Tíminn - 16.07.1987, Side 12

Tíminn - 16.07.1987, Side 12
12 Tíminn Fimmtudagur 16. júlí 1987 frettayfirl.it ÚTLÖND KARACHI — Mohammad Zia-UI-Haq forseti Pakistan heimsótti þá sem slösuðust í versta sprengjutilræðinu sem framið hefur verið í landinu. Að minnsta kosti 73 manns létust þegar sprengjur sprungu við fjölmenn stræti Karachiborgar í fyrradag. BAHREIN — Herþotur íraka gerðu árásir á stöðvar írana í Persaflóa þar sem byssubátar þeirra leggja upp í árásir á flutningaskip. Þetta var, þriðji dagurinn í röð sem írakar varpa sprengjum á þessar stöðvar og virðast þeir ætla að reyna með þessu að koma í veg fyrir árásir byssubátanna sem mannaðir eru af byltingar- liðum Kohmeinistrúarleiðtoga. ANNECY, Frakkland - Að minnsta kosti nítján manns létust og tuttugu er saknað eftir að flóð rann yfir tjaldstæði í Ölpunum og feykti burt tjöldum, hjólhýsum og bílum. WASHINGTON - Við- skiptahalli Bandaríkjanna við útlönd jókst í maímánuði, var 14,4 milljarðar dollara í stað 13,3 milljarðar dollara í apríl. LUNDUNIR - Verð á Norðursjávarolíu hækkaði í rúma tuttugu dollara á tunnu í fyrsta sinn síðan snemma á árinu 1986. Ástæðan var hin auknaspenna í Persaflóanum. LAUSANNE - Alþjóða Ól ympíunefndin bauð Norður- Kóreumönnum að fá að halda fleiri íþróttagreinar á Ólympíu- leikunum á næsta ári og var þetta tilraun til að koma í veg fyrir að kommúnistaríkin snið- gangi leikanna í Seoul. TRIPÓLI — Sjö manns voru drepnir og 55 særðust þegar tvær bílsprengjur sprungu í líbönsku bæjunum Tripóli og Baalbeck. Þar ráða Sýrlend- ingar lögum og lofum. V LUNDUNIR — Bandaríkja- dalur lækkaði í verði á alþjóð- legum gjaldeyrismörkuðum í gær eftir að birtar voru slæmar tölur yfir viðskipti Bandaríkja- manna. Verð á gulli fór hins vegar hækkandi en gull er jafnan örugg höfn fyrir fjárfest- endur á óvissutímum. MONRÓVIA — Stjórnin f Líberíu lét loka öðrum helsta háskóla landsins eftir að stúd- entar þar höfðu gengið bers- erksgang er rafmagn fór af í miðjum prófum. John Poindexterfyrrum þjóðaröryggisráðgjafi vitnaði í íransmálinu vestur í Washington í gær: Reagan vissi ekki um Contra aðstoðina Washington-Reuter John Poindexter fyrrum þjóðar- öryggisráðgjafi Bandaríkjanna sagði í gær að hann hefði persónulega samþykkt að gróði af vopnasölunni til írans yrði notaður til að styrkja Contra skæruliðana í Nicaragua en hann hefði ekki sagt Reagan forseta af því til að vernda hann. Poindexter sagði að Oliver North, undirmaður sinn, hefði átt hug- myndina og varpað henni fram í febrúar á síðasta ári. North fannst þetta vera góð hug- mynd og „ég samþykkti hana“, sagði Poindexter. Þjóðaröryggisráðgjafinn fyrrver- andi sagðist hafa tekið þá ákvörðun að spyrja ekki forseta sinn um málið til að flækja hann ekki í því ef það læki út. Poindexter kom í gær fram fyrir þingnefndirnar sem rannsaka hneykslismálið er tengist vopnasöl- unni til írans og fylgdist bandaríska þjóðin vel með beinum sjónvarps- útsendingum frá yfirheyrslunum enda vitnisburður Poindexters mikil- vægur í þessu máli. Víst er að staðhæfing hans á því að Reagan hafi ekki vitað um pen- ingasendingarnar til Contra skæru- liðanna, sem berjast gegn hinni vin- strisinnuðu stjórn í Nicaragua, kem- ur