Tíminn - 31.03.1988, Blaðsíða 20
20 Tíminn
Fimmtudagur 31. mars 1988
DAGBÓK
Valgerður Hauksdóttir
Valgerður í Gallerí Borg
Valgerður Hauksdóttir sýnir í Gallerí
Borg Pósthússtræti 9. Á sýningunni eru
nýlegar grafíkmyndir. Opið er virka daga
kl. 10:00-18:00 og um helgar kl. 14:00-
18:00. Lokað er föstudaginn langa og
páskadag.
Sýningunni lýkur þriðjudaginn 5. apríl.
Guðmundur Bjórgvinsson
sýnir á Kjarvalsstöðum
Laugardaginn 2. apríl kl. 14:00 opnar
Guðmundur Björgvinsson málverkasýn-
ingu í vestursal Kjarvalsstaða. Sýningin
ber yfirskriftina:“Martin Berkofsky spilar
ungverska rapsódíu nr. 10 eftir Franz
Liszt".
Málverkin á sýningunni eru tæplega 50
að tölu, máluð með akríllitum á striga og
unnin sl. 2 ár.
Sýningin er opin daglega kl. 14:00-
22:00, 2. - 17. apríl.
Fundur Kvenfélags
Háteigssóknar
Kvenfélag Háteigssóknar heldur fund
þriðjudaginn 5. apríl kl. 20:30 f Sjó-
mannaskólanum. Gestur fundarins verð-
ur Baldvin Halldórsson leikari sem mun
skemmta fundarkonum.
Rætt verður um sumarferðalagið.
Kaffiveitingar.
Leikklúbburinn SAGA á
Akureyri: Sýningar á
GRÆNJOXLUM um páska
Unglinga-áhugaleikklúbburinn Saga á
Akureyri sýnir um þessar mundir leikritið
Grænjaxla eftir Pétur Gunnarsson í Dyn-
heimum á Akureyri. Sýningar um pásk-
ana verða þannig:
Á skírdag kl. 17:00, laugardaginn 2.
apríl kl. 20:30, annan í páskum kl. 17:00
og þriðjudag 5. apríl kl. 20:30.
Leikstjóri er Árnheiður Ingimundar-
dóttir en tónlist er eftir Spilverk þjóð-
anna. Leikarar eru 15.
Gránufjelagið-Leikhús
“ENDATAFL"
Gránufjelagið - Leikhús er nú um
þessar mundir að sýna sjónleikinn „Enda-
tafl“ eftir nóbelskáldið Samuel Beckett.
Þýðinguna hefur Árni Ibsen gert og
leikstjóri er Kári Halldór Þórsson.Leikar-
ar í Endatafli eru fjórir, þau Rósa Guðný
Þórsdóttir, Barði Guðmundsson, Hjálm-
ar Hjálmarsson og Kári Halldór Þórsson.
„Endatafl" er sýnt í leikhúsi Gránu-
fjelagsins að Laugavegi 32 og verða næstu
sýningar laugardaginn 2. apríl kl. 16:00
og þriðjudaginn 5 apríl kl. 21:00
Áðgöngumiða má panta allan sólar-
hringinn í síma 14200.
Ferðir SVR um bænadaga
og páska 1988
Strætisvagnar Reykjavíkur munu aka
um bænadaga og páska sem hér segir:
Skírdagur: Akstur eins og á sunnudög-
um.
Föstudagurinn langi: Akstur hefst um
kl. 13:00. Ekið samkvæmt sunnudags-
tímatöflu.
Laugardagur: Akstur hefst á venjuleg-
um tíma. Ekið eftir laugardagstímatöflu.
Páskadagur: Akstur hefst um kl. 13:00,
ekið samkvæmt sunudagstímatöflu.
Annar páskadagur: Akstur eins og á
sunnudögum.
lllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^
Yngve Zakarias í
Gallerí Svart á hvítu
Laugardaginn 2. apríl kl. 14:00 verður
opnuð sýning í Gailerí Svart á hvítu,
Laufásvegi 17. Þar verða sýnd verk
norska listamannsins Yngve Zakarias.
