Tíminn - 16.07.1987, Blaðsíða 6

Tíminn - 16.07.1987, Blaðsíða 6
6 Jíminn Fimmtudagur 16. júlí 1987 Norður-Múlasýsla: Flugvöllur, fjallskil og Fljótsdalsvirkjun - meðal þess sem sýslunefndin fjallaði um á síðasta fundi Sýslunefnd Norður-Múlasýslu beindi því til samgönguráðherra á síðasta fundi sínum, að varaflugvöll- ur sem talað er um að byggður verði hér á landi verði byggður á Egils- stöðum. Minnt er á að margir af reyndustu flugmönnum þjóðarinnar hafi lagt þetta til á undanförnum árum, auk þess sem veðurfar á Egilsstöðum sé yfirleytt annað en á Reykjavíkursvæðinu. Á fundinum voru mörg málefni rædd sem við var að búast. Fundur- inn lagði til að fjallskilareglugerð N-Múlasýslu yrði endurskoðuð, sér- staklega með það í huga að breyttar aðstæður væru nú í sveitahreppum vegna fólksfækkunar og fjallskil því mun erfiðari en áður. Fundurinn lagði áherslu á að vatnamælingar og aðrar rannsóknir fyrir Fljótsdalsvirkjun verði gerðar sem allra fyrst þar sem nýjungar í flutningi rafmagns eru að ryðja sér braut jafnframt sem markaður fyrir sölu orkunnar getur breyst. Skv. lögum nr. 60 frá 1981 á Fljótsdals- virkjun að verða næsti virkjunar- kostur á eftir Blönduvirkjun. Einnig hvatti fundurinn til að lokið yrði rannsóknum á jarðgasi í Lagarfljóti og hugsanlegri nýtingu þess. Sýslu- fundurinn ítrekaði áskorun til iðnað- arráðherra um framhaldsrannsóknir á perlusteini í Loðmundarfirði og aðstæðum varðandi vinnslu hans og vakin athygli á að fyrirtækið John Manville hefur nýlega sýnt áhuga á kaupum á perlusteini. Sýslunefnd fjallaði einnig um nýt- ingu háhitasvæðis í Kverkfjöllum t.d. til ferðamannaiðnaðar og fiski- ræktar, byggingu lögreglustöðva með fangageymslum á Vopnafirði og Egilsstöðum, nytjaskóga ogskóg- ræktarmál á Austfjörðum og rækju- vinnslu á Austurlandi. ABS Ölvaður á bifhjóli Ölvaðir ökumenn finnast ekki sfður í umferðinni á virkum dög- um en um helgar. Um miðja fyrrinótt tók miðborgarlögreglan ölvaðan mann á tvítugsaldri á léttu bifhjóli í Pósthússtræti. Sá mun hafa viðurkennt að hafa bragðað áfengi, en var engu að síður settur í blóðsýnistöku klukkan 2:00 um nóttina til að ganga úr skugga um hve mikið áfengismagn væri í blóðinu. Páll Eiríksson, aðstoðaryfir- lögregluþjónn, segir að áfengis- blaðran, sem ökumenn eru látnir blása í, sé mjög nákvæmt tæki og gefi í skyn áfengisneyslu hafi viðkomandi nýlega skolað niður einni malt eða jafnvel kysst rall- hálfan vin. Því sé alltaf ráðlegt að taka bióðsýni leiki grunur á um ölvun við akstur. þj Sel II: Veður- guðirnir leika við Jón á hjólinu Hjólreiðakappinn Jón Kristins- son, sem er á leið sinni frá Akureyri til Reykjavíkur var um hádegisbilið í gær staddur í Borgarfirðinum, rétt kominn fram hjá Munaðarnesi. Jón lagði upp í ferð sína frá Akureyri s.l. laugardag kl. 13:30. Tilgangur Jóns með þessari löngu ferð er að safna fé fyrir hjúkrunardeildina Selið við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri auk þess sem hann er að hjóla aftur til Reykjavíkur, því fyrir 52 árum hjólaði hann frá Reykjavík til Akur- eyrar ásamt tveimur öðrum mönnum. Á laugardaginn hélt Jón frá