Tíminn - 30.07.1987, Blaðsíða 9

Tíminn - 30.07.1987, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 30. júlí 1987 Tíminn 9 II AÐ UTAN Amerískar rannsóknarstofur reknar með erlendum heilabúum! Nú er hclmingur nemenda próf- essors Andrew Frank í vélaverk- fræði við University of California í Davis útlendingar. U.þ.b. 60 af 300 vísindamönnum sem starfa við aðalrannsóknastöð Rockwell Int- ernational Corporation eru erlend- ir. Og þetta eru síður en svo einstakar undantekningar í banda- rískum stofnunum sem fást við raunvísindi. Á sama tíma og Bandaríkjamenn hafa vaxandi áhyggjur af söfnun erlendra skulda verða þeir í æ ríkara mæli að reiða sig á heilabú erlendra vísinda- manna og verkfræðinga. í síaukn- um mæli eru það útlendingar sem koma til með að þjálfa næstu kynslóð bandarískra vísinda- manna, vinna að nákvæmnisrann- sóknum og sitja í lykilstöðum sem virkir vísindamenn í rannsóknar- stofum bandarískra iðnfyrirtækja, að því er vísindamenn og skóla- menn þar í landi halda fram. Útlendingar í framhalds- námi stærra hiutfall en nokkru sinni Þessa tilhneigingu má glöggt sjá á straumi útlendinga til framhalds- náms í bandarískum háskólum en þangað sækja háskólar og stórfyrir- tæki í iðnaði starfsmenn sína. Nú eru 58% þeirra er stunda doktors- nám í Bandaríkjunum útlendir, en það er tvisvar sinnum hærra hlutfall en um miðjan áttunda áratuginn. Fjöldi útlendinga með Ph.D. gráðu í stærðfræði og tölvufræði hefur líka stóraukist, í rúm 40% þeirra sem þeim árangri hafa náð. Og útlendingar sem halda áfram rann- sóknum eftir doktorspróf cru nú tveir fimmtu hlutar þess hóps, voru ekki nema þriðjungur 1979. Hin gífurlega hlutfallslega'fjölg- un útlendinga á þessu sviði á sér tværsamtvinnaðarorsakir. Erlend- ir stúdentar álíta enn háskóla í Bandaríkjunum bjóða upp á besta framhaldsnámið í verkfræði og raungreinum og að þar sé mest um að vera á tímum gerjunar í tækni- legum efnum. Útlendingareru líka orðnir fjölmennari í ýmsum öðrum greinum við bandaríska háskóla þ.á m. félagsvísindum og við- skipta- og hagfræði. En þessi stefna er mest áberandi í verkfræði og raunvísindum. Á sama tíma hefur bandarískum nemendum í framhaldsnámi í verk- fræðigreinum farið svo fækkandi síðan á árunum upp úr 1970 að það er ógnvekjandi. Þetta ástand endurspeglar að hluta til versnandi ástand hvað varðar þjálfun í tækni- legum efnum í skólum undir háskólastigi. Kunnátta nemenda er líka lakari í eðlisfræði, efnafræði og öðrum raunvísindum en ekki að sama marki. Tvíbent að treysta svo mikið á erlenda menntamenn Það er tvíbent að verða að treysta svo mikið á erlenda menntamenn. Það hefur átt sinn þátt í því að bandaríska framhalds- háskólakerfið hefur haldið yfir- burðum sínum og styrkt Amerík- ana í samkeppninni á iðnaðarsvið- inu. Á árunum milli 1972 og 1982 jókst hlutfall útlendinga í liðinu sem starfar við vísindi og verkfræði í 17% úr 10% svo að dæmi sé nefnt. En með tímanum getur þetta háa hlutfall útlendinga orðið Akk- ilesarhæll, ef margir þeirra tækju þá ákvörðun að snúa til síns heima. „Það stríðir gegn okkar þjóðlega samkeppnisanda að þjálfa starfslið við háskólana okkar, sem fer svo heim til að taka upp samkeppni við okkur,“ segir einn gagnrýnandi þessa mikla aðgangs erlendra námsmanna í þessar greinar. Og forseti bandaríska vísindaráðsins segir að miklar umræður eigi sér nú í Bandaríkjunum búa nú og starfa fjölmargir erlendir vísindamenn og verkfræöingar en búist er við að margir þeirra eigi eftiraðsnúatil síns heima Vaxandi þátttaka útlendinga í bandarískum verkefnum doktorsefna stað meðal bandarískra vísinda- manna um hvaða hlutverki erlendir doktorar eigi að gegna í ameríska kerfinu. „Það eru skiptar skoðanir um hvort við eigum að reyna að halda í þá. Eitt sjónarmiðið er það að við viljum senda þá heim aftur, sérstaklega ef þeir koma frá fátæku landi. En annað sjónarmið er að við höfum þjálfað þá og þeir geta lagt sitt af mörkum til að banda- rískur iðnaður og háskólar séu vel starfhæfir," segir einn þeirra sem hefur velt þessu máli fyrir sér. Erlendir