Tíminn - 15.09.1987, Page 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 15. september 1987
Borgarráö í dag:
Rætt um ráðhúsið
Það verða tvö stórmál á dagskrá
borgarráðs í dag. Annars vegar verð-
ur á dagskrá reglugerð um opnunar-
tíma verslana í Reykjavík og hins
vegar tekin ákvörðun um hvort ráð-
ist verður í byggingu ráðhúss við
Tjörnina.
Fyrir liggur tillaga um að gefa
opnunartíma verslana í Reykjavík
frjálsan. Tillaga þessi hefur velkst á
milli borgarstjórnar og borgarráðs,
en endanleg afgreiðsla frá borgar-
Kvikmyndahátíð 1987 verður
haldin í Laugarásbíói dagana 19. til
27. september. Um þrjátíu myndir
frá 171öndum verðasýndarásamtals
um 100 sýningum.
Þær myndir sem sýndar verða á
hátíðinni eru yfirleitt ekki meðal
þeirra mynda sem ganga í sölu-
hringjum kvikmyndahúsa, sjón-
varpsstöðva eða videóleiga.
Gestir á kvikmyndahátíð að þessu
sinni verða fimm. ítalski lcikstjórinn
Ettero Scola verður viðstaddur opn-
un hátíðarinnar og fyrsta mynd
hátíðarinnar verður þá sýnd en það
er mynd hans, Maccheroni með Jack
Lcmmon og Mastroianni í aðalhlut-
verkum. Þessi mynd cr frá árinu
1985 en á síðustu kvikmyndahátíð
sem haldin var í hitteðfyrra var
mynd Scola, Le Bal mjög vinsæl.
Pólski leikstjórinn Krzysztof Zan-
ussi er einn gesta Kvikmyndahátíðar
en mynd hans Ár hinnar kyrru sólar
verður sýnd á hátíðinni. Myndin er
frá árinu 1984 og ár sólarinnar er
árið 1946 þegar loks tók að rofa til
eftir hörmungar stríðsins. Franski
rithöfundurinn og leikstjórinn Alan
Robbe- Grillet er einn gestanna en
mynd hans á hátíðinni er Fönguð
fegurð.
Finnsku leikstjórarnir og bræð-
urnir Aki og Mika Kaurismaki verða
einnig gestir hátíðarinnar. Mynd
Aki heitir Skuggar í Paradís sem er
frá árinu 1987 og mynd Mika heitir
Rosso en hún er frá árinu 1985.
Eina barnamynd Kvikmyndahát-
íðar er finnsk og heitir Snædrott-
ningin. Myndin er gerð eftir ævintýri
H.C. Andersen en leikstjóri hennar
er Paivi Hartzell. Hún er ein þriggja
kvenna sem eiga myndir á Kvik-
myndahátíð að þessu sinni. Af öðr-
um myndum á hátíðinni má nefna
nýjustu mynd Lárusar Ýmis Óskars-
sonar, Frosni hlébarðinn en mynd
hans kemur frá Svíþjóð, Ginger og
Fred eftir Fellini þar sem Fellini lýsir
áliti sínu á sjónvarpi og skemmtana-
iðnaðinum sem hann er sjálfur þátt-
takandi í. Einnig verður til sýninga
kínverska myndin Stúlka af góðu
fólki í leikstjórn Huang Jianzhong
sem segir frá lífi 18 ára gamallar
stúlku eftir að henni er komið í
hjónaband með 9 ára gömlum dreng.
Elem Klimov á sovésku myndina
Komið og sjáið sem ku vera einhver
magnaðasta lýsing á stríði sem gerð
hefur verið, jafnvel svo að amerískar
stríðsmyndir eins og Platoon verða
að sápuóperu við samanburö. Sögu-
hetja myndarinnar er ungur drengur
en sögusviðið er síðari heimsstyrj-
öldin þegar nasistar flæða yfir Rúss-
land og heilu þorpin eru lögð í eyði.
Á hátíðinni cr einnig að finna,
myndir frá Egyptalandi, Taiwan,
Japan, Indlandi og fleiri löndum.
Önnur egypska myndin á hátíðinni
fékk önnur verðlaun á kvikrhýnd-
ahátíðinnií Locárno nu í ágúst . Hun
ráði mun að líkindum fást í dag.
Hagsmunaaðilar hafa fengið tillög-
una til umsagnar. Verslunarmanna-
félag Reykjavíkur hefur lagst gegn
frjálsum opnunartíma, en neytenda-
samtökin og kaupmannasamtökin
leggja til að frjáls opnunartími verði
tekinn upp til reynslu í eitt ár. Bæði
þessi samtök leggja áherslu á að
vöruverð hækki ekki í kjölfarið.
