Tíminn - 07.05.1988, Síða 6

Tíminn - 07.05.1988, Síða 6
6 Tíminn Laugardagur 7. maí 1988 Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, um afstöðu vísindanefndar Alþjóða hvalveiðiráðsins: Vistfræðilegu sjónarmiði okkar vex stöðugt fylgi Hnúfubakur við íslandsstrendur. Myndin tekin í hvalatalningarleiðangri Hafrannsóknastofnunar í fyrrasumar. (Ljósmynd: Jóhann Sígurjónssnn) Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra segist ekki endilega vera bjartsýnn, en alltaf jafn sann- færður, um framgang okkar mála hjá Alþjóða hvalveiðiráðinu. Telur hann að þeim vistfræðilegu áherslum sem einkennt hafa stefnu íslendinga í hvalamálum, vaxi stöðugt fylgi og þá ekki síst í Bandaríkjunum. Hvai- veiðar t' vísindaskyni verða í sumar. Fimm manna vísindanefnd íslend- inga er nú komin út til Bandaríkj- anna á fund vísindanefndar ráðsins og mun leggja fram mikið efni og langar ritgerðir um ástand hvala- stofna við ísland og samhengi þess- ara stofna í vistfræðilegu tilliti. Svo virðist sem stöðugt fleiri vísinda- menn hallist nú að því að skoða verði málin í því samhengi, fremur en í Ijósi einhliða friðunarsjónar- miða eða ákveðinna stjórnmála- skoðana. „Það hefur engin áherslubreyting orðið hjá okkur varðandi fundi vís- indanefndar Alþjóða hvalveiðiráðs- ins. Við munum halda á málum með sama hætti og áður. Það er Hafrann- sóknarstofnun og vísindamenn þar, sem stjórna því að öllu leyti án afskipta sjávarútvegsráðuneytis. Þeir hafa unnið mjög mikið að þessu máli og munu leggja fram á fundi vísindanefndar mikið af gögnum og margar ritgerðir. Það mun því verða mikið af efni sem lagt verður fram af hálfu íslands og það er nú svo að það eru ekki margar þjóðir sem leggja til grundvailarrannsóknir. Margir vís- indamenn munu svo fjalla um það sem við og aðrir hafa verið að gera,“ sagði Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, er Tíminn ræddi við hann um Ameríkuför fimm íslend- inga á fund vísindanefndar Alþjóða- hvalveiðiráðsins. Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegs- ráðherra. „Ég veit ekki nákvæmlega um stefnubreytingar meðal annarra. Það er nú svo að pólitík hefur blandast of mikið inn í störf vísinda- nefndarinnar. En ég get nú ekki dæmt á þessu stigi hvernig meðferðin verður í þetta sinn. Hins vegar veit ég að Bandaríkjamenn senda ein- göngu vísindamenn á þennan fund. Hitt er svo annað mál að fundur- inn er haldinn í Bandaríkjunum og við óttumst það að fulltrúar ýmissa samtaka muni verða í kringum þenn- an fund og reyna að hafa þannig áhrif. Það væri alveg nýtt fyrir okkur ef svo væri ekki. Sú staðreynd að fundurinn er haldinn í Bandaríkjun- um er frekar til þess fallinn að auka þá hættu, því að það er mikið af fólki sem ekki gerir annað en að rótast í þessum málum,“ sagði sjávarútvegs- ráðherra. En hvernig líst Halldóri á fram- haldið og þróun sjálfs Alþjóða hval- veiðiráðsins? „Æ, þetta er nú óttalegt stagl. Við vitum nú lítið um það hvernig niður- staðan verður í sumar. Það eina sem við höfum ákveðið, er að leggja fram alla