Tíminn - 13.11.1987, Blaðsíða 15
Föstudagur 13. nóvember 1987
Tíminn 15
MINNING
llllllllilll
llllli
geymdi gæðingana hans, gæðingana,
sem veittu honum svo mikla ánægju,
staðið autt að mestu hulið skógi, en
Björgvin hefur yljað sér við minning-
arnar um horfna góðvini.
Björgvin var aldrei í vandræðum
með frístundirnar, hann tók oft í
orgelið, eða orti stöku, því hann var
vel hagmæltur og hafði yndi af
ljóðum og held ég að uppáhalds
skáld hans hafi verið Einar Bene-
diktsson, enda kunni hann mikið af
ljóðum hans.
Björgvin fékkst nokkuð við laga-
smíð og hafa lög eftir hann verið
sungin bæði af kórum og einsöngvur-
um.
Konu sína missti Björgvin fyrir
allmörgum árum eða 16. mars 1971
og síðan hefur hann búið einn í íbúð
sinni á Hjallavegi, en alltaf haft
eitthvað af afkomendum sínum í
húsinu.
Það, sem hér hefur verið sagt er
ófullkomin lýsing á æviferli Björg-
vins Filippussonar, en þá er eftir að
lýsa manninum sjálfum eins og hann
kom mér fyrir sjónir. Maður í hærra
lagi beinvaxinn og fríður sýnum,
skapgerðin stórbrotin, viðkvæm, en
heilsteypt og sérlega vel tamin, heið-
arleiki í öllum viðskiptum, ráðdeild
og reglusemi, maður, sem ekki mátti
vamm sitt vita, trúði á Guð sinn og
mátt, handtakið hlýtt og traustvekj-
andi.
Björgvin var gott fordæmi afkom-
endum sínum og veit ég að þeir hafa
margt af honum lært og erft. Björg-
vini veittist það, sem fáum er gefið
að lifa við fulla reisn til síðustu
stundar á eigin heimili og kveðja
þennan heim í eigin rúmi.
Ég kveð tengdaföður minn að
lokinni langri samfylgd með þökk og
virðingu. Guðsblessunfylgi honum.
Ingólfur Jónsson
Hljóðnað er hljóðfærið góða
á heimili tónsmiðs og ljóða
er brauðstritið blandaði söng.
Liðnir þeir fagnaðar fundir
er fjölskyldukórinn tók undir
svo stofan varð stórum of þröng.
Við orgelið undi hann glaður
oft, þessi hrifnæmi maður
er sönginn í sálinni bar.
Um hljómborðið fingurnir fóru
og fundvísir jafnan þeir vóru
á tærustu tónana þar.
Horfinn er hljómur úr ranni,
hljóður er vinur og granni,
húsbóndinn horfinn á braut.
Áður var fákurinn fallinn
er fyrrum var kemdur við stallinn
og alúðar öldungsins naut.
Limið í garðinum grætur
góðvin, er huldi þess rætur
og veitti því, veikbyggðu, skjól.
Gladdist og greikkaði sporið
um garðinn, er nálgaðist vorið
með hlýrri og hækkandi sól.
í Landsveit og Landeyjum áður
löngum, sem aðrir, var háður
ylnum sem ísana braut.
Er vötnin úr viðjunum læddust
og vekringar búinu fæddust
góðbóndinn gleðinnar naut.
Hollt var mér honum að kynnast.
Hollvinar gott er að minnast
og vita hann vistaðan þar
sem grandvörum gott er að búa. -
í Guðsriki, megum við trúa,
er munað hve mætur hann var.
Hljóður er hörpunnar strengur. -
Hreinskiptinn, vandaður drengur
með reisn hefur runnið sitt skeið.
Fagna hans framliðnu vinir
en fálátir göngum við hinir
ævinnar óvissu leið.
Bjarni Helgason
Minning afa og langafa.
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag.
Við erum gestir og hótel okkar er
jörðin.
Einir fara og aðrir koma í dag,
því alltaf bætast nýir hópar í
skörðin.
(Tómas Gudmundsson)
Frá þessu hóteli, sem Tómas orti
svo fallega um, kveðjum við afa í
dag. Frá mannlífi, sem er svo fullt af
fjölbreytni.
Töfrar lífsins voru honum jörðin,
mannlífið og trúin. Þessir þættir
voru honum aðeins einn hljómfagur
strengur. En til þess að tónninn
verði hreinn, þarf að beita boganum
rétt og leita fyrir sér hvar fingur skal
styðja. Þá verður til hinn hreini tónn.
