Tíminn - 30.03.1988, Page 15
Miðvikudagur 30. mars 1988
Tíminn 15
MINNING IHIIll
búa í sveit. Eiginmaður ömmu var
Guðmundur Sigurðsson, ættaður frá
Stokkseyri. Þau giftu sig 19. sept-
ember 1923 að Hraungerði í Flóa.
Hann var töluvert eldri en amma,
fæddur 1. febrúar 1876 og dó 12.
janúar 1940. Hann vann ýmisleg
störf, aðallega við jarðvinnslu og
vegghleðslur.
Þau eignuðust fjögur börn, elstur
er Ingimundur bílstjóri í Kópavogi,
maki Kristrún Daníelsdóttir, þau
eiga þrjú börn. Guðmundur (Ninni)
dó hálfs árs úr barnaveiki. Sigurlaug
dáin, maki Stefán Aðalbjörnsson,
þau eignuðust átta börn og sjö eru á
lífi, Sigrún húsmóðir í Reykjavík,
maki Atli Sigurðsson, þau skildu,
þau áttu þrjú börn. Barnabörnin og
barnabarnabörnin eru orðin ansi
mörg. Guðmundur afi átti tvö börn
áður en hann giftist, Ágústu fædd
1896 búsett í Reykjavík og Siggeir
Fal fæddur 1910, dáin 1962, giftur f
Keflavík og var sjómaður þar.
Amma og Ágústa voru alla tíð
vinkonur og ég vissi að eitt af því
síðasta sem hún spurði um var
hvernig henni Gústu liði. Einnig var
vinskapur við Fal og hans fjölskyldu.
Á stríðsárunum kynntist amma
norskum manni og átti með honum
eina dóttur sem er Elsa húsmóðir í
Reykjavík, maki Halldór Svansson
þau eiga eina dóttur og Elsa átti eina
dóttur fyrir. Amma átti átta hálfsyst-
kini eldri og voru alsystkinin tíu og
eru fjögur á lífi háöldruð og búa í
Reykjavík.
Ámma bjó í 32 ár á Barónsstíg 30
og þar var alltaf jafn gott að koma
hvort sem var þegar ég var barn eða
eftir að maður var orðinn fullorðinn
og aldrei fór nokkur maður svangur
frá henni og að ég nú ekki tali um
heimsins bestu pönnukökur sem hún
bakaði. Hún var mikil dýravinur
sérstaklega hafði hún dálæti á kött-
um og fuglum og ég man sérstaklega
er hún kom til mín norður á Strandir
fyrir þremur árum hvað hún var
hrifin af kettlingunum fjórum sem
við áttum þá. Henni þótti mjög
gaman að ferðast og hafði farið víða
um heiminn, og í haust er Daníel
bróðir fór á farskip varð hún mjög
ánægð því hún vildi að ef hægt væri
ætti maður að sjá sem mest af
heiminum.
Ég mun koma til með að sakna
hennar mjög mikið því alltaf þegar
ég kom í bæinn fór ég til ömniu á
Baró en nú er engin amma þar og í
haust voru gerðar endurbætur á
húsinu og ég var að tala um það við
ömmu um daginn, en hún sagði við
mig að þetta væri nú einum of seint
fyrir sig að laga íbúðina því að hún
vissi að hún ætti aldrei eftir að búa
þar áfram og ég veit að hún er
hvíldinni fegin. Hún var orðin þreytt
og sagði oft við mig að hún væri nú
búin að lifa nógu lengi hér, en ég veit
að lífið er ekkert búið þó við förum
af þessu tilverustigi og sönnun þess
er sú að móðir ömmu (Oddný)
vitjaði nafns hjá mér fyrir tíu árum
og við létum son okkar heita Odd að
seinna nafni eftir henni og var amma
ánægð með það, þó svo að hún hafi
ekki þckkt móður sína mikið.
En ég veit að núna er amma búin
að hitta afa Ninna og alla sína ástvini
sem á undan eru farnir.
Ég bið góðan guð að varðveita
okkur öll sem eftir lifum.
Þín sonardóttir Ragnheiður
BÆKUR
1111
Þrjú bindi
merkrar ritraðar
Árið 1979 hóf bókaforlagið R.
