Tíminn - 16.07.1987, Síða 3
Fimmtudagur 16. júlí 1987
Tíminn 3
(slensk hjón í fangelsi í Malaga:
Skildu við hótel-
íbúðina í rústum
fslensk hjón á miðjum aldri hafa
setið í fangelsi á Spáni frá 5. júlí sl.
en borguðu sekt sína í gærmorgun
og var þá gefið frelsi. Pau höfðu
flogið til Torremolinos 30. júní, en
hegðan þeirra á hótelinu varð til
þess að hótelstjórinn lét lögregluna
handtaka hjónin. Sátu þau fyrst í
varðhaldi í Torremolinos en voru
síðar færð í fangelsi í Malaga.
Hjónin voru vart sjálfbjarga sök-
um áfengisneyslu á leiðinni til
Spánar hinn 30. júní og máttu
þiggja aðstoð fararstjóra og föru-
nauta í gegn um tollinn og þaðan á
hótelið. Þar urðu þau fyrstu gestir
til að gista í nýuppgerðri íbúð og
lokuðu sig þar inni í fjóra daga og
vildu ekki opna eða hleypa ræsting-
arfólki inn. Á fjórða degi skreið
fararstjórinn inn um baðgluggann
á íbúðinni og aðkoman var vægast
sagt skelfileg. Nýuppgerð íbúðin
var ekki nema í fokheldu ástandi.
Allt var bramlað sem brotnað gat,
marmaragólfið þurfti að slípa á
nýtt og mála alla veggi, rúmdýnur
og sófi voru ónýt og þeim hent og
jafnvel segir að hjónin hafi í ölæði
gert þarfir sínar hvar sem var í
íbúðinni.
Hótelstjórinn fór við þetta fram
á að ræstingarstúlkurnar fengju að
fara inn og þrífa, en maðurinn í
íbúðinni greip þá til hans og kom
til handalögmála milli þeirra. Hót-
elstjórinn mun þá hafa kallað á
lögreglu og farið fram á að hjónin
yrðu fjarlægð af hótelinu. Kastað-
ist þá í kekki milli hjónanna og
lögreglu einnig og þess vegna gekk
erfiðlega að leita sátta í málinu.
Fararstjóri ferðaskrifstofunnar
fór um leið til hjónanna í varðhald-
ið með föt, þar sem þau voru í
sundfötum einum fata, þegar lög-
reglan tók þau höndum. Ekki var
þakklætinu fyrir að fara og konan
nánast reif pilsið úr höndum farar-
stjórans og spurði hví hann hefði
ekki komið með síðbuxur í
staðinn.
Fararstjórinn og íslenski kons-
úllinn sömdu um sekt og hótelstjór-
inn féll því frá kæru á hendur
hjónunum, svo þau slyppu úr fang-
elsi og kæmust með flugi til íslands
sama kvöld. Þar setti þó dómari
stólinn fyrir dyrnar vegna viðskipta
lögreglu og hjónanna og dæmdi
þau til hárrar sektar eða fangelsis í
Malaga. Sektina gátu hjónin ekki
greitt og voru því færð úr gæslu-
varðhaldi í Torremolinos og send
til Malaga.
Þar sátu þau í fangelsi þar til í
gær að þau borguðu sektina sem
eftir stóð að frádreginni fangelsis-
vist þeirra. Islenski konsúllinn í
Malaga varðist allra frétta, en sagði
að búið væri að kippa þessum
málum í lag og hjónin væru á
leiðinni til íslands. þj
Tillögur að hagræðingu og fækkun sláturhúsa á landinu:
Vilja fækka húsum um 31
Háskóla íslands barst nýlega höfðingteg gjöf frá hjónunum Margréti
Finnbogadóttur og Sigurgeiri Svanbergssyni, Miðleiti 7 í Reykjavík. Þau
gáfu Háskólanum húseign sína að Sigtúni 1 sem er 386 fermetra hæð auk
stórrar lóðar. Húsnæðið hafa þau leigt Háskólanum um árabil og hafa
greinar í læknadeild og raunvísindadeild haft aðstöðu í húsinu. Húseignin
er að brunabótamati virt á um 11 milljónir króna. Tímamynd brein
Nefnd sem skoðað hefur rekstur
sláturhúsa hefur skilað af sér áliti og
tillögum að skipulagningu sláturhúsa
í framtðinni.