forsetanum afar vel og er í samræmi við fullyrðingar hans. John Poindexter lét þingnefndirnar í Washington og reyndar alla bandarísku þjóðina fá sína útgáfu af franshneykslinu í gær og sagði að forsetinn hefði ekki vitað um að hluti af gróða af vopnasölunni hefði farið til Contra skæruliðanna í Nicaragua. Poindexter sagði hins vegar í vitn- isburði sínum í gær að Reagan hefði sjálfur veitt formlegt leyfi til að selja vopn til frans í skiptum fyrir banda- ríska gísla í Líbanon. Þetta gerðist í desember árið 1985. Reagan hefur ávallt haldið því fram að vopnasalan til írans hafi ekki byrjað sem gíslaviðskipti heldur hafi átt með henni að reyna að hafa áhrif á hófsöm öfl í íran. Marlin Fitzwater, talsmaður Hvíta hússins, sagði eftir vitnisburð Poindexters að forsetinn myndi ekki eftir að hafa skrifað undir leynileg plögg árið 1985 þar sem gíslavið- skiptin voru orðuð. Poindexter gæti átt yfir höfði sér málsókn á þeim forsendum að hann hafi framið glæpsamlegt athæfi og svo á raunar einnig um Oliver North. Persaflóastríðið: íranir kok- hraustir Lundúnir-Rcutcr Ráðamenn í íran hafa hótað að gera árásir á bandarísk herskip og taka sjóliða til fanga. Nú er aðeins tæp vika í að bandarísk herskip fari að vernda kúvaitsk skip er sigla um Persaflóann með dýrmætan varning til Vesturlanda, nefnilega olíu. Ali Akbar Hamhemi Rafsanjani, forseti íranska þingsins og helsti talsmaður landsins í stríðsmálum, sagði í gær að íranir væru tilbúnir í slag við Bandaríkin og ætluðu sér að sökkva herskipum þeirra. Ef Bandaríkjamenn halda inn á Persaflóann „munum við beina nokkrum fallbyssum okkar að Könunum og koma með bandaríska gísla heim, auðmýkta og með hend- ur á höfði“, hafði fréttastofa frans eftir Rafsanjani. Búist er við að fyrsta olíuflutn- ingaskipið frá Kúvait fái að sigla undir bandaríska fánanum á mið- vikudaginn næsta og þá munu bandarísk herskip vernda siglingu þess. í ráði er að önnur tíu skip frá Kúvait fái samskonar vernd. Rafsanjani gaf út þessar yfirlýsing- ar í ræðu sem hann hélt á samkundu byltingarvarða í Teheran. Það eru einmitt menn úr hópi byltingarvarða sem hafa mannað byssubátana er hafa gert skyndiárásir á flutninga- skip í flóanum að undanförnu. Skip frá Líberíu, sem er í eigu Bandaríkjamanna, og franskt skip urðu fyrir árásum í síðustu viku. Einn yfirmaður í íranska hernum sagði á þessum sama fundi að íranir biðu í eftirvæntingu eftir bandaríska flotanum. Raunar hafa nokkur bandarísk herskip verið á siglingu í Persaflóanum að undanförnu og fleiri bíða fyrir utan en bein vernd hefur ekki enn hafist. Rafsanjani varaði ríki við Persa- Rafsanjani forseti íranska þingsins: Verðum að vera tilbúnir verði „óvin- urinn brjálaður1'. flóann, sem flest styðja íraka í stríði þeirra við írani, við að veita banda- rískum herskipum aðstoð. Hann sagði að íranir hefðu engan hug á að færa út stríðið en yrðu að vera tilbúnir færi svo að „óvinurinn gerð- ist brjálaður". Suöur-Kórea: Eyðnipassi á Ólympíuleikum Seoul-Rcutcr Ferðamenn sem ætla að fara á Ólympíuleikana í Seoul í Suður- Kóreu á næsta ári verða fyrst að útvega sér skírteini uppá að þeir hafi ekki eyðni. Það var Rhee Hai-Won heilbrigðismálaráð- herra S-Kóreu sem frá þessu