Tíminn - 30.07.1987, Page 5

Tíminn - 30.07.1987, Page 5
Fimmtudagur 30. júlí 1987 Tíminn 5 Hvalatalningu Hafrannsóknastofnunar lokið: Rangt að við séum að veiða síðustu hvalina Hvalatalningarleiðangri Haf- rannsóknastofnunar er nú lokið og starfsmenn stofnunarinnar hefjast nú handa við að vinna úr þeim ar- agrúa upplýsinga sem í leiðangrin- um fengust. Búist er við að úr- vinnslu verði lokið á vordögum á næsta ári. Þær verða þá lagðar fyrir vísindanefnd Alþjóða hvalveiði- ráðsins, „ef við verðum ennþá í því“, eins og einn fundarmaður á blaðamannafundi stofnunarinnar orðaði það. Rannsóknirnar eru þáttur í sam- eiginlegu átaki á Norðaustur-At- lantshafi og tóku alls átta skip og þrjár flugvélar þátt í verkefninu, sem Islendingar höfðu frumkvæði að, en ásamt þeim tóku Norðmenn, Færeyingar, Danir og Spánverjar þátt í því, ásamt fjár- framlagi frá Norrænu ráðherra- nefndinni og tókst nú í fyrsta skipti að telja samtímis á öllu hafsvæð- inu, „frá Svalbarða til Spánar og frá Grænlandi til Noregs" eins og Jóhann Sigurjónsson, sjávarlíf- fræðingur komst að orði. Síðastliðnar fímm vikur hafa þrjú skip á vegum Hafrannsókna- stofnunar verið við talningar og athuganir á hvölum á hafsvæðinu í kringum Island. Rannsóknarskipið Árni Friðriksson kannaði svæðið norðvestur undan landinu að ís- röndinni, norður og austur fyrir land allt að Jan Mayen. Skírnir AK fór um hefðbundna stórhvalaslóð vestan við landið, Grænlandshaf og austurströnd Grænlands allt suður fyrir Hvarf. Keflvíkingur KE hélt til á svæðinu sunnan og suðaustan við landið, allt að Fær- evjum og suður undir 55 gráðu, vitneskju um ástand og veiðiþol hvalastofnanna og um þátt þeirra í fæðukeðjunni í sjónum hér við land. Á grundvelli nýrra upplýs- inga er ætlunin að ákveða framhald hvalveiða að lokinni tímabundinni stöðvun Alþjóða hvalveiðiráðsins á veiðum í atvinnuskyni. Leiðangursmenn sáu yfir fjögur þúsund hvali í ferðunum, þar af um 1400 marsvín, 370 langreyðar, 176 andarnefjur, 136 hnúfubaka, 105 búrhvali og 46 sandreyðar. Leiðangrarnir gengu að óskum, nema hvað veður var leiðin- legt um tíma. Sagði Jakob Jakobs- son, forstjóri Hafrannsóknastofn- unar greinilegt eftir þennan leiðangur að það væri greinilega rangt að við værum að veiða síð- ustu hvalina eins og andstæðingar veiðanna hafa margoft haldið fram. Það vakti athygli leiðangurs- manna í Skírni að jreirsáu sléttbak, líklegast íslenskan, en hann hefur ekki sést við ísland s.l. fimmtán ár, og þá hafði hann ekki sést í fimmtíu ár þar á undan. Erlcndar veiði- þjóðir stunduðu grimmar vciðar á sléttbaknum á 16. og 17. öld. m.a. Baskar, Hollendingar og Banda- ríkjamenn og var tegundinni nán- ast útrýmt. Leiðangursstjórar um borð í skipunum voru þeir Jóhann Sigur- jónsson og Þorvaldur Gunnlaugs- son frá Hafrannsóknastofnun og Michael Payne frá Bandaríkjun- um. Með í leiðöngrunum voru fimm útlendingar, þar af einn frá Alþjóða hvalveiðiráðinu. Kostn- aður við rannsóknirnar var um 25 milljónir. -SÓL - segir forstjóri stofnunarinnar Jóhann Sigurjónssun, sjávarlíffræðingur og lciðangursstjóri útskýrir umfang rannsóknanna á þar til gerðu korti. Tímamynd: Pjctur rétt við Rockail svæðið umdeilda. Undanfamar fjórar vikur hefur cinnig farið fram talning hvala úr flugvél á grunnslóðinni í kringum ísland, þ.e. innan við 600 metra dýptarlínunnar á meginútbreiðslu- svæði hrefnu hér við land. Sáust á annan tug þúsunda hrefna við landið. Rannsóknir þessar eru hluti af fjögurra ára áætlun Hafrannsókna- stofnunar um eflingu hvalrann- sókua á hafsvæðinu í kringum ísland. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir veiðum til rannsókna á ýmsum mikilvægum þáttum er varða eftirlit með hvalastofninum hér við land, svo sem viðkomu, kynþroska og orkubúskap. Jafn- framt er gert ráð fyrir víðtækum rannsóknum, óháðum veiðum, sem m.a. er ætlað að gefa upplýs- ingar um fyölda hvala á miðunuin við ísland, útbreiðslu og göngu- hegðun. Rannsóknunum er ætlað að verða framlag Islands til heildar- úttektar Alþjóða hvalveiðiráðsins á hvalastofnum heims, sem stefnt er að Ijúki eigi síðar en árið 1990. Markmið rannsóknanna er að afla Landsvirkjun: Lántökugjald hækkar gjaldskrána um 2,5% Halldór Jónatansson forstjóri Landsvirkjunar telur að gjaldskrá Landsvirkjunar þurfi að hækka um 2.4% umfram þá 9.5% hækkun sem þegar hefur verið ákveðin og tekur gildi l.ágúst, ef fyrirhugað lántöku- gjald leggst að fullu á þau erlendu lán sem fyrirhugað er að taka á næstunni vegna Blönduvirkjunar og annarra framkvæmda. Halldór telur enga möguleika á að fresta framkvæmdum við Blöndu- virkjun frekar en orðið er þar sem hennar er þörf þar sem núverandi orkukerfi muni ekki anna álagstopp- um veturinn 1991-’92, en gert er ráð fyrir að fyrsti hluti virkjunarinnar verði tekinn í gagnið það haust. Forstjóri Landsvirkjunar átti fund með fjármálaráðherra í fyrradag þar sem hann skýrði frá þeim áhrifum sem fyrirhugað lántökugjald mun hafa á fjárhag Landsvirkjunar og stofnkostnað Blönduvirkjunar. Jón Baldvin Hannibalsson fjárm- álaráðherra vildi ekkert segja um hvort Landsvirkjun yrði undanþegin fyrirhuguðu lántökugjaldi. Hann sagði að í fyrsta lagi væri reglugerð um framkvæmd þcssa máls ekki fullbúin, hún væri nú í vinnsltj í ráðuneytinu. I annan stað yrði haft samráð við iðnaðarráðherra og ríkis- stjórn um aígreiðslu málsins. í þriðja lagi verði ákvörðun ekki tekin fyrr en að vandlega athuguðu máli og það tæki sinn tíma. Hann sagði einnig að þetta væri eitt af þeim málum sem lægi ekki mest á. Aðspurður hvort hann teldi rétt að fresta framkvæmdum við Blöndu- virkjun eins og hefði verið haft eftir honum, þá sagðist hann ekki geta slegið því föstu á þessu stigi málsins, þar væru mörg álitamál í því sam- bandi. -HM Slys gera ekki boð á undan sér! _______________________ ÖKUM KMt 00 MBMI Borgarráð hækkar rafmagn um 8,1% Hækkun Landsvirkjunar gefur aðeins tilefni til 5,7% hækkunar Rafmagn í Reykjavík hækkar mun meira en hækkun á gjaldskrá Landsvirkjunar gefur til- efni til. Stjórn Landsvirkjunar á- kvað fyrir stuttu að hækka gjaldskrá fyrirtækisins um 9.5% þann 1 .ágúst. í kjölfar þessa ákvað borgarráð að hækka gjaldskrá Raf- magnsveitu Reykjavíkur um 8.1 % frá sama tíma að tclja. Að sögn Halldórs Runólfssonar forstjóra Landsvirkjunar er ekki þörf á nema 5.7% hækkun á gjaldskrá Rafmagnsveitu Reykja- vtkur til að vega upp hækkun á rafmagni frá Landsvirkjun, Eðlileg hækkun rafmagns frá Rafmagns- veitu ríkisins og Akureyrarbæ vegna hækkunar Landsvirkjunar væri á bilinu 5-6%. Ef gjaldskrár hækkuðu untfram það væri um aðrar orsakir að ræða. Páli Gísiason formaöur stjórnar vcitustofnana Rcykjavíkur sagði að vegna kjarasamningu hefði hækkun gjaldskrár verið minni en áætlað var. Því hcfði veriö áætlað- ur 12.9 milljón króna halli á rekstri Rafmagnsvcitu Rcykjavíkur og væri sá hulii nú tekinn inn ( gjaldskrána. Þá byði innhcimtu- kerfi Rafmagnsvcitu Rcykjuvfkur :kki upp á eins hraðar breytingar á innheimtukcrfi sínu og þyrfti þcgar gjaldsskrárhækkun kæmi frá Landsvirkjun meö svo stuttum fyrirvara scm nú. Það tæki Raf- magnsveitur Reykjavfkur að minnsta kosti einn og hálfan mán- uð að koniast í takt við hækkunina. Mcð 8.1% hækkun á gjaldskrá. Rafmagnsveitunnar nú næðist jafn- vægi í rekstri stofúunarinnar um árarnót. -HM Veitingar og ferðamannaverslun opið alla daga frá kl. 9.00—23.30 VÖRUHÚS KÁ MIÐSTÖÐ VIÐSKIPTANNA Á SUÐURLANDI OPIÐ: MÁNUD.- FIMMTUD. 09-17.30 FÖSTUD. 09-19 LAUGARD. 09-12

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.