Nefndin leggur til að sláturhúsum
á landinu verði fæakkað úr 49 í 18 á
5 árum sem þýðir að 30 sláturhús
verði lögð niður á næstu 5 árum og
1 til viðbótar eftir 10 ár. Þar að auki
er gert ráð fyrir að 2/3 slátrunarinnar
fari fram í 8 húsum af 18. Ennfremur
að verkaskipting verði meiri milli
sláturhúsanna en verið hefur, t.d.
verði sláturhúsin á Blönduósi, Borg-
arnesi, Sauðárkróki og Húsavík not-
uð til þess að verka kjöt til útflutn-
ings.
Flest sláturhúsanna sem lagt er til
að lögð verði niður eru nú rekin á
undanþágu en þau hús sem mælt er
með að haldi rekstri áfram eru
•öggild.
Nefndin mælir með að þau slátur-
hús sem eftir standi verði á Patreks-
firði, Hólmavík, Þingeyri, Norður-
firði, Hvammstanga, Blönduósi,
Sauðárkróki, Húsavík, Kópaskeri,
Fossvöllum, Egilsstöðum, Horna-
firði, Kirkjubæjarklaustri, Hvols-
velli, Selfossi, Þykkvabæ, Búðardal
og Borgarnesi.
Árið 1987 er lagt til að sláturhúsin
í Stykkishólmi, Bíldudal, Flateyri,
Þórshöfn, SS við Laxá, Djúpavogi,
Vík, Minni-Borg, Grindavík og á
ísafirði verði lögð niður, árið 1988 í
Króksfj arðarnesi, Borðeyri, slátur-
hús Sigurðar Pálmasonar á
Hvammstanga, SS Vík og SS Laug-
arási, árið 1989 á Skriðulandi, á
Dalvík, Akureyri, Svalbarðseyri og
Slátursamlags Skagfirðinga, árið
1990 sláturhúsin á Óspakseyri,
Vopnafirði, Verslunarfélags Austur-
lands, Reyðarfirði, Eskifirði, Norð-
firði og Fáskrúðsfirði, árið 1991
húsin á Fagurhólsmýri, Höfn hf. á
Selfossi, Breiðdalsvík. Að síðustu
verði lagt niður sláturhúsið á Bol-
ungarvík árið 1997.
Haustið 1985 var meðalslátrun á
hús 16.672 kindur en samkvæmt
tillögum nefndarinnar verður með-
alslátrun 38.066 kindur árin 1989 til
1992.
Nefndin telur að forsendur fyrir
því að tillögur hennar um fækkun
nái tilgangi sínum byggist á stofnun
úreldingarsjóðs, breytingu á með-
ferð flutningskostnaðar og tilhögun
á afreikningi sláturkostnaðar.
Hugmyndin að baki úreldingar-
sjóði sláturhúsa er sú sama og gildir
um úreldingu fiskiskipa, þ.e. að
keypt verði á matsverði þær eignir
sem þjónað hafa slátrun og ákveðið
er að hætta störfum í. Úreldingar-
sjóður verði fjármagnaður með því
að leggja verðmiðlunargjald á hvert
framleitt kg kindakjöts.
Með fækkun sláturhúsa lengjast
flutningsleiðir víða og kostnaður
eykst. Hingað til hafa bændur greitt
kostnað af flutningi sláturfjár en
hugmyndin er að taka flutnings-
kostnað út úr verðlagsgrundvelli
bænda og færa hann yfir á vinnslu og
dreifingarstigið og skipti þá ekki
máli fyrir bændur hve langt þeir
þurfa að flytja féð.