Yngve er búscttur í Berlín og hefur
tekið þátt í fjölmörgum samsýningum
víða í Evrópu og haldið einkasýningar. Á
sl. ári hélt hann stóra einkasýningu í
Norræna húsinu í Reykjavík. Yngve
Zakarías hefur dvalið hér á landi undan-
farnar vikur sem kennari við myndlista-
og handíðaskóla íslands.
Sýningin er opin frá 2. apríl-10. apríl
og er opin kl. 14:00-18:00 alla daga nema
mánudaga. Lokað er á páskadag.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður laugardaginn 2. apríl.
Lagt verður af stað frá Digranesvegi 12
kl. 10:00. Allir velkomnir. Nýlagað
molakaffi á boðstólum.
Skírdagsskemmtun
Barðstrendingafélagsins
Skírdagsskemmtun fyrir eldri Barð-
strendinga verður haldin í Sóknarsalnum,
Skipholti 50A, fimmtud. 31. mars kl.
14:00.
Kór eldri borgara mun koma ogsyngja,
og fleira verður á dagskrá.
Kvennadeild Barðstrendingafélagsins
hefur haft veg og vanda af þessum
skemmtunum og biður deildin fyrir þakk-
læti til þeirra fjölmörgu sem hafa komið
fram og aðstoðað á annan hátt við þessar
samkomur. Kvennadeildin vonast til að
sem flestir sjái sér fært aðkoma og njóta
dagsins.
LEIRLISTARSÝNING
í Gallerí List
Þau Eydís Lúðvíksdóttir og Daði
Harðarson reka leirverkstæðið að Ási í
Mosfellsbæ. Þau sýna nú sýnishorn verka
sinna í Gallerí List í Skipholti 50B.
Sýningin verður opnuð í dag, skírdag, kl.
14:00
Sýningin er opin virka daga kl. 10:00-
8:00 en helgidaga kl. 14:00-18:00. Lokað
er á föstudaginn langa. Sýningunni lýkur
sunnudaginn 10. apríl.
Eydís lauk prófi úr kennaradeild MHÍ
1971. Hún hefur starfað við myndmennta-
kennslu, útstillingar, hönnun o.fl. hjá
Glit hf. frá 1979, en 1987 stofnaði hún og
Daði Harðarson Leirsmiðjuna Ás. Eydts
hefur haldið sýningar: Hönnun ’82,
Einkasýningar á Kjarvalsstöðum 1985 og
’87.
Daði Harðarson lauk námi úr Keramik-
deild MHÍ 1982,og fór síðan í 2ja ára
gestanám í Skolen for Brugskunst í
Kaupmannahöfn. Rak leirverkstæði í
Kaupmannahöfn til ’85 og starfaði við
Glit frá 1985 til þess að Leirsmiðjan Ás
var stofnuð. Daði hefur tekið þátt í
samsýningu í Listmunahúsinu 1982 og
hafði einkasýningu í Gallerí Langbrók
’85.
Hafnarfjarðarkirkja
Skírdagur: Helgistund með altaris-
göngu kl. 20:30.
Föstudagurinn langi: Guðsþjónusta kl.
14:00.
Páskadagur: Hátíðarguðsþjónustur kl.
08:00 og kl. 14:00.
Jens Kristleifsson sýnir
á Kjarvalssstóðum
Jens Kristleifsson sýnir um þessar
mundir verk sín á Kjaravalsstöðum. Sýn-
ingin stendur frá 2. apríl-17. apríl.
Jens er fæddur 1940 í Reykjavík. Hann
segir í fréttatilkynningu, að hann hafi sem
unglingur málað landslagsmyndir, en
reynt ýmislegt annað í myndlistarskóla og
lagt þá að mestu niður að vinna myndir af
landslagi. Einnig sneri hann sér að grafík
og dúkskurði.
Jens fór síðan á Listaháskólann í Kaup-
mannahöfn og vann þar í einn vetur
1966-’67. Hann tók um vorið þátt í
„Vorsýningunni á Charlottenborg" - og
var það í fyrsta sinn sem hann sýndi verk
sín opinberlega.