Oldenbourg Verlag í Múnchen út-
gáfu ritraðarinnar Grundríss der
Geschichte og var þá fyrirhugað, að
bindin í henni yrðu alls átján og
næðu yfir sögu Evrópu frá fornöld til
nútíma. Voru margir fremstu sagn-
fræðingar Þjóðverja fengnir til að
semja ritin og áætlað að útgáfunni
yrði lokið á fimm til sex árum. Er
skemmst frá því að segja, að ritröðin
hlaut þegar í stað ágætar viðtökur og
stafaði það ekki síst af uppbyggingu
ritanna, en eins og þráfaldlega hefur
verið frá skýrt hér í blaðinu, er
hverju bindi skipt í þrjá meginhluta.
Hinn fyrsti er yfirlitsfrásögn af við-
komandi tímabili, í öðrum fjalla
höfundar um stöðu rannsókna á
tímabilinu, helstu vandamál, sem
rannsakandinn þarf að taka afstöðu
til, og greina jafnframt frá því hvern-
ig þeir hafi nálgast viðfangsefnið og
á hvaða þætti þess þeir hafi lagt
mesta áherslu, og loks er í hverju
bindi ítarleg umfjöllun og heimildir
og bókfræði, þar sem höfundar ræða
heimildir sínar, kosti þeirra og galla,
og greina frá merkustu fræðiritum,
sem út hafi verið gefin um viðkom-
andi viðfangsefni.
Þessi skipting bókanna mun teljast
til nokkurra nýmæla, en hún er
viðhöfð í þeim tilgangi að gefa
lesendum glögga grein fyrir sögu
hvers tímabils, kynna þeim stöðu
rannsókna, rannsóknaraðferðir og
helstu nýjungar á hverju sviði, en
með því er vonast til að lesendur,
einkum stúdentar, nái meiri árangri
ef vilji kynna sér tímabilin af eigin
raun. Sama tilgangi þjónar um-
fjöllunin um heimildimar, en henni
er ætlað að kynna lesendum allar
helstu heimildir hvers tímabils.
Eins og áður sagði, hlaut ritröðin
þegar í upphafi hinar bestu viðtökur
og hafa mörg bindanna selst upp og
verið endurútgefin, flest nokkuð
aukin og endurbætt. Þá hefur verið
afráðið að bæta fjórum bindum við
þann fjölda, sem áætlaður var í
upphafi, og verða því bindin alls 22.
Eru tvö þeirra binda, sem fjallað
verður um hér á eftir, einmitt í hópi
þeirra nýju, en áður hefur verið sagt
frá 22. bindi hér í blaðinu, en það er
eftir Peter Schreiner og fjallar um
Miklagarðsríki.
Nýlega komu út þrjú bindi í
ritröðinni og verður þeirra nú getið
stuttlega, hvers um sig.
Jochen Martin: Spátantike
und Völkerwanderung.
R. Oldenbourg Verlag,
Múnchen 1987.
287 bls.
Eins og nafnið bendir til fjallar
þetta bindi um lokaskeið fornaldar
og fyrstu eitt hundrað ár þess tíma-
skeiðs sögunnar, sem miðaldir
kallast. Nánar tiltekið hefst umfjöll-
un höfundar við valdaskeið Díó-
kletíanusar Ágústusar og henni lýk-
ur er Langbarðar lögðu undir sig
hluta Ítalíu árið 568.
Þetta tímabil var mikið umbrota-
skeið í sögu Evrópu. Rómaveldi var
að falli komið og lá undir sífelldum
árásum óþjóða úr norðri. Lauk þeim
viðskiptum svo, sem kunnugt er, að
vest-rómverska ríkið hrundi og á
rústum þess risu mörg smá ríki, sem
mörg voru kennd við þjóðflutninga-
þjóðirnar, sem sumir kalla „óþjóð-
ir“. Bókarhöfundur, sem er prófess-
or í miðalda- og fornaldarsögu við
háskólann í Bielefeld, rekur sögu
vest-rómverska ríkisins á síðasta
skeiði þess og greinir frá viðskiptum
þess við þjóðflutningaþjóðirnar, og
segir auk þess sögu aust-rómverska
ríkisins á sama tíma. Að lokinni
þeirri umfjöllun greinir frá atvinnu-
lífi í Rómaveldi og síðan frá upp-
byggingu þess, keisarastjórninni,
réttarfari og frá stöðu rómversku
keisaranna gagnvart germönskum
konungum. Þá er rækilegur kafli um
trúarbrögð og eflingu kristninnar,
en síðan taka við sfðari hlutarnir
tveir um rannsóknir og heimildir og
í bókarlok eru ítarlegar skrár.