Að lokum setur nefndin upp
nokkrar hugmyndir um hvernig þau
hús geti nýst sem lögð verða niður
sem sláturhús. í sumum tilvikum
verði auðvelt að nýta þau í starfsemi
tengdri útgerð eða iðnaði en þau
þeirra sem staðsett séu utan þéttbýl-
isstaða verði að nýta undir nýjar
atvinnugreinar. í því sambandi er
framleiðsla á loðdýrafóðri, verk-
stæðis- og verslunarrekstur, léttur
iðnaður svo sem framleiðsla á minj-
agripum og kanínurækt nefnd til
sögunnar. ABS
Áskrift oa dreifina í
Reykjavík og Kópavogi er
opin 9-5 daglega og 9-12 á
laugardögum.
Sími afgreiöslu 686300
Startarar -
Alternatorar
fólksbíla -
vinnuvélar
og bátar
12 V og 24 Volta Delco
Remy, Bosch Cav,
Lucas og fl. fyrir
Caterpillar, Perkings,
Leister, Volvo, Scania,
japanska og evrópska
fólksbíla.
Cav og Bosch 24 volta
alternatorar fyrir báta
og vinnuvélar.
Spennustillar fyrir
flestar gerðir alternatora.
Varahlutir fyrir startara og
alternatora.
Viðgerðaþjónusta.
Sendum í póstkröfu.
ÞYRILL HF.
Tangarhöfða 7
2. hæð
110 Reykjavík
Sími 91-673040
Norðurlandakappingen
í talvi:
Enn eykst
forskotið
Fjórða umferð í skákþingi
Norðurlanda í Þórshöfn á Færeyj-
um, sem heimamenn kalla nafla
alheims, fór fram í gær. Úrslit í
landsliðsflokki urðu þessi: Margeir
Pétursson vann Jón L. Árnason,
Wedberg sænski tapaði fyrir Hansen
danska, Östenstad norski laut í lægra
haldi gegn Schneider sænska, Mort-
ensen danski sigraði Tisdall norska,
Maki finnski vann vinningslausan
Ziska færeyska og jafntefli varð með
Helga Ólafssyni og Válkesalmi frá
Finnlandi.
Staðan er því sú að Schneider og
Mortensen hafa enn aukið forskot
sitt og eru með 3 1/2 vinning hvor.
Næstir með 2 1/2 vinning eru Mar-
geir, Helgi og Tisdall. Jón L. Árna-
son er með einn vinning og næst-
neðstur ásamt Wálkesalmi. Neðstur
er Ziska frá Færeyjum með engan
vinnig enn þá. i,j
Lestunar- áætlun
Skip Sambandsins munu ferma til ísiands
á næstunni sem segir: hér
Aarhus: Alla þriðjudaga
Svendborg: Alla miðvikudaga
Kaupmannahöfn: Alla fimmtudaga
Gautaborg: Alla föstudaga
Moss: Alla laugardaga
Larvik: Alla laugardaga
Hull: Alla mánudaga
Antwerpen: Alla þriðjudaga
Rotterdam: Alla þriðjudaga
Hamborg: Alla miðvikudaga
Helsinki: Skip . 7/8
Gloucester: Jökulfell 28/7
Jökulfell 18/8
Jökulfell 8/9
New York: Jökulfell 1/8
Jökulfell 21/8
Jökulfell 11/9
Portsmouth: Jökulfell 29/7
Jökulfell 19/8
Jökulfell 9/9
SK/PADEILD
Y&kSAMBANDSINS
LINDARGATA 9A
PÓ^TH.1480 • 121 REYKJAVÍK
SlMI 28200-TELEX 2101
TÁKN TRAUSTRA FUJTNINGA