Þannig er náttúrubarnið. Engu
skiptir, hvort lyng grær í Skarðsfjalli
eða blóm grær að Bólstað. Ræturnar
frá Hellum verða aldrei slitnar upp
né heldur minningar frá Bólstað. í
huga manns, sem unnir tónlist verð-
ur fyrst til tær tónn, sfðan koma fleiri
og mynda hljóm, sem er hreinn. Þau
stilltu sína strengi afi okkar og
amma.
Hljómar orgelsins fylla kyrrlátt
umhverfi í Kleppsholtinu.
Birkigróin lifna. Það hljóðnar.
Hann hættir að leika um stund.
Á lóðinni er ristur strigi til skjóls.
Rótað kringum vanmátta plöntur.
Birkið nær fullum þroska. Ómur-
inn frá hljóðfærinu fyllir loftið.
f dag er sunnudagur. í þessu
kyrrláta umhverfí er lítið spilað í
dag. Hann á nefnilega sæti í kirkju.
Úr þessu sæti hlýðir hann á guð-
spjallið og ræðuna prestsins. Trú-
ræknin hefur verið aðall afa.
Alla tíð hefur honum verið jöfn
nauðsyn að rækta sína kirkju og að
draga andann.
Minningin um höfðinglegan afa
sem átti sér svo heiðarlegan lífsferil
yljar okkur.
Baldur Ingólfsson og fjölskylda.
Margt er það, og margt er það
sem minningarnar vekur,
og þær eru það eina,
sem enginn frá mér tekur.
(Davíð Stefánsson)
Nú er afi á Hjalló dáinn.
Þó hafi hafi verið orðinn gamall
og hvíldinni sjálfsagt feginn eigum
við erfitt með að sætta okkur við að
fá ekki að sjá hann aftur í þessu lífi.
Við minnumst hans sem góðs afa
sem gaman var að vera með. Hann
elskaði dýrin og hafði unun af gróðri
og kenndi okkur að bera virðingu
fyrir öllu því sem lifandi er. Við
minnumst þeirra stunda er við kom-
um á Hjalló til ömmu og afa og hann
fór með okkur í hesthúsið sitt og
sýndi okkur stoltur hestana sína og
leyfði okkur aðf fara á bak á traust-
asta vini sínum. Þegar inn var komið
gæddum við okkur á kandís og
malti, sem alltaf er til í eldhússkápn-
um hjá ömmu og afa. Meðan við
gæddum okkur á góðgætinu spilaði
afi gjarnan á orgelið sitt. Þá ferðum
okkar fækkaði til afa síðustu ár var
hugurinn því oftar hjá honum. Við
vorum svo heppin að vera með
bamaafmæli aðeins viku fyrir andlát
hans. Þá var þrek hans farið að
minnka, sem sást best á því að hann
hafði ekki löngun til að slá í slag,
eins og hann vildi alltaf áður.
Með þessum orðum kveðjum við
elskulegan afa okkar.
Þegar æviröðull rennur
rökkvar fyrir sjónum þér
hræðstu eigi hel er fortjald
hinum megin birtan er.
Höndin sem þig hingað leiddi
himins til þig aftur ber
Drottinn elskar, drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
(Sig. Kr. Pétursson)
Anna Jarþrúður, Þóranna, Kristín
Brynja, Ásgerður og Björgvin Njáll.
Ævi og ástir
kvendjöfuls •
eftir Fay Weldon
í nýrri útgáfu
Nýlega kom út hjá Forlaginu
skáldsagan Ævi og ástir
kvendjöfuls eftir breska
rithöfundinn Fay Weldon. Bókin
kom fyrst út á íslensku árið 1985
en hefur nú verið endurútgefin
sem ódýr kilja í tilefni af komu
höfundarins á Bókmenntahátíð í
síðasta mánuði.
Bókin er kynnt þannig á
kápubaki: „Hvað gerir heiðarleg
húsmóðir þegar eiginmaðurinn
kallar hana kvendjöful og hleypst
á brott með annarri konu? Hvað
getur hún gert - ófríðari en amma
skrattans - með undurfagra
skáldkonu að keppinaut? Köld eru
kvennaráð. Söguhetjan — Rut -
leitar allra leiða til að ná fram
hefndum og sigra andstæðinginn.
En til hvers er þessi barátta og
hverju fómar Rut?...
Elísa Björg Þorsteinsdóttir
þýddi bókina sem er 235 bls.
unnin í Prentstofu G.
