Tíminn - 05.05.1987, Side 20

Tíminn - 05.05.1987, Side 20
HRESSA KÆTA „Svo uppsker hver sem sáir“ Gullbók og Metbók rísa báðar undir nafni BÚNAÐARBANKWM TRAUSTUR BANKI 1917 1987 I /. IVIrtRO Timiiui Hundurinn Röskur fann týnda veskið: Vísitalan: ■■ Þjófurinn henti því í Seltjörn - 7000 krónur horfnar en skírteinin eftir Þórey J. Stefánsdóttir átti ekki von á að veskið hennar fyndist nokkurn tímann aftur, en því hafði hún glatað fyrir röskum mánuði. t því voru 7000 krónur í peningum og sjúkrasamlagsskírteini, lyfjaskír- teini, örorkuskírteini og farmiðar til Múlabæjar, þjónustumiðstöðvar aldraðra og öryrkja. Einnig var þar afmæliskort frá vini. En hundurinn Röskur, sem í gönguferð með eig- anda sínum við Seltjörn á Seltjarn- arnesi var að svamla í vatninu, fann þar veskið og hafði með sér í land. Röskur skilaði því til eiganda þess í gær, sem að vonum varð hæstánægð- ur. Ekki síst með heimsóknina. Þórey er ellilífeyrisþegi, sjötíuog eins árs að aldri og geta má nærri, að veskismissirinn hafi verið henni sár. Með henni býr Sigríður A. Þórðar- dóttir, sem er öryrki og glataði einnig skírteinum sínum, sem Þórey geymdi í veskinu. „Þetta eru yndisleg dýr,“ sagði Þórey þegar hún tók við veskinu úr Golden Retriever og hefur þann sið að bregða á leik í og við Seltjörn. Þó er öruggara að hafa samband við lögregluna, þegar fjármunir og önn- ur verðmæti glatast, en að treysta á forvitni hunda að leik. Þórey aðgætti ekki að tilkynna lögreglunni peningahvarfið og, eins og fyrr segir, átti ekki von á, að slíkt bæri nokkurn tímann árangur. þj 011 hækkun í maí fer yfir rauða strikið verður líklega um 1,5% „Vísitalan sem reiknuð var í apríl var nánast í þeim mörkum sem kjarasámningar gerðu ráð fyrir að hún yrði í maí. Þannig að það má segja að öll hækkunm sem verður í maí, verður þá fram yfir rauða strikið,“ sagði Hallgrímur Snorrason, hagstofustjóri þegar Tíminn ræddi við hann í gær. Sagði Hallgrímur að Hagstofan tæki ekki að sér að spá um þessa hluti, en talan 1,5% væri ekki ólíkleg tala samkvæmt þróuninni að undanförnu. Sagði Hallgrímur að Hagstofan reiknaði næst vísitölu framfærslu- kostnaðar þann 12. maí og eftir að sá útrcikningur liggur fyrir koma launanefndir skipaðar samkvæmt kjarasamningum saman og leggja mat á hvort hækka beri laun, vegna orðinna verðlagsbreytinga. -phh Jórvík: Sjö þúsund kjúklingar Þórey J. Stefánsdóttir ánægð með að veski hennar og skírteini skuli vera komið í leitirnar og hjá henni er Röskur, sem fann veskið þar sem þjófurinn hafði losað sig við það í tjörn á Seltjarnarnesi. brunnu inni Eldsvoða varð vart í útihúsum á bænum Jórvfk í Sandvíkurhreppi að ganga miðnætti á fimmtudag þegar rafmagn fór af bænum. Rúnar Gests- son og Sigrún Sigurðardóttir, ábú-! endur í Jórvík, kvöddu þegar slökkvilið til og gerðu næst tilraunir til að bjarga hrúti úr brunanum en. án árangurs. Útihúsin brunnu til kaldra kola og skepnurnar, sem þar voru geymdar, m.a. sjö þúsund kjúklingar, urðu eldinum sömuleiðis að bráð. Slökkvistarf gekk erfiðlega sökum veðurs, sem var umhleypingasamt. Eldsupptök eru enn ókunn. Þj I i Hundurinn Röskur á þeim stað sem hann fann veski Þóreyjar. I íiiiiimvmlir: Pjetur hvofti Rösks og skjallaði hann mikið. „Að tapa peningunum var slæmt, en skírteinin eru okkur ó- missandi og stuldur þeirra hefur þegar bakað okkur vandræði." Veskið