Tíminn - 13.11.1987, Síða 7
Föstudagur 13. nóvember 1987
Tíminn 7
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi Framsóknarflokksins um ráðhúsiö:
Sjálfsagt að kanna
áhrif á lífríkið
Sigrún Magnúsdóttir borgarfull-
trúi Framsóknarflokksins sat í
dómnefnd um ráðhúsbyggingu við
Tjörnina og greiddi atkvæði með
byggingu ráðhússins einn borgarf-
ulltrúa stjórnarandstöðunnar í
borgarstjórn þegar málið var til
umfjöllunar þar. Tíminn sneri sér
til Sigrúnar og forvitnaðist um
hvort hún væri sammála sjálf-
stæðismönnum um að ekki væri
ástæða til að kanna nánar áhrif
ráðhúsbyggingarinnar á lífríki
Tjarnarinnar.
„Nei, ég er sannarlega ekki sam-
mála Sjálfstæðisflokknum í því
máli. Það er eðlilegt og sjálfsagt að
kanna ítarlega hvort bygging ráð-
húss við Tjörnina kunni að skaða
lífríki hennar,“ sagði Sigrún. „Ég
er hrifin af þessari nettu ráðhús-
byggingu og tel hana Tjarnarprýði.
Hún tekur ekki nema innan við 2%
af flatarmáli Tjarnarinnar og skilar
hluta hennar með lítilli tjörn sem
komið verður fyrir á norðvestur-
horni ráðhúslóðarinnar og tengist
Tjörninni."
Sigrún tók fram að þó hún hafi
greitt atkvæði með byggingu ráð-
hússins á þessum stað þá geti hún
ekki sætt sig við þann asa sem
sjálfstæðismenn viðhafa í ráðhús-
málinu. Hún benti á bókun sína í
borgarstjórn við afgreiðslu ráð-
hússmálsins þar sem Sigrún segist
ekki geta fallist á að hraða þurfi
framkvæmdum þar sem hún telji
eðlilegra að borgin ljúki fyrst fram-
kvæmdum við Viðeyjarstofu og
Borgarleikhús áður en hafist er
handa við ráðhúsbyggingu.
Sigrún sagðist einnig telja
hönnuði hússins ekkert veita af
þeim tíma sem tæki að fullklára
Borgarleikhús til að fullvinna
teikningar að ráðhúsinu. Benti hún
á þann tíma sem hönnuðir dvalar-
heimilisins við Skúlagötu töldu sig
þurfa í undirbúningsvinnu.
Þá sagði Sigrún það fyrir neðan
allar hellur að sjálfstæðismenn ætli
að sniðganga Innkaupstofnun
Reykjavíkurborgar og þá kjörnu
fulltrúa sem þar eiga að fjalla um
innkaup Reykjavíkurborgar í að-
föngum fyrir ráðhúsbygginguna.
-HM
Sigrún Magnúsdóttir burgarfulltrúi Framsóknarflokksins.
Umsögn borgarverkfræðings um byggingu
ráðhúss við Tjörnina:
Ráðhús hefur ekki
áhrif á lífríkið
Borgarverkfræðingur telur ekkert
benda til þess að framkvæmdir við
ráðhússbygginguna við Tjörnina hafi
nokkur áhrif á lífríki Tjarnarinnar.
Þetta kom fram í umsögn borgar-
verkfræðings sem lögð var fyrir
borgarráð í fyrradag. Þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir síðastliðna tvo
daga náði Tíminn ekki tali af Þórði
Þ. Þorbjarnarsyni borgarverkfræð-
ingi til að bera undir hann á hverju
hann byggi þessa niðurstöðu sína.
í umsögn borgarverkfræðings seg-
ir orðrétt: „Ekkert bendir til þess,
að þessi skerðing um tæp 2% hafi
nokkur einustu áhrif á lífríki Tjarn-
arinnar. Og þegar því er slegið fram
verður ekki komist hjá því að álykta,
að menn séu að misbeita vísindaleg-
um hugtökum í því skyni að andæfa
áformum, sem þeir af pólitískum
ástæðum eru andvígir." -HM
Alþjóðaskákmótið á Suðurnesjum:
Staðan óljós
1 gær var staða manna á skákmót-
inu í Njarðvík frekar þokukennd
vegna þess hve margar skákir hafa
farið í bið eða þeim frestað. Hannes
Hlífar hélt enn efsta sætinu eftir
fjórðu umferðina eftir að hafa sigrað
Weldon. Hann var með 3 1/2
vinning. Önnur úrslit í gær voru þau
að Norwood vann Davíð Ólafsson,
Björgvin Jónsson vann Pyhala og
Helgi Ólafsson vann Jóhannes Ág-
ústsson. Sigurður Daði Sigfússon og
Jacops gerðu jafntefli, en skák Þrast-
ar Þórhallssonar og Guðmundar Sig-
urjónssonar fór í bið.
