Tíminn - 30.03.1988, Síða 4

Tíminn - 30.03.1988, Síða 4
4 Tíminn Miðvikudagur 30. mars 1988 Steingrímur Hermannsson um PLO málið: Stormur í tebolla „Ég er mjög ánægður með niðurstöðu fundarins. Þar var lýst yfir fullum stuðningi við samþykktina á utanríkisráðherrafundi Norðurlanda. Þá var einnig staðfest viðurkenning á ísraelsríki, nauðsyn á alþjóðlegrí ráðstefnu um þessi mál og einnig sjálfs- ákvörðunarrétt Palestínumanna og stofnun sjálfstæðs ríkis þeirra. Þannig að mér fínnst að þetta hafí nú allt verið stormur í tebolla,“ sagði Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra eftir ríkisstjórnarfund í gærmorgun þar sem PLO málið var m.a. til umræðu. „Það var enginn ágreiningur um þetta, m.a. að Palestinumenn stofni sjálfstjórnarsvæði á her- numdu svæðunum og að styðja tillögur um aíþjóðlega ráðstefnu til lausnar þessum alvarlegu deilum. Menn voru líka sammála um að ísland viðurkenndi ekki PLO og að það yrði ekki efnt til formlegra viðræðna við þá og ákvarðanir um hcimboð væru ekki teknar nema að fenginni umfjöllum í ríkisstjórn. Um þetta varð því ágætt samkomu- lag,“ sagði Þorsteinn Pálsson, for- sætisráðherra í samtali við Tímann í gær. Steingrímur sagði aðeins vera túlkunarmun á viðræðunum. „Forsætisráðherra gerir athuga- semd við það, ef „ég tek upp formlegar viðræður við PLO“, svo ég noti hans orð. Mér hefur satt að segja aldrci dottið í hug að fara að taka upp cinhverjar viðræður við PLO. Að taka upp viðræður þýðir að það er verið að taka upp viðræður um einhvern ákveðinn hlut og stefnt að markmiði. Ég hef hins vegar lýst því yfir að ég mun ákveða sjálfur hvort ég ræði við fulltrúa PLO mér til upplýsinga um þessi mál. Pað er á mínu valdi sem utanríkisráðherra,“ sagði Stein- grímur. Steingrímur Hermannsson, utan- ríkisráðherra. Hann sagði cinnig að ef að það kæmi boð um að mæta til viðræðna fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, þá myndi hann að sjálfsögðu taka það upp í ríkisstjórninni. „Ég sé ekki að þetta þurfi að leiða til meiri ágreinings á milii manna,“ sagði Þorsteinn. -SÓL Ánamaókar nýttir til framleiöslu lífræns áburðar: Stjórn Verðlaunasjóðs íslenskra barnabóka og dómnefnd sjóðsins að störfum: Frá vinstri: Hildur Hermóðsdóttir, bókmenntafræðingur, Ármann Kr. Einarsson, rithöfundur, Hjörleifur Jónsson, fulltrúi grunnskólanemenda í dómnefnd sjóðsins, Ólafur Ragnarsson, forstjóri Vöku-Helgafells, dr. Sigrún Klara Hannesdóttir, lektor og Ragnar Gíslason útgáfustjórí. íslensku barnabókaverölaunin veitt í þriöja sinn: Verðlaunabókin verður gefin út innan skamms Um þessar mundir er dómnefnd í verðlaunasamkeppni Verðlauna- sjóðs íslenskra barnabóka að ljúka störfum. í hina árlegu samkeppni sjóðsins bárust 20 handrit og verður verðlaunahandritið gefið út í sumar- byrjun. íslensku barnabókaverðlaunin verða nú veitt í þriðja sinn, en í fyrra hlaut Kristín Steinsdóttir verðlaunin fyrir bók sína Franskbrauð með sultu og árið þar áður Guðmundur Ólafsson fyrir bókina Emil og Skundi. Niðurstaða dómnefndar verður ekki gerð kunn fyrr en á útgáfudegi bókarinnar, en þá verður verðlauna- höfundinum afhent verðlaunaféð sem að þessu sinni er 100.000 krónur auk venjulegra höfundarlauna sam- kvæmt samningi Rithöfundasam- bands íslands og Félags íslenskra bókaútgefenda. Verolaunasjóður íslenskra barna- bóka var stofnaður 1985 í tilefni af 70 ára afmæli barnabókahöfundarins vinsæla, Ármanns Kr. Einarssonar. Tilgangur sjóðsins er að örva fólk til að skrifa bækur fyrir börn og ung- linga og stuðla jafnframt að auknu framboði íslensks lesefnis fyrir áð- urnefnda aldurshópa á öðrum tíma árs en fyrir jól. Vaka-Helgafell gefur verðlauna- bókina út í kiljuformi með það fyrir augum að hægt verði að stilla verði hennar í hóf. AG Erlendir ánamaðkar á Stórólfs- vallabúi f húsakynnum gömlu graskögglaverksmiðju Stórólfsvallabúsins skríöa nú erlendir ánamaðkar, sem komu hingað til Iands í febrúar sl. í þeim tilgangi að vinna lífrænan áburð úr fóðri eða ýmsum úrgangi. Að þessum innflutningi standa þeir Stefán Gunnarsson garðyrkjubóndi í Dyrhólum og Ragnar Kristjánsson svepparæktandi á Flúðum. Þessi aðferö við áburðarfram- leiðslu