Næstu ár vann Jens aðallega við grafík,
en hann segir að lokum í kynningu á
sýningu sinni nú:
„En landslagið er aldrei langt undan og
fyrir nokkrum árum lét ég freistast til að
reyna einu sinni enn.“
Aðgangur er ókeypis, og Jens segist
vonast til að nemendur sínir, fyrrverandi
og núverandi, líti inn.
AA • samtókin 34 ára:
Hátíðarfundur í Háskólabíói
Á föstudaginn langa, 1. apríl kl. 21:00,
verður haldinn hátíðarfundur AA - sam-
takanna í tilefni af 34 ára afmæli samtak-
anna . Allir eru velkomnir. Þar koma
fram ýmsir AA - félagar og einnig gestir
fr á Al - anon og A1 - ateen samtökunum,
sem eru félagsskapur aðstandenda
alkóhólista. Kaffiveitingar verða
að fundi loknum.
Ráðhildur sýnir
í Nýlistasafni
2. apríl, laugardaginn fyrir páska, kl.
16:00 opnar Ráðhildur Ingadóttir mynd-
listarsýningu í Nýlistasafninu að Vatnss-
tíg3B.
Á sýningunni eru málverk, unnin ýmist
með olíu eða akrtllitum á sl. ári.
Þetta er önnur einkasýning Ráðhildar.
Sýningin verður opin kl. 16:00-20:00 á
virkum dögum og kl. 14:00-20:00 um
helgar og annan páskadag.
Neyðarvakttannlækna
Neyðarvakt Tannlæknafélags íslands
verður um páskahátíðina.
Upplýsingar í síma 18888.
Moetta Stewart leikur og syngur í Bíókjallaranum undir Lækjartungli
Moetta Stewart í Bíókjallaranum
Til íslands er komin söngkonan Moetta
Stewart og mun hún leika og syngja
nokkur kvöld í Bíókjallaranum, undir
Lækjartungli, Lækjargötu 2. Hún mun
fyrst koma fram mánudagskvöldið 4.
apríl, eða annan í páskum.
Moetta Stewart er hvað þckktust fyrir
að leika á píanó og syngja með sjálfum
rokk-kónginum Jerry Lee Lewis. Hún
ferðaðist með honum í um tveggja ára
skeið á tónleikaferðalögum um Evrópu
og víðar, og kom fram með Lewis á
„live“plötu, sem þótti takast vel. Þau
heimsóttu 11 lönd á fjögurra vikna tón-
leikaferðalagi.
Moetta leikur fjölbreytta tónlist: Rokk
og ról, blús og kántrí-rokk..
Moetta Stewart mun leika á píanó og
syngja í Bíókjallaranum frá n.k. mán-
udegi. Undirleikarar með henni verða:
Rúnar Júlíusson- bassagítar, Bobby
Harrison - trommur og Micky Duff - gítar.
Bíókjallarinn er opinn öll kvöld frá kl.
18:00.
ÚTVARP/SJÓNVARP
Fimmtudagur
31. mars
Skírdagur
7.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Þórhallur Höskulds-
son flytur.
8.00 Fréttir.
8.15 Veðurfréttir
8.20 Létt morgunlög a. Lög eftir Evert Taube.
Göte Lovén leikur á gítar og Giovanni Jacoelli
á klarinettu. b. Ruggiero Ricci leikur lög eftir
Fritz Kreisler. Brooks Smith leikur með á píanó.
c. Vals frá Prag eftir Antonin Dvorák. Sinfóníu-
hljómsveitin í Detroit leikur; Antal Dorati
stjómar.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barnanna: Úr ævi Jesú Á
leið til Jerúsalem. Umsjón Gunnvör Braga.
Flytjandi: Kristín Helgadóttir.
9.15 Tónlist á skírdagsmorgni a. Partíta á
a-moll BWV1013 eftir Johann Sebastian Bach.
