Tíminn - 30.07.1987, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 30. júlí 1987
Tíminn 19
MINNING
■■Illll
lllllllll
Gunnar Guðmundsson
raftæknir
KUABÆNDUR
ATHUGIÐ
Fæddur 9. apríl 1947
Dáinn 23. júlí 1987
Úr djúpum geimsins
er dagurinn risinn og slær
dýrlegum roða
á óttuhimininn bláan
- og lof sé þér, blessaða líf,
og þér, himneska sól,
og lofsé þér, elskaða jörð,
að ég fékk að sjá hann.
(Guðmundur Böðvarsson)
Fimmtudaginn 23. júlí sl. barst
okkur sú sorgarfregn að mágur okk-
ar Gunnar Guðmundsson hefði far-
ist í flugslysi við Blönduós fyrr um
daginn, ásamt þremur öðrum. Mann
setur hijóðan við slíka helfregn og
hugurinn leitar til baka.
Gunnar var fæddur og uppalinn í
Reykjavfk, sonur hjónanna Guð-
mundur Þ. Björnssonar, málara og
Sigurveigar Stellu Konráðsdóttur.
Hann lauk raftækninámi frá Tækni-
skóla íslands um áramótin 1978-’79.
Stofnuðu þeir Friðrik Dungal
fyrirtækið Rafmótun s/f á árinu 1984
og ráku það í sameiningu til dauða-
dags.
Gunnar var kvæntur Kolbrúnu
Jónsdóttur og áttu þau saman eina
dóttur Ásu Dagnýju fædda 1975.
Gunnar átti einn dreng fyrir, Stein
fæddan 1970.
Gunnar var félagslyndur rnaður,
virkur og starfsamur, þó ekki léti
hann mikið á sér bera.
Ungur fékk hann brennandi áhuga
á knattspyrnu og gekk í knattspyrnu-
félagið Fram og keppti og starfaði
dyggilega fyrir það féiag alla tíð
síðan.
Einnig tók Gunnar virkan þátt í
starfi Álafosskórsins.
Eftir að fundum okkar bar saman
kom fljótt í Ijós, að hann var ávallt
boðinn og búinn að veita alla þá
aðstoð sem hann gat, er til hans var
leitað.
Gunnar var skapgóður og jafn-
lyndur, ávallt hress og viðræðuþýður
en þó mikill baráttumaður í starfi og
leik.
Erfitt er að lýsa tilfinningum okk-
ar á þessari stundu, en minningin um
Gunnar mun lifa, minning um góðan
dreng. Eiginkonu hans Kolbrúnu,
börnum Steini og Ásu Dagnýju,
foreldrum og systkinum vottum
við okkar dýpstu samúð.
Ásmundur, Eyjólfur, Torfí
Mig langar að minnast bróður
míns með fáeinum orðum. Gunnar
Guðmundsson var fæddur 9. apríl
1947 og því nýlega orðinn fertugur
að aldri þegar kallið kom með svo
hörmulegum hætti. Maður verður
svo vanmáttugur og skortir orð. En
myndir og minningar koma upp, svo
ótal margar. Góðar, hlýjar og jafn-
vel broslegar, það gefur styrk.
Ég er lítið eitt eldri og því man ég
þegar hann kom sem sólargeisli inn
í líf mitt. Ég man fyrstu sporin,
hlaupin og hláturinn, matrósafötin
með flautunni og fyrstu jakkafötin
því þá var maður orðinn fullorðinn.
Umhverfið var frjálslegt og börn
gátu leikið sér nánast allsstaðar. En
ábyrgð stórusystur var mikil að mér
fannst.
Það var stundum brosað kankvís-
lega til mömmu þegar hún hafði
þennan litla snáða með í strætó. Það
mátti rétt greina fallegu augun og
brosið frá plástrum og skeinunt. Ég
átti líka einlæga aðdáun hans þegar
ég lærði að hjóla á stóra hjólinu hans
pabba, auðvitað undir stöng.
Hann var ekki gamall þegar aðal-
áhugamálið var alveg Ijóst, það var
knattspyrnan. Framfélagið og allir
þeir góðu félagar sem hann eignaðist
þar. Síðasta ferðin var farin til að
hvetja og horfa á félagana í leik á
Ólafsfirði.
Fjörutíu ár eru ekki langur tími á
mannsævi. Gunnar átti góð ár og oft
viðburðarík. Hann eignaðist góðan
lífsförunaut, Kolbrúnu Jónsdóttur
og með henni eina dóttur, Ásu
Dagnýju. Fyrir hjónaband eignaðist
hann einn son, Stein. Bæði Steinn og
Ása Dagný minna mig um margt á
föður sinn, ekki síst íþróttaáhuginn.
Guð blessi þau og styrki.
Kolla og Gunnar áttu margar
góðar stundir og um margt lík. Tóku
virkan þátt í áhugamálum hvorl
annars. Þá bættist söngurinn við.
Þau voru meðlimir Álafosskórsins.
Þar eignuðust þau góða vini og
minningar.
Ég sakna þín elsku bróðir minn,
sakna þín úr eldhúsinu þegar þú
skaust inn og fékkst bita áður en
farið var á æfingu með gömlu fé-
lögunum. Báðar fjölskyldurnar eiga
góðar minningar frá 17. júní síðast-
liðnum og góðri kvöldstund fyrir
stuttu. Þá gat ég stolt sýnt þér fyrsta
barnabarnið mitt.