hefur verið reynd víða er- lendis á síðustu misserum, t.d. í Hollandi, ítalíuogBandaríkjunum. Lífrænn áburður er talinn mjög heppilegur til t.d. garðyrkjuræktar. Þessi tegund áburðar er dýru verði keypt erlendis. Ragnar Kristjánsson, annar inn- flytjenda maðkanna, var ekki fáan- legur til að tjá sig um þessa áburðar- framleiðslu þegar Tíminn leitaði eft- ir upplýsingum um hana í gær. Hann vildi heldur ekki segja til um fjölda maðkanna sem fluttir voru inn, eða hvaðan þeir komu. Ragnar sagði að reynslutíminn væri alltof stuttur til að hægt væri að kveða upp úr um möguleika á stórframleiðslu á lífræn- um áburði hér á landi. En trúlega gætu menn áttað sig á stöðunni að nokkrum mánuðum liðnum. „Efin í þessu máli eru ótal mörg og í raun er ekkert hægt að segja um raun- verulegan möguleika á framleiðslu lífræns áburðar úr ánamöðkum fyrr cn þeim hefur verið fækkað veru- lega,“ sagði Ragnar Kristjánsson. óþh Aðskilnaður dómsvalds og stjórnsýslustarfa í héraði: Frumvarpið tilbúið úr hendi dómsmálaráðherra Frumvarp um aðskilnað dóms- valds og stjórnsýslustarfa í héraði er tilbúið úr hendi dómsmálaráðherra og er til meðferðar hjá þingflokkun- um um þessar mundir. í samræmi við áætlun ríkisstjóm- arinnar, að skilja að dómsvald og framkvæmdavald, hefur hin svokall- aða níu manna nefnd unnið að gerð tillagna þess efnis í vetur. Á þeim drögum er frumvarp ráðherra nú byggt og kynnti hann það á flokks- stjórnarfundi Alþýðuflokksins um helgina. Þar er gert ráð fyrir, sem fyrr hefur verið greint frá, að settir verði á stofn sjö héraðsdómstólar, sem verði mannaðir með tilflutningi starfsmanna frá embættum sýslu- manna og bæjarfógeta, auk þess sem undirréttardómstólarnir í Reykjavík verða sameinaðir í einn. Gert er ráð fyrir að lögin taki gildi um mitt ár árið 1990, en tíminn fram að gildistöku verði notaður til endur- skoðunar á réttarfarslöggjöfinni. Hún er í ýmsum atriðum orðin yfir einnar aldar gömul og fullnægir ekki nútímakröfum, að mati Jóns Sig- urðssonar, dómsmálaráðherra. f tilkynningu dómsmálaráðherra um aðskilnað dómsvalds og stjórn- sýslustarfa segir, að í þeim efnum hafi íslendingar „um 250 ára skeið búið við samkrull, sem hér var innleitt, þegar einvaldskonungar sameinuðu alla þætti ríkisvaldsins í Danaveldi í einni hendi. Skömmu eftir að einveldinu lauk var tekið til við að aðskilja framkvæmdavald og dómsvald í konungsríki Dana og til stóð m.a. að gera það hér á landi árið 1916.“ Segir enn fremur að þingmenn hafi þá álitið kostnað of mikinn og þar við hafi setið. Breytingarnar nú segir dómsmála- ráðherra vera til að samræma ís- lenskt dómskerfi nútíma hugmynd- um um réttaröryggi, sem stangast ekki á við þær skuldbindingar, sem íslendingar hafa undirgengist á al- þjóðavettvangi varðandi mannrétt- indi þegnanna. Svo sem lesendum Tímans er kunnugt, er höfðað mál á hendur íslenska ríkinu fyrir mannréttinda- dómi Evrópuráðs í Strassborg, þar sem deilt er á núgildandi dómskerfi. Viðkomandi lögmaður hefur lýst því yfir, að nái frumvarpið fram að ganga á þingi, sé hægt að ná sáttum í málinu, áður en dómur gengur í því. „Ég er ekki í vafa um, að af nýrri skipan dómsvalds og umboðsvaids í héraði mun leiða margvíslegar fram- farir,“ ritar ráðherra. „Dómsmeð- ferð mála verður markvissari og skjótari og hinir nýju héraðsdóm- stólar skipaðir dómurum, sem ein- göngu hafa dómsstörf með höndum, munu styrkja án efa landsbyggðina. Þeir munu fjalla um mál, sem í dag eru lögð fyrir dómstóla í Reykjavík, en tilkoma héraðsdómaranna mun verða til þess að lögmannsþjónusta mun aukast utan höfuðborgar- svæðisins og dómgæsla batna. Þjónusta sýslumanna, sem stað- bundinna umboðsmanna fram- kvæmdavaldsins í héraði mun einnig aukast, en stefnt verður að því að fjölga verkefnum þeirra og flytja til þeirra verkefni, sem nú eru unnin í ráðuneytum í Reykjavík.“ Undanfarið hefur mjög verið deilt um þessi atriði á opinberum vett- vangi. Þegar þingflokkarnir hafa lokið umræðum um frumvarpið er því vísað til allsherjarnefndanna tveggja. Formenn þeirra beggja telja hæpið, að frumvarpið nái fram að ganga á þingi nú. þj

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.