Tíminn - 13.01.1988, Side 14

Tíminn - 13.01.1988, Side 14
14 Tíminn Miðvikudagur 13. janúar 1988 AÐ UTAN lllllllllllllllllllllllll! 11111 lllllllllllllllli™illill®1 lllllllllllllllll Nokkrir karlar renndu sér niður brekkuna á gíralausum reiðhjólum. Þeir eru með dökka barðastóra stráhatta og eru í látlausum bláum vinnu- skyrtum og svörtum buxum sem þeir halda upp um sig með axlaböndum. Þeir beygja fyrir hornið á kornakrinum og stansa við hálfreista kirkju, þar sem u.þ.b. 40 menn, flestir bændur, eru þegar önnum kafnir við byggingarvinnuna, og allt í kring standa hestar, spenntir fyrir gljáandi svartar kerrur. Þeir fnæsa og sveifla töglunum. Það hvín í sögum og hamarshöggin heyrast lang- ar leiðir. Ótt og títt eru nýsög- uð borðin handlönguð upp á vinnupallana. Hér eru að verki mennónítar af gamla skólanum, meðlimir íhaldssams safnaðar, sem eru að reisa kirkju í bændahérað- inu Lancaster í Pennsylvania í Bandaríkjunum. Kvikmynda- unnendur myndu þekkja þarna sama umhverfi og lifnaðarhætti og þeir kynntust í hinni frá- bæru mynd Peters Weir Vitnið. Hér er enginn verkstjóri sem æpir fyrirskipanir og engin laun eru greidd. Kirkjan er þó risin á þriðja degi, einföld í sniðum, ferköntuð og turnlaus, ekkert sem ýtir undir hroka eða hvet- ur til hégómagirndar. Hún er því sem næst fullbúin. „Svona höfum við nú náð langt“ Fáum mílum sunnar gefur að líta annað mannónítamann- virki, en gerólíkt kirkjubygg- ingunni. Það er líka í byggingu og þar eru að verki stórir byggingakranar og gröfur, verkamennirnir eru meðlimir verkalýðsfélags og hljóta laun samkvæmt taxta þess. Verið er að leggja síðustu hönd á eina bygginguna í hverfinu Willow Valley, þar sem eiga að búa 1250 manns. Willow Valley fyrirtækið stendur á 300 hekt- ara landi og er í einkaeign. Þar er ætlunin að verði híbýli eldri borgara, ráðstefnusalir og að- staða fyrir fólk í leyfum sínum. Þar eru tvö mótel, verslana- miðstöð, fjölbýlishús, 3 mat- sölustaðir, margar sundlaugar, kjörbúð og golfvöllur. And- dyrið í aðalmótelinu ber ekki vott um auðmýkt, það minnir öllu heldur á „Dynasty", með bleika veggi, austurlensk teppi, pálmatré í pottum og glansandi kertastjaka. John Thomas, sem nú er orðinn 67 ára, og kona hans Florence stofnuðu Willow Valley 1965. Þá náði landar- eignin yfir 8 hektara og íbúð- irnar voru 30 í hótelinu þeirra. Frú Thomas heldur tryggð við gamla siði að því leyti til að hún klæðist enn á hefðbundinn mennónítahátt, heimagerðum kjól og ber hvíta bænakollu á höfði. En hr. Thomas hætti að nota „einföldu fötin“ sín, svarta kragalausa jakkann, eft- ir að þau fóru að færa út kvíarnar og höfðu byggt fyrsta mótelið, um 1970. Nokkrum árum síðar fór hann að nota hálsbindi og nú er hann á engan hátt frábrugðinn öðrum þeim sem gengur vel í viðskipt- um. „Afi minn var mennóníta- predikari sem fór til kirkju í hestakerru," segir hann. „Fað- ir minn var einn af fyrstu mennónínutunum sem keyptu sér bíl. Ég hef flogið með Concorde og komið til baka áður en ég lagði af stað.“ Hann hallar sér aftur í svörtum leður- skrifborðsstólnum og ánægjan skín af honum þegar hann segir: „Svona höfum við nú náð langt!