skýrði í gær. Rhee sagði fréttamönnum að búist væri við 300 þúsund ferða- mönnum til Seoul vegna Ólymp- íuleikanna og margir óttuðust að eyðnisjúkdómurinn banvæni gæti breiðst út með ferðamannakom- unni. Ráðherrann sagðist vonast til að aðrar ríkisstjórnir styddu þessa ákvörðun þ.e. að krefjast þess að allir sem koma til að fylgjast með Ólympíuleikunum beri á sér eyðniskírteini. Stjórnin f Suður-Kóreu hefur þegar samþykkt drög að lögum sem fara fyrir þingið síðar á þessu ári. Þar er gert ráð fyrir allt að sjö ára fangelsisdómi fyrir þá sem fundnir eru sekir um að dreifa eyðniveirunni og útlendingar sem bera sjúkdóminn mega, sam- kvæmt þessum drögum, ekki koma inn í landið. Ekki er þó vitað hvernig stjórnvöld ætli að framfylgja því ákvæði nema kannski ef eyðnipassinn verði í framtíðinni skilyrtur fyrir alla þá sem ætla að heimsækja Suður- Kóreu. Indland: Útgöngubann kemur sér illa fyrir vændiskonur Nýja Delhi-Reuter Líknarsamtök á Indlandi hafa komið upp aðstöðu fyrir vændis- konur í gamla bæjarhlutanum í Delhi þar sem þær geta fengið súpu og brauð og hvílt lúin bein. Samtökin segja að útgöngubann, sem í gildi er á næturnar, hafa komið illa niður á störfum vænd- iskvennanna. Einar tvö þúsund vændiskonur og 2.500 börn þeirra hafa treyst nær algjörlega á matargjafirnar síðan útgöngubanninu var komið á eftir átök hindúa og múslima í síðasta mánuði. Forseti samtakanna bað aðra styrktarhópa að hjálpa til í þessu máli og hvatti borgaryfirvöld til að láta vændiskonurnar hafa passa svo þær gætu ferðast um á nóttinni. Kvikmyndaiðnaðurinn í Hollywood: Vandræði í góðæri Umsjón: Heimir Bergsson Los Angeles-Reuter Kvikmyndagreifarnir í Hollywood eiga við peningavandræði að stríða þrátt fyrir aukna aðsókn að nýju í kvikmyndahúsin. Vandræðin eru af auknum fram- leiðslukostnaði, auknum kostnaði við auglýsingar og þeirri staðreynd að fleiri kvikmyndir eru nú gerðar en nokkru sinni fyrr: „Allt þetta hefur áhrif á gróðann," segir Ric- hard Simon sérfræðingur í málefnum kvikmyndaiðnaðarins. Ein ástæðan fyrir auknum fram- leiðslukostnaði eru laun stjarnanna sem eru himinhá og nægir að nefna þær sextán milljónir dollara eða 640 milljónir íslenskra króna sem Syl- vester Stallone fær fyrir leik sinn (ef leik skyldi kalla) í næstu myndinni um hetjuna Rambó. í gær náðu kvikmyndagreifarnir samkomulagi við samtök leikstjóra sem þó aðeins er til bráðabirgða. Leikstjórarnir höfðu hótað verkfalli eftir að framleiðendurnir vildu lækka fjárupphæð þá sem þeir fá fyrir myndir er sýndar eru í „peningasjónvarpi“, þar sem fólk borgar fyrir hverja mynd, og myndir sem endursýndar eru í sjónvarpi. Formaður leikstjórasamtakanna, sem telja 8.400 meðlimi, sagði í gær að þrátt fyrir bráðabirgðasamkomu- lagið væru vandamálin enn til staðar. Kvikmyndafyrirtækin geta þó varla kvartað yfir aðsókninni sem var geysilega góð í síðasta mánuði, reyndar það góð að aðeins tvívegis áður hefur komið meira af peningum inn í kassann hjá kvikmyndahúsun- um á einum mánuði. Það voru myndirnar „Beverly Hills Cop 11“ með Eddie Murphy og „The Untouchables" sem áttu mest- an þátt í að fylla peningakassa bíóhúsanna í síðasta mánuði.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.