Karl Bobzien leikur á flautu. b. „Alles, was ihr
tut mit Worten oder mit Werken", (Hvað sem þér
gjörið í orði eða verki, þá gjörið þaö í nafni
Drottins), kantarta fyrir bassa, fjögurra radda
kór, strengi og fylgirödd eftur Dietrich Buxtehu-
de. Johannes Kunzel bassi syngur með kór
Greifswald dómkirkjunnar og Bach hljómsveit-
inni í Berlín; Hans Pflugbeil stjórnar. c. Óbó-
kvartett í Es-dúr op. 8 nr. 4 eftir Carl Stamitz.
Ray Still leikur á óbó, Itzhak Perlman á fiðlu,
Pinchas Zukerman á víólu og Lynn Harrell á
selló.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð Hermann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Messa í Aðventkirkjunnl á vegum sam-
starfsnefndar kristinna trúfélaga. Erik Guðm-
undsson prédikar. Tónlist.
12.10 Dagskrá.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónlist.
13.05 Börn og umhverfi Umsjón: Ásdís Skúladótt-
ir. (Einnig útvarpað nk. þriðjudagskvöld kl.
20.40)
13.35 „Landshöfðíngin í Júdeu“, smásaga eftir
Anatole France. Magnús Ásgeirsson þýddi.
Róbert Amfinnsson les.
14.05 Fyrir mig og kannski þig Umsjón: Margrét
Blöndal. (Frá Akureyri) (Einnig útvarpað aðfara-
nótt þriðjudags að loknum fréttum kl. 2.00).
15.20 Landpósturinn - Frá Norðuriandi Umsjón:
Gestur Einar Jónasson.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá.
16.03 Dagbókin Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. Þátturinn helgaöur Hallgrími
Péturssyni, ævi hans, starfi og Passíusálmun-
um. Umsjón: Vernharður Linnet, Sigurlaug Jón-
asdóttir og Kristín Helgadóttir.
17.00 Tónlist á síðdegi. a. Svíta nr. 2 í G-dúr eftir
Johann Sebastian Bach. Gunnar Kvaran leikur
á selló. b. „Ristur“ eftir Jón Nordal. Sigurður I.
Snorrason leikur á klarinettu og Anna Guðný
Guðmundsdóttir á píano. c. Duo op. 15 eftir
Burgmúller. Einar Jóhannesson leikurá klrinettu
og Philip Jenkins á píanó. d. Konsertetýða nr.
2 í f-moll, „La leggeriezza“ eftir Franz Liszt.
Halldór Haraldsson leikur á píanó. e. Sónata í
a-moll nr. 132 eftir Carl Philipp Emanuel Bach.
Manuela Wiesler leikur á flautu.
18.00 Torgíð Umsjón: Jón Gunnar Grjetarsson.
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir
19.20 Tilkynningar.
19.25 Daglegt mál Margrét Pálsdóttir flytur þáttinn.
19.30 Að utan Fréttaþáttur um erlend málefni.
20.00 Aðföng Kynnt nýtt efni í hljómplötu- og
hljómdiskasafni Útvarpsins. Umsjón: Mette
Fanö. Aðstoðarmaður og lesari: Sverrir Hólm-
arsson. (Endurtekinn þáttur frá sunnudegi).
20:30 Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands í
Háskólabíói 24. þ.m. Stjórnandi: Páll P.
Pálsson. Einleikari: Anna Guðný Guðmunds-
dóttir. a. „Mistur“ eftir Þorkel Sigurbjömsson. b.
Píanókonsert í c-moll K.491 eftir Wolfang
Amadeus Mozart. c. Sinfónía nr. 1 eftir Dmitri
Sjostakovitsj. Kynnir: Hanna G. Sigurðardóttir
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 „Hvi gengur þú Effersey svo stúrinn?"
Andrós Bjömsson les Ijóð eftir Halldór Laxness,
m.a. þýðingu hans á „Barnamorðingjanum
María Farrar“ eftir Bertholt Brecht.
22.30 Af helgum mönnum. Um dýrlinga kirkjunn-
ar. Fyrri þáttur. M.a. rætt við séra Hjalta
Þorkelssson í Landakoti. Umsjón: Sigmar B.
