Tíminn - 31.03.1988, Blaðsíða 23

Tíminn - 31.03.1988, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 30. mars 1988 Tíminn 23 llllllll UM STRÆTI ÖS TORG II.MIIHHH!' ..„iiiilllllllllllllll'^ ........................................................................................................................................................................................................................................... .................................................. ............................................... ........................................................................................................................ .......................................................................................... KRIST1NN SNÆLANPj HRAÐAKSTUR Nokkuð hefur verið ritað um hraðakstur að undanfömu. Sýnist að vonum sitt hverjum. Lögreglu- mönnum sem settir eru á radarvakt eru settar starfsreglur og við mæl- ingar fara þeir vitanlega eftir þeim. Ekki er mér kunnugt um hverjar þær eru en þær hljóta þó að taka mið af þeim ökuhraða sem leyfður er á viðkomandi mælingarstað. Gmnur minn er og sá að jafnframt meti lögreglumenn aðstæður hverju sinni, hvort mikil eða lítil umferð sé, hvort ökufæri sé gott eða slæmt, hvort skyggni sé gott eða slæmt og fleira. Þótt ef til vill megi ekki setja það á prent, þá virðist mér lögreglan fremur leitast við að koma í veg fyrir hættulegan ökuhraða en ólöglegan, með öðr- um orðum, hraðamörkin miðast þá við meginregluna að haga akstri miðað við aðstæður. Innan borgar- marka Reykjavíkur eru 50 og 60 kílómetra mörkin aðalreglan. Þrátt fyrir að víða séu þessi mörk hæfi- legur hraði eru einnig margir langir götukaflar þannig að eðlilegt væri að hækka á þeim leyfilegan há- markshraða. Einnig tel ég koma til greina að setja á sumar götur borgarinnar nætur og daghraða- mörk. Til nánari skýringar vil ég rekja sjávarleiðina frá Skúlatorgi upp að Vatnsendahvarfi og geta þeirra hraðamarka sem ég geri tillögu um á þeirri leið: Sætún að Laugarnesvegi 70 að degi en 80 að nóttu, Kleppsvegur frá Laugar- nesvegi að Holtavegi 50 að degi 80 að nóttu, Elliðavogurfrá Holtavegi og Reykjanesbraut upp að Breið- holtsbraut 70 að degi 80 að nóttu, Breiðholtsbraut frá Reykjanes- braut upp að Vatnsendahvarfi 60 að degi, 80 að nóttu. í þessu sambandi væri „dagur“ frá klukkan sjö að morgni til klukkan níu að kvöldi og „nótt“ hinn tímann. Inn Miklubraut mætti daghrað- inn vera 50 og 60 sem hann er, en næturhraðinn mætti vera 70 og 80. Nætur og daghraðamörkum mætti koma við á miklu fleiri götum sem óþarfi er að rekja hér. Með siíkum hraðamörkum væri komið nær raunsæju mati en nú er, en ávinn- ingur þess að byggja upp raunsæjar hraðatakmarkanir er sá, að því líklegra er að vegfarendur fari ávallt eftir þeim. Jafnframt er lík- legt að þeir taki með meira jafnað- argeði, þegar og ef þeir eru teknir með radar fyrir of hraðan akstur. Vegria þeirra sem kunna að telja mig vera að leggja til meiri hraða á götum borgarinnar en nú er, vil ég segja þetta: Núverandi daghraði er 70 til 90 kílómetrar á flestum aðalleiðum borgarinnar og 70 til 100 að nóttu. Tillögur mínar fela því í sér lækkun hámarkshraða. Að þessu sinni mun ég ekki fjöl- yrða meir um hraðakstur eða hraðatakmarkanir að því leyti er snýr að lögreglu en víkja mér að annarri hlið hraðaksturs. T ryggingarf élögin Sú undarlega staða hefur komið upp í þremur árekstrarmálum sem mér eru kunn, að vátryggingafélög hafa í fyrstu lotu veitt þeim öku- manni sem í óhappi var á aðalbraut 100 prósent rétt þrátt fyrir að skýrslur gæfu í öllum þessum dæm- um til kynna að hann hefði ekið á ólöglegum hraða. Utskýring tryggingarfélaganna var á þá leið að þótt svo að einhver aki með ólöglegum hraða, þá sé engum heimilt að aka í veg fyrir hann. Sannist of mikill hraði á viðkomandi fái hann hinsvegar sjalfsögðu sekt fyrir það. Þau dæmi sem ég nefndi voru öll hliðstæð, „rnínir" ökumenn komu þvert inn á aðalbraut og urðu fyrir bíl sem ekið var með miklum hraða eftir aðalbrautinni. Þrátt fyrir afstöðu- myndir lögreglu sem sýndu greini- lega of mikinn hraða þess er ók eftir aðalbrautinni, neituðu trygg- ingarfélögin í fyrstu alfarið bótum til „míns“ fólks, sem hefði þá þýtt að tryggingarfélögin ætluðu að greiða hraðaksturs-ökumanninum