Tíminn - 17.12.1987, Qupperneq 19
Tíminn 19
Fimmtudagur 17. desember 1987
SPEGiLL
Bandaríska sjónvarpsstjarnan Joan
Rivers hefur hingað til ekki þótt sér-
staklega viðkvæm þegar hið talaða orð
á í hlut. Hún hefur verið ófeimin við
að nota opinberlega stór og miður
þægileg orð um fjarstatt frægt fólk,
sem engum vörnum hefur komið við.
En nú er komið í ljós að Joan er
ákaflega annt um eigið mannorð. Því
til sönnunar hefur hún nú farið fram á
fimmtíu milljón dollara skaðabætur
frá hendi greinarhöfundar og út-
gefanda tímaritsins „Gentlemen's Qu-
arterly*- vegna greinar þar sem sagt er
að hún hafi kvartað undan því að
maður hennar, sem síðan er fallinn frá,
væri að gera hana vitlausa.
1 greininni, sem birt var undir höf-
undarheitinu Bert Hacker, er haft eftir
Joan Rivers skömmu áður en maður
hennar, Edgar Rosenberg dó í ágúst sl.
eftir að hafa tekið inn of stóran skammt
af lyfjum, að hann væri orðinn óður og
væri á góðri leið með að gera Joan
vitlausa. í kæru Joan segir að sagan í
blaðinu sé hreinn uppspuni frá rótum.
í kærunni er nafngreindur sem
höfundur greinarinnar Ben Stein, sem
hefur harðneitað að hafa komið þar
nokkurs staðar nærri. Hins vegar hefur
dálkahöfundurinn Mitchell Fink í Los
Angeles haldið því fram að Stein sé
höfundur greinarinnar. Stein er margt
til lista lagt á ritvellinum, hann hefur
skrifað skáldsögur, dálka í dagblöðum
og lagt hönd á plóginn við ræður
forsetanna Richards M. Nixon og Ger-
alds R. Ford.
Ritstjóri blaðsins segist fara að fyrir-
mælum lögfræðinga sinna þegar hann
neitar að ræða ákæruna opinberlega.
Og nú er bara eftir að sjá hvort æra
Joan Rivers er álitin tugmilljóna doll-
ara virði.
Jessica litla var hin hressasta þegar
hún yfirgaf sjúkrahúsið eftir mánað-
ardvöl.
Joan Rivers hefur hingað til kært sig kollótta þó að frægu fólki
hafi oft sviðið undan ummælum hennar í sjónvarpi. En nú
þykir henni höggvið of nærri æru hennar sjálfrar og hefur því
höfðað meiðyrðamál.
Joan Rivers fer fram á 50
milliónir dollara í skaðabætur
„BRUNNBARNIГ
Jessica búið að ná sér
Fyrr í haust stóð öll bandaríska þjóðin á öndinni í 58 klst. meðan hún fylgdist mcð
því þegar björgunarmenn lögðu sig fram um að ná Jessicu McClure lífs og óskaddaðri
úr sjálfheldu í djúpum brunni. Jessica, sem á þessum tíma var 18 ntánaða gömul,
hafði fallið ofan í brunninn þegar hún var í fóstri hjá frænku sinni ásamt öðrum
börnum.
Mánuði síðar gekk Jessica út úr sjúkrahúsi í Midland í Texas og leiddi mömmu
sína. Hún ber nú engin merki eftir þessa erfiðu reynslu en læknarnir höfðu óttast að
þeir yrðu að taka af henni hægri fótinn í byrjun.
Brunnurinn sem Jessica féll í niður á 7 metra dýpi, er ekki notaður lengur.
Björgunaraðgerðir voru erfiðar og hættulegar og björgunarmenn urðu að grafa niður
göng til hliðar við þau sem hún féll ofan í til að komast að henni. Peir smurðu hana
með vaselíni áður en hún var tengd krana, sem að lokum dró barnið upp á yfirborð
jarðar í skærum ljósum sjónvarpsmyndavélanna.
Þegar Jessica kom upp úr djúpinu grétu björgunarmennirnir og væntanlega líka
forsetahjónin, sem höfðu setið sem límd við sjónvarpstækið sitt meðan á björguninni
stóð, rétt eins og aðrir landar þeirra.
A S (. I I R ItkO B S S O N
ff.lf.Vlff
EMftfMft
KI.VIIKN.ua
WMNillNSmUt
S K II G G S i Á
HAFNARFJARÐARJARLINN
Einars saga Þorgilssonar
Ásgeir Jakobsson
Bókin er ævisaga Einars Þor-
gilssonar wn leið og hún er
100 ára útgerðarsaga hans og
fyrirtækis hans. Einar hóf út-
gerð sína 1886 og var því út-
gerðin aldargömul á síðasta
ári og er elzta starfandi út-
gerðarfyrirtæki landsins. Þá er
og verzlun Einars Þorgilssonar
einnig elzta starfandi verzlun
landsins, stofnuð 1901. Einar
Þorgilsson var einn af
„feðrum Hafnaríjarðar," bæði
sem atvinnurekandi og bæjar-
fulltrúi og alþingismaður. Þá
er þessi bók jafnframt almenn
sjávarútvegssaga í 100 ár og
um það saltfisklíf, sem þjóðin
lifði á sama tíma.
FANGINN OG DÓMARINN
Þáttur af Sigurði skurði
og Skúla sýslumanni
Ásgeir Jakobsson
Svonefnd Skurðsmál hófust
með því, að 22. des. 1891
fannst lík manns á skafli á
Klofningsdal í Önundarfirði.
Mönnum þótti ekki einleikið
um dauða mannsins og féll
grunur á Sigurð Jóhannsson,
sem kallaður var skurdur, en
hann hafði verið á ferð með
þeim látna daginn áður á
Klofningsheiði. Skúla sýslu-
manni fórst rannsókn málsins
með þeim hætti, að af hlauzt
5 ára rimma, svo nefnd Skúla-
mál, og Sigurður skurður, sak-
laus, hefur verið talinn morð-
ingi í nær 100 ár. Skurðsmál
hafa aldrei verið rannsökuð
sérstaklega eftir frumgögnum
og aðstæðum á vettvangi fyrr
en hér.
BÆR í BYRJUN ALDAR
HAFNARFJÖRÐUR
Magnús Jónsson
Bær í byrjun aldar — Hafnar-
fjördur, sem Magnús Jónsson
minjavörður tók saman, er
yfirlit yfir íbúa og hús í Hafn-
arfirði árið 1902. Getið er hvar
húsin voru staðsett í bænum,
hvort þau standa enn o.s.frv.
Síðan er getið íbúanna. Og þar
er gífurlega mikill fróðleikur
samankominn. Ljósmyndir
eru af fjölda fólks í bókinni.
Allur aðaltexti bókarinnar er
handskrifaður af Magnúsi; en
aftast í bókinni er nafnaskrá
yfir þá sem í bókinni eru
nefndir, alls 1355 nöfn.
MEÐ MÖRGU FÓLKl
Audunn Bragi Sveinsson
Auðunn Bragi Sveinsson, fyrr-
verandi kennari og skólastjóri,
hefur ritað margt sem birst
hefur í blöðum og tímaritum í
gegnum árin í ljóðum og
lausu máli, og einnig hefur
hann ritstýrt nokkrum bók-
um. Bók sú sem hér birtist
fjallar fyrst og fremst um fólk
við ólík skilyrði og í mismun-
andi umhverfi, — frá afdal til
Austurstrætis, ef svo má að
orði komast. Mcð mörgu fólki
er heitið, sem höfundur hefur
valið þessu greinasafni sínu.
Mun það vera réttnefni.
ÖSPIN OG ÝLUSTRÁIÐ
Haraldur Magnússon
Haraldur Magnússon fæddist
á Árskógsströnd við Eyjaíjörð
1931. Hann ólst upp í Eyja-
firði og Skagafirði fram að
tvítugsaldri. Nú býr hann í
Hafnarfirði. Þetta smásagna-
safn er fyrsta bók Haraldar, en
þessar sögur og fleiri til hefur
hann skrifað í frístundum sín-
um undanfarin ár. Sögurnar
eru að ýmsu.leyti óvenjulegar
og flestar fela þær í sér boð-
skap. Þetta eru myndrænar og
hugmyndaauðugar sögur, sem
höfða til allra aldurshópa.
SKVGGSJÁ - BÓKABÚÐ OISVERS STEINS SE