanna- fundum verður fjölgað og greidd yfirvinna fyrir þær samkundur. En þar sem laun kvennastétta felast ekki í öðru en strípuðum byrjendalaunum er ekkcrt að marka það sent þar kemur ofan á. Eftir j apl og j antl og fuður ákvað meirihluti fóstra að hætta við upp- sögn og daghcimilin halda áfram að ala krakkana upp. En það var beiskur biti fyrir kvennastéttina að kyngja samning- unum, og yfirlýsingar þeirra benda til að þær hugsi karlveldinu þegj- andi þörfina og muni ekki sýna neina sáttfýsi í fyllingu tímans. Fóstrur segjast játa að þær séu sigraðar og að barátta þeirra sýni hve sterkt vald karlar hafi beggja vegna samningaborðsins. í út- varpsfréttum þuldi fóstra að stétt- arfélag hennar hafi verið knésett af karlveldinu og var á henni að heyra að það væri af einstæðum skepnu- skap karla og ofríki þeirra, að dagheimilin eru starfhæf. Femínistar hafa einstakt lag á að kenna körlum um allt það sem aflaga fer í þjóðfélaginu og hafa tekið sér einkarétt á lélegum laun- um. Sakbitin karlakvikindin vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið og taka undir allar þeirra bölbænir og út úr þeim stendur sífellt bunan um að hækka verði kvennalaunin og að koma verði konum til valda og áhrifa svo að kvenfólki og börnum verði líft í landinu. Nú standa ruglaðir karlar í ströngu að reyna að fá konur í stjórnarsamstarf, en þær eru ckk- ert uppnæmar þótt þeim sé gefið undir fótinn né leiðitamar þótt umboðslausir menn séu að lokka þær mcð ráðherrastólum til að geta tyllt öðrum undir sjálfa sig. Talsmenn fóstra hjá Reykjavík- urborg vita hverjir sigruðu þær og fara ekki dult með það. Þær eiga í stríði við karlrembuna, og jtví er hvergi nær lokið. Baráttu kynjanna lýkur ekki fyrr en cf karlar láta sér einhvern tíma segjast og hætta skipulögðum ofsóknum á hendur kvenfólki og börnum, eins og alltaf er verið að segja þeim að þeir ástundi og þeir taka bljúgir undir. Uppgjöf fyrir kúgurum

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.