tjón hans að fullu. Með öðrum orðum ólöglegur hraði leiðir ekki til þess almennt að tjónabætur séu í hættu. Þótt ótrúlegt sé eru Trygg- ingarfélögin með þessu í raun að ýta undir þá ökumenn sem hættir til að stunda ofsaakstur. Til nánari skýringar skal ég rekja eitt dæmið. „Minn“ maður ekur þvert yfir Kringlumýrarbraut. Aðvífandi bíll ekur á hans bíl aftan við afturhjól eftir að hafa hemlað yfir 20 metra á skraufþurri götunni. Þá erhöggið og þar með ferðin enn svo mikil að „minn“ bíll kastast í rúman hálf- hring og stöðvast með miklu höggi á kantsteini. í fyrstu neitar trygg- ingarfélag alfarið að greiða „mínum" manni bætur. Þegar er rætt við félagið, upplýsist að á 60 kílómetra hraða sem er hinn lög- legi hraði á Kringlumýrarbrautinni eiga flestir bílar að ná því að stöðva á 20 metrum. Með ákaflega óvísindalegum hætti reyndi ég að meta þann hraða sem þyrfti til þess að kasta viðkomandi bíl í hálfhring með því afli að hann stórskemmist er hann staðnæmdist á kantsteinin- um. Ég gat engan veginn áætlað að sá hraði gæti verið undir 40 kíló- metrum og þó trúlega verulega meiri. Mitt mat var því að ökumað- urinn á aðalbrautinni hefði verið á um eða yfir 100 kílómetra hraða er hann hóf að hemla. Eftir að ég hafði lagt þetta sjónarmið fyrir tryggingarfélagið, féllst það á að greiða „mínum" manni 30 prósent af hans tjóni. Hin dæmin voru svipuð. Með framanrituðu hefi ég fjallað lauslega um tvo þætti hrað- aksturs. Miklu ítarlegar mætti og ætti að fjalla um þessi mál og fleiri ættu þar að leggja orð í belg. Að lokum njótið páskahelgar- innar á lágum hraða. Góða ferð. Kristinn Snæland Phil og meðleikarar í „Buster“, Clive Wood og Martin Jarvis. hann fór í mútur. Honum var spáð frama, sem leikara, en lenti saman við leikstjóra og hét því þá, að leika aldrei framar. Hann stóð við það, þangað til fyrir hálfu öðru ári, að honum var boðið að vera með í Miami Vice. Phil Collins 0g Jill kona hans hittust á veitingahúsi og hún hafði ekki hugmynd um, hver hann var. Honum tókst svo vel upp, að tilboðin hafa streymt til hans síðan. Þó gætir hann þess vel, að leika ekki til að auglýsa nýja plötu heldur aðeins hlutverksins vegna. Hann harðneitaði að skrifa nokkra tónlist fyrir „Buster". - Þetta átti ekki að vera neinn „Coll- ins-pakki.“ Ef fólk vill heyra tónlist mína, er nóg til af henni annars staðar. Phil er tvíkvæntur. Síðari kona hans er heitir Jill, er fyrrum kenn- ari og þau hittust á veitingastað í Los Angeles. - Hún hafði ekki minnstu hugmynd um, hver ég var, segir Phil. - Þess vegna vissi ég strax, að hún var að spjalla við mig af öllum réttum ástæðum. Phil tekur sér hlé frá tónlistinni sex vikur á ári, þegar börnin hans koma í heimsókn og dvelja hjá honum. Þau eru Joely, 14 ára og Simon, 10 ára, sem búa hjá móður sinni í Wancouver í Kanada. Phil býr á sveitasetri í Sussex í Eng- landi. Það skemmtilegasta sem hann gerir er að vinna og það leiðinleg- asta að hangsa og gera ekkert. Rokkisti Tónlistarmaðurinn Phil Collins er vellauðugur og á stórkostlegri velgengni að fagna. Samt er hann jafn óöruggur um sjálfan sig og hver annar. - Maður veit aldrei, hvenær tekjulindirnar þorna, segir hann, - eða hvenær verður kippt undan manni fótunum. Phil er 36 ára og á upp undir 100 milljónir í bankanum fyrir aðeins eitt verkefni - heimsreisuna, sem hann fór í í fyrrasumar, ásamt hljómsveit sinni Genesis. Phil er feikivinsæll, bæði sem liðsmaður Genesis, þar sem hann syngur og trommar, og undanfarið sem plötuframleiðandi. Meðal þeirra sem notið hafa góðs af hæfileikum hans á því sviði, eru Eric Clapton, Paul McCartney og Frida, fyrrum ABBA-stjarna. Þeir sem vilja fá hann til liðs við sig, eru m.a. Paul Young og Tina Turner. Fjárhagsins vegna gæti Phil dreg- ið sig í hlé á morgun og ekki gert handtak það sem eftir væri, en hann er vinnubytta að eigin sögn og vill fremur öllu takast á við ný verkefni. Frá því í haust hefur hann verið til skiptis í London og Mexíkó við upptökur á mynd um sögu lestarræningjans Buster Edwards. Handritið að myndinni, er eitt örfárra, sem honum hafa verið send, sem honum fannst það athyglisvert, að hann las það til enda. Mótleikari hans er Julie Walters. Þegar Phil var 11 ára, söng hann í „OHver“, en varð að hætta, þegar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.