Benediktssonar.
Stjörnur
stældar
Mál og menning hefur gefið út
bókina Stjörnustælar eftir Andrés
Indriðason. Þetta er þriðja bók
Andrésar um Eyjapeyjann
eldhressa Jón Agnar Pétursson,
sjálfstætt framhald af
metsölubókunum Bara stælar og
Enga stæla.
Ný hyggst Jón Agnar spreyta
sig á leiklistinni. Hann fær
hlutverk í kvikmyndinni
Hjartagosanum en margt fer öðm
vísi en ætlað er. Bjöminn er ekki
unninn þó að Barði
kvikmyndaleikstjóri haldi því fram
að hann sé fæddur leikari. Þó fer
gamanið fyrst að káma þegar í ljós
ANDeÉS INBSIOASON
kemur að hann á ekki að leika
hetju í anda Sylvester Stallone
heldur ástarhlutverk á móti
þessari stelpu frá Akureyri...
Fyrirsjáanlegt er að þetta verða
ekki góð tíðindi fyrir Ragnhildi,
hina einu sönnu. En úr öllum
flækjum má greiða með kænsku
og smástælum...
Stjömustælar er 196 bls.
28. kjördæmisþing framsóknarfélaganna á Vesturlandi veröur haldið
í félágsheimilinu í Ólafsvík laugardaginn 14. nóv. og hefst kl. 10.
Dagskrá:
Kl. 10.00 Þingsetning, Guörún Jóhannsdóttir
Kjör starfsmanna: Þingforseta
Ritara
Kjörbréfanefndar
Uppstillingarnefndar
Skýrsla stjórnar og reikningar:
Guðrún Jóhannsdóttir
Reikningar Magna: Gunnar Kristjánsson
Umræður og afgreiðsla
Kl. 11.15 Framsögumenn um byggða-og atvinnumál
Ki. 12.15 Hádegisverður
Kl. 13.30 Ávörp: Alexander Stefánsson
Steingrímur Hermannsson
Fulltrúar SUF og LFK.
Almennar umræður.
Kl. 16.00 Kaffihlé.
Kl. 16.20 Almennar umræður.
Kl. 17.00 Nefndarstörf: Stjórnmálanefnd
Byggða- og atvinnumálanefnd.
Kl. 18.00 Ályktanir: Umræður
Afgreiðsla.
Kosningar
Kl. 19.30 Þingslit - kvöldverður.
Rútuferð verður frá framsóknarhúsinu, Akranesi kl. 7 og framsóknar-
húsinu Borgaresi kl. 7.30.
Stjórnin
Vesturland
Skrifstofa kjördæmissambandsins Brákarbraut 1, Borgarnesi verður
opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 13.00-17.00. Sími 71633
og sími utan skrifstofutíma 51275.
Stjórnin
Kjördæmisþing íframsóknarmanna í
Noröurlandskjördæmi vestra
verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi dagana 28.-29. nóv. n.k.
Þingið hefst á laugardag kl. 13.
Dagskrá auglýst síðar.
Borgarnes - nærsveitir
Spilum félagsvist í samkomuhúsinu Borgarnesi föstudaginn 13. nóv.
kl. 20.30. Fyrsta umferð í þriggja kvölda keppni, góð verðlaun.
Framsóknarfélag Borgarness
6§l - vf ^ > l
Hl
32. kjördæmisþing framsóknar-
félaganna í Norðurlandskjördæmi
eystra
verður haldið í Hrafnagilsskóla Eyjafirði dagana 13. og 14. nóv. n.k.
og hefst kl. 20.30 á föstudagskvöld. Sérmál þingsins verða heilbrigð-
ismál.
Erindi flytja:
Guðmundur Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingaráðherra.
Sigurður Halldórsson, héraðslæknir Kópaskeri.
Margrét Tómasdóttir, brautarstjóri viö Háskólann á Akureyri.
Regína Sigurðardóttir, fulltrúi sjúkrahúss Húsavíkur.
Halldór Halldórsson, yfirlæknir Kristnesspítala.
Gestir þingsins:
Steingrímur Hermannsson, Sigurður Geirdal, Unnur Stefánsdóttir,
Gissur Pétursson.
Þinginu lýkur á laugardagskvöld með sameiginlegum kvöldverði og
dansleik á Hótel KEA.
Formenn eru hvattir til að tilkynna þátttöku til skrifstofu KFNE, sími
21180.
Þingið er opið öllu framsóknarfólki.
Stjórn KFNE.