Hauksson. (Síðari þátturinn er á dagskrá á
annan í páskum kl. 22.20)
23.10 Frá erlendum útvarpsstöðvum.
24.00 Fréttir.
24.10 Frá Schubert-ljóðakvöldi 17. júní 1987 á
Hohenems hátíðinni í Austurríki. „Die
schöne Mullerin" eftir Franz Schubert. Síðari
hluti.
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
01.00 Vökulögin Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagt frá veðri,
færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
7.03 Morgunútvarpið - Leifur Hauksson.
10.05 Miðmorgunssyrpa. Umsjón Kristín Björg
Þorsteinsdóttir.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Á milli mála Umsjón: Snorri Már Skúlason.
16.05 Dagskrá - Guðrún Gunnarsdóttir.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Kvöldtónar Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Nútíminn Kynning á nýjum plötum, fréttir úr
poppheiminum og sagðar fréttir af tónleikum
erlendis.
23.00 Af fingrum fram - Gunnar Svabergsson.
24.10 Vökudraumar
01.00 Vökulögin Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Að loknum fréttum kl. 2.00
verður endurtekinn frá mánudegi þátturinn „Á
frívaktinni" þar sem Þóra Marteinsdóttir kynnir
óskalög sjómanna. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og
sagt frá veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00
og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,
10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00,
17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðuriands
18.30-19.00 Svæðisútvarp Austurlands Umsjón:
Inga Rósa Þórðardóttir.
Fimmtudagur
31. mars
Skírdagur
17.50 Rltmálsfréttir.
18.00 Stundin okkar Endursýndur þáttur frá 20.
mars.
18.30 Anna og félagar Italskur myndaflokkur fyrir
börn og unglinga. Þýöandi Óskar Ingimarsson.
18.55 Fréttaágrip og táknmálsfréttir
19.05 (þróttasyrpa Umsjónannaöur Jón Óskar
Sólnes.
19.25 Austurbæingar (EastEnders) Breskur
myndaflokkur I léttum dúr. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
20.00 Fréttlr og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Spurningum svarað Dr. Sigurbjóm Einars-
son biskup svarar spumingu Halldórs S.
Rafnars, framkvæmdastjóra Blindrafélagsins.
20.50 Bjórgunarafreklð við Látrabjarg- 40 árum
síðar -I þessum þætti enr rifjaðir upp atburðir
sem tengjast björgunarafrekinu við Látrabjarg.
Brot úr kvikmynd Oskars Gíslasonar eru fléttuð
inn í þáttinn en jafnframt er talað við hann og
ýmsa þá sem tóku þátt í björgunarieiðangrinum.
Umsjónarmaður Sigrún Stefánsdóttir.
21.25 Friðarins Guð Sigurður Bragason óperu-
söngvari syngur þrjú íslensk lög í Kristskirkju.
Þau eru: Friðarins Guð eftir Áma Thorsteinsson,
Lilja í útsetningu Þorkels Sigurbjömssonar og
Vist ertu Jesú kóngur klár eftir Pál Isólfsson
(gamalt stef). Stjóm upptðku: Tage Ammen-
drup.
21.40Margt er sér til gamans gert (Playtime)
Frönsk kvikmynd í léttum dúr frá 1967. Myndin
hlaut á sinum tíma fjðlda viðurkenninga og er
talin til sigildra verka kvikmyndasögunnar. Leik-
stjóm og aðalhlutverk: Jacques Tati. Myndin
fjallar um ferð Hulots um París nútímans. Á
þessu ferðalagi henda hann mörg hnyttin atvik,
m.a. á flugvellinum, í heljarmikilli skriftofubygg-
ingu og á veitingahúsi. Þýðandi Ragnar Ólafs-
son.
23.10 Útvarpsfréttir i dagskrárlok.
TÓNLISTARKROSSGÁTAN NO: 102
1 i rn n pn rn
■m
Lausnir sendist til: Ríkisútvarpsins RÁS 2
Efstaieiti 1
108 Reykjavík
Merkt Tónlistarkrossgátan