Tíminn - 30.07.1987, Blaðsíða 3

Tíminn - 30.07.1987, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 30. júlí 1987 Tíminn 3 Alþýðubanki ræðir við Iðnaðarbanka, Landsbanka og Samvinnubanka: Rætt um sameiginleg útibú og hagræðingu Alþýðubankinn átti fyrir skömmu óformlegar könnunarviðræður við fulltrúa þriggja annarra banka um möguleika á samstarfi og samvinnu. Alþýðubankamenn funduðu með fulltrúum hinna bankanna sínum í hvoru lagi, en bankarnir sem rætt hefur verið við eru Iðnaðarbanki. Samvinnubanki og Landsbanki. Eins og áður hefur komið fram var mikiil hallarekstur á Alþýðubankan- unt á síðasta ári og nýju bankaráði hefur ekki tekist að rétta reksturinn viö að því marki sem vonast var til. Herma heimildir Tímans að hug- myndin með samstarfi við annan banka hafi verið að létta á ýmsum rekstrarliðum til að mæta þessum rekstrarvanda. Tíntinn hafði samband við Magn- ús Geirsson varaformann btinkaráðs Alþýðubankansog innti hann eftir þessum viðræðum. Hann sagði að þessar viðræður hefðu l'arið fram en undirstrikaði að þetta hafi verið „frumkönnunarviðræður" og hefðu kontið til í framhaldi af almennum umræðum um hagræðingu og sam- einingu banka eftir fall Útvegsbank- ans. „Pað scm hefur gerst er að farið hafa fram óformlegar könnunarvið- ræður, þar sem skoðaður hefur verið möguleikinn á ýmis konar hagræð- ingarmálum. En þetta hefur veriö á algeru frumstigi og þessar viðræður eru ekki lengur í gangi," sagði Magnús. Aðspurður í hverju slík hagræðing gæti verið fólgin sagði Magnús: „ Meðal annars því, hvort ástæða væri til að hafa útibú frá mörgum bönkunt á sama stað." Magnús sagöi að þcssar viðræður mætti flokka sent lauslegar þreyfing- ar, cnda hefði bankaráð Alþýðu- bankans í raun enga heimild til að standa í formlegum viðræðum án þess að hafa fcngið til þess hcimild hluthafa. Aðspurður hvort það væri rétt að fyrirhugað væri að halda þessum könnunarviðræðum áfrant í scpt- entber kvaðst Magnús ckki vita til þess hvort cða hvenær slíkar viðræð- ur hafi verið ákveðnar. -BG 0k með sprengju til lög- reglunnar Lögreglan í Árbæ fékk í hend- ur 81 mm gamla sprengju eða sprengjuvörpu frá stríðsárunum, en á lögreglustöðina kom maður akandi nteð hana og sagðist hafa fundið í árfarvegi við Sandskeið. Það er óhætt að segja að maður- inn hai'i lagt sig í mikla hættu, en sprengjan var virk. Landhelgis- gæslan leggur mikla áherslu á að þeir sent finna slíka gripi, sem hér um ræðir, hafi santband við lögreglu eða gæsluna, en nteð- höndii ekki sprengiefnið sjálfir. Sprengjusérfræðingar sprengdu sprengjuna á nýju æf- ingasvæði lögreglunnar í Saltvík og var það mikil sprcnging. þj Sjómenn ragir viö loðnuveiöar: Aðeins einn bátur búinn að taka nót Loðnusjómenn eru ragir við að hefja veiðar fyrr en verð liggur fyrir, því aðeins einn loðnubátur hefur tekið nót, að sögn veiðieftirlitsins. Það er Pétur Jónsson, rúmlega 1300 tonna bátur, sent Pétur Stefánsson gerir út. Allir loðnusjómenn sem vettlingi geta valdið eru á rækjunni og reyna þannig að tefja tímann þangað til ákvörðun um loðnuverð liggur fyrir. Verðlagsráð sjávarútvegsins mun funda um málið seint í næstu viku. -SÓL Alþýðuflokkurinn: Ný stjórn tekur við Á fundi þingflokks Alþýðuflokks- ins þann 27. júlí var kosin ný stjórn. Stjórn þingflokksins er nú þannig skipuð að formaður er Eiður Guðna- son, varaformaður Karl Steinar Guðnason og ritari er Jón Sæmundur Sigurjónsson. Forstöðumaður Listasafns ráðinn til bráðabirgða Menntamálaráðuneytið vill að það komi fram að Beru Nordal, starfsmanni Listasafns Islands, var falið að gegna starfi forstöðu- manns safnsins til bráðabirgða. „fyrst unt sinn“, en ekki til eins árs, enda hefur ráðuneytið þegar auglýst stöðuna til umsóknar með ákveðnum umsóknarfresti og þá gert ráð fyrir að nýr forstöðumað- ur verði skipaður til fjögurra ára, en ekki ævilangt. Um stöðuna geta þeir sótt sem fullnægja sett- um hæfniskröfum. os VÍPAR.'

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.