vísindamenn hafa áður gegnt mikilvægu hlutverki í Bandaríkjunum Auðvitað er þetta ekki í fyrsta sinn sem erlendir vísindamenn hafa gegnt mikilvægu hlutverki í Bandaríkjunum. A fjórða og fimmta áratugnum var sá yfirburða vísindagrundvöllur sem Bandarík- in byggja enn á lagður að hluta af miklum aðflutningi afburðamanna mennina benda til þess að það sama gildi um þá. Sögusagnir ganga um að yfirvöld á Taiwan og Ítalíu gangi fast á eftir sínum mönnum í framhaldsnámi með gylliboðum, þar sem m.a. er boðið upp á aðstöðu á nýtískulega búnum rannsóknastofum og rann- sóknastyrki. Sem dæmi má nefna að risafyrirtækið Istituto per la Ricostruzione Industriale, sem er í eign ítalska ríkisins, er að byggja rannsókna- og þróunaraðstöðu til að draga að vísindamenn til starfa í héruðum í grennd Napolí, en þar er fátækt mikil. En nú eru líka útlend fyrirtæki farin að bjóða í bandaríska vísindamenn Það má að miklu leyti þakka það bandarískri þjálfun að nú hefur öðrum þjóðum tekist í sumum greinum að veita bandarískum fyrirtækjum samkeppni á tækni- lega sviðinu. Það er í fyrsta sinn að stöðugur straumur útlendra vís- indamanna haldi áfram að fylla upp í þá eyðu. Barátta um vísindamennina - og stjórnustríðsáætlunin gerir strik í reikninginn Fyrirsjáanleg fækkun nemenda í þessum greinum hefur í för með sér miskunnarlausa baráttu iðnfyr- irtækja, opinberra aðila og háskóla um nemendur sem fara í fram- haldsnám í verkfræði, tölvufræð- um, stærðfræði og öðrum raun- greinum. Einkum er búist við að stjörnustríðsáætlun Reagans for- seta þurfi á að halda miklum fjölda hálærðra manna í þessum greinum. Oft er látinn í ljós uggur um að háskólarnir beri lægri hlut í þessari samkeppni. Hámarki eiga vand- ræði háskólanna eftir að ná á síðasta áratug þessarar aldar þegar á eftirlaun fer fjöldi þeirra kennara sem bættust við kennaralið skól- anna á 7. áratugnum, þegar “barn- Hlutfall útlendinga sem vinna að Ph.D. gráðu Verkfræði Stærðfræði/ Eðlisfræði 60% > tölvufræði vísindi 50 40 30 20 10 0 Source: National Science Foundation Útlendu vísinda- mennirnir hafa fyllt upp í skarðið þegar bandarískum ne- mendum hefur fækkað. Ef þeirfara ábraut kemureng- inn í þeirra stað frá Evrópu, sem flúðu upplausnina þar, margir þeirra gyðingar, og settust að í Bandartkjunum. En útlendu vísindamennirnir sem koma til Bandaríkjanna nú eru ólíkir þeim. Þeir eru ekki útlærðir í sinni grein heldur koma í leit að frekari þjálfun og meiri þekkingu og fjöldi doktora í þeirra hópi sem kemur á tímabundinni vega- bréfaáritun - í stað þess að áður komu þeir á innflytjendapappírum - hefur aukist verulega. Nú orðið eru það t.d. meira en 80% þeirra sem sækja framhaldsnám í verk- fræði sem eru á slíkum bráðabirgð- advalarleyfum. Japónsku og kínversku nemendumir fara aftur heim Meira en tveir þriðju hlutar erlendu doktorsefnanna í verk- fræði eru frá löndum í Asíu þar sem þróunin er ör, og margir þeirra eru aftur á förum heim. Langflestir japönsku og kínversku nemendanna fara aftur heim og smásögur sem ganga um Kóreu- eftir síðari heimsstyrjöldina sem málum er þannig komið. Og vegna þess hvað þessum útlendu fyrir- tækjum vegnar vel eru þau nú farin að fara á fjörurnar við bandaríska afburða vísindamenn og bjóða upp á vel útbúnar rannsóknarstofur og spennandi verkefni. „Síðustu 18 mánuðina hafa jap- önsk fyrirtæki byrjað að leita fyrir sér hjá bandarískum verkfræðing- um og vísindamönnum um að koma til starfa í Japan. Það er í fyrsta sinn sem slíkt gerist," segir rannsóknaforstjóri og yfirmaður vísindastarfs við Rockwell. Og aðr- ir kunnugir málum bæta því við að „japönsku fyrirtækin vildu gjarna ná í doktorana okkar í svo sem eitt til tvö ár!