“ Hefðirnar frá liðna tímanum og síauknar kröfur nútímans togast á Fæstum mennónítum hefur þó tekist að taka eins ein- dregna afstöðu og gömlu mennónítunum, sem engu vilja breyta, eða Thomas-hjónun- um, sem vilja taka þátt í nú- tímalífi Bandaríkjamanna. Þeir hafa flestir á tilfinningunni að annars vegar togi í þá hefð- irnar frá liðna tímanum og hins vegar síauknar kröfur nútím- ans. Það eru ekki nema 20 ár síðan fábreyttur klæðnaður og ósveigjanleg hegðunarlögmál mörkuðu og einangruðu 25.000 íbúa Lancaster-héraðs frá umhverfinu, en þar er aðal- menningarmiðstöð mennónít- anna í Bandaríkjunum, enda er þar einhver fyrsti aðseturs- staður mennóníta í Bandaríkj- unum. En lifnaðarhættir þeirra og einangrun, sem í þrjár aldir hafa haldið þeim utan hins „syndum spillta“ heims, eru sem óðast að hverfa og undir það ýtir fjárhagsleg velmegun sem nú gengur yfir þetta litla samfélag. Mikil fólksfjölgun, hraður vöxtur í viðskiptum og íbúafjölgun, svo og ferða- Leon Hurst gegnir ólaunuð- um prestsstörfum sem hann var kosinn til. Hann rekur líka byggingafyrirtæki og hefur efnast svo vel að hann býr í snotru einbýlishúsi, á sjónvarp og ferðast í leyfum sínum. En honum er órótt og hefur áhyggjur af því að efnaleg velmegun kunni að ganga af andlegu lífi menn- óníta dauðu. eftir að hafa freisast, og að helga sig friði. Þegar fyrstu forkólfarnir höfðu verið teknir af lífi í Sviss, Frakklandi, Hol- landi og suður-þýsku ríkjun- um, fluttu mennónítarnir, sem draga nafn sitt af endurskírnar- Ieiðtoganum Menno Simons, siði sína og trú með sér til Bandaríkjanna seint á 17. öld. Þar stofnuðu þeir það sem nú kallast “mennónitakirkjuna" eða „gömlu mennonítana“. Nú skiptast mennónítar í nokkur trúfélög þar sem blæmunur er á áherslum en söfnuðirnir skar- ast nokkuð landfræðilega. í Bandaríkjunum og Kanada eru nú 190.000 mennónítar. Jafnframt því sem nútíminn Verður velgengni mennónítum að falli? - gamli og nýi tíminn togast á mannaþjónusta sem gefur af sér 400 milljón dollara á ári, hafa leitt til þess að á milli 2000 og 8000 hektarar af ræktuðu landi í Lancaster hverfa undir aðra notkun en landbúnað á ári hverju. Og meðal margra mannóníta er vinna við land- búnað farin að víkja fyrirstörf- um iögfræðinga, lækna og fast- eignasala. „Syndsamleg menning" nær yfirhóndinni Gamalt mat á verðmætum og hvað það er sem gefur lífinu gildi lýtur ekki í lægra haldi án baráttu en samfélagið þarf sjálft að sýna aðhald til að halda því gamla við. Mennó- nítar eiga nú á hættu að þá gleypi með húð og hári menn- ing sem þeir hafa alltaf litið á sem syndsamlega. Hvort mögulegt er að sinna embættis- störfum og vera auðmjúkur um leið, samkvæmt skilningi mennóníta, með öðrum orðum hvort hægt er að lifa við sömu skilyrði og fólk flest og samt ekki lifa eins og aðrir, þetta eru vandamálin sem mennónít- ar fást við þessa dagana. „í gamla daga vissurn við að hvaða leyti við vorum öðru vísi,“ segir Emerson Lesher, sálfræðingur og mennóníti í Lancaster. „En nú er okkur það alls ekki ljóst og mér finnst við vera að reyna að taka ákvörðun um hvort við getum haldið áfram að lifa sama lífi og við höfum gert til þessa.“ Ofsóttir í Evrópu fyrir 400 árum - fluttust þá til Bandaríkjanna Þetta „líf“ hófst fyrir meira en 400 árum, á tímum siðbótar- innar í Evrópu. Mennónítar eru afkomendur svissneskra og suður-þýskra endurskírnar- sinna, en þeirra aðaltrúaratriði er fullorðinsskírn eða skírn hélt smám saman innreið sína meðal nágrannanna í Lancast- er-héraði og breytti lifnaðar- háttum þeirra, gerðu meðlimir „gömlu mennónítanna" biblíu- setninguna að vera „ljós heims- ins“ að leiðarljósi sínu. Þeir gerðu það ljóst með því að taka upp allt annað útlit en aðrir og með því að tileinka sér einfalda lifnaðarhætti sem fel- ast í því að lifa af landinu. Þar með