Tíminn - 30.07.1987, Blaðsíða 4

Tíminn - 30.07.1987, Blaðsíða 4
4 Tíminn Fimmtudagur 30. júlí 1987 Pétur Blöndal formaöur Landssambands lífeyrissjóða um vaxtahækkun á ríkisskuldabréfum: Eg tel 7,5*8% raunvexti mjög gott fyrir sjóðina“ - en vaxtahækkanir fjármálaráöuneytis hæpin stefna „Persónulega tel ég 7,5 til 8% raunvexti mjög góða ávöxtun fyrir lifeyrissjóðina, á svona miklu fé og til svo langs tíma, sérstaklega hjá góðum skuldara. Hins vegar finnst mér sífelldar vaxtahækkanir vera röng stefna hjá fjármálaráðuneyt- inu og ákaflega hæpin til árangurs á meðan landsmenn almennt gera sér ekki grein fyrir hvað vextir eru. Ég benti því Þorsteini Pálssyni á það á sínum tíma að fara út í umfangsmikla upplýsingaherfcrö til að kenna þjóðinni að spara. Það mundi gera þessar stöðugu vaxta- hækkanir óþarfar og spara ríkinu og öðrum skuldurum hundruð milljóna króna í vaxtagreiðslum", sagði Pétur Blöndal, formaður Landssambands lífeyrissjóða. En Tíminn spurði hann álits á ákvörð- un fjármálaráðherra að bjóða 7,2% vexti á langtíma lánum, en upp í 8,5% á skammtíma sparisk- írteinum. Ekki þáði Þorstcinn ráð Péturs um sparnaðarkennsluna. En þótt verja þyrfti 20-30 milljónum til markvissrar upplýsingaherferðar telur Pétur þeim fjármunum vel varið. Bendir t.d. á að í fyrra hafi hvert 1% í hækkuðum vöxtum kostað ríkissjóð um 370 milljónir króna. En jafnframt því að lækka vaxtaútgjöld ríkissjóðs mundi þetta leiða til lækkunar allra vaxta í landinu. Pctur segir almenna þekkingu landsmanna á vöxtum og verðtryggingu svo bágborna að í viðtölum hans við fólk komi það iðulega fyrir að það rugli m.a.s. saman nafnvöxtum og raunvöxt- um. Það sé t.d. að bera 6,5% vexti á spariskírteinum saman við 23% óverðtryggða nafnvexti í bönkun- um. „Á meðan fólk gerir sér ekki grein fyrir hvað t.d. 6,5% raun- vextir eru gífurlega háir, en heldur áfram að kaupa sér bíla og utan- landsferðir í þeini geðveikislega mæli sem nú tiðkast, þá ereitthvað að. Þetta er upplýsingaskortur. Og þarna held ég að stjórnvöld hafi alveg brugðist, þ.c. í því að kenna þjóðinni að spara. Vegna þessa gríðarlega upplýsingaskorts finnst mér það miklu brýnna verkefni að upplýsa landslýð um gildi verð- tryggingarinnar og gildi raunvaxta Pétur Blöndal. heldur en að eyða hundruðum milljóna í það að hækka sífellt vextina". Pétur sagðist gjarnan bera þetta saman við skiptinguna yfir í hægri umferð á sínum tíma, þegar heil- miklum peningum hafi verið varið í stórátak til að kenna þjóðinni að varast slysin. „Það sama vildi ég einmitt gera við skiptin úr mín- usvöxtum yfir í plúsvexti. Þá þurfti ekki síður að verja fjármunum í það að kenna þjóðinni að bregðast við breyttum aðstæðum og varast slysin. Það var ekki gert, enda lentu margir í slysum -t.d. Sigtúns- hópurinn og aðrir sem héldu að lánin væru ennþá gefins eins og í gamla daga og héldu jafnvel upp á það með kampavíni að fá stórlán. “ Fólki sem leitar ráða hjá Pétri sagðist hann númer 1,2 og 3 benda á að tryggja sér að fá peninga sína til baka, þ.e. að ávaxta þá með verðtryggingu. Síðan geti það farið að hugleiða misjafnlega háa raun- vexti á hinum ýmsu ávöxtunarleið- um. Vextirnirskipti