Líkur eru á að borgarstjóri muni
leggja fram breytingartiilögu þar
heitir Hryðjuverkamenn en myndin
frá Taiwan heitir Bernskuminningar
og gerist í litlu þorpi í grennd við
herstöð í suðurhluta Taiwan.
Sýningar í Laugarásbíói verða frá
kl. 15 til 23 á hverju kvöldi en forsala
á miðum verður í söluturninum á
Lækjartorgi frá kl. 10 til 17 þar sem
miðar fyrir næstu daga verða seldir
Þessa vikuna stendur yfir í
Reykjavík samnorræn tónlistarhátíð
ungs fólks undir merkjum UNM-
samtakanna, (Ung Nordisk Musik).
UNM-hátíðin, sem er eins konar
„ungliðadeild" Norrænna tónlistar-
daga, er haldin árlega og skiptast
aðildarlöndin fimm á að vera gest-
gjafar. Markmið hátíðarinnar er að
gefa tónlistarfólki undir þrítugu,
hljóðfæraleikurum jafnt sem tón-
skáldum, tækifæri til að koma sér og
sínum verkum á framfæri. Einnig er
það kjörið til að gefa þátttakendum
kost á að sækja námskeið og fyrir-
lestra hjá viðurkenndum listamönn-
um.
Ung Nordisk Musikfest ásér langa
sögu, eða allt frá lokum fyrri heims-
styrjaldar. Það voru Svíarsem fyrstir
tóku að sér að halda hátíðina í
Stokkhdlmi í október árið 1946.
íslendingar tóku ekki virkan þátt í
þessu samstarfi fyrr en árið 1974, er
hátíðin var haldin í Pitea í Svíþjóð.
sem opnunartími verði gefinn frjáls
að því undanskildu að lokað verði á
sunnudögum. Má búast við að sú
tillaga verði samþykkt bæði í borg-
arráði og borgarstjórn.
í síðustu fjárhagsáætlun voru 60
milljónir teknar til hliðar ef ráðist
yrði í byggingu ráðhúss viðTjörnina.
Fyrir liggja teikningar að ráðhúsi úr
verðlaunasamkeppni sem haldin
var. Ákvörðun um byggingu ráðhúss
hefur þó ekki verið tekin og er það
og á þrjú sýningar sama dag. Ódýr-
ara verður í þrjú, fimm og sjö-bíó
nema á lengri myndirnar sem sýndar
verða í færri skipti.
Nýlega rann út skilafrestur í sam-
keppni um handrit að stuttum kvik-
myndum í tengslum við Kvikmynd-
ahátíð Listahátíðar. Tuttugu og sjö
handrit bárust. Þrjú af þeim munu fá
Það er skemmst frá því að segja
að þetta samstarf hefur reynst ís-
lensku tónlistarfólki mikil hvatning
til dáða, sem marka má til að mynda
á því að öll þau tónskáld okkar af
yngri kynslóðinni, sem nú eru óðum
að vinna sér sess í tónlistarlífi okkar,
hófu sinn feril á þeirri hátíð.
Þetta er í þriðja sinn sem hátíðin
fer fram í Reykjavík, og að þessu
sinni hefur hún óopinberan undirtit-
il; „Norðanvindurinn". í samræmi
við það er mikil áhersla lögð á
blástur og hafa m.a. verið fengnir
tveir heimskunnir blásarar til að
halda námskeið. Það cru flautu-
leikarinn og tónskáldið Robert Aitk-
en frá Kanada og trompetvirtúósinn
György Geiger frá Ungverjalandi.
Sérstakt tónskáld hátíðarinnar er
Ungverjinn László Dubrovay og frá
Finnlandi kemur hljómsveitarstjór-
inn Osmo Vánská til að stjórna
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Islands. Auk fyrrnefndra gesta mún
mál á dagskrá fundarins í dag. Ef af
verður er líklegt að ráðhúsið rísi á
mjög skömmum tíma þar sem mikið
jarðrask við og í Tjörninni er óhjá-
kvæmilegt á meðan á frantkvæmdum
stendur. Meðal annars þarf að grafa
langt undir yfirborð Tjarnarinnar,
en samkvæmt teikningum verða
þrjár hæðir neðanjarðar fyrir bíla-
stæði. - HM
850 þúsund króna styrk til fram-
leiðslu myndanna sem síðan verða
sýndar næsta vor í tengslum við
Listahátíð 1988. Dómnefnd skipa
Sigurður Sverrir Pálsson formaður
undirbúningsnefndar Kvikmynda-
hátíðar. Sveinbjörn 1. Baldvinsson
rithöfundur og Thor Vilhiálmsson
rithöfundur. - ABS
Atli Heimir Sveinsson flytja fyrir-
lestur, sem ber yfirskriftina „Óperan
frá Monteverdi til Sveinssonar".