Eftir gærkvöldið hefur staða
manna eflaust skýrst þar því þá voru
biðskákir og frestaðar skákir tefldar.
Úrslit þeirra skáka mun birtast í
Tímanum á morgun. -HM
Ástráður Ingvarsson hjá Loðnunefnd:
LODNAN ER
MED VÍDÁTTU-
BRJÁLÆÐI
„Þeir bíða nú bara eftir að hann
lygni, loðnan er uppi, þó hún hafi
staðið djúpt. Það er eitthvað víð-
áttubrjálæði í henni, hún er óút-
reiknanleg," sagði Ástráður Ingvars-
son, hjá Loðnunefnd í samtali við
Tímann í gær um loðnuveiðarnar.
Heildaraflinn var í gærorðinn
73.825 tonn, en var um 360.000 tonn
á sama tíma í fyrra. 32 bátar stunda
veiðarnar og sagði Ástráður að
nokkrir bátanna 49 sem leyfi hafa til
veiðanna ætli sér ekki á veiðar fyrr
en eftir áramótin.
Bjarni Ólafsson AK bíður nú
færis norðan við Hornbanka, en þar
liggur torfa undir bátnum. Bíður
áhöfnin aðeins eftir að hann lygni,
en bræla hefur verið á miðunum.
-SÓL
Ólafur Ragnar á hádegisverðafundi ungra framsóknarmanna:
ii /
HJORLEIFUR LYGUR
EKKIVÍSVITANDI
Ólafur Ragnar Grímsson telur
atburðarrás hafa skolast til í minni
Hjörleifs Guttormssonar frá því
haustið 1982 þannig að Hjörleifur
sé ekki vísvitandi að segja ósatt
þegar hann rekur ekki minni til að
Ólafur Ragnar hafi lagt fram tillög-
ur í þingflokki Alþýðubandalags-
ins um stjórnarslit haustið 1982.
Þetta kom fram í máli Ólafs Ragn-
ars á hádegisverðarfundi SUF,
LFK og FUF í Reykjavík á Gauki
á Stöng á gær.
„Dagana 12. til 18. október 1982
lagði ég það til í þingflokki Al-
þýðubandalagsins að Alþýðu-
bandalagið sliti stjórnarsamstarf-
inu við Gunnar Thoroddsen og
Framsóknarflokkinn og að kosn-
Ólafur Ragnar Grímsson.
ingar yrðu haldnar í nóvember-
mánuði þannig að ný ríkisstjórn
gæti tekið við fyrir 1. desember
1982. Þetta var gert á öllum fund-
unt þingflokksins, en þó aðeins
munnlega. Guðmundur J. Guð-
mundsson og Svavar Gestsson tóku
þá í sama streng." Þetta sagði
Ólafur Ragnar um tillögurnar um
stjórnarslit.
Um staðhæfingar Hjörleifs sagði
Ólafur:
„Hjörleifur er ekki að ljúga
þegar hann véfengir þetta. Hann
ruglast á atburðarásinni í ágúst og
í október. Það er eðlilegt að hlutir
skolist til í minni manna á þetta
löngum tíma.“ -HM
Wesper
hitablásararnir hafa í 20 ár yljað landsmönnum, bæöi til lands og sjávar viö öll
möguleg störf og aðstæður. Þeir henta allstaðar og eru þeir hljóðlátustu á
markaðnum.
Fáanlegir í eftirtöldum stærðum: 2250 k.cal., 5550 k.cal., 8050 k.cal., 11740 k.
cal., 15380 k. cal. og 29600 k. cal., miöaö viö 80°/40° C.
Afköstin eru frábær, enda sérbyggðir fyrir hitaveitu.
Wesper umboðið
Sólheimum 26,104 Reykjavík,
sími 91 — 34932