Rudolf Morsey: Die Bundesrepu-
blik Deutschland. Entstehung und
Entwicklung bis 1969.
R. Oldenbourg Verlag,
Múnchen 1987.
274 bls.
Þetta bindi er hið 19. í ritröðinni
og fjallar um stofnun Sambandslýð-
veldisins Þýskalands og sögu þess
fram til 1969. Bókarhöfundur, sem
er háskólakennari í nútímasögu í
Speyer, fjallar fyrst um hernáms-
svæðin fjögur í Þýskalandi við
stríðslok, um skiptingu Þýskalands í
tvö ríki og rekur síðan sögu Vestur-
Þýskalands til 1969. Er þar fjallað
um alla meginþætti stjórnmála- og
hagsögu, en lítið segir frá menning-
arsögu. Mjög fróðlegur þáttur er um
heimildir og stöðu rannsókna, en
þeim hefur fleygt fram á síðustu
árum, er sagnfræðingar hafa sífellt
fengið aðgang að fleiri skjalasöfn-
um. Er ljóst, að enn er mikið
rannsóknarstarf óunnið og vafalaust
eiga viðhorf fræðimanna til ýmissa
þeirra þátta, sem hér er um fjallað,
eftir að breytast á næstu árum. Þá er
þáttur um heimildir og loks nauðsyn-
legar skrár.
Hermann Weber: Die DDR
1945-1986
R. Oldenbourg Verlag,
Múnchen 1988.
253 bls.
Þetta bindi er hið 20. í ritröðinni
Grundriss der Geschichte og fjallar
um austur-þýska alþýðulýðveldið frá
1945-1986. Hermann Weber er einn
fremsti sérfræðingur vestur-þýskur í
sögu Austur-Þýskalands og hefur
samið margar bækur um sögu þess
og stjórnmál, en hann kennir nú-
tímasögu og stjórnmálafræði við há-
skólann í Mannheim. { þessari bók
fjallar hann fyrst um hernámssvæði
Sovétmanna við lok síðari heims-
styrjaldar, rekur þróun mála þar og
greinir frá stofnun alþýðuveldisins
árið 1949. Síðan rekur hann sögu
ríkisins allt til 1986. Hann leggur
megináherslu á stjórnmálasögu og
samskipti Austur-Þýskalands við
önnur ríki og umfjölluninni lýkur
með athyglisverðum kafla um hugs-
anlegar umbætur á stjórnarfari í
náinni framtíð. Síðan eru hefð-
bundnir þættir um rannsóknir og
heimildir og loks allar nauðsynlegar
skrár.
VÖRUMERKI VANDLATRA
NÆRFATNAÐUR
NÁTTFATN AÐU R
CALIDA
Heildsölubirgöir:
igurjonsíon
Þórsgata 14 - sími 24477
Byggðastofnun
RAUÐARARSTlG 25 • SlMI: 25133 • PÓSTHÓLF 5410 • 125 REYKJAVlK
Auglýsir til sölu hraðfrystihús á Patreksfirði.
Byggöastofnun auglýsir til sölu hraðfrystihús á
Vatneyri við Patreksfjörð (áður eign Vatneyrar h.f.)
ásamt tilheyrandi eignarlóð. Eignin er til sölu í
heilu lagi, en einnig kemur til greina að selja
einstaka hluta hennar. Tilboðum í ofangreinda
eign skal skilað fyrir 15. apríl n.k. til lögfræðings
Byggðastofnunar, Karls F. Jóhannssonar, Rauð-
arárstíg 25, 105 Reykjavík, sími 91-25133, sem
jafnframt veitir nánari upplýsingar.
Til sölu Honda Forman 4x4 árg. ’87. Lítur mjög
vel út og er lítið ekið. Nánari upplýsingar í síma
43638.
Dagvist barna
Hamraborg við Grænuhlíð
Fóstru vantar í fullt starf á deild fyrir börn frá 3ja
mánaða til 3ja ára.
Upplýsingar gefur Herdís forstöðumaður í símum
36905 og 21238.
fH Dagvist barna
' 1 ^ Hálsakot við Hálsasel
Fóstra óskast til starfa allan daginn á skóladag-
heimilisdeild.
Upplýsingar gefa forstöðumenn í síma 77275.
Tnn t> bni