Tíminn - 13.11.1987, Blaðsíða 12

Tíminn - 13.11.1987, Blaðsíða 12
12 Tíminn Föstudagur 13. nóvember 1987 FRÉTTAYFIRLIT COLOMBÓ - Þingið á Sri Lanka samþykkti tvær um- deildar tillögur í gær sem veita minnihlutahóp tamíla takmark- að heimastjórnarvald í einum þriðja hluta landsins. Jayewar- dene forseti og flokkur hans komu þessum tillögum í gegn-| um þingið þrátt fyrir andstöðu j harðlínumanna úr hópi singha- j lesa. NIKÓSÍA - Leiðtogar Ar-I abaríkjanna, sem fordæmdu íran á fundi sínum í Amman, voru sagðir hafa gert slíkt að undirlagi Bandaríkjanna. Þetta kom fram í tilkynningu frá ír- anska utanríkisráðuneytinu sem birt var í gær og þar var ennfremur sagt að (ranar myndu berjast þangað til búið væri að refsa hinni árásar- gjörnu harðstjórn í írak. JÓHANNESARBORG- Herinn í Suður-Afríku sagði að j fjórir sinna manna hefðu verið felldir í átökum við Kúbana og aðra kommúnistaheri í suður- hluta Angólu. Þetta var fyrsta staðfestingin á mannfalli í her, Suður-Afríkumanna síðan, sagt var frá þvi að herinn hefði komið skæruliðum undir stjórn' Jónasar Savimbi til aðstoðar í Suður-Angólu. LUNDÚNIR - Vestrænir stjórnarerindrekar staðfestu að: ágreiningur hefði komið uppi milli risaveldanna í viðræðunv er snúast um að leggja loka-j hönd á afvopnunarsamkomu- lagið um eyðingu allra meðal- drægra og skammdrægari i kjarnaflauga. Stjórnarerindrek- í arnir sögðu að þessi ágreining- ur gæti orðið til þess að fresta fyrirhuguðum leiðtogafundij þeirra Mikhail Gorbatsjovs og Rónalds Reagans í Washing- ton þ.e.a.s. ef engin lausn fyndist. PARÍS - Hrunið á verðbréfa- mörkuðunum hefur neytt, frönsk stjórnvöld til að fresta' sölu á hlut ríkisins í stærsta1 tryggingafyrirtæki landsins.j Union Des Assurances De Paris (UAP). LUNDÚNIR - Atvinnuleys- ið í Bretlandi minnkaði í sið- asta mánuði og var þetta sex- ’ tándi mánuðurinn í röð sem það gerist. Atvinnuleysi í okt- óber var minna en 10% í fyrsta skipti í fimm ár. Atvinnumála- ráðherra landsins Norman Fowler sagði að atvinnuá- standið væri gott þrátt fyrir verðbréfahrun og það myndi halda áfram að minnka. í STOKKHÓLMUR Sænsk stjórnvöld tífölduðu í gær fjárupphæð fyrir upplýs- ingar er gætu leitt til handtöku j morðingja Olofs Palme. Verð- launin eru nú fimmtíu milljónir króna eða rúmlega þrjú hundr- uð milljónir íslenskra króna. > ÚTLÖND Brottvikning Boris Yeltsin sýnir styrk harðlínuaflanna: Slagsíða á glasnost Brottvikning Boris Yeltsin úr starfi sínu sem leiðtogi Moskvudeildar sovéska kommúnistaflokksins sýnir að harðlínumenn í flokknum hafa enn veruleg völd á æðstu stöðum. Þetta var samdóma álit erlendra sérfræðinga um málefni Sovétríkjanna í gær. Hinn 56 ára gamli Yeltsin hefur fylgt hvað harðast glasnost eða opn- unarstefnu Mikhail Gorbatsjovs Sovétleiðtoga er miðar að því að hraða framförum í efnahagslífinu og koma á lýðræðislegum umbótum. Brottrekstur Yeltsin sýnir að Gor- batsjov hefur orðið að taka tillit til harðlínuaflanna til að viðhalda ein- ingu innan flokksins. Yeltsin var rekinn úr embætti á miðvikudagskvöldið eftir að hafa sakað ráðamenn í flokknum um að reyna að hægia á framgangi umbóta- stefnunnar. 1 opinberri tilkynningu sem lesin var í sovésku sjónvarpi var sagt að hann hefði gert sig sekan um pólitísk mistök og ekki haft stjórn á flokksdeildinni í Moskvu. Stjórnarerindrekar í Moskvu sögðu í gær að brottreksturinn væri vitanlega bakslag fyrir umbótastefnu Gorbatsjovs en svo virtist sem staða Sovétleiðtogans sjálfs myndi síður en svo veikjast í kjölfar þessa. Boris Yeltsin, fremstur til hægri: Glasnostsinni án embættis Viðskiptaheimurinn: Betri hallatölur stöðva dalalægð Bandaríkjadalur hækkaði nokkuð gagnvart öðrum helstu gjaldmiðlum heims á peningamörkuðum í gær og hlutabréf á mörkuðum í VVall Street hækkuðu einnig í verði. Ástæðan var tilkynning bandarískra yflrvalda í gærmorgun um minni viðskiptahalla. V erðbréfa vísitalan í Wall Street eða Virkisstræti í New York hækkaði um 63 stig á fyrstu mínútunum eftir að opnað var og