okkar vinnu. Það verður gert af vísindamönnum okkar, sem eru mjögfærir á heimsmælikvarða." Sagði Halldór að hann hafi ekki viljað trufla vísindamennina í starfi sínu, enda hafi þeir verið mjög uppteknir við þetta verk og væru þeir reyndar rétt núna að verða tilbúnir með sínar skýrslur. „Það er út af fyrir sig ekkert nýtt í því. En þessi vinna hefur orðið til að styrkja það sem áður hefur verið haldið fram af okkur. Sérstaklega varðandi talningar á hrefnu og lang- reyði. Allt sem fram hefur komið, hefur orðið til að staðfesta það að ástand þessara stofna er m jög gott.“ Hvað með hvalveiðar í vísinda- skyni við strendur íslands í sumar? „Við höfum ákveðið það að halda þeim áfram og við erum alltaf að verða sannfærðari og sannnfærðari um það að hér sé um mjög þýðing- armikið verkefni að ræða sem snertir ekki aðeins hvalveiðarnar heldur allt okkar lífríki. Þeirri skoðun vex mjög fylgi og ekki síst í Bandaríkj- unum, að það eigi að líta á þessi mál í samhengi. Mér finnst nú að þrátt fyrir allt sé okkar skoðun að vinna meira og meira fylgi, þó að andstað- an við töku dýra er alltaf fyrir hendi. Þetta vistfræðilega sjónarmið sem við erum búnir að tala um, alveg frá því að ég kom að þessu máli, það hefur verið að vinna meira og meira fylgi,“ sagði Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra. Sagði hann að þessi vistfræðilega áhersla f Bandaríkjunum væri farin að segja nokkuð til sín opinberlega. Nefndi hann að í vetur hafi hann orðið þess heiðurs aðnjótandi að flytja inngangserindi á ráðstefnu bandarískra vt'sindamanna um þetta efni. „Ég verð að segja að með því hafi þeir verið að viðurkenna okkar frumkvæði í þessum vistfræðilegu athugunum." Sagðist hann ekki vera neitt sér- staklega bjartsýnn á framgang okkar mála innan Alþjóða hvalveiðiráðs- ins. „En ég er hins vegar jafn sannfærður og ég hef alla tíð verið í þessu máli,“ sagði sjávarútvegsráð- herra. KB Framleiönisjóður landbúnaðarins: Búmarkskaup fyrir rúmar 25 milljónir Framleiðnisjóður landbúnaðarins Yfirlit um kaup og leigu á fullvirðisrétti til kindakjöts og mjólkurframleiðslu eftir búmarkssvæðum í ærgildum árið Á síðastliðnu ári keypti Fram- leiðnisjóður landbúnaðarins búmark fyrir rúmar 25 milljónir. Búmark var hinsvegar leigt á árinu 1987 að upphæð 5.4 milljónir. Þessar upplýs- ingar komu m.a. fram f skriflegu svari landbúnaðarráðherra við fyrir- spurn Hjörleifs Guttormssonar og Margrétar Frímannsdóttur um kaup og leigu á fullvirðisrétti. Fram kemur í svari ráðherra að á sl. ári keypti Framleiðnisjóður full- virðisrétt til mjólkurframleiðslu fyrir 12,7 milljónir króna, samanborið við 9 milljónir árið 1986. Framleiðnisjóður hefur þegar greitt um 74 milljónir króna vegna kindakjötsframleiðslunnar sl. haust. Líkur benda til að þurfi að greiða um 25 milljónir króna vegna mjólk- urframleiðslu þessa verðlagsárs. Þessar greiðslur stafa af því að ekki hefur reynst unnt að uppfylla til fulls ákvæði búvörusamningsins um kaup og leigu á fullvirðisrétti. Frá því að fullvirðisréttur tók gildi í mjólk og