Tíminn - 30.07.1987, Blaðsíða 24
KR-INGAR og Framarar eigast viö í 1.
deildinni í knattspyrnu í kvöld og getursá
leikur oröiö til að línur skýrist á toppi
deildarinnar. Valsmenn sigruöu KA í
gær, Þórsarar geröu jafntefli en Skaga-
menn unnu.
Nýliöarnir í 2. deildinni eru í tveimur
efstu sætunum eftir leiki gærkvöldsins.
Sjá íþróttir bls. 10-11.
KÆTA
1917 /VJ 1987
Á n a
I / . IVI/AIXO
Tíminn
Átök í Alþýöubandalagi:
Guðmundur J.
segir sig
úr
flokknum
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Verkamannasambands ís-
lands og Dagsbrúnar og fyrrverandi
alþingismaður hefur sagt sig úr Al-
þýðubandalaginu. Að sögn Guð-
mundar er langt síðan hann tók
þessa ákvörðun, en beið með að
framkvæma hana þar til eftir kosn-
ingar og ríkisstjórnarmyndun af til-
litssemi „við marga góða vini“
innan flokksins sem áttu sæti á
framboðslistum. Ástæðuna fyrir úr-
sögn sinni segir Guðmundur vera
frávik flokksins frá fyrri hugsjónum,
starfshætti innan flokksins og að
hann vilji ekki lúta flokksaga þegar
um er að ræða stefnumótun sem
kemur frá ákveðnum forystumönn-
um flokksins.
Guðmundur hefur starfað í Al-
þýðubandalaginu frá stofnun þess
og áður í Sameiningarflokki alþýðu-
Sósíalistaflokknum.
-BG
Árni Ingason, framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Stefáni Thorarensen
með eina af hinum vinsælu einnota stólpípum. Tímamynd Pjetur
. ðlð
í stólpípum
Sala á stólpípum hefur fjörutíu
og fimm faldast síðustu vikuna og
skiptir tala seldra pfpa hundruðum
að sögn Árna Ingasonar fram-
kvæmdastjóra markaðssviðs, hjá
heildversluninni Stefán Thorarens-
en hf. í Síðumúlanum. Undanfarna
daga hefur mikið verið rætt og
ritað um föstur til grenningar og að
ýmissa sögn til að hreinsa eiturefni
úr líkamanum. Læknar telja þó að
ýmis líffæri gegni því hlutverki að
losa líkamann við óæskileg auka-
efni og geri það í flestum tilvikum
með sóma. Því hafi fösturnar og
notkun sólpípna í þessum tilgangi
ekki góð áhrif. Ofnotkun ástólpíp-
um, samfara löngum föstum getur
hins vegar beinlínis verið hættuleg
slímhúðinni í þörmunum.
Hinar umdeildu föstur virka
þannig að fólk drekkur ávaxta- og
grænmetivökva sem og jurtate dög-
um saman án þess að neyta nokk-
urrar annarrar fæðu. Stólpípan er
svo notuð kvölds og morgna til að
hreinsa þarmana. Á þennan hátt
minnkar næringarupptaka úr
þörmunum svo fólk léttist. Bæði
eru til einnota stólpípur sem kosta
u.þ.b. 200 krónur svo og margnota
á 500 kr. Að sögn Árna Ingasonar
seldust stólpípur lítið sem ekkert
hjá fyrirtækinu árum saman. Nú
hins vegar eru ódýrar einnota
stólpípur uppseldar hjá fyrirtækinu
og sala á töluvert mikið dýrari
settum hefur aukist til muna.
IDS