Tíminn - 03.12.1987, Page 16
Sunnudaginn 13. desember veröur efnt til Framsóknar-
vistar aö Hótel Sögu, Súlnasal ki. 14.00.
í tilefni 50 ára afmælis Framsóknarvistar verða vegleg
verðlaun, þar á meðal ferðirtil Amsterdam, bókaverðla-
un og jóla-matarkörfur.
Nánar auglýst síðar.
Framsóknarfélag Reykjavíkur.
50 ÁRA AFMÆLI
FRAMSÓKNARVISTAR
Jólabasar og hlutavelta
Félags framsóknarkvenna í Reykjavík verður haldinn í Hótel Lind
Rauðarárstíg 18, laugardaginn 5. des. kl. 2 e.h. Eins og á
undanförnum árum verður þarna margt góðra muna á góðu verði t.d.
kökur og jólavörur að ógleymdu okkar vinsæla laufabrauði. Á
hlutaveltunni verða engin núll og góðir vinningar í boði. Framsóknar-
konur taka á móti munum og kökum á föstudag eftir kl. 18 að
Rauðaráretíg.
Stjórnin
Jólafundur
Félags framsóknarkvenna verður í Norðurljósasalnum í Þórskaffi
mánudaginn 7. des. kl. 20.30.
Nánar auglýst síðar.
Stjórnin
Fimmtudagur 3. desember 1987
lllilllillllllllll DAGBÓK
Jens Guðjónsson gullsmiður, en á jóla-
sýningu Slúnkankis sýnir hann, auk gull-
smíðisgripa, málverk, teikningar og
vatnslitamyndir
Jens Guðjónsson á jólasýningu
Slúnkaríkis á Isafirði
Hinn landsþekkti ísfirski gullsmiður,
Jens Guðjónsson, sýnir verk sín á jólasýn-
ingu Slúnkaríkis að þessu sinni.
Jens er fæddur á ísafirði 1920, sonur
hjónanna Guðjóns Jónssonar og Hansínu
Magnúsdóttur, sem lengst af bjuggu á
Heklu, sem svo var kölluð, og er við
Aðalstræti.
Jens var snemma hneigður til dráttlistar
og stóð hugar hans til frekara náms á því
sviði. Forlögin höguðu því svo að hann
hóf nám í gullsmíði hjá Guðlaugi Magn-
ússyni og lauk sveinsprófi þar 1948.
Jens hefur haldið fjölda sýninga á
gripum sínum hér heima og erlendis, og
síðast sýndi hann fyrir fslands hönd á
sýningu í Japan sem kallaðist „Scandi-
navian Design".
f Slúnkaríki kveður við annan tón hjá
Jens, því fyrir utan gullsmíðahluti er
þarna einnig sýnishorn af málverkum,
teikningum og vatnslitamyndum. Margar
vatnslitamyndanna hefur hann málað á
ísafirði í heimsóknum sínum á bernsku-
stöðvarnar.
Sýning Jens Guðjónssonar hefst laugar-
daginn 5. desember kl. 16:00.
Opnunartími Slúnkaríkis verður rýmri
í desember en ella og verður það tilkynnt
síðar.
■1
Háskólafyrirlestrar í Odda
- um þjóðfræði gyðinga o.fl.
Dr. Galit Hasan-Rokem, kennari í
þjóðfræði við Hebreska háskólann í Jer-
úsalem í fsrael, flytur tvo opinbera fyrir-
lestra í boði félagsvísindadeildarog heim-
spekideildar Háskóla íslands dagana 4.
og 5. desember (föstud. og laugard.).
Fyrri fyrirlesturinn nefnist „Tákn og tal
kvenna í þjóðsögum síðgyðingdóms“, og
verður fluttur föstudaginn 4. des. kl.
16:15 í stofu 101 í Odda.
Síðari fyrirlesturinn nefnist „Gyðingur-
inn gangandi - frá gyðinglegu sjónar-
miði“, og verður fluttur laugardaginn 5.
desember kl. 14:15 í stofu 101 í Odda.
Dr. Galit Hasan-Rokem hefur undan-
farna mánuði ferðast um Norðurlönd og
flutt fyrirlestra í boði Norrænu þjóðfræði-
stofnunarinnar. Hún er fædd í Finnlandi
en fluttist 10 ára gömul til ísraels og hefur
verði búsett þar síðan. Hún er virtur
fræðimaður á sínu sviði og hefur auk
háskólakennslu samið greinar og fræðirit
um þjóðfræði almennt og þjóðfræði gyð-
inga.
Fyrirlestrarnir verða fluttir á sænsku.
Öllum er heimill aðgangur.
Útivist,
Simar 14606 og 23732
Aðventuferð í Þórsmörk 27.-29. nóv.
Gist verður í Útivistarskálunum Bás-
um. Þar verður sannkölluð aðventu-
stemmning. Gönguferðir. Aðventukvöld-
vaka. Takmarkað pláss. Pantið miða.
Útivist:
Áramótaferð í Þórsmörk 30.des-2. jan.
Fjögurra daga ferð verður farin til að
fagna nýju ári í Þórsmörk. Gönguferðir.
Áramótabrenna. Kvöldvökur. Upplýs-
ingar og farmiðar á skrifstofunni Grófinni
1, símar: 14606 og 23732.
Útivist notar allt gistirými í Básum
vegna þessara ferða.
Minningarsjóður Einars
á Einarsstöðum
Vinir Einars á Einarsstöðum, sem lést
fyrir nokkru, stofnuðu um hann minning-
arsjóð. Þeir benda á þann sjóð til áheita
fyrir þá sem vilja heiðra minningu hans
og styrkja eftirlifandi konu hans. _
Sjóðurinn er varðveittur við Utibú
Landsbanka íslands á Húsavík og er
nr.5460.
Aðventukvöld Kórs
Rangæingafélagsins
Kór Rangæingafélagsins í Reykjavík
heldur Aðventukvöld í kvöld, fimmtu-
daginn 3. desember f húsi Rafveitunnar
við Elliðaár. Kór Tónlistarskólans á
Hvolsvelli kemur í heimsókn. Allir vel-
komnir.
Reykjanes
Skrifstofa kjördæmissambands framsóknarmanna í Reykjaneskjör-
dæmi er opin aö Hamraborg 5, Kópavogi kl. 17-19 alla virka daga og
kl. 17-21 á þriðjudögum. Sími 43222.
Stjórnin.
Austfirðingar
Drætti í happdrætti K.S.F.A. er frestað til 7. desember. Nánari
upplýsingar í síma 11584.
Vesturland
Skrifstofa kjördæmissambandsins Brákarbraut 1, Borgarnesi verður
opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 13.00-17.00. Sími 71633
og sími utan skrifstofutíma 51275.
Stjórnin
Freyja
Félag framsóknarkvenna i Kópavogi býður Hörpukonum í Hafnarfirði
í jólakaffi fimmtudaginn 3. desember kl. 20.30 að Hamraborg 5.
Aðrar framsóknarkonur í Reykjaneskjördæmi eru einnig velkomnar.
Boöið komu ykkar í síma 41590 eða 40229.
Verið velkomnar
Stjórnin
Jóladagatal SUF 1987
Þeir félagar sem fengið hafa jóladagatal SUF 1987 eru hvattir til að
gera skil hið fyrsta.
Úrdráttur er þegar hafinn, eftirtalin númer hafa komið upp:
1. des. nr. 2638
2. des. nr. 913
3. des. nr. 1781
Allar frekari upplýsingar eru veittar í síma 24480.
Stjórn SUF
Gallerí Borg:
Sýning Louisu Matthíasdóttur
Fimmtud. 26. nóvember opnaði Louisa
Matthíasdóttir sýningu í Gallerí Borg við
Austurvöll.
Louisa er fædd í Reykjavík árið 1917.
Hún stundaði nám í Danmörku og hjá
Marcel Gromaire í París. Árið 1941
fluttist Louisa til New York þar sem hún
nam hjá Hans Hofman.
Louisa hefur haldið nær tuttugu einka-
sýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga
víða um heim, þar á meðal tveimur
hérlendis: Haustsýningu FÍM 1974 og
sýningunni „Tíu gestir Listahátíðar ’84“.
Þessi sýning er fyrsta einkasýning Louisu
hér á landi.
Um leið og sýning Louisu verður
opnuð kemur út hjá Máli og menningu
bókin „Louisa Matthíasdóttir, smærri
málverk", sem gefin var út í Bandarikjun-
um á síðasta ári. Sigurður A. Magnússon
þýddi bókina og skrifar formála.
Á sýningunni eru ný olíumálverk, flest
af smærri gerðinni og nokkur stærri.
Sýningin er opin virka daga kl. 10:00-
18:00 og kl. 14:00-18:00 um helgar.
Henni lýkur 8. desember.
Jólasýning í Gallerí Gangskór
Nú stendur yfir jólasýning í Gallerí
Gangskör. Á sýningunni eru grafíkmynd-
ir, vatnslitamyndir, keramik og margt
fleira eftir 8 myndlistarmenn.
Sýningin er opin virka daga kl. 12:00-
18:00 en um helgar kl. 14:00-18:00 og
stendur hún út desember.
Félag aldraðra
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, kl.
14:00 (2 e.h.). Frjáls spilamennska.
Bridge - lomber.
Kl. 19:30 verður félagsvist og kl. 21:00
er dans.
Sýningu Ástu í
Gerðubergi að Ijúka
Sunnud. 6. desember lýkur sýningu
Ástu Erlingsdóttur grasalæknis á um 40
vatnslitamyndum. Flesta liti sem Ásta
notar hefur hún sjálf blandað úr íslensk-
um jurtum. Þetta er fyrsta myndlistarsýn-
ing Ástu.
Sýning þessi er haldin í tilefni þess að
út er komin bók um ævi Ástu og störf,
skráð af Atla Magnússyni, en Orn og
Örlygur gefa bókina út.
Sýningin er opin kl. 13:00-22:00 frá
mánudegi til fimmtudags og kl. 13:00-
18:00 frá föstudegi til sunnudags. Mynd-
irnar á sýningunni eru til sölu og aðgangur
er ókeypis.
Basar Kvenfélags
Óháða safnaðarins
Kvenfélag Óháða safnaðarins heldur
basar í Kirkjubæ, laugardaginn 5. des-
ember kl. 14:00.
Þær sem vildu gefa kökur og aðra
basarmuni komi þeim í Kirkjubæ á föstu-
dag kl. 16:00-19:00 og laugardag kl.
10:00-12;00.
Húnvetningafélagið
í Reykjavik
Félagsvist laugardaginn 5. desember
kl. 14:00 í félagsheimilinu Skeifunni 17.
Síðasti spilafundur fyrir jól. Parakeppni.
Verðlaun og veitingar. Allir velkomnir.
Jólabasar
Kattavinafélagsins
Kattavinafélagið heldur sinn árlega
jólabasar að Hallveigarstöðum sunnudag-
inn 6. desember n.k.
Félagið minnir meðlimi sína og aðra
dýravini á að taka nú höndum saman og
gera basarinn sem veglegastan.
Tekið á móti kökum og öðrum gjöfum
(ekki gömlum fötum) að Hallveigarstöð-
um sama dag á milli kl. 12:30-13:30.
Sýning Eggerts Magnússonar
Eggert Magnússon listmálari heldur
sína fimmtu einkasýningu um þessar
mundir í Vestur-forsalnum á Kjarvals-
stöðum. Eggert hefur einnig tekið þátt í
samsýningum hér heima og í Svíþjóð.
Hann sýnir nú 41 olíumálverk að Kjar-
valsstöðum.
Sýningin var opnuð 28. nóvember og
stendur til 13. desember.
Listasafn Einars Jónssonar
Listasafnið er lokað í desember og
janúar. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega kl. 11:00-17:00.
Hinn árlegi fullveldisfagnaður SU-
OMI-félagsins verður haldinn í Norræna
húsinu, sunnudaginn 6. desember og
hefst kl. 20:30.
Á dagskrá verða finnsk skemmtiatriði,
t.d. syngur finnskur vísnasöngvari,
Mikko Perkoila, einsöng við gítar- og
kantele-undirleik.
Að lokinni dagskrá verður borinn fram
kvöldverður í veitingasal Norræna
hússins. Happdrætti verður einnig.
Þess verður sérstaklega minnst á full-
veldisfagnaðinum, að 70 ár eru nú liðin
frá því að Finnland hlaut fullveldi.
Líffræðifélag íslands
Bleikjan í Þingvallavatni
í dag, fimmtudaginn 3. desember, mun
Skúli Skúlason greina frá rannsóknum
sínum á bleikjunni í Þingvallavatni. Fyrir-
lesturinn sem nefnist BLEIKJAN f
ÞINGVALLAVATNI: ÚTLITSEIN-
KENNI OG LIFNAÐARHÆTTIR
SEIÐA verður í Odda, Hugvisindahúsi
Háskóla fslands, stofu 101 og hefsts kl.
20:30.