sauðfjárafurðum hafa verið margar tilfærslur til skamms tíma, milli einstakra bænda og þá jafnframt innan búmarkssvæða. Á sama tfma hefur verið töluvert um varanlegar tilfærslur fullvirðisréttar og þá að jafnaði innan svæða. óþh 1987. Gullbringu- og Kjósarsýsla Borgarfjarðarsýsla utan Skarðsheiðar Borgarfjarðarsýsla innan Skarðsheiðar Mýrasýsla Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla Dalasýsla Vestur-Barðastrandarsýsla Austur-Barðastrandarsýsla Vestur-ísafj arðarsýsla Norður-ísafjarðarsýsla Strandasýsla Vestur-Húnavatnssýsla Austur-Húnavatnssýsla Skagafjarðarsýsla Eyjafjarðarsýsla auk þriggja hreppa í S.-Þing. vestan Ljósavatnshrepps Aðrirhreppar í S.-Þing. Norður-Þingeyjarsýsla Skeggjastaða- og Vopnafjarðarhreppur Norður-Múlasýsla, að öðru leyti Norðfjörður, Mjóifjörður Stöðvarfj., Breiðdalur, Berunes-. Búlands- og Geithellnahreppur Austur-Skaftafellssýsla V estur-Skaftafellssýsla Rangárvallasýsla Árnessýsla Óskum kaup eða leigu Kaup eða leiga vegna kindakjöts vegna mjólkur 220.4 181.9 136.6 156.1 365.7 265.1 574.2 647.0 1.055.9 696.9 248.0 401.0 70.0 347.0 410.8 115.4 54.4 536.5 61.1 528.2 563.2 839.4 767.7 681.3 1.795.2 370.0 2.251.2 511.8 340.6 1.436.0 641.4 497.4 701.3 1.580.3 821.9 46.8 118.4 979.5 716.4 930.8 158.9 1.313.7 2.656.0 1.937.0 3.050.0 17.963.9 14.814.5 Félag bókagerðarmanna: Samþykkir stuðning við Kvennaathvarfið Aðalfundur Félags bókagerð- armanna var haldinn laugardaginn 30. apríl síðastliðinn. Á fundinum voru fjölmörg mál tekin fyrir, bæði innanfélagsmál og mál sem snerta verkafólk almennt. Fundarmenn samþykktu stuðn- ing við Kvennaathvarfið í Reykja- vík og Krísuvíkursamtökin, en einnig samþykkti fundurinn ein- róma stuðning við verslunarmenn og baráttu þeirra. Mannréttindamál komu einnig til umræðu. í ályktun sem sam- þykkt var, lýsir Félag bókagerð- armanna yfir andstöðu sinni á að- skilnaðarstefnu stjórnar Suður- Afríku, og tekur undir kröfu um efnahagslegar þvinganir á stjórn Suður-Afríku. Einnig beinir félag- ið því til ríkisstjórnar íslands að samþykkja slíkt bann. Þá lýsti fundurinn yfir andstöðu við stefnu ríkisstjórnar ísrael gegn Palestínu- mönnum. Ný stjórn tók við á fundinum og var Þórir Guðmundsson kosinn formaður. -ABÓ Efling byggðar við Reyðarfjörð Verðandi hf. - Þróunarfélag Reyðarfjarðar var stofnað þann 10. mars síðastliðinn á Reyðarfirði. Markmið félagsins að stuðla að efl- ingu byggðarlagsins við Reyðarfjörð á sviði atvinnulífs, menningar og umhverfis. í ályktun sem samþykkt var á ráðstefnu um húsnæðismál sem efnt var til í framhaldi af stofnfundi félagsins kemur meðal annars fram að skortur á íbúðarhúsnæði sé geysi- legt vandamál á Austurlandi. Nú sé svo komið að ekkert íbúðarhúsnæði sé fyrir hendi fyrir þá sem vilji flytjast í byggðarlagið og standi það þróun atvinnumála í byggðarlaginu fyrir þrifum. Því telja ráðstefnugest- ir að eðlilegt sé að fjármagni verði veitt frá Húsnæðisstofnun til bygg- ingar leiguíbúða, á vegum sveitarfé- laga. - ABÓ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.