auðvitað máli, en mun minna máli en að hafa peningana tryggða. DJUPIVOGUR ■J ■ • " " - Gisting — sérréttir—smáréttir Sauna — sólarium Verið velkomin HÓTEL FRAMTÍÐ 765 Djúpavogi sími 97-88887 Drögum úr hraða -ökum af skynsemi! Slys gera ekk'n^> ■ $C r m r m ÖKUM EMS oo mcmni boð a undan ser! Farþegaflutningar á þjóðhátíð: Samkeppni úr landi veldur kurr í Eyjum Illur kúrr er tekinn að ólga í heimamönnum í Heimaey, þar sem þeir sitja ekki lengur einir að flutn- ingi fólks milli bæjar og Herjólfsdas þar sem þjóðhátíð þeirra er haldin um verslunarmannahelgi. Átján ára gamall strætisvagn frá SVR var leigður Eyjamanni til þessara nota og er þess vænst að vagninn ílendist í Eyjum. En þrír sérleyfisbflar eru einnig komnir til Vestmannaeyja til fólksflutninga um verslunarmanna- helgi og eygja heimamenn enga leið til að sporna við samkeppninni, sem sagt er að hafi komið í kjölfar óeðlilega hárra greiðslna, sem bíl- stjórar fóru fram á í fyrra fyrir þessa þjónustu við mótsgesti. „Bekkjabílarnir, sem einatt hafa verið notaðir, kostuðu 50 krónur fyrir fullorðna í fyrra, en það var frítt fyrir börn yngri en 13 ára,“ sagði bílstjóri á Vörubílastöð Vest- mannaeyja. Einnig er hægur vandi að koma barnavögnum fyrir í bekkjabílunum, sem mun örðugra er í rútum. í ár verður verð á þjónustu bekkjabílanna um krónur 60-70, en endanleg ákvörðun um það hefur ekki enn verið tekin. „Þeir í rútunum voru að reyna að bjóða þetta tíkalli lægra, en mönnum finnst nú meira sport í að fara með bekkja- bílunum.“ Á síðasta degi þjóðhátíðar í fyrra, þegar ferðir voru orðnar stopular, rauk hins vegar verðið upp úr öllu valdi. „Það er hörkugróði af þessu og þess vegna taka menn upp sam- keppni við heimamenn,“ sagði við- mælandi Tímans. Haukur Guðjónsson, vörubíl- stjóri, sem hefur ekið bekkjabílun- um frægu þessa leið um verslunar- mannahelgi síðastliðin 23 ár, sagði í samtali við Tímann að mikill urgur væri í bílstjórum úr Eyjum vegna þessa. „Hópferðaleiðir og Vörubíla- stöðin hérna hafa haft samband við lögreglu, en ekkert virðist hægt að gera í þessu nema stækka athafna- svæðið," sagði hann. „Ekki er hægt að takmarka á þann hátt að heima- menn veiti einir þessa þjónustu." Hann taldi að með því að stækka athafnasvæðið fjölgaði bílum enn meira og slysahættan margfaldaðist í umferðinni. „f fyrra lenti 250 metra löng halarófa af bílunt í umferðar- hnút á þessari leið,“ sagði bílstjórinn og væntir enn meiri vandræða nú, eftir að bílstjórar úr landi sóttu á markaðinn. Of seint var tekið við sér, að mati bílstjórans, þar sem mögulegt hefði verið að íþróttafélagið hefði fengið einkaleyfi fyrir sérstök fyrirtæki til að annast flutninga úr bænum inn í dal. „Ég fullyrði að enginn Vest- mannaeyingur hafi óskað eftir þess- ari samkeppni hingað,“ sagði Hauk- ur. „Manni finnst það hart að jafnvel Reykvíkingar skuli þurfa að sækja hingað, eins og SVR hefur gert með að leigja hingað vagn sinn, því að ég hef enga trú á að þetta sé gustuka- verk af þeirra hálfu. Það vilja allir sneið af kökunni. Það er ekkert annað en gróðavon, sem leiðir utan- aðkomandi aðila hingað." þj

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.