Dag hvern eru tónleikar með
verkum eftir og í flutningi þátttak-
anda. Alls verða flutt verk eftir
fjörutíu og tvö norræn tónskáld
undir þrítugu, þar af ellefu íslensk,
en heildarfjöldi þátttakenda er hátt
á annað hundrað.
Hátíðinni lýkur með tónleikum í
Skálholtskirkju laugardaginn 19.
september, þar sem gestir vikunnar
munu koma fram. M.a. mun György
Geiger og samnorræn strengjasveit
undir stjórn Mark Reedman flytja
Konsert nr. 3 fyrir trompet og strengi
eftir Dubrovay.
Að lokum má geta þess að á
tónleikunum í kvöld í Langholts-
kirkju verða meðal annars flutt verk
eftir Eirík Örn Pálsson og Hauk
Tómasson.
- RD.
Venjuleg ölvun
í miöbænum:
Lögga bitin
og rúður
brotnar
Hefðbundin ölvun var í miðbæ
Reykjavíkur um helgina, og var
hún ekki óvenjuleg að neinu
leyti, ef undanskilin eru tvö atvik.
Hið fyrra var að lögreglumaður
var bitinn á laugardagskvöldið og
var hann fluttur á slysadeild í
kjölfar þessa atviks. Hann reynd-
ist þó heill á húfi og í fullu fjöri.
Hið seinna óvenjulega atvik,
var að aðeins voru brotnar 3
rúður í verslunum í Austurstræt-
inu.
Leiðinlegt veður setti strik í
reikningin hjá krökkunum og
fóru þeir flestir heim með síðasta
strætó, og skýrir það kannski
óvenjuleika helgarinnar. - SÓL
Spenntir heilir
—óspenntirekki
Bíll valt við Stokkseyri á laug-
ardagsmorguninn, með þeim af-
leiðingum að þrennt slasaðist.
Fimm ungmenni voru í bílnum
og var bíllinn á mikilli ferð, þegar
ökumaður missti stjórn á honum
með þeim afleiðingum að hann
■ fór út af veginum og valt. Grunur
leikur á að ökumaður hafi haft
áfengi um hönd.
Af fimmmenningunum voru
tvö í bílbeltum; farþegi í framsæti
og farþegi í aftursæti, og sluppu
þau bæði ómeidd. Þremenning-
arnir sem eftir voru, og óspennt,
slösuðust öll, þ.á m. öll viðbeins-
brotin og var tvennt flutt á slysa-
deild í Reykjavík, en einn er á
sjúkrahúsinu á Selfossi.
Þá var einnig nokkuð mikið
um drykkju á Suðurlandi um
helgina, og virtist sem Sunnlend-
ingar ættu nóg af peningum til að
eyða. - SÓL
Féll ofan
af húsþaki
Lögreglan í Kópavogi fékk til-
kynningu rétt fyrir tvö í gær að
slys hefði orðið við Reynigrund í
Kópavoginum.
Þar hafði maður farið upp á
þak tveggja hæða húss til að
mála, en féll niður. Var hann
strax fluttur á slysadeild. Hann
var með fullri meðvitund, en
nokkuð blæddi úr honum, þar á
meðal úr höfði. - SÓL
Ekið á hest
Um tíu leytið á sunnudags-
kvöld var ekið á hest við Gunn-
arshólma. Ökumaður bifreiðar-
innar fór til lögreglunnar í Árbæ
og tilkynnti um atburðinn. Þurfti
að aflífa hrossið, en bíllinn er
eitthvað skemmdur.
Lögreglan þurfti annars að
kljást við lítið annað en fjúkandi
tunnur og drasl um helgina, nema
hvað ekið var utan í stúlku í
Ártúnsholti aðfaranótt sunnu-
dagsins, en stúlkan reyndist
ómeidd þegar upp var staðið.
________________- SÓL
Harkalegur
árekstur
Lögreglunni í Reykjavík var í
gærmorgun tilkynnt um harkaleg-
an árekstur og bílveltu á gatna-
mótunum Stakkahlíð - Bólstað-
arhlíð.
Þegar lögreglan kom á staðinn
örskömmu sfðar, kom í ljós að
annar bíllinn hafði oltið og öku-
maður hans var þá fluttur á
slysadeild.
Bílamir eru nokkuð skemmdir.
-SÓL
Kvikmyndahátíð 1987 í Laugarásbíói 19. til 27. september:
HÁTÍÐIN OPNUD MED
MYND EFTIR SCOLA
Jón Þórarinsson, Sigurður Sverrir Pálsson og Kristín Jóhannesdóttir eru ásamt fleirum í undirbúningsnefnd
Kvikmyndahátíðar. Tímamynd: Cunnar
Tónlistarhátíð UNM