“ En þörf Bandaríkjanna fyrir af- burðamenn á trúlega eftir að verða mest knýjandi rétt undir aldamót- in, þegar fjórðungi færri Banda- ríkjamenn verða á háskólaaldri en í dag. Það má túlka sem fækkun nema í verkfræði og vísindagrein- um gróflega áætlað um 700.000 á 25 árum. Og það er allsendis óvíst asprenging" eftirstríðsáranna sett- ist á skólabekk á háskólastiginu. Nýir menn verða að koma í þeirra stað upp úr aldamótunum. Konur og minnihlutahópar eiga fáa fulltrúa í raunvísindagreinum - og undirstóðumenntunin í molum Þessi endurnýjun er áhyggjuefni því að ekki er auðséð hvar á að grípa upp nýja menn. Konur og minnihlutaþjóðflokkar (aðrir en Asíumenn) eiga fáa fulltrúa meðal verkfræðinga og vísindamanna. Konur hafa að vísu verið að sækja á á þessum sviðum, en ekki að því marki að draga úr fyrirsjáanlegri mannfæð. Sérstaklega er veitt at- hygli hversu fáir nemendur af öðr- um þjóðflokkum en asískum leita í þessar greinar vegna þess hve hlutfall þeirra í þeim aldursflokk- um sem stunda háskólanám fer stækkandi. Og enn eitt áhyggjuefni skóla- manna sem sérhæfa sig í raunvís- indagreinum er að nemendur koma út úr skylduskólakerfinu án þess að hafa næga undirstöðumenntun í tæknilegum efnum til að tileinka sér nám í þessum greinum á æðri skólastigum. „Skólakerfið okkar, undanfari háskólanáms, er í reyndinni í mol- um og víðs fjarri því að vera sambærilegt við slíkt nám í öðrum löndum," segir dr. Allen Bromley, eðlisfræðiprófessor við Yale, en hann sat sem varaformaður nefnd- ar sem skipuð var af Hvíta húsinu 1986 til að kanna ástand banda- rískra háskóla. „Það er þjóð okkar til sárrar skammar," segir hann. í viðleitni til að takast á við það vandamál sem blasir við hafa þegar hafist umræður milli stóru iðnfyrir- tækjanna og háskólanna um hvort og þá hvernig væri mögulegt að samnýta þá starfskrafta sem völ verður á. Og nokkur fyrirtæki eru farin að kljást við vandann. Þannig hefur t.d. The Digital Equipment Corporation gripið til þess bragðs að leggja fram tveggja milljón dollara framlag á ári í reiðufé og útbúnaði til að styrkja nám og nemendur í vísindum og verkfræði^ Og vísindastyrktarsjóður Bandaríkjanna varði 27 milljónum dollara á árinu 1986 til að greiða fyrir stöður ungra prófessora við háskóla. En þetta framlag sjóðsins var ekki nema 70% þeirra fjárveit- inga sem í boði voru þar sem mörgum ungum vísindamönnum tókst ekki að útvega þau framlög á móti frá einkaaðilum sem skilyrði var að lægju fyrir. Stóru iðnaðar- fyrirtækin vita óljóst að vandinn er framundan, en almennt verða þau ekki vör við hann fyrr en skyndi- lega þegar vísindamannaskortur- inn skellur á, segir einn sérfræðing- ur í markaðsmálum. Bandarískar reglur þrándur í götu erlendra vísindamanna Hvernig sem á málið er litið er augljóst að Bandaríkjamenn verða að treysta á erlendu heilabúin í æ ríkara mæli. En má treysta því að útlendingar haldi áfram að leita til Bandaríkjanna f nógu stórum stíl? Sumir sérfræðingar í skólamálum segja að sú aukna sókn erlendra vísindamanna þangað, sem hefur verið 8% að meðaltali á ári undan- farinn áratug, geti ekki haldist. Og þeir útlendingar sem koma til Bandaríkjanna, staldra þeir þar við? Strangar bandarískar reglur sem nú gilda þar um gera það óhægt um vik að ráða útlendinga í vinnu. Stundum finnst fyrirtækjun- um það þess virði að berjast fyrir að ná í rétta menn, en oftast finnst þeim fyrirhöfnin við að berjast við stirt kerfi meiri en svo að hún borgi sig. Við þessa erfiðleika á að laða til sín bestu erlendu afreksmennina á raunvísindasviðinu bætist, að stjórn Reagans forseta hefur tekið upp afar stranga stefnu til að hindra að hátæknikunnátta flytjist til annarra landa. Afleiðingin ersú að útlendingum er bannað að vinna að háþróuðum verkefnum, þar sem gáfur þeirra gætu komið amerísk- um iðnaði að mestu gagni. Það kann því að koma að því að létta verði eitthvað á þessum hömlum til að rannsóknarstofnanirnar reki ekki í strand. Það er a.m.k. von sumra sem hugleiða þessi mál. „Hingað til höfum við notið þeirrar slembilukku að þó nokkuð margir útlendu vísindamannanna hafa ákveðið að dveljast um kyrrt í Bandaríkjunum," segir aðalvís- indamaður General Electric Com- pany, Roland W. Schmitt. „í Bandaríkjunum eru margar rann- sóknastöðvar, þ.á m. aðalstöð okk- ar við G.E., sem hefðu verið óstarfhæfar ef ekki hefði notið þessara útlendu vísindamanna.“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.