Tíminn - 16.07.1987, Síða 20
FRAMARAR sigruðu Keflvík-
inga í leik liðanna í 1. deildinni í
knattspyrnu í Keflavík í gærkvöldi og
skoraði Pétur Arnþórsson annað
marka Fram. Víkingar töpuðu fyrir
Selfyssingum í 2. deildinni._____
Sjá íþróttir bls. 10
1'.. éi
Könnun Neytendasamtakanna á greiðslukortanotkun:
Greiðslukortaeigendur
vilja borga kostnaðinn
.. - nntanHínn ;ptti aö prpiöa knsl
Neytendasamtökin hafa kann-1
að viðhorf fólks til notkunar á t
greiðslukortum. Hringt var í 1054!
á höfuðborgarsvæðinu 712 konur
og 342 karla. Hringt var í samtals,
107 á Akureyri, en þar reyndist
hlutfall kynjanna nokkuð jafnt.
Niðurstaða könnunarinnar var
í aðalatriðum sú að 57,5% að-
spurðra notuðu greiðslukort og á
um helmningi þeirra heimila senv
nota kort var fleira en eitt kort til.
75,4% fólks á höfuðborgarsvæð-
inu sögðust nota kortin vegna
matvörukaupa en 49,2% Akur-
eyringa. Yfirleitt var niðurstaðan
sú að fólk á höfuðborgarsvæðinu .
notar greiðslukortin meira en
Akureyringar.
Spurt var hver ætti að greiða ,
kostnað af notkun greiðslukorta. i
Svörin voru á þá lund að notandi!
kortsins ætti að bera kostnaðinn,
annað hvort með sérstöku gjaldi
sem innheimt væri af hverjum
korthafa eða með staðgreiðslu-,
afslætti til þeirra sem ekki notuðu
kort. Af þeim sem tóku afstöðu
sögðu 86,8% að notandinn ætti
að greiða kostnaðinn. Af þeim
sem notuðu greiðslukort og tóku
afstöðu um þetta, töldu 98,6% að
notandinn ætti að greiða kostnað-
inn.
í könnun Neytendasamtak-
anna var einnig spurt um mjólk-
urumbúðir og uppþvottavélar.
68,4% fólks á höfuðborgar-
svæðinu voru ánægð með mjólk-
urumbúðirnar (pakkana) en
31,6% óánægð. Konur voru óá-
nægðari með umbúðirnar en karl-
ar eða 37% á móti 20%. Á
Akureyri eru notaðar fernur. Þar
voru 98% ánægð með umbúðirn-
ar en 1,9% óánægð.
Minnst 32 mismunandi vöru-
merki af uppþvottavélum eru í
notkun á heimilum á höfuðborg-
arsvæðinu og á Akureyri. Það
sem bilaði helst í uppþvottavélum
var motor, hurðarrofi, hitaele-
ment og vatnsdæla. Leki var
einnig oft nefndur sem bilun svo
og stífla í slöngu og fleira sem
teljast verður eðlilegt viðhald. í
ljós kom að 28,9% þátttakenda í
könnuninni nota uppþvottavél,
heldur fleiri á Akureyri en á
höfuðborgajrsvæðinu. Áuk þess
kom fram að 77% voru ánægð
með uppþvottavélina en aðeins
4% óánægð. Hinir þvo upp með
gamla laginu, með bursta, vatni,
sápu og viskastykki. ABS
Hlé gert á vísindaveiðum:
Viðræðunefnd til
Washington
Hlé verður gert á hvalveiðum í
vísindaskyni um óákveðinn tíma
frá og með næstkomandf sunn-
udagskvöldi á meðan viðræður fara
fram við Bandaríkjamenn. Það er
að ósk Bandarík jamanna sem veið-
um er frestað á meðan á viðræðum
stendur.en það er sami háttur og
hafður var á í fyrra þegar (slensk
séndinefnd fór utan. Sjávarútvegs-
ráðuneytið hefur beðið Hval hf.
um að stöðva veiðarnar og verður
það gert. íslensk viðræðunefnd
mun halda til Washington um helg-
ina og munu viðræður við fulltrúa
bandaríska viðskiptaráðuneytisins
hefjast í byrjun næstu viku. Hall-
dór Ásgrímsson sjávarútvegsráð-
herra mun verða í forsvari íslensku
nefndarinnar en aðrir í henni
verða, Guðmundur Eiríksson og
Helgi Ágústsson frá utanríkisráðu-
neyti, Árni Kolbeinsson og Kjart-
an Júlíusson frá sjávarútvegsráðu-
neyti og Jóhann Sigurjónsson frá
Hafrannsóknarstofnun.
Aðspurður um hvort hann teldi
að endurskoða þyrfti rannsóknar-
áætlunina í kjölfar þessara við-,
ræðna sagðist Halldór ekkert vilja
segja um það á þessu stigi málsins.
„Hins vegar höfum við alla tíð sagt
að við séum tilbúnir að endurskoða
okkar rannsóknaráætlun ef menn
geti bent á betri leiðir til að ná því
markmiði sem við stefnum að. Það
er svo annað mál að sú gagnrýni
sem hefur komið fram að undan-
förnu er í auknum mæli á þann veg
að veiðarnar séu ónauðsynlegar.
Aðrir vísindamenn segja aftur á
móti að nauðsynlegt sé að veiða
þennan fjölda og að hann sé jafnvcl
of lítill. Okkar vísindamenn hafa
tekið tillit til ábendinga og breytt
áætluninni í samræmi við þær og'
við erum tilbúnir til að gcra það,
áfram. Okkar markmið er að fá
niðurstöðu úr þessum rannsókn-
um,“ sagði Halldór.
Síðdegis í gær voru báðir hval-
bátarnir úti en það sem af er
vertíðinni er búið að veiða 73
langreyðar af þcim 80 sem taka átti
á vertíðinni. I hvalstöðinni í Hval-
firði fengust í gær þær upplýsingar
að ekki væri ólíklegt að það tækist
að veiða upp í kvótann fyrir sunnu-
dag. Það ylti fyrst og fremst á veðri
því nóg væri áf hval.
Leitaö að smitberum:
Salmonellan
fráSSí
Reykjavík
Vegna matarsýkingar sem átti sér
stað á ættarmóti að Laugum í Dala-
sýslu dagana 4. til 5. júlí sl. ítrekar
Hollustuvernd ríkisins þá ábendingu
að hindra þurfi mengun úr hrámeti í
unnin eða soðin matvæli. Fyrstu
niðurstöður úr rannsóknum Holl-
ustuverndar á þeim matvælum sem
tekin voru vegna sýkingarinnar lágu
fyrir seint í gær. Nú er ljóst að í
altént einu af 16 sýnum sem tekin
voru á hótelinu Laugum voru salm-
onellusýklar sömu tegundar og
greinst hefur í sjúklingum sem veikt-
ust eftir ættarmótið. Umrætt sýni
var af hráu frystu svínakjöti frá
Sláturfélagi Suðurlands í Reykjavík.
Til öryggis hefur fyrirtækið nú
þegar gert allar tiltækar ráðstafanir í
samráði við Hollustuvernd ríkisins
til að tryggja öryggi framleiðsluvara
sinna úr sama hráefni.
Ekkert bendir til þess að tengsl
séu milli þessarar sýkingar og þeirrar
sem nýlega átti sér stað í Dölunum
sl. páska, þar sem um er að ræða
aðra tegund sýkilsins. þj
192.000 kr. kjaftshögg
Albert Guðmundsson, formaður Borgaraflokks, og Einar Ólason,
ljósmyndari Þjóðviljans, undirrituðu sátt vegna kjaftshöggs sem Albert
rak Einari, þar sem hann var að störfum á Hótel Borg.
Atvikið hefur kostað Albert samtals 192 þúsund krónur. Hann hefur
greitt lögfræðingi krónur 22 þúsund, tannviðgerð Einars krónur 70 þúsund
og miskabætur krónur 100. þúsund. þj
i /. mnna
Tíminn
Loðnukvóti
ákveðinn
íslendingar og Norðmenn hafa
komist að samkomulagi um skipt-
ingu heildarloðnukvótans sín á milli.
Verður í því sambandi stuðst við
samning þann sem gerður var í
fyrra. Heildar kvótinn verður 500
þúsund lestir og veiða íslendingar
85% og Norðmenn 15% af því, að
viðbættum átta þúsund tonnum, sem
eru leiðrétting frá því í fyrra. Heild-
arkvóti íslendinga verður því
416.891 lest, en Norðmanna 83.109
lestir. Ekki hefur enn verið gengið
frá hluta Grænlendinga í veiðinni.
Norðmenn eru í þann mund að
hefja veiði, og var fjöldi báta á leið
á miðin í gær, eða kominn. Heimilt
var að byrja veiði í gær og lýkur
veiðum 31. október í haust. Ekki er
vitað til þess að íslensk skip fari til
veiða strax, enda flest útbúin til
rækjuveiða og stunda þær veiðar nú.
Samkvæmt ákvæðum samnings
Norðmanna og íslendinga mega Is-
lendingar veiða 83.109 lestir af sín-
um kvóta innan lögsögu Jan Mayen,
eða sama magn og Norðmönnum er
heimilt að veiða.
Loðnuveiðar verða óheimilar
sunnan 68 N til 30. september. Er
það gert til að vernda smáloðnu.
Skiptingin á heildarkvótanum milli
íslensku skipanna verður eins og
síðustu ár, þ.e. 67% prósentum
kvótans er skipt jafnt en 33% sam-
kvæmt burðargetu.
Húsafellsmálið:
rógburði
Eins og fram hefur komið hélt
Félag orlofshúsaeigenda að
Húsafelii erindi á fundi stjómar
Ungmennasambands Borgar-
fjarðar hinn 23. júnt sl. þar sem
félagið er mjög harðort í garð
U.M.S.B. fyrir slælega frammi-
stöðu við útihátíðahald í Húsa-
felli um verslunarmannahelgina1
1983 og skemmdir sem unnar
voru á eignum orlofshúsaeig-
enda. Ungmennasamband Borg-
arfjarðar mótmælir harðlega
þessum ummælum Félags orlofs-
húsacigcnda og segir lítið hæft í
erindi því sem félagið hélt á fundi
stjórnar U.M.S.B. í Borgarfirði
og það því ekki svara vert.
Arið 1983 stóð U.M.S.B. ekki
að útihátíðahöldum í Flúsafelli,
eins og Félag orlofshúsaeigenda
vill meina, heldur leigðu landeig-
endur tjaldstæði og samstarf var
ekki á milli U.M.S.B. oglandeig-
enda. Hins vegar stóð U.M.S.B.
að dansleikjum sem ckki voru
haldnir í Logalandi eins og Félag
orlofshúsaeigenda vill meina, því
Logaland var lokað þetta sumar.
Hins vegar voru dansleikir haldn-
ir í Brautartungu. U.M.S.B. telur
óeðlilegt af Félagi orlofshúsaeig-
enda að telja upp slysasögur eins
og gert var í fyrrnefndu erindi því
svo víða sé hægt að leita uppi
slíkar sögur. Ungmennasam-
bandið telur hyggilegra að taka á
móti og hlúa að unglingum sem
leggja leið sína út úr bænum um
verslunarmannahelgina eins og
orðin er viðtekin venja. IDS