dalurinn, sem hefur lækkað um 50% gagnvart öðrum gjaldmiðlum á síðustu tveimur og hálfu ári, hækkaði einnig og var t.d. seldur á 136,70 japönsk ■ yen í stað 134,85 yena. Viðskiptamálaráðuneyti Banda- ríkjanna í Washington sagði í til- kynningu að viðskiptaójöfnuðurinn í september hefði verið 14,08 mill- jarðar/dala í samanburði við 15,68 milljarða dala í ágústmánuði. Hinar slæmu tölur í ágústmánuði voru gerðar opinberar þann 14. október og höfðu þær stn áhrif á hrunið á verðbréfamörkuðum í Wall Street. Menn óttuðust þá að dalur- inn lækkaði og vextir yrðu hækkaðir til að ná honum upp. Dýrari lán voru síðan séð sem undanfari kreppu. Dalurinn lækkaði svo sannarlega þýska markinu og japanska yeninu en hann hafði nokkru sinni verið síðan eftir stríð . Síðan þá hefur hann verið að hækka, fyrst eftir tilkynningu Reagans Bandaríkja- forseta um að dalurinn hefði lækkað nóg og síðan eftir fréttirnar í gær. Minni viðskiptahalli Bandaríkj- anna mun þó tæpast verða til þess að hækka dalinn verulega og gera hann stöðugari því fésýslumenn hafa raunar meiri áhyggur af öðrum halla þ.e. fjárlagahallanum í Bandaríkj- unum. Lágir skattar og mikil ríkisút- gjöld eru álitin vera versta meinið á efnahag Bandaríkjamanna og hefur verið beðið frétta um að Reagan- stjórnin geri eitthvað marktækt til að draga úr þessum halla. hb/Reuter „Það er mögulegt og jafnvel lík- legt að hann hafi samúð með Yeltsin en honum er fyrst og fremst umhug- . að um einingu," sagði einn stjórnar- erindrekanna um Gorbatsjov. Þetta er eiginlega þverstæðan í málinu, staða Gorbatsjovs styrkist frekar en hitt þegar einn helsti og þekktasti stuðningsmaður opnunar- stefnunnar er rekinn. Ástæðan er sú að gagnrýni Yeltsin hafði vakið upp deilur og valdið skiptingu innan flokksins sem hefði getað komið Sovétleiðtoganum illa. í sjónvarpsfréttunum á miðviku- dagskvöldið var sagt að miðstjórn kommúnistaflokksins hefði sam- þykkt ávítur á Yeltsin fyrir að gagn- rýna æðstu stjórnendur flokksins. Það sýnir að miðstjórnin, sem um 300 manns eiga sæti í, mun ekki þola gagnrýni er beinist að helstu innvið- um flokksins. Það er komin slagsíða á glasnost, ljóst er að Gorbatsjov verður að fara sér hægt því enn er mikil andstaða innan flokksins og í”skrifræðisveld- inu öllu við breytingar, hverjar sem þær eru. Sumir vestrænir sérfræðingar telja að Gorbatsjov vilji koma á veruleg- um breytingum en hafi þó pólitískt raunsæi sem segi honum að leggja aðaláherslu á einingu innan flokksins. hb Skotland: Stútar undir stýri komast í sjónvarpið Sjónvarpsmenn á Skotlandi hyggj- ast taka upp óvenjulega herferð gegn þeim sem teknir eru drukknir undir stýri, nefnilega að birta nöfn þeirra í lok vikulegs sjónvarpsþáttar. Þögn verður á meðan nöfnunum er rennt yfir skjáinn. Talsmaður skoska sjónvarpsins sagði að nöfn þcirra sem dæmdir væru fyrir að aka drukknir yrðu birt í lok þrjátíu mínútna þáttar á hverj- um mánudegi er heitir „Scottish Action“ eða Skoskar aðgerðir. Nöfnin verða birt á svörtum lista ásamt heimilisföngum og þyngd refsingarinnar. Um 200 manns látast á ári hverju Skotlands í slysum sem tengja má drukknum ökumönnum. Þar að auki slasast um 2.500 manns í bílslysum sem rekja má til drykkju. Reuter/hb eftir verðbréfahrunið og var í byrjun þessarar viku lægri gagnvart vestur- UMSJÓN: SAMVISKULAUS M0RDINGISEFUR í RÉTTARSALNUM Kona nokkur í Bretlandi, 84 ára gömul, svaf í hjólastól sínum í réttarsal í Lundúnum í gær og virtist hafa litlar áhyggjur af því að vera kærð fyrir morð. Ákæruvaldið sagði Dóris Henley hafa sparkað svo illa í 91 árs gamla systur sína Flórence að hún lét lífið. Systurnar höfðu búið síðustu fimmtíu árin t húsi einu í Suður- Lundúnum. Dóris sofnaði undir tölu ákær- andans og dómarinn Sir David McNeiI ákvað að hún þvrfti ekki að mæta fyrir rétti þar sern hún þjáðist af sjúkdómi scm hcfði áhrif á heilastarfsemi hennar. Farið var með Dóris sofandi út úr réttarsalnum og á sjúkrahús. Reuter/hb

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.