hafði týnst, taldi hún, þegar hún opnaði handtösku sína til að greiða leigubílstjóra. Vildi það óhapp til, að allt féll úr töskunni á gólfið í bílnum og þar segir hún að veski sitt hafi ef til vill orðið eftir. „Ég held að einhver næstu farþega hljóti að hafa stungið veskinu á sig,“ sagði Þórey. Hún býr við Óðinsgötu. Hver svo sem stal af rosknu konunni peningunum hefur næst haldið alla leið út úr byggð á Seltjarnarnesi og losað sig við veskið út í tjörnina. Röskur er tveggja vetra gamall KRUMMI „Þetta er senni lega það sem kall- að er hunda- heppni! “ Dagvistarheimili Reykjavíkurborgar: Uppsagnir fóstra dregnar til baka - loforð um „deildarfóstrustöður“ gerði gæfumuninn Fóstrur hjá Reykjavíkurborg drógu uppsagnir sínar til baka í gær og mættu til vinnu samdægurs. Ákvörðun um þetta var tekin á fundi fóstra „á grundvelli staðfest- ingar borgarstjóra um sérmál svo og að á samningstímanum verði tekin til athugunar ýmis kjaraleg og stjórnunarleg atriði eins og fram kemur í samkomulagi Davíðs Oddssonar og Haraldar Hannes- sonar,“ eins og segir í samþykkt fundar hjá fóstrum aðfaranótt mánudagsins. „Við höfum lagt mjög mikla áherslu á að fá inn deildarfóstur- nafnið sem jafnframt þýddi hækk- un launa og einnig viðurkenning á stjórnunarþætti fóstrunnar inná sinni deild. Þetta hefur gengið illa en á sunnudag töluðu saman Davíð Oddsson og Haraldur Hannesson formaður STFR og komust að samkomulagi sem síðan var túlkað fyrir okkur þannig að það þýddi það að við fengjum þetta deildar- fóstrunafn. Haraldur Hannesson sagðist leggja höfuðið að veði að við fengjum þetta inn á samningstíma- bilinu og það var það sem gerði útslagið,“ sagði Sesselja Hauks- dóttir sem sæti á í viðræðunefnd Reykjavíkurfóstra. „Það kom náttúrlega alls ekki það út úr þessum slag sem við ætluðum okkur því við ætluðum okkur að fá það góð kjör að við þyrftum ekki að hafa eins miklar áityggjur af starfsmannahaldi eins, og verið hefur og að við gætum þá snúið okkur alfarið að uppeldis- starfinu en það náðist ekki svo að við teljum okkur sigraðar að því leyti til,“ sagði Sesselja. Samkomulag borgarstjóra og formanns STFR myndi fela í sér að flest allar fóstrur hjá Reykjavíkur- borg yrðu deildarfóstrur en eins og er, er staðan „deildarfóstra" ekki til. Að sögn Sesselju ykjust líkur á því að fleiri deildir dagvistarheimil- anna fengju fóstrur en á sumum dagvistarheimilum er einungis forstöðumaðurinn með fóstru- menntun en aðrir starfsmenn allir án slíkrar menntunar. Fóstrur fengu einnig bókun um fjölgun á undirbúningstímum upp í þrjá á viku en borgarráð á eftir að staðfesta þá bókun. Gert er ráð fyrir tuttugu tímum til starfsmann- afunda á ári fyrir dagvistarheimil- in. „Þetta eru raunar ekki kjara- bætur heldur einungis til þess að við getum sinnt starfi okkar betur,“ sagði Sesselja. „Ég er ósköp ánægður með að þetta hafi allt farið vel og að barnaheimilin séu í rekstri og að ekki hafi verið sköpuð nein vanda- mál fyrir foreldra né börn þeirra,“ sagði Davíð Oddsson borgarstjóri. Aðspurður sagði Davíð að unnið yrði með venjubundnum hætti í starfskjaranefnd og stjórnarnefnd Dagvistunar barna á samningstím- anum þannig að þar hefði ekkert nýtt komið fram. Engin ákvörðun hefði t.d. verið tekin um stöður deildarfóstra að svo stöddu. ABS

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.