Akureyri til Dalvíkur og Ólafs- fjarðar, þaðan til Siglufjarðar, Sauð- árkróks, Blönduóss, Hvammstanga og var í gær á leið til Borgarness. Jón hefur jafnan heimsótt dvalarheimili aldraðra á hverjum viðkomustað, þar sem hann hefur flutt stutta skemmtidagskrá ásamt dóttur sinni auk þess að kynna ferðina. Aðspurður sagði Jón ferðina og söfnunina hafa gengið ágætlega og veðrið hafa verið mjög gott. Dóttir Jóns, Helga Jónsdóttir, fylgir föður sínum, á bíl alla leiðina. Helga er með síma í bílnum svo hægt er að koma áheitum til Jóns símleiðis. Síminn hjá Helgu er 98523315. 10 synir hinna kunnu heiðurshjóna á Húsavík þeirra: Olgeirs Sigurgeirssonar og Ragnheiðar Jónasdóttur. Frá vinstri: Heiðar Geir, Bjöm, Kristján Bergmann, Aðalgeir, Egill, Skarphéðinn, Jón, Pétur, Hreiðar og Sigurður. Tímamynd: Pjetur Húsavík: Stór bræðrahópur Nýr,stór trollbátur hefur nú bæst Sigurgeirssyni komu til landsins frá gær að útbúa sig á troll og hugðust hætta á því að mannafla vanti á í bátaflota Húsvíkinga eftir að bræð- Noregi á föstudaginn með 27m lang- þeir fara út um miðnætti í gærkvöld. bátinn því bræðurnir eru 10 talsins. urnir Hreiðar, Jón og Sigurður Ol- an og 8m breiðan bát sem þeir höfðu Síðar hyggjast þeir fara á rækju. geirssynir ásamt föður þeirra Olgeir nýlega keypt sér. Bræðurnir voru í Hvað sem veitt verður er engin -IDS Póstur og sími: Ráöstefna Evrópuráðsins: Byggir á Blönduósi Samið hefur verið við Fjarðar- smiðjuna hf. í Garðabæ um smíði nýs Póst- og símahúss á Blönduósi. Húsið verður 355 fermelrar á einni hæð og mun standa við Hnjúka- byggð. Húsið mun kosta 16,8 millj- ónir króna eða 97,5% af upp- haflegri kostnaðaráætlun. Áætlað er að byggja síðar við húsið í því skyni að koma þar fyrir fjarskipta- búnaði, en hann verður enn um sinn í tækjahúsi við Húnabraut. Tvö tilboð bárust í smíði hússins, hitt var frá Trésmiðjunni Stíganda á Blönduósi sem bauð 17,9 milljón- ir í verkið. Á Sauðárkróki er stafræn sím- stöð og innan skamms hefst lagning Ijósleiðarastrengs milli Blönduóss og Sauðárkróks. Afram strjálbýli! Evrópuráðið hefur nú gert málefni strjálbýlisins að umtalsefni og hefur fullan hug á því að gera veg strjálbýl- isins í ríkjum Evrópuráðsins sem mestan. Á 5. ráðstefnu náttúru- verndar- og umhverfismálaráðherra Evrópuráðsríkja sem haldin var í síðasta mánuði voru aðalviðfangs- efnin tvö. Annars vegar verndun og viðhald náttúruarfleifðar strjálbýlis Evrópuráðsríkja og Náttúruvernd- arstefnuskrá Evrópuráðsins. í kjöl- far ráðstefnunnar hófst síðan form- lega fræðslu- og útbreiðsluátak Evr- ópuráðsins til að vekja athygli á vandamálum strjálbýlisins. Mun á- takið standa yfir til ársloka 1988. í ályktunartillögum sem sam- þykktar voru á ráðstefnunni voru tilmæli og ábendingar til ríkisstjórna Evrópuráðsríkja um hvað væri brýn- ast að gera til verndar náttúruarfleifð Evrópu og fyrirmæli um að samin yrði náttúruverndarstefnuskrá Evr- ópuráðsins í anda þeirra draga sem fyrir ráðstefnunni lágu og með því markmiði að viðhalda sem mest þeirri fjölbreytni sem náttúrufar Evrópu býr yfir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.