Fréttablaðið - 19.02.2009, Síða 20
20 19. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 125 Velta: 264 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
296 -2,27% 892 -3,66%
MESTA HÆKKUN
ATLANTIC PET. +4,65%
ÖSSUR +1,5%
MAREL FOOD SY. +0,71%
MESTA LÆKKUN
ALFESCA -9,72%
STRAUMUR -8,98%
FØROYA BAKI -3,70%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,25 -9,72% ... Atlantic
Airways 158,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 450,00 +4,65% ...
Bakkavör 1,97 +0,00% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
0,95 +0,00% ... Føroya Banki 104,00 -3,70% ... Icelandair Group
13,40 +0,00% ... Marel Food Systems 49,85 +0,71% ... SPRON 1,90
+0,00% ... Straumur-Burðarás 2,23 -8,98% ... Össur 94,90 +1,50%
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000
0 ´93 ´94 ´95 ´96 ´97 ´98 ´99 ´00 ´01 ´02 ´03 ´04 ´05 ´06 ´07 ´08 ´09
Úrvalsvísitalan OMXI 15
Íslendingar eru hamingjusamast-
ir í heimi þrátt fyrir gengishrun.
Þetta segir bandaríski rithöfund-
urinn Eric Weiner í netmiðlinum
Huffington Post í gær. Weiner
fjallaði um þjóðargleði landans í
bók um landafræði hamingjunn-
ar, í fyrra.
Weiner vitnar til brandara,
sem gengið hefur um alþjóðleg-
an fjármálageira eftir hrun krón-
unnar en þar er lagt út af enska
orðinu capital, sem bæði þýða má
sem höfuðborg og höfuðstóll.
Hann er svona: Hver er höf-
uðstóll Íslands? Svar: 3,75 dalir
(jafnvirði 428 króna).
Sama grín hefur gengið nokkuð
víða frá í fyrrahaust. Síðast vitn-
aði Thomas L. Friedman til hans
á ársfundi Alþjóðaefnahagsráðs-
ins í Davos í Sviss í janúarlok. Þá
var svarið 25 dalir (2.854 krón-
ur). Þetta jafngildir 85 prósenta
hruni Íslands á alþjóðavettvangi
á þremur vikum. - jab
Brandaravísitalan lækkar
Føroya Banki hagnaðist um 101,1
milljón danskra króna á síðasta
fjórðungi 2008, eða um tæpa
2,3 milljarða króna, miðað við
gengi dönsku krónunnar um ára-
mót. Hagnaður ársins alls nemur
tæpum 170,8 milljónum danskra
króna, eða sem svarar 3,9 milljörð-
um íslenskra króna. Aukning milli
ára nemur 18,6 prósentum.
Janus Petersen, forstjóri Føroya
Banka, kveðst að vonum ánægð-
ur með árangurinn í afar erfiðu
rekstrarumhverfi fjármálafyrir-
tækja í heiminum. „Føroya Banki
er í góðu standi og þar af leiðandi
ekki einn af þeim bönkum sem
þarf ríkisaðstoð,“ segir hann og
kveður afkomuna í takt við það
sem boðað hafi verið við lok þriðja
fjórðungs í fyrra.
Hlutabréfaverð Føroya Banka
féll um þriðjung í fyrra, en Pet-
ersen bendir á að það sé minnsta
fall allra bankanna sem skráðir
eru í Nasdaq OMX kauphöllina í
Kaupmannahöfn. Félagið er einn-
ig skráð í Kauphöllina hér. - óká
Hagnast í erfiðu árferði
„Þróunin sýnir að við höfum átt
undir högg að sækja og eigum það
enn,“ segir Þórður Friðjónsson, for-
stjóri Nasdaq OMX Iceland.
Gamla hlutabréfavísitalan
(OMXI15) endaði í 296 stigum í
gær og hefur aldrei verið lægri í
dagslok.
Vísitalan var fyrst reiknuð í árs-
byrjun 1998 og endurspeglaði þá
fjölda skráðra fyrirtækja á aðal-
lista Kauphallarinnar. Upphafs-
gildi hennar var eitt þúsund stig.
Gildi hennar voru í kjölfarið reikn-
uð aftur í tímann eftir sögulegum
gögnum, samkvæmt upplýsingum
frá Kauphöllinni.
Hlutabréfavísitalan gekk í gegn-
um umtalsverðar breytingar frá
upphafi og náði hæsta gildi rétt
eftir miðjan júlí 2007 þegar hún
náði methæðum í 9.016 stigum.
Eftir það tók heldur að halla undan
fæti í samræmi við hremmingar á
alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum.
Það versta gekk yfir á síðasta ári
en þá hurfu tíu félög af hlutabréfa-
markaði, þar af sex sem tilheyrðu
fimmtán veltumestu félögunum á
markaði. Viðskiptabankarnir þrír,
sem voru þjóðnýttir í október, vógu
þar þyngst. Þegar árið var á enda
stóð vísitalan í 352 stigum. Hætt
verður að reikna vísitöluna saman
í júní.
Ný vísitala (OMXI6) var reiknuð
um áramótin og inniheldur hún sex
veltumestu hlutafélögin. Upphafs-
gildi var eitt þúsund stig líkt og hjá
þeirri gömlu. Hún féll um 3,66 pró-
sent í gær og endaði í 892 stigum.
„Ég vona að þetta sé að snúast til
hins betra,“ segir Þórður og bætir
við að hlutabréfamarkaðurinn sé
oft nokkrum skrefum á undan efna-
hagslífinu. jonab@markadurinn.is
Gamla Úrvalsvísi-
talan aldrei lægri
Efnahagshrunið hér hefur komið harkalega niður á
gömlu Úrvalsvísitölunni sem náði lægsta gildi í gær.
Auglýsingasími
– Mest lesið