Tíminn - 30.07.1987, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1987-164. TBL. 71. ÁRG.
Síðustu“ hvalirnir
taldir í þúsundum
Einhverju umfangsmesta talningarverkefni á hvölum sem nokkru
sinni hefur verið ráðist í, er nú lokið. Það voru íslendingar sem
höfðu forystu um þetta verkefni, en auk okkar tóku þátt í því
Norðmenn, Færeyingar, Spánverjar, auk þess sem fjárframlag var
veitt frá Norrænu ráðherranefndinni.
Leiðangursmenn töldu um 4000 hvali úr skipunum en í talningu
úr lofti á grunnslóð við íslandsstrendur sáust miklar hrefnugöng-
ur, á annan tug þúsunda.
Það verður ekki fyrr en í maí á næsta ári sem niðurstöður úr
þessari talningu liggja fyrir. En þessar tölur gefa vísindamönn-
um vísbendingu um að hvalastofnarnir séu að stækka, eða þá að
stærð þeirra hafi hingað til verið vanmetin. Þeir sem fullyrt hafa
að sú rannsóknaráætlun sem þetta talningarverkefni er hluti af,
muni leiða til þess að „síðasti hvalurinn verði veiddur í vísinda-
skyni“, geta því sofið rólegir.
Sja bls. 5
Hnúfubakur, en myndin er tekin í hvalatalningarleiðangri Hafrannsóknastofnunar úti fyrir Islandsströndum. (Mynd: Jóhann Sigurjónsson)
Talningarverkefni Hafrannsóknastofnunar:
Stólpípur að
seljast upp!
Allsérkennilegt megrunaræði hefur gripið um sig
síðustu daga og vikur. Hér er á ferðinni megrunarað-
ferð sem felst í því að viðkomandi fastar í lengri eða
skemmri tíma og fær sér síðan stólpípu kvölds og
morgna. Læknar segja þetta hins vegar geta verið
hættulegt. Stólpípur, einnota og fjölnota, hafa þó
rokið út og markaðsstjóri hjá Stefáni Thorarensen,
tjáði okkur í gær að á nokkrum dögum hefði sala á
þeim 45 faldast, og væru nú uppseldar hjá fyrirtækinu.
Sjá baksíðu