Tíminn - 16.07.1987, Page 1
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987-152. TBL. 71. ÁRG.
*
m
Fréttatímaritið Newsweek segir frá sérkennilegum samtökum í USA
Kynlífssýki stórt
vandamál í hömlu-
litlum samfélögum
í síðasta eintaki vikuritsins Newsweek er skýrt
frá sérkennilegum samtökum kynlífssjúkra, sem
spretta nú upp víðsvegar um Bandaríkin og
fjölgar ört. Eru þau byggð upp með líkum hætti og
samtök ofdrykkjumanna og raunar líkt við þau í
tímaritinu. Kannski eiga þessi samtök eftir að
breiðast út til fleiri landa og verða að einhverju
gagni. Allir þekkja til frétta hér á landi, þar sem
fólki virðist ekki sjálfrátt á sviði kynlífs, og eru
nýleg dæmi þar um, sem sagt hefur verið frá í
blöðum. Mætti vel ímynda sér að íslensk samtök
kynlífssjúkra hefðu kannski getað komið í veg
fyrir einhverjar þær hörmungar, sem yfir fólk hafa
gengið í þessum efnum bæði fyrr og síðar, með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum, einkum ef börn
hafa verið annars vegar.
Sjá bls. 5
HohHn
...
lisnotkun
i sunwibúðum?.
■HMí
1 .
mm
a -----
£ . m&>- -------
m
Frá Torremolinos
Sólarferð
hjóna
endaðií
fangelsi
í Malaga
Þó flestir íslenskir sólar-
landafarar séu óaðfinnan-
legir ferðalangar hefur það
viljað brenna við að nokkrir
einstaklingar bjóði af sér
lítinn þokka, oftast sökum
óheyrilegrar áfengis-
neyslu. Af slíkum einstakl-
ingum hafa skapast mikil
vandræði sem fararstjórar
ferðaskrifstofanna þurfa af
lagni og þolinmæði að
greiða úr. Miðaldra hjónum
bjargaði hins vegar hvorki
lagni fararstjóra né konsúls
eftir að þau höfðu í ölvímu
lokað sig í nokkra daga
inni á hótelherbergi og
eyðilagt það sem hægt var
í herberginu, stimpast við
hótelstjóra og lögreglu.
Dómari gerði þeim að
greiða sektir og voru hjónin
fiutt í fangelsi í Malaga en
þaðan sluppu þau í gær.
Sjá bls. 3
31000 íslendingar eiga nú 6 milljarða króna á
GULLBÓK og METBÓK
BUNAÐARBANKi ISLANDS traostur bank