afneituðu þeir “verald- legri" ánægju og afurðum. „Líkast því að við byggjum á eyju frelsaðs fólks - og heiðingjar allt um kring“ Fyrsti maðurinn af Kraybill- ætt í Lancaster héraði keypti búgarðinn sinn 1772. Enn býr Kraybill á búgarði í héraðinu, Simon, sem er orðinn 66 ára, en börnin hans 7 hafa öll farið að heiman og lært til annarra starfa. Þegar börnin voru að vaxa úr grasi höfðu þau lítil sam- skipti við aðra en mennóníta. Þau gengu í gagnfræðaskóia mennóníta og kirkjan þeirra var bæði samkomustaður mannlegra samskipta og til dýrðar Guði. Á laugardags- kvöldum fóru eldri krakkarnir með kærustunum sínum á ung- lingaskemmtanir í kirkjunni þar sem þeir hlýddu á ræður um allt frá spillingunni á keil- ustöðunum til freistinganna og hættunnar sem fylgja því að „kela“. „Ég vissi eiginlega aldrei á þessum tíma hvað það væri að „kela“, segir Eugene Kraybill, sem nú er orðinn 38 ára ára og var til skamms tíma blaðamað- ur við blað í Lancaster en hefur nú flust til Ástralíu. „Einhvern veginn ímyndaði ég mér að hundur væri viðriðinn það.“ Hömlur á lífi mennóníta náðu til svo veraldlegra skemmtana sem sjónvarps, kvikmynda, drykkju og dans. „Allir í kringum okkur voru að gera allt þetta sem var illt og syndsamlegt, nema við,“ segir Ron Kraybill. Hann er 34 ára sonur Símonar, hefur lokið doktorsprófi í guðfræði við Harvard og starfar að því að sætta hin ólíku sjónarmið sem nú eru uppi meðal mennóníta. „Það var því líkast að við byggjum á eyju frelsaðs fólks og heiðingjar þar allt um kring." Auðsöfnun fráleit hugmynd Það voru ekki margir sem veltu fyrir sér hver ástæðan væri til að þeir væru öðru vísi eða efuðust um að „eyjan" stæði til eilífðar. „Mér fannst ég búa við mikið öryggi í hefðunum mínum,“ segirElvin Kraybill, 39 ára lögfræðingur í Lancaster. „Það komu fá vafa- mál upp,“ segir Ron bróðir hans. „Við vissum upp á hár hvað mátti gera og hvað ekki. “ Heimurinn innan þeirra marka einkenndist af nægju- semi og hlýðni við valdið. Það var sjaldgæft að reynt væri að sniðganga reglur samfélagsins og kirkjunnar. Auðsöfnun var fráleit hugmynd. Hver og einn leit á sig sem vörslumann gjafa Guðs og til einkanota tók hann aðeins það sem hann þarfnað- ist. Ef einhverjum farnaðist sérstaklega vel, efnalega, var litið á það af tortryggni í besta falli. Sálfræðingurinn Lesher segir: „Ef manni gengur vel er hann annað hvort siðlaus eða óheiðarlegur. Þetta sjónarmið hefur verið nokkurs konar leið- arstef í mennónítamenning- unni.“ En að vera hluti af slíkri menningarheild hefur í för með sér að vera „öðru vísi“, jafnvel skrítinn, og fjöldi þeirra mennóníta sem ólust upp á árunum 1950-1970 skömmuðust sín fvrir umhverfi sitt. Tækifærið til að leggja niður sýnileg tákn umhverfis- ins gafst þegar ungu piltarnir gegndu þjónustu á sjúkrahús- um í stað herþjónustu á árum síðari heimsstyrjaldar, Kór- eustríðsins og stríðsins í Víet- nam. Síðar unnu svo sumir þeirra við mennónítatrúboð í Afríku og Mið-Ameríku. Og þegar þeir sneru aftur heim í heim allsnægtanna, þar sem lífið snerist um framþróun og sölumennsku frekar en litla fjölskyldubúgarðinn, sáu margir tækifærið til að klæðast venjulegum jakkafötum í stað „einföldu" fatanna, og pönt- uðu tíma hjá sálfræðingi frem- ur en að leita sér huggunar í biblíunni. En tilfinningin um að vera öðru vísi, að tilheyra menningu með annað verð- mætamat en viðurkennt er í þjóðfélaginu, hún segir ekki skilið við þá.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.