Fréttablaðið - 19.02.2009, Side 35
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009 7fjármál heimilanna ● fréttablaðið ●
„Þetta er alíslenskur, ókeypis af-
sláttarklúbbur sem er eingöngu til
á netinu og allt á helmingsaf slætti
eins og sjálft heitið gefur til
kynna,“ segir Gunnar Andri Þór-
isson, sem stendur á bak við vef-
síðuna 2fyrir1.is. Að sögn
Gunnnars má
finna allt milli
himins og jarðar
á síðunni. „Sem
d æ m i m á
nefna blóm-
vendi, fótsnyrt-
ingu, tungumála-
námskeið og leik-
hússýningar svo fátt eitt sé
nefnt og allt er með afslætti.
Tilboðin eru svo síbreytileg og
ný fyrirtæki og flokkar bætast
reglulega við, síðast veitingastaðir
og kaffihús. Við eigum núna í sam-
starfi við þrjátíu fyrirtæki og þjón-
ustuaðila og reiknum með að þeim
fjölgi verulega á næstunni.“
Hugmyndina að vefsíðunni fékk
Gunnar síðasta sumar en lét opna
fyrir skráningar í árslok 2008 og
segir landsmenn hafa tekið fram-
takinu fagnandi. „Það sést ein-
faldlega af skráðum klúbbmeðlim-
um sem voru 10.318 talsins síðast
þegar ég athugaði og fjölgar dag
frá degi. Enda er þetta til mik-
illa hagsbóta fyrir heimilin í
landinu, ekki síst í ljósi
ástandsins í þjóðfé-
laginu.“
Athygli
vekur að konur
eru í miklum
meirihluta not-
enda á 2fyrir1.is,
eða alls 75 pró-
sent. Gunnar segist
ekki hafa skýringu á
reiðum höndum en telur ástæð-
una líklega þá að konur fremur
en karlar stýri innkaupum heimil-
anna. „Svo hefur sjálfsagt líka að
segja að konur ræða þessa hluti sín
á milli.“
Gunnar tekur fram að ekki kosti
að skrá sig á 2fyrir1.is. Eingöngu
sé krafist lágmarksupplýsinga,
notendanafns og lykilorðs af hálfu
notanda sem fær þá fullan aðgang
að síðunni. - rve
Til mikilla hagsbóta
fyrir heimili landsins
Gunnar telur að vefsíður á borð við 2fyrir1.is létti undir með heimilunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þessa dagana þykir ófáum eftir-
sóknarvert að geta lagt sjálfstætt
mat á hluti er snúa að fjármálum og
því ekki úr vegi að bregða sér á fjár-
málanámskeið í því augnamiði.
Námskeið í fjárhagsbókhaldi
stendur til boða í Tækniskólanum
en það er skipulagt sem fjarnám
með tveimur staðbundnum lotum.
Námskeiðið stendur frá 16. febrú-
ar til 28. mars og enn hægt að skrá
sig. Upplýsingar eru á tskoli.is.
„Námskeiðið gengur út á að
kenna nemendum að lesa einfaldar
hagtölur og skilja hvað er á bak við
þær svo þeir öðlist betra fjármála-
læsi,“ segir Bragi Rúnar Axelsson,
sérfræðingur hjá Tækniskólanum.
„Að námskeiði loknu eiga nemend-
ur að kunna grundvallarhugmynd-
ir fjárhagsbókhalds og skilja hvað
kemur fram á ársreikningi,“ bætir
hann við. Námskeiðið byggist að
töluverðu leyti á myndbandsfyrir-
lestrum sem nálgast má á netinu.
„Síðan eru unnin verkefni sem
fólk skilar á netinu í gegnum sér-
stakt námsumhverfi og námskeið-
ið endar á prófi í sjöttu vikunni,“
útskýrir Bragi en einkunnum og
umsögnum er einnig skilað í sama
námsumhverfi.
„Námskeiðið er einna helst
ætlað þeim sem eru í fyrirtækja-
hugleiðingum og eru að fara yfir
ársreikninga fyrirtækja og vilja
skilja hvað í þeim felst,“ segir hann
og bætir við að þátttaka í einstök-
um námskeiðum hafi færst í auk-
ana. „Oft vill fólk bara koma á eitt
námskeið og læra það sem það
þarf en hefur ekki endilega hug á
að klára einhverja gráðu. Þá hent-
ar svona námskeið.“ - hs
Aukið fjármálalæsi
Bragi Rúnar Axelsson kennir á nám-
skeiði um fjárhagsbókhald hjá Tækni-
skólanum í febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
s. 562 8500 www.mulalundur.is
Sérprentaðar möppur,
Borðmottur með dagatali
Velur þú ekki örugglega íslenskt
Í næstu bókaverslun.
HAFÐU ÞAÐ Í HUGA
bréfabindi í 8 litum
Veljum íslenskt og gerum góða hluti í leiðinni
GLEÐISTUNDIR
Í IÐUSÖLUM
Fyrsta flokks aðstaða, ljúffengar
veitingar, frábær þjónusta
og glæsilegt útsýni.
Með kveðju
Hafsteinn og Níels
Iðusalir | Lækjargata 2 a - Iðuhúsinu | s: 517 5020 - idusalir@idusalir.is
www.idusalir. is