Til eru þeir sem gefa og þekkja
hvorki þjáningu þess né gleði og eru
sér ekki meðvitaðir um dyggð sína.
Þeir gefa eins og blómið í garðinum,
sem andar ilmi sínum út í loftið. Guð
blessi ykkur öll.
Traustur vinur og bróðir er
genginn, hvíli hann í friði.
Sirrý systir
Sýklamælarnir komnir.
Til afgreiðslu strax
íslenskur leiðarvísir fylgir
Verð kr. 9.000.-
BOÐI hf
KAPLAHRAUNI 18
220 HAFNARFIRÐI:
S-91.651800
Hallmar Freyr Bjarnason
falin trúnaðarstörf. Hann var kosinn
í knattspyrnuráð félagsins 1952 og í
aðalstjórn Í.F. Völsungs var hann
kosinn á aðalfundi 6. október 1954
og var síðan stjórnarmaður samfellt
allt til æfiloka. Hann gegndi þannig
stjórnarstörfum í félagi sínu í 35 ár
og var formaður þess frá árinu 1978.
í þann tíma, er Hallmar Freyr var
að alast upp á Húsavík, þá var flest
fólk á íslandi fátækt af veraldarauði.
Fólk á Húsavík fór ekki varhluta af
þeirri fátækt. Samt sem áður kemur
fram í nýlegu blaðaviðtali við Frey,
að honum var Húsavík mjög fallegur
heimur á æskuárunum. Þann fallega
heim vildi Freyr varðveita með
æskufólki á Húsavík og að því vann
hann með starfi sínu í íþróttafélag-
inu Völsungi næstum alla starfsæfi
sína.
Hallmar Freyr Bjarnason er horf-
inn af vettvangi, en íþróttafélagið
Völsungur hefur notið verka hans og
mun enn njóta þeirra um langa
framtíð. j.F. Völsungur
Afmæíis- og
UTSYIM1 Fagurs útsýnis get- ur ökumaöur ekki notið ööruvisi en aö stööva bilinn þar sem hann stofnarekki öörum vegfarendum í hættu (eöa tefur aöra umferö). UX™0" minnmgargreinar Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og eða minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveim dögum fyrir birtingardag. Þær þurfa að vera vélritaðar.
Freyr Bjarnason er látinn Hann
lést á sjúkrahúsi í Reykjavík 21. júlí
sl.
Hann fæddist 21. nóvember 1931
og var því aðeins á 56. aldursári,
þegar kallið kom. Það eru ekki ýkja
mörg æfiár, en á þeim árum skap-
aði hann mjög lifandi sögu í huga
okkar, sem þekktum hann. Hann lét
til sín taka og varð þekktur maður
fyrir störf að félags- og æskulýðsmál-
um.
Hann var fæddur og uppalinn á
Húsavík og á Húsavík átti hann
heima alla sína æfi. Hann unni sinni
heimabyggð og Húsavík og æsku
hennar vann hann það sem hann
vann. Hann var knúinn til starfa
sinna af mjög heitum huga og því var
hjarta hans mikið bæði í fögnuði og
mótbyr. Hann giaddist innilega, þeg-
ar Völsungum vegnaði vel og tók
nærri sér, þegar miður gekk.
Hallmar Freyr varð félagsmaður í
íþróttafélaginu Völsungi árið 1947
og í félaginu voru horium snemma
Verid
velkomin í
6 DAGA FJALLAFERÐIR
okkar í sumar um Borgarfjörð, Kaldadal, Landmanna-
laugar, Eldgjá, Skaftafell og Þórsmörk. Brottför alla
mánudaga fram til 17. ágúst.
VERÐ AÐEINS KR. 13.200,-
Inniffalið: Allur matur, tjöld, dýnur og leiðsögn.
Börn fá 50% afslátt.
^^^lJL^A^ACOBSEN^eröaskrifstofa
Austurstræti 9 - Simar 13499 & 13491
Vinna erlendis
Hjá okkur getur þú fengið bók, sem er full af upplýsingum um störf um
allan heim, til lengri eða skemmri tíma. Um er að ræða stöður í:
Málmiðnaði, olíuiðnaði, kennslu, útivinnu, sjómennsku, hótel og
veitingastörfum, au-pair, ferðaieiðsögn, ávaxtatínslu í Frakklandi og
U.S.A. snyrtistörfum, fyrirsætustörfum, vinnu á búgörðum og bænda-
býlum eða á skemmtiferðaskipum o.m.fl.
Bókinni fylgja umsóknareyðublöð. Þetta er bók sem þú þarfnast ef þú
hugar að vinnu erlendis, þú færð upplýsingar um störf, íbúðakost,
vinnutíma o.fl. þar að auki heimilisföng c.a. 1000 staða og
vinnumiðlana. Þú kaupir þessa bók fyrir kr. 98.- sænskar, innifalið
burðargjald og 10 daga skilaréttur. Pantaðu í dag.
Skrifaðu til CENTRALHUS
Box 48,142 00 Stockholm
Ordretelefon: 08-